Morgunblaðið - 27.05.1984, Blaðsíða 39
' MOÍítl'OMBCSÐlÖ^WWUDÁGUR ^. MÁl lð&4
H87
Neskaupstadur
Krakkar í
Neskaupstað
ÞAÐ VAR mikið um að vera í
leikskólanum í Neskaupstað þegar
Morgunblaðsmenn voru þar á ferð
fyrir nokkru. Foreldrar voru með
kaffisölu og ágóða er varið til
kaupa á leikröngum til leikskólans
og dagsferðar foreldra og barna.
„Arið 1982 heimsóttum við börn á
Eskifirði, Reyðarfirði og Egilsstöð-
um og í fyrra var farið með nesti,
gítar og harmoniku upp í sveit.
Þetta voru dýrlegar ferðir fyrir
börnin,“ sagði Kristín Gylfadóttir,
forstöðukoma leikskólans, í sam-
tali við blaðamann. Hún sagði að
um 70 börn væru í leikskólanum.
í Oddsskarði voru nemendur í
Grunnskóla Neskaupstaðar á skíð-
um. „Ég renni mér oft á skíðum og
keppi oft. Hef keppt við Eskfirð-
inga,“ sagði Grétar Jóhannsson,
en hann er átta ára gamall. Grétar
hafði í nógu að snúast ásamt félög-
um sínum, þeim Steingrími Stef-
ánssyni, Vali Þórssyni og Ásmundi
Helga Steindórssyni.
Og stelpurnar báru sig ekki síð-
ur faglega þegar þær renndu sér
niður brekkurnar í Oddsskarði.
Þær Rán Kristinsdóttir, Þórey
Hrólfsdóttir og Sigrún Haralds-
dóttir brostu sína blíðasta þegar
þær stilltu sér fyrir framan Júlíus
Ijósmyndara Mbl. Og síðan var
haldið af stað upp brekkuna.
svæðis á Austfjörðum og í alla
staði ákjósanlegt. Krakkar vilja
ólmir komast í þessa paradís,"
sagði Gunnar Ólafsson.
Kristín Gylfadóttir ásamt Einari, Maríu, Sesselíu Maríu og Þórunni Benný í leikskólanum.
„Oddsskarð er hreinasta skíða-
paradís. Hér er ákaflega sólríkt og
skjólgott. Fjöllin mynda skeifu og
opnast mót suðri,“ sagði Gunnar
Olafsson, fyrrum skólastjóri í Nes-
kaupstað, en hann hefur átt drjúg-
an þátt í uppbyggingu svæðisins.
„Hingað kemur fólk alls staðar að
af Austfjörðum. Svæðið er mið-
Að föndri — allt er á tjá og tundri, en það kemur ekki að sök. Einbeitnin skín úr hverju andliti.
Steingrímur, Valur, Ásmundur og Grétar. Þeir báru sig faglega strákarnir — enda koma þeir Rán, Þórey og Sigrún.
oft í Oddsskarð.