Morgunblaðið - 31.05.1984, Page 2
CFT*'»“» * '^tTrrw riry-.v
• Kí»r»^.'T'^r
r * > »<r . r» cfTrr, * rrrtmv^mirvr.T <•* rr*
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
Hluthafar Iðnaðarbankans:
Hafa nú neytt for-
kaupsréttar á 65 %
hlutafjár ríkisins
HLUTHAFAR Iðnaðarbankans
höfðu í lok dagsins í gær neytt for-
kaupsréttar á 65% af því hlutafé,
Vindling-
ar hækka
Verð á amerískum vindlingum
hefur verið hækkað upp í 54 krón-
ur hver pakki, til að samræma
verðið verði á öðrum vindlingum.
Það er allar vindlingategundir
amerískar sem hækka, nema teg-
undin Lucky Strike, sem kostar
áfram kr. 49,60. Vindlingarnir
kostuðu áður kr. 53,50.
sem ríkissjóður hefur ákveðið að
selja. Vegna fjölmargra fyrirspurna
var frestur til þess að skrá kaup á
hlutahréfum framlengdur til morg-
undagsins, föstudagsins 1. júní. Rík-
issjóður á 27% hlutafjár í bankan-
„Líkur benda til að hluthafar
neyti forkaupsréttar á um 70%
hlutafjár ríkissjóðs," sagði Valur
Valsson, bankastjóri, í samtali við
blm. Mbl. í gærkvöldi. Hann sagði
að mikill fjöldi hluthafa hafi
greinilega ákveðið að nýta sér for-
kaupsréttinn, en hluthafar eru
ails um 1.450, aðallega iðnaðar-
menn, iðnfyrirtæki og starfsfólk í
iðnaði.
Gott vor í Skagafirði
Bær, Mofrta-sirond, 30. maí, 1084.
HÉR í Skagafirdi er allur gróður mikid fyrr á ferð en síóastlidió ár og er
kýrgróður kominn í tún. Skúrir hafa komið í framhéraðinu sem ekki
hafa náð í úthéraðið og vantar þar vætu.
Sauðburður hefur gengið vel
en nokkur vanhöld munu hafa
verið sumsstaðar á refabúum.
Silungsveiði virðist lofa góðu í
sjó, enda er meiri hiti í sjónum
en undanfarin ár.
Vegna hlýinda, sem dag hvern
hafa verið, 8 til 15 stig, hefur
mýfluga verið óvenju mikil ná-
lægt vötnum svo varla nær mað-
ur andanum, enda er silungur
þar úttroðinn af mýflugum.
Fiskafli er tregur hér í Skaga-
firði enda fiskveiði lítil eins og
Fuglalíf er svo mikið að allt er
syngjandi og iðandi af dásam-
legu lífríki. — Björn
Eigendur hins nýja húss að Logalandi 126, Arnar Sigurbjörnsson og Sigrún Sverrisdóttir, taka við lyklunum úr
hendi Gunnars Haraldssonar framkvæmdastjóra.
Grafarvogur:
Fyrsta húsið risið og fullbúið
Fyrsta húsið í hinu nýja Grafarvogshverfi er risið og
fullfrágengið. Hér er um einingahús á Logafold 126 að
ræða en það er Trésmiðjan Ösp hf. í Stykkishólmi sem
er framleiðandi. Húsið er á einni hæð, 145 fermetrar
ásamt 40 fermetra bflskýli.
Á blaðamannafundi sem Ösp hf. hélt af þessu
tilefni kom fram að kaupendur hafa sjálfdæmi um
það á hvaða bygingarstigi þeir taka við'húsi sínu.
Þau eru seld fokheld, tilbúin undir tréverk, eða
fullbúin.
Trésmiðjan Ösp tekur eldri íbúðir upp í kaup-
verð húsanna á markaðsverði. Fyrirtækið sér og
um lánaumsóknir og alla snúninga sem slíkri
byggingu er samfara.
Hið nýja hús verður almenningi til sýnis sem hér
segir: Fimmtudag 31. maí kl. 14.00—22.00. Föstu-
dag 1. júní kl. 14.00—22.00, laugardag 2. júní kl.
10.00—22.00 og sunnudag 3. júní kl. 10.00—22.00.
Fíkniefnasmyglið í Eyrarfossi:
Gæzluvarðhöld styttri
en lögregla krafðist
Fornminjagröftur
á tveimur stödum
Fornleifarannsóknir á vegum
Þjóðminjasafns íslands verða í
sumar með sama hætti og verið hef-
ur undanfarin ár.
Hjá Guðmundi ólafssyni, forn-
leifafræðingi Þjóðminjasafnsins,
fengust þær upplýsingar að haldið
yrði áfram rannsóknum að Þing-
nesi við Elliðavatn, en talið er að
þar hafi verið fyrsti þingstaður ís-
lands, og sé hann jafnvel eldri en
Alþingi. Einnig verður haldið
áfram rannsóknum að Stóruborg
undir Eyjafjöllum, en þar eru leif-
ar af bæjarhól sem nú er að
hverfa vegna sjávareyðinga.
Ennfremur sagði Guðmundur
að í sumar yrði unnið við forn-
leifaskráningu, þar sem gerð yrði
skrá yfir allar þær fornleifar sem
leynst gætu á höfuðborgarsvæð-
DÓMARAR við Sakadóm í ávana-
og fíkniefnamálum úrskurðuðu
mennina flmm í styttra gæzluvarð-
hald en embætti lögreglustjóra fór
fram á. Tveir mannanna voru úr-
skurðaðir í 30 daga gæzluvarðhald
en lögreglan fór fram á 60 daga.
Tveir menn voru úrskurðaðir í 21
dags gæzluvarðhaid. í öðru tilvikinu
var fallist á kröfu lögreglunnar, en í
hinu tilvikinu fór lögreglan fram á
30 daga varðhald. Loks var flmmti
maðurinn úrskurðaður í 15 daga
gæzluvarðhald, en lögreglan fór
fram á 21 dag. Flest bendir til, að
hann hafl einungis verið bflstjóri í
flutningunum með flkniefnin milli
skips og áfangastaðar í Breiðholti.
Alls tók lögregla 700 grömm af
amfetamíni og um 400 grömm af
hassolíu og er líklegt verðmæti
fíkniefnanna talið um 10 milljónir
króna. Þá hafa tveir mannanna
viðurkennt að hafa í janúar síð-
astliðnum smyglað um 300
grömmum af amfetamíni og um
hálfu kílói af hassi með svipuðum
hætti og nú.
Fíkniefnadeild lögreglunnar yf-
irheyrði áhafnarmeðlimi á Eyr-
arfossi í gær. Ekkert hefur komið
fram, sem bendir til að einhver
þeirra eigi aðild að smyglinu og
virðist sem fíkniefnunum hafi ver-
ið komið fyrir á þilfari skipsins án
vitundar skipverja.
Tveir lýtalæknar
á ráðstefnu til Kína
TVEIR íslenskir lýtalæknar, þeir Árni
Björnsson og Leifur Jónsson, eru á för-
um til Peking, þar sem haldin verður
ráðstefna um lýtalækningar dagana
4—8. júní.
Aðspurður kvað Árni ráðstefnu
þessa haldna 1 tilefni þess að fyrir
stuttu var stofnað félag lýtalækna í
Hópdráp á helsingjum kært
til sýslumanns í Skagafirði
— rannsókn málsins
miðar vel áfram, segir
Halldór Jónsson
Stjórn Fuglaverndarfélags fs-
lands hélt fund sl. sunnudag í
kjölfar fréttar Morgunblaðsins
sama dag um hópdráp á helsingj-
um í Skagafirði.
Samþykkti stjórn félagsins að
senda sýslumannsembættinu í
Skagafirði þegar í stað bréf með
þeirri eindregnu ósk að rannsókn
fari fram án tafar.
í bréfinu til sýslumannsins er
á það bent að helsinginn njóti
algerrar friðunar hér á landi á
þessum árstíma. Leiði rannsókn
embættisins í ljós að menn þeir
sem, sagt er frá í fréttafrásögn
Morgunblaðsins, hafi gerst brot-
legir við lögin, beri að skoða
Helsinginn er fallegur fugl.
þetta bréf sem framlagða kæru
Fuglaverndarfélagsins á hendur
mönnum þessum fyrir hópdráp á
helsingjum.
1 samtali er blaðamaður átti
við sýslumann Skagafjarðar,
Halldór Jónsson, kom fram að
rannsókn stæði yfir og beindust
böndin að ákveðnum aðilum á
Akureyri.
Óvíst er hvenær rannsókninni
líkur en haft verður samráð við
rannsóknarlögregluna á Akur-
eyri um lausn þess. Að sögn
Halldórs var embættinu alls
ókunnugt um hópdrápið fyrr en
frétt Morgunblaðsins birtist,
hins vegar hefði lögreglan á
Sauðárkróki haft afskipti af
helsingjaskyttum áður, er skotið
hefðu einn og einn fugl. Hins
vegar er eftirlit erfitt og bændur
lítt áhugasamir að tilkynna brot
af þessu tagi.
Kína. Kínverjar halda ráðstefnuna í
samráói við bandaríska lýtalækna, og
aðallega þá sem vinna á New York
University Hospital.
Árni sagði að ráðstefnan yrði
vafalaust mjög fróðleg, þar sem kín-
verjar væru með fremstu þjóöum i
heimi hvað varðaði græðslu alvar-
legra brunasára. Auk þess væru þeir
frumherjar í ágræðslu afhöggvinna
lima, og væri árangur af starfi
þeirra betri en gerðist annars stað-
ar.
Árni sagði að lokum, að ráðstefnu-
gestir færu að þinginu loknu i 10
daga ferðalag, á vegum svo til sömu '
aðila og stæðu fyrir þinginu. Ætlun-
in væri að skoða sjúkrahús víðs veg-
ar um Kína í þeirri ferð.
í heimsókn
til Færeyja
HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra heldur til Færeyja í opinbera
heimsókn nk. mánudag, og stendur
heimsókn hans til fimmtudags, 7. júní.
í for með sjávarútvegsráðherra verður
sendiherra Dana á íslandi, Pallutin,
sem nú er að hætta störfum hér sem
sendiherra og Einar Ágústsson, sendi-
herra íslands í Kaupmannahöfn.
„Mér var boðið í þessa heimsókn í
júní í fyrra, en ég hef ekki haft tæki-
færi til þess að þiggja boðið fyrr en
nú,“ sagði Halldór Asgrimsson, sjáv-
arútvegsráðherra í samtali við
Morgunblaðið í tilefni Færeyjaferð-
ar hans. „Við eigum mikil samskipti
við Færeyinga, og ég ætla að nota
þann tíma sem ég dvel í Færeyjum
til þess að kynna mér vel sjávarút-
vegsmál Færeyinga," sagði Halldór
jafnframt.