Morgunblaðið - 31.05.1984, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.05.1984, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984 Sýndi Jörund hundadaga- konung á ír- landi við góð- ar undirtektir LEIKFÉLAG Selfoss flutti leikritið Jörund hundadagakonung á ensku á Dundalk leiklistarhátídinni á írlandi sunnudaginn 27. maf, og var Einar Benediktsson sendiherra þar viðstadd- ur. Á ensku nefnist leikritið „Jókers and Kings" og er þýðingin eftir Molly Kennedy en leikstjórn annaðist Viðar Eggertsson. Skemmst er frá að segja aö flutn- ingur ieikritsins tókst með ágætum og var ðllum, er þar áttu hlut að máli, til mesta sóma. Islenska leik- ritið var annað í röðinni á þessari hátíð, sem stendur frá 24. ma! til 3. júní, en þar eru flutt ýmis verk af írskum Ieikflokkum auk erlendra gesta frá Bretlandi, íslandi, Banda- ríkjunum og ísrael. Á eftir sýningu „Jokers and Kings“ var strax gefin umsðgn af dómara, sem var Betty Ann Norton frá Guild of Drama Adjudicators. Voru þau ummæli mjög jákvæð, bæði fyrir verkið sem slikt og flutning þess og var klykkt út með því að segja að það hefði verið „lively with style“, sem er hverju orði sannara. Sýningargestir voru og mjög jákvæðir í sínum um- mælum og stemmning í salnum góð. Einari Benediktssyni sendiherra var gefinn skjöldur leiklistarhátíð- arinnar af forseta hennar, Stephen Burns, og ávarpaði hann leikhús- gesti. Þá var setið einkar skemmtilegt hóf með leikflokknum og ieikstjór- anum, sem mikiö hafði lagt á sig undanfarna 9 mánuði við að æfa og undirbúa flutning þessa ágæta verks á ensku. Var árangurinn að verðleikum og sýningin um leið landkynning fyrir ísland svo sem hún best má verða. (KrétUtilkynning) INNLENT Karlakór Keflavíkur heldur tónleika í Færeyjum Vojjum, 30. maí. KARLAKÓR Keflavíkur heldur í tónleikaferö til Færeyja á upp- stigningardag. Alls 120 manns taka þátt í ferðinni, liðlega 40 söngvarar, eiginkonur og fleiri. Ferðin stendur f eina viku. Kórinn heldur a.m.k. þrjá konserta f Færeyjum, á föstudag í Norræna húsinu f Þórshöfn, þar sem fram koma auk þeirra færeyskur kór og kirkjukórar, en um helgina verður haldið kirkju- kóramót í Þórshöfn. Þá verður á laugardag farið til Klakksvíkur, en þann dag verða mikil há- tíðahöld þar, og heldur kórinn konsert, auk þess að koma fram f skemmtidagskrá um kvöldið. Á sunnudag fer kórinn til Suður- eyja, en karlakórinn mun syngja í kirkjunni í Vogi, þar sem viðstaddir verða færeyski bisk- upinn og danski biskupinn, en þann dag er kór kirkjunnar á kirkjukóramóti í Þórshöfn. Þá heldur kórinn konsert í Vogi. Keflvíkingurinn Sævar Hall- dórsson sem búsettur er f Fær- eyjum hefur verið kórnum innan handar um skipulagningu ferð- arinnar í Færeyjum, og reynt að gera ferðina sem skemmtileg- asta. Kórinn fer frá Keflavíkur- flugvelli með tveimur flugvélum Flugleiða hf. til Egilsstaða, en þaðan verður ekið til Seyðis- fjarðar og siglt með Norröna til Þórshafnar, en þangað verður komið á föstudagsmorgun. Stjórnandi Karlakórs Kefla- víkur er Steinar Guðmundsson, undirleikari er Ragnheiður Skúladóttir. E.G. Albert Guðmundsson um fríhafnarbækling: Ekki ástæða til að kvarta — segir Guðmundur Eiríksson skipstjóri á Haukafelli um humarvertíðina Humarvinnsla í frystihúsi KASK á Höfn í Hornafirði. MorgunblaAið/Steínar. „ÉG SÉ nú ekki ástæðu til að kvarta eins og þetta gengur á humr- inum núna. Við höfum farið í þrjá róðra og fengið að meðaltali 2 lcstir í róðri. Verðið er þokkalegt og verði matið gott ætti afkoman að verða þokkaleg, náum við þeim 18,4 lest- um, sem okkur er heimilað að taka,“ sagði Guðmundur Eiríksson, skipstjóri á Haukafelli SF 111, frá Hornafirði, er Morgunblaðið ræddi við hann um humarvertíðina. Guðmundur sagði ennfremur, að dauft hefði verið yfir veiðinni fyrsta sólarhringinn, en síðan hefði hún verið jöfn þar til nú, en aöeins væri farið að draga úr henni, enda mikið dregið yfir bleyðurnar. Aflinn væri því þokkalegur og svipaður og á sið- ustu vertíð. Hann sagðist vera sáttur við þann kvóta, sem hann hefði feng- Leikfélag Selfoss: Vöruskiptajöfnuður fyrstu fjóra mánuði ársins: Ohagstæður um 685 milljónir Vöruskiptajöfnuður íslands við út- lönd var óhagstæður fyrstu fjóra mán- uði þessa árs um 685 milljónir og 674 þúsund, en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 431 milljón og 842 þúsund krónur. Hafa ber í huga að meðalgengi erlends gjaldeyris f janúar til aprfl 1984 er talið vera 38,4% hærra en það var fyrir sama tímabil 1983. Þetta kemur fram f frétt frá Hagstofunni. Þar kemur jafnframt fram að vöruskiptajöfnuður við útlönd var óhagstæður um 198,5 milljónir f aprflmánuði f fyrra, en f áprflmán- uði í ár var hann óhagstæður um 143,7 milljónir króna. Á fyrstu fjór- um mánuðum þessa árs var útflutn- ingsverðmæti okkar íslendinga alls 6,75 milljarðar, en á sama tíma 1983 4,4 milljarðar. Á1 og álmelmi var í apríl sl. flutt út fyrir 301,78 milljónir en í apríl í fyrra fyrir 382,5 milljónir. Fyrstu fjóra mán- uði þessa árs var flutt út ál og ál- melmi fyrir 1,05 milljarða, en fyrstu fjóra mánuði ársins í fyrra voru þessar vörutegundir fluttar út fyrir 888,7 milljónir króna. Innflutningur fyrir íslenska ál- félagið vegur þyngst bæði tímabil- in, en í fyrra var hann fyrir rétt tæpar 500 milljónir janúar til apríl og í ár nemur hann fyrstu fjóra mánuðina tæpum 650 milljónum króna. Skólalúðrasveit Seltjarnarness ásamt stjórnanda. Skólalúðrasveit Sel- tjarnarness með tónleika Skólalúðrasveit Seltjarnarness heldur tónleika í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 31. maí kl. 15. Efnisskráin er fjölbreytt, bæði innlend og erlend lög. Sveitina skipa 30 hljóðfæraleikarar á aldrinum 9—17 ára. Þeir eru á förum til Danmerkur og Svíþjóð- ar í vinabæjaheimsóknir. Sveitin hefur aflað fjár til ferðarinnar með ýmsu móti, m.a. leikið við fjölda verslana. Þá hafa allmörg fyrirtæki og félög styrkt sveitina og er þeim þakkaður sá stuðning- ur. Á tónleikunum verða kaffiveit- ingar í hléi. (FróUatilkynning) Prófprédik- anir á morgun EMBÆTTISPRÓFI f guðfræði ljúka á þessu vori fjórir guðfræðinemar. Þeir flytja prófprédikanir sínar í kapellu Háskólans á morgun, föstu- dag, og hefst athöfnin, sem er öllum opin, kl. 16. Guðfræðingarnir eru: Baldur Kristjánsson, Baldur Rafn Sigurðsson, Gunnlaugur Garðars- son og Helgi Hróbjartsson. Yfir mig hissa á þessum fordómum og kreddum — audvitað er tvískinnungur í þessu ,*-■ r ■>., Humarinn er þokkalega stór matið gott. ið, verð hefði hækkað um 23% og ef það dygði ekki hjá sér, dygði það ekki hjá neinum. Það væri á hinn bóginn erfitt að humarver- tíðin, aðeins um tveir mánuðir, þyrfti að standa undir þessu að mestu allt árið, þar sem sfldin kæmi orðið illa út fyrir báta frá Höfn og vetrarvertfðin væri orðin óttalegur ræfill. „AUÐVITAÐ er tvískinningur f því. Þetta er ekkert öðru vísi en í inn- flutningi á erlendum tímaritum og blöóum. Það eru áfengis- og tóbaks- auglýsingar í þeim öllum. En við þurf- um alltaf að gera eitthvað sérstakt. Hollenzk flotaheimsókn: Freigáta til sýnis almenn- ingi um helgina ÞRJÍJ hollenzk fley úr flota þar- lendra koma til íslands um næstu helgi. Verður eitt skipanna, freigát- an HNLMS Evertsen, til sýnis fyrir almenning í Sundahöfn iaugardag- inn 2. júní og sunnudaginn 3. júní frá kl. 14 til 16. Auk Evertsen koma til landsins kafbáturinn Tijgerhaai og rann- sóknarskipið Tydeman. Skip þessi eru f flotadeild Atlantshafs- bandalagsins en heimsóknin er á vegum Hollendinga að sögn Árna Kristjánssonar aðalræðismanns Hollands. Við höldum alltaf að við séum sér- stök, en högum okkur svo eins og við séum svo veiklynd að við þorum ekki að vera eins og aðrar þjóðir," sagði Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra, er hann var spurður hvort ekki fælist nokkur tvískinningur f því, að gefnir eru út tveir bæklingar af Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli, annar á íslenzku án áfengis- og tóbaksauglýsinga, en hinn á ensku með auglýsingum um báðar þær vöru- tegundir. Albert var spurður, hvort hann myndi beita sér fyrir afnámi banns á áfengis- og tóbaksauglýsingum. Hann svaraði: „Ég er búinn að gera það, áður en ég varð ráðherra og áður en ég fór í pólitík og ég er löngu orðinn yfir mig hissa á þess- um fordómum og kreddum í hóp- um, sem halda sig vera að gera gagn, en gera það ekki.“ Nú hefur þú valdið, ert ráðherra? „Ég hef alls engin völd, enda heyrir Keflavíkurstarfsemin að öllu leyti undir utanríkisráðuneyt- ið, þó það eigi kannski lagalega séð að heyra undir fjármálaráðuneyt- ið.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.