Morgunblaðið - 31.05.1984, Page 15

Morgunblaðið - 31.05.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984 15 Noregur: „NATO hefur tryggt okkur frið í 35 ár“ Stjórn og stjórnarandstaða sameinast um stefnuna í varnarmálum Indira Ghandi heimsækir særðan hindúa á sjúkrahús í Punjab. Shikar myrða tólf manns Amritsar, Indlandi. 30. maí. AP. Öfgasinnaðir hryðjuverkamenn úr röðum shika höfðu sig mikið í fram- mi í dag, myrtu 12 manns og Isærðu marga fleiri í allmörgum skyndiárás- um í Punjab, þar sem fórnarlömbin voru augljóslega valin af handahófi. í flestum tilvikum voru komu shikarnir þjótandi á léttum skelli- nöðrum, skutu fórnarlömb sín og flúðu síðan af hólmi. í borginni Tarn taran var þó hafður annar háttur á. Þar geystust nokkrir shikar vopnaðir löngum bjúg- sverðum inn í matvöruverslun og klufu í herðar niður. Viðskiptavin einn særðu þeir hræðilegum sár- um. í sömu borg drápu shikar þrjá og særðu fimm er þeir rændu áfengisverslun. Shikar létu ekki við þetta sitja, heldur hótuðu að stöðva alla mat- vælaflutninga til Punjab og knýja þannig á kröfur sínar með hung- urvofunni. Er mikill viðbúnaður við því að koma í veg fyrir að shik- ar láti verða af hótuninni. ösló, 30. mai. AP. NORÐMENN eru staðráðnir í að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Atlantshafsbandalaginu og er um það mikil samstaða milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Kom þetta vel fram á Stórþinginu í gærkvöldi. Varnarmálanefnd þingsins, sem er ein af fastanefndum þess, hefur mótað stefnuna í norskum varnar- málum næstu fjögur árin og var hún tekin til umræðu á Stórþing- inuT gær. Urðu um hana litlar umræður og hún að lokum af- greidd án atkvæðagreiðslu. Stefnumótunin gegnir fyrst og fremst því hlutverki að vera til viðmiðunar þegar rætt verður um fjárframlög til varnarmála á hausti komanda. Stjórnarflokkana og Verka- mannaflokkinn, sem er í stjórnar- andstöðu, greinir aðeins á um ár- lega aukningu framlaga til varn- armála en þeir fyrrnefndu vildu, að þau ykjust um 3,5% en sá síð- arnefndi um 3%. Varnarmála- Óeirðir Port Au Prince, 30. maí. AP. MIKLAR ÓEIRÐIR brutust út í borginni Cap Haitien í norðurhluta Haiti í morgun og tók þaö lögregl- una nokkrar klukkustundir að koma friði á að nýju. Tveir létu lífið og margir særðust, þar af nokkrir sem leggja varð inn á sjúkrahús. Allt at- hafnalíf borgarinnar lagðist niður á meðan ófriðurinn geisaði. Matarskortur er talinn hafa nefndin leggur áherslu á, að „þátttaka Norðmanna og sam- starfið innan Atlantshafsbanda- lagsins hefur tryggt friðinn í okkar heimshluta í 35 ár“. á Haiti verið kveikjan að hinum mann- skæðu áflogum, þannig hófust lætin er hundruð fátæklinga úr hverfi nokkru reyndu að ryðja sér leið inn í matarskömmtunarmið- stöð. Lögreglumenn á verði hleyptu af skotum upp í loftið til að styggja fólkið, en það var eins og að skvetta olíu á eld, fyrr en varði logaði allt í óeirðum og kalla varð út fjölmennt varalið lögreglu. Vísvitandi ögranir við fullveldi Svía Gelli ber hendur fyrir höfuð sér Rómarborg, 30. maí. AP. — segir sænski herinn um pólsku flugvélina Stokkhólmi, 30. maí. Frá Erik Lidén, fréttaritara Mbl. PÓLSKA njósnaflugvélin, sem á mánudag reyndi fjórum sinnum að fljúga inn í sænska lofthelgi, tók þátt í vel skipulögðum njósnaæfingum á Eystra- salti sunnanverðu og voru ögranirnar við Svía liður í þeim. Yfirmenn sænsku ratsjárvarnanna og eftirlitsstöðvar Atlantshafsbandalagsins á Borgundar- hólmi hafa greint frá þessu. LICIO GELLI, miödepill hneykslis- máls í Ítalíu, sem snýst um P-2-leynifé- lagið og meinta meðlimi þess, sendi í dag bréf til rannsóknarnefndar þeirrar sem krufið hefur málið ofan í kjölinn síðustu tvö árin. Þar segir Gelli, að nöfn þau sem fundust á meintu „fé- lagataii" P-2 árið 1981 séu ekki nöfn félaga eins og talið sé, heldur nöfn velunnara samtakanna. Tina Anselmi, formaður rann- sóknarnefndarinnar sagði, að það segði sig sjálft, að bréf, ritað í æs- ingi á síðustu stundu, myndi ekki kollvarpa tveggja ára rannsóknum nefndarinnar. Frú Anselmi staðfesti innihald bréfsins frá Gelli, en sagði jafnframt, að ekkert nýtt kæmi fram, ekkert sem varpaði öðru ljósi á P-2 en nú léki um félagsskapinn. 953 nöfn voru á umræddum lista, mörg þeirra nöfn mikils metinna ítala, úr röðum stjórnmálamanna, hershöfð- ingja, útgefenda og iðnjöfra svo eitthvað sé sagt. Fabio Dean, einn af lögfræðingum Gelli, sagði að þrátt fyrir þrotlausa vinnu heillar nefndar í tvö ár hefði ekki tekist að sanna á Gelli eina ein- ustu hinna „hlægilegu gróusagna". Sagt er að P-2-leynifélagið hafi m.a. haft það að markmiði að fella óhagstæðar stjórnir og eyðileggja mannorð óþægilegra stjórnmála- manna til að ryðja þeim úr vegi. De- an sagði slíkt hreint fáránlegt og endurtók að ekkert sem rannsóknar- nefndin hefði grafið upp styddi þá trú. Tvær sænskar Viggen-þotur stugguðu fjórum sinnum við pólsku njósnavélinni yfir skerja- garðinum í Blekinge en auk henn- ar tóku þátt í ögrunaraðgerðunum stór herflugvél, þrjár þyrlur og fimm skip. Forsvarsmenn sænska flughersins þóttust strax vita hvers kyns var og að flugmaður pólsku vélarinnar væri ekki að reyna að flýja til Svíþjóðar. Strax snemma á mánudags- morgni fylgdist sænski herinn með þegar pólsku skipin, þyrlurn- ar og flugvélarnar hófu æfingarn- ar og var F-17-flugdeildin í Ronn- eby höfð til taks. Um klukkan níu um morguninn gerði pólska njósnaflugvélin fyrstu tilraunina til að rjúfa sænsku lofthelgina og síðan þrjár að auki. Þetta er í fyrsta sinn, sem her- ráðið getur lagt fram fullgildar sannanir fyrir vísvitandi ögrunum erlends ríkis gegn fullveldi Sví- þjóðar. Utanríkisráðuneytið hefur enn ekki fengið skýrslu um málið en herinn segist hafa undir hönd- um ratsjármyndir og myndir, sem teknar voru úr Viggen-flugvélun- um, og sanna fullyrðingar hans. Trúlegt þykir, að borin verði fram mótmæli við pólska sendiráðið í Stokkhólmi. Nýtt lyf veldur fósturláti Tókýó, 30. maí. AP. JAPANSKA stjórnin gaf nýlega grænt ljós á nýja tegund fóstureyð- ingarlyfs, hið fyrsta sinnar tegund- ar. Getur það valdið fósturláti eftir allt að 6 mánaða meðgöngu. Ekki verður hægt að kaupa lyfið hjá lyfsölum, læknar einir munu hafa það undir höndum og veita eftir þörfum og aðstæðum. Hið nýja lyf heitir preglandin og framleiðir vissa tegund af fitusýrum sem valda fósturláti á innan við sólarhring eftir að það er tekið inn. Konur sem neyta lyfsins munu einungis þurfa þriggja sólarhringa sjúkrahús- legu í stað vikulangrar áður. Heilbrigðisyfirvöld í Japan sam- þykktu að leyfa notkun lyfsins með þeim ströngu skilyrðum að farið verði með þau eins og ávanalyf, það er að segja, læknar munu hafa í hendi sér hvenær það er notað og hvenær ekki. Fyrirtækið Ono Pharmaceut- ical framleiðir preglandin og það var talsmaður þess sem greindi frá þessu í dag. Hann gat þess einnig að aðilar í Kína og Bret- landi hefðu lýst yfir áhuga á því að fá lyfið til reynslu. Dollarinn fellur I/ondon, 30. maí. AP. BANDARÍKJADOLLAR féll mjög I verði í dag gagnvart flestum helztu gjaldmiðlum heims nema sterlings- pundinu. Gerðist þetta í kjölfar fregna um að Rolivia hefði að svo komnu frestað endurgreiðslum á erlendum bankalánum. Viðskiptahalli Bandaríkjanna við útlönd í apríl er einnig talinn hafa ráðið miklu um versnandi stöðu doll- arans, en þá nam þessi halli rúmlega 12 milljörðum dollara og var þannig meiri en nokkru sinni áður. Var viðskiptahallinn 2 milljörðum meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Talið er þó, að staða dollarans eigi aftur eftir að styrkjast bráðlega og ráða horfur á vaxtahækkunum í Bandaríkjunum þar mestu. Nýtt símanúmer! Frá og með 1. júní bætist 6 f raman við gamla númeriö JJ á HAGTKVGGING HF VV^ TAKTU TRYGGINGU-EKKI ÁHÆJTU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.