Morgunblaðið - 31.05.1984, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar rltstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 20 kr. eintakið.
Samúðin
með Sakharov
Samúðin með Andrei Sakh-
arov og eiginkonu hans El-
enu Bonner magnast um heim
allan. Hér á landi hefur Félag
íslenskra rithöfunda skorað á
ríkisstjórn Islands að bjóða
þeim landvist. Ritstjórar
dagblaðanna í Reykjavík hafa
sent áskorun til Konstantins
Chernenko, forseta og flokks-
leiðtoga Sovétríkjanna, um að
heimila Elenu að leita sér
lækninga erlendis og leyfa
Sakharov að fara frjálsum
ferða sinna. Meðal almennings
ganga undirskriftalistar þar
sem því er beint til sovéskra
stjórnvalda að sýna Sakharov-
hjónunum mannúð. Þessi við-
brögð hér á landi eru þó aðeins
faldur á mikilli öldu sem nú rís
um allan hinn frjálsa heim eft-
ir að fréttirnar bárust um að
heilsu Elenu hefði alvarlega
hrakað og Sakharov hefði farið
í hungurverkfall til að fá
Kremlverja til að leyfa henni
að leita lækninga vestan járn-
tjalds.
Meðal þeirra sem lýst hafa
samúð með Sakharov er
Mstislav Rostropovits, selló-
leikari, sem var sviptur sovésk-
um ríkisborgararétti 1978
ásamt með konu sinni Galinu
Vichnevskaiu, söngkonu.
Rostropovits sagði í París á
dögunum um vin sinn Andrei
Sakharov: „Við þjáumst með
honum. Við finnum nálægð
hans og þjáningar. Örlög hans
eru að verða prófsteinn á sið-
ferðilegt afl frjálsra manna á
Vesturlöndum. Getum við með
þessu afli bjargað lífi manns
sem deyr fyrir okkur til þess að
við varðveitum frelsi okkar?“
Þetta eru alvöruþrungin orð
sem hinn mikli listamaður læt-
ur sér um munn fara. Ástæða
er til að staldra við þau fyrir
hvern þann sem ann mannlegri
reisn og frelsi. Ástæða er til að
velta því enn og aftur fyrir sér
hvers vegna nokkrum manni í
lýðfrjálsum ríkjum dettur í
hug að mæla því stjórnkerfi
bót sem lítur á þegnana sem
eign sína eins og dráttarvélar
og skriðdreka og neitar meira
að segja að leyfa þeim að leita
sér lækninga.
Þegar Rostropovits var
spurður hvort hann teldi verj-
anlegt af Sakharov að fara í
hungurverkfall svaraði hann:
„Já, af því að hann gat ekki
neitt annað. Sú stund rennur
upp þegar maðurinn verður að
velja: dauðann eða frelsið.
Fyrir sitt leyti hefur Sakharov
reynt allt nema eitt sem kynni
að bjarga honum en hann hef-
ur af hugrekki hafnað: lygi og
uppgjöf." I þessum orðum lýsir
Rostropovits ekki aðeins hug-
rekki Sakharovs heldur felst í
þeim brýning til allra frjáls-
huga manna um að þeir verði
að vera reiðubúnir að leggja
lífið að veði fyrir frelsi sitt, að
það sé ekki betra að vera rauð-
ur en dauður. Hér er snert við
streng sem ætti að vera sterkur
í öllum þeim sem játa kristna
trú og minnast örlaga þeirra
sem fórnað hafa lífinu fyrir
hana.
Kremlverjar túlka að sjálf-
sögðu samúðina með Sakharov
sem aðför að völdum sínum og
áhrifum. Hér á þessum stað
hefur oftar en einu sinni verið
vikið að því hve oft hriktir illi-
lega í hinu sovéska heimsveldi
fyrir tilstilli sterkra einstakl-
inga. Andspænis mönnum eins
og Sakharov sýnist sovéski
björninn standa á brauðfótum
þótt hann sé grár fyrir járnum
og með kjarnorkusprengjur á
hverri kló. En það er ekki þessi
hræðsla Kremlverja sem skipt-
ir máli, hún er eðlislægur hluti
af einræðisstjórnarfari. Fram-
koma sovéskra ráðamanna í
garð Sakharovs sýnir jafn-
framt fyrirlitningu Kremlverja
á þeim hátíðlegu yfirlýsingum
sem þeir hafa gefið til dæmis í
Helsinki 1975 þegar lokasam-
þykkt ráðstefnunnar um öryggi
og samvinnu í Evrópu var und-
irrituð. Hrokinn gagnvart til-
mælum frá hinum frjálsa hluta
heims um manngæsku fyrir
Sakharov er ekki annað en
staðfesting á því að árásin á
suður-kóresku farþegaþotuna
var gerð að yfirlögðu ráði og
útrýmingarherferðin gegn
Afgönum er stunduð sam-
kvæmt áætlunum Kremlverja
sjálfra.
I öllu upplýsinga- og frétta-
flóðinu sem yfir okkur gengur
er nauðsynlegt að greina
kjarnann frá hisminu, átta sig
á því þegar um er að ræða at-
vik eða málefni sem snertir
okkur öll. Sakharov-málið er
eitt slíkra úrslitamála. Miklu
skiptir að sem flestum séu all-
ar hliðar þess ljósar. Fyrir þá
sök er hérmeð skorað á ís-
lenska sjónvarpið að fá tafar-
laust til sýninga leikr.a, breska
sjónvarpsmynd um Andrei
Sakharov og senda hana út
þegar mestar líkur eru á að
sem flestir horfi á hana.
Listahátfð í Reykjavík
„Það er ósköp
gaman að geta
selt verk sín“
— segir Louisa Matthíasdóttir, einn lista-
mannanna 10 sem sýna á Kjarvalsstöðum
„Ástæðan fyrir því að ég sýni svo sjaldan hér heima á íslandi er einfald-
lega sú, að ég er svoddan aumingi við undirbúning sýninga sem þessarar,"
sagði Lousia Matthíasdóttir, listmálari, er blm. Mbl. ræddi stuttlega við
hana í vikunni, þar sem hún var að
Kjarvalsstöðum.
Louisa er ein þeirra tíu ís-
lenskra listmálara, búsettra er-
lendis, sem taka þátt í mikilli
samsýningu sem opnuð verður á
Kjarvalsstöðum kl. 16 á laugar-
dag. Sýningin er liður í Listahátíð
í ár. Auk Lousiu taka Erró,
Tryggvi Ólafsson, Jóhann og
Kristín Eyfells, Hreinn Frið-
finnsson, Sigurður Guðmundsson,
Kristján Guðmundsson, Þórður
Ben Sveinsson og Steinunn
Bjarnadóttir þátt í henni. Allir
listamennirnir að Erró undan-
vinna að uppsetningu verka sinna á
skildum eru staddir hér heima í
tilefni sýningarinnar.
Louisa hefur búið í New York
allt frá árinu 1942. Hún er fædd
1917 í Reykjavík en stundaði
myndlistarnám í Kaupmanna-
höfn og París áður en hún flutti
vestur um haf. Þar hefur hún búið
æ síðan. Það er hins vegar ekki
fyrr en á síðustu árum að vegur
Ix>uisu hefur farið ört vaxandi.
Blm. spurði Louisu hvort ekki
væri erfitt að komast áfram í list-
inni í New York og hvort hana
Louisa Matthíasdóttir við sjálfsmynd.
Morgunbladið/ KÖE.
hefði ekki verið tekið að lengja
eftir framanum eftir áratugastrit
í listinni.
„Nei, í sjálfu sér ekki. Ég komst
fljótt að raun um að það er ekki
alltaf nóg að vera góður listamað-
ur til að vekja eftirtekt. New York
er stór borg og heppnin getur oft
skipt sköpum. Hvað mig snertir
var mig ekkert tekið að lengja eft-
ir viðurkenningu. Mér finnst svo
skelfing gaman að mála að ég
held að það eitt hefði dugað mér.
Hins vegar er svo ósköp gaman að
geta selt verk sín.“
— Gerðist þessi breyting á
listamannshögum þínum skyndi-
lega?
„Nei alls ekki. Þetta hefur verið
að breytast smám saman, hægt og
hægt. En þetta hefur óneitanlega
verið skemmtilegt."
— Hefur ekki hvarflað að þér
að flytja til íslands aftur?
„Nei, ég er ósköp ánægð með
þetta eins og það er nú. Eg kem
hingað á sumrin en dvel annars í
New York og kann vel við þetta.
Ég held ég flytji ekki heim í
bráð.“
Myndir Louisu á sýningunni
eru um 50 talsins og allar málað-
ar hér á landi á undanförnum ár-
um. Fyrirmyndirnar eru í mörg-
um tilvikum úr náttúrunni en
viðfangsefnin eru annars hin fjöl-
breytilegustu.
Ljósmynd Mbl. Júlíus.
Langbrækurnar Jóhanna Þóröardóttir og Edda Jónsdóttir vinna að uppsetningu
verka sinna í Bogasal Þjóðminjasafnsins í gær.
Langbrækur sýna
verk sín í Bogasal
„AÐ ÞESSU SINNI færum við okkur út fyrir Gallerí Langbrók með verkin
okkar og ástæðan fyrir því er sú, að við vildum sýna stærri verk en við
getum verið með þar og einnig fjölgaði okkur úr 14 í 24 á síðastliðnu ári,“
sagði Jóhanna Þórðardóttir, ein Langbróka, í viðtaii við Mbl. í gær. Tilefnið
var, að félagar í Gallerí Langbrók opna nk. laugardag sýningu í Bogasal
Þjóðminjasafnsins í tengslum við Listahátíð.
Á sýningunni verða myndlist-
arverk unnin með mismunandi
tækni, svo sem glermyndir, skúlp-
túrar, pappírslágmyndir, teikn-
ingar, grafík og fleira. Allir félag-
ar í Gallerí Langbrók eiga verk á
sýningunni, en þeir eru: Aðalheið-
ur Skarphéðinsdóttir, sem sýnir
grafík, Ásrún Kristjánsdóttir sem
sýndir blöndu af textíl og mál-
verki, Borghildur Óskarsdóttir
sem sýnir leirskúlptúr, Edda
Jónsdóttir sem sýnir grafík, Edda
Óskarsdóttir sem sýnir keramik-
verk, Elísabet Haraldsdóttir sem
sýnir leirskúlptúr, Guðný Magn-
úsdóttir sem sýnir teikningar,
Guðrún Auðunsdóttir sem sýnir
pappírsverk, Guðrún Gunnars-
dóttir sem sýnir vefnaðarverk,
Guðrún Marinósdóttir sem sýnir
skúlptúr, Guðrún Svava Svavars-
dóttir sem sýnir málverk, Jó-
hanna Þórðardóttir sem sýnir
pappírslágmyndir, Kolbrún
Björgólfsdóttir sem sýnir kera-
mikverk, Lísbet Sveinsdóttir, sem
sýnir glermyndir, Ragna Róberts-
dóttir sem sýnir vefskúlptúr, Sig-
rid Valtingojer sem sýnir grafík,
Sigrún Eldjárn sem sýnir grafík,
Sigrún Guðjónsdóttir sem sýnir
teikningar, Sigurlaug Jóhannes-
dóttir sem sýnir hrosshárs-
skúlptúra, Valgerður Bergsdóttir
sem sýnir grafík og Þorbjörg
Þórðardóttir sem sýnir vefnaðar-
verk. Við opnun og næstu laugar-
daga mun Islenski dansflokkur-
inn sýna fatnað sem hannaður er
af þremur félögum Gallerí Lang-
brókar, þeim Evu Vilhelmsdóttur,
Sigrúnu Guðmundsdóttur og
Steinunni Bergsteinsdóttur.
Sýningin í Bogasal stendur frá
2. til 16. júní og verður opin dag-
lega frá 14 til 22, en í Gallerí
Langbrók eru einnig sýnd ný verk
Lagnbróka í tilefni Listahátíðar.
Galleríið er opið virka daga frá kl.
12—18. Um helgar er opið frá kl.
14-18.
Nýtt íslenskt leikrit:
Fresta
frumsýn-
ingunni
EKKERT verður af frumsýningu
leikritsins Láttu ekki deigan síga
Guðmundur eftir þær Eddu Björg-
vinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur á
Listahátíð eins og áætlað hafði ver-
ið. Verður leikritið væntanlega
sýnt síðar í sumar.
Ástæðan fyrir frestun frum-
sýningarinnar er nokkuð sér-
kennileg. Einn aðalleikaranna,
Kjartan Bjargmundsson, varð á
mánudag fyrir því óhappi að
ökklabrotna er verkpallar
hrundu undan honum og Arnari
Jónssyni, leikara, þar sem þeir
voru að vinna við hús. Arnar
hælbrotnaði á báðum fótum.
Miðasalan
gengur vel
MIÐASALA á atriði I.istahátíðar
hefur gengið ágætlega frá því hún
hófst á þremur stöðum í borginni
sl. fostudag að sögn Bjarna Olafs-
sonar, framkvæmdastjóra hátíðar-
innar. Ekki mætti þó gleyma því,
að nú væri skammt til mánaða-
móta og líklegt væri að miðasalan
tæki kipp á föstudag.
„Það er erfitt að segja ná-
kvæmlega til um sölu miða á
einstök atriði enn sem komið er,“
sagði Bjarni. „Þó er ljóst, að at-
riði eins og tónleikar Lundúna-
fílharmóníunnar, Christu Lud-
wig, Chieftains og Arja Saij-
onmaa vekja athygli og góð
hreyfing hefur verið á miðasölu
á þá. Ekki má gleyma sænska
vísnasöngvaranum Fred Áker-
ström en nær uppselt er á tón-
leika hans nú þegar."
Miðasalan á Listahátið er að-
allega í Gimli við Lækjargötu en
einnig í Miklagarði við Sund og
Vörumarkaðnum á Seltjarnar-
nesi. Sala miða í verslununum
fer fram á fimmtudögum og
föstudögum frá kl. 14 til 18 og
frá kl. 10 til 14 á laugardögum.
Lj6sm. Kristján Ingi Einarsson.
Verk á sýningunni Líf í leir ’84 í Lista-
safni ASÍ.
hennar og sýnir verk sem unnin voru
á tímabilinu frá 1956 til 1967.
Þrettán af fimmtán félögum
Leirlistarfélagsins taka þátt í sýn-
ingunni. Þeir eru: Borghildur
Óskarsdóttir, Edda Óskarsdóttir,
Elísabety Haraldsdóttir, Gestur
Þorgrímsson, Guðný Magnúsdóttir,
Hjördís Guðmundsdóttir, Jóna Guð-
varðardóttir, Jónina Guðnadóttir,
Kolbrún S. Kjarval, Kristín ís-
leifsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir,
Sóley Eiríksdóttir og Steinunn
Marteinsdóttir. Hlutirnir á sýning-
unni eru unnir í steinleir, postulín,
jarðleir og ýmis önnur efni.
Líf í leir ’84 í __
Listasafni ASÍ
Leirlistarfélagið opnar sýningu í
Listasafni ASÍ nk. sunnudag klukkan
15 í tilefni Listahátíðar. Sýningin ber
heitið Líf í leir ’84 og er önnur sýning
félagsins frá stofnun þess árið 1981.
Ragnar Kjartansson er heiðursgestur
Á sýningunni verður sýndur lit-
skyggnuþáttur um sögu leirlistar á
íslandi og í sýningarskrá er ágrip
þeirrar sögu. Sýningin verður opin
alla daga frá kl. 14 til 22 og mun
standa til 24. júní næstkomandi.
Myndir Erró koma
ekki í tæka tíð
— bíða enn í Antwerpen vegna mistaka í flutningi
VEGNA MISTAKA í flutningum verða verk Erró ekki á meðal verka 10 lista-
manna, sem sýna á Kjarvalsstöðum þegar sýningin hefst á laugardag. Von var á
myndunum 5 til landsins í fyrradag en það var ekki fyrr en í gær að mistökin
uppgötvuðust eftir að Rangá hafði verið affermd.
Um leið og mistökin komu í ljós
voru gerðar ráðstafanir til þess að
koma myndunum, sem nú eru í
Antwerpen, til landsins með flugi
en sökum umfangs þeirra reyndist
það ókleift. Þær koma því ekki til
landsins fyrr en á þriðjudag.
Að sögn Þóru Kristjánsdóttur,
listráðunauts Kjarvalsstaða, verður
a.m.k. mynd af Erró á sýningunni
þótt verk hans hafi ekki náð í tæka
tíð fyrir opnunina. „Það er dálitið
skondið en sem ég var að reyna að
fá myndirnar sendar til landsins
með flugi kom maður til mín upp á
Kjarvalsstaði og hafði meðferðis
ljósmynd af málverki Kjarvals af
Érró. Það varð úr, að ég fór þess á
leit við Þorvald Guðmundsson, eig-
anda myndarinnar, að hann lánaði
okkur hana yfir helgina og féllst
hann góðfúslega á það. Myndin af
Erró mun því hanga á veggnum, þar
sem ein mynda hans átti að vera,"
sagði Þóra.
Jón Helgason, landbúnaðarráðherra:
„Verður að vera heild-
areftirlit með kart-
öfluinnflutningi hingað
Segir ráðuneytið ekki hafa neitað einni einustu
beiðni innflytjenda um innflutning á kartöflum
„ÉG SÉ EKKI hvernig innflytjendur
gætu tryggt það með samvinnu við
einstaka kartöfluframleiðendur, að
ekki væri framboð á erlendum kart-
öflum hér á markaðnum, þegar ís-
lcnsk gæðaframleiðsla kemur á
markaðinn,” sagði Jón Helgason,
landbúnaðarráðherra, f samtali við
Morgunblaðið, er hann var spurður
áiits á þeim orðum innflytjendanna
sem rituðu honum bréf og sögðust
mundu tryggja að erlendar kartöflur
væru aðeins á boðstólum hér á landi,
þegar íslensk gæðaframleiðsla væri
ekki fáanleg.
Landbúnaðarráðherra sagðist
telja að eitthvert heildareftirlit
með slíkum innflutningi yrði að
vera, því þessir 6 innflytjendur
sem ritað hefðu bréfið, gætu eng-
an veginn ákveðið hvað eða hversu
mikið aðrir innflytjendur flyttu
inn eða hvenær. Nefndi ráðherra
sem dæmi að hann fengi ekki séð
hvernig þessir innflytjendur gætu
ábyrgst hversu mikið magn
Grænmetisverslun landbúnaðar-
ins flytti inn.
Landbúnaðarráðherra var
spurður hvað hann vildi segja um
orð Þorsteins Pálssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag, þar sem
hann sagði er hann var spurður
hvort hann teldi að samkomulag
um skynsamlegar tillögur sem
sættu sjónarmið neytenda og
bænda gæti náðst við framsókn-
armenn: „Það verður að koma í
ljós. Þeir hafa gefið yfirlýsingar
um stefnumótun í landbúnaði sem
ekki er unnt að skilja á annan veg
en svo að þeir vilji breytingar. Svo
hafa þeir til dæmis undirritað yf-
irlýsingu um að aflétt skuli einok-
un í kartöfluverslun. Því er ekki
að neita að framkvæmd landbún-
aðarráðherra á samkomulagi
stjórnarflokkanna um að leyfa
innflytjendum kartöflukaup er-
lendis á meðan innlendar kartöfl-
ur eru ekki á markaðnum hafa
valdið miklum vonbrigðum. Ráð-
herrann hefur gengið á svig við
það sem um var talað á milli
flokkanna í þessu efni.“
„Mér eru þessi orð með öllu
óskiljanleg," sagði landbúnaðar-
ráðherra, „því hér hefur engri
beiðni um innflutning á kartöflum
verið neitað. Ég veit því ekkert
hvað maðurinn er að fara. Sann-
leikurinn er sá að við óskuðum eft-
ir þvi að fá upplýsingar frá inn-
flytjendunum um það hversu mik-
ið magn þeir vildu flytja inn, en
því höfnuðu þeir. Þá settum við
fram áætlun til þess að reyna að
tryggja að ekki yrði hér kartöflu-
laust, en síðan hafa flestir inn-
flytjendanna komið með áætlanir
um það hvað þeir hyggist gera á
næstunni."
Viðskiptaskuldum sjávarútvegsfyrirtækja breytt í lengri lán:
150 milljónir til
skuldbreytinga
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
sjávarútvegsráðuneytinu um
breytingu viðskiptaskulda sjáv-
arútvegsfyrirtækja í lengri lán.
Með hliðsjón af erfiðri fjár-
hagsstöðu sjávarútvegsins um sl.
áramót og fyrirsjáanlega þrengri
rekstrarafkomu á árinu, hefur
sjávarútvegsráðuneytið beitt sér
fyrir, að bæði stofnlánum og
viðskiptaskuldum sjávarútvegsins
verði breytt í lengri lán, með það
fyrir augum að létta greiðslubyrði
fyrirtækjanna. Hefur sjávarút-
vegsráðuneytið skipað sérstakan
vinnuhóp til þess að fylgjast með
skuldbreytingu viðskiptaskulda
sjávarútvegsins og vinna að sam-
ræmingu hennar. Auk ráðuneytis-
ins eiga Seðlabanki, Landsbanki
og Útvegsbanki fasta aðild að
vinnuhópnum, en gert er ráð fyrir,
að aðrir bankar og sparisjóðir taki
þátt i umfjöllun mála sem þá
varða, auk þess sem Landssam-
band íslenskra útvegsmanna mun
hafa aðstöðu til að fylgjast með
starfi vinnuhópsins.
Viðskiptabankar sjávarútvegs-
ins munu á næstunni vinna að því
að breyta skuldum sjávarútvegs-
fyrirtækja við þá í lengri lán, að
því tilskildu að fullnægjandi
tryggingar séu fyrir hendi og
horfur séu á, að reksturinn geti
staðið í skilum með greiðslur af
lánunum.
Að uppfylltum sömu skilyrðum,
munu bankarnir jafnframt veita
liðsinni sitt til samsvarandi leng-
ingar lausaskulda við viðskiptaað-
ila og opinbera innheimtumenn.
Til þess að greiða fyrir slíkum
samningum í þágu útgerðaraðila
sérstaklega, munu verða til ráð-
stöfunar sérstök útgerðarlán alls
að fjárhæð 150 millj. kr. af því fé,
sem aflað verður af opinberri
hálfu til skuldbreytingar í sjávar-
útvegi. Verða lán af því fé bundin
því skilyrði, að viðkomandi út-
gerðaraðili sýni fram á, að hann
geti fengið breytt lausaskuldum
sínum, miðað við efnahagsreikn-
ing í árslok 1983 hjá helstu við-
skiptaaðilum sínum um fjárhæð,
sem sé a.m.k. tvöfalt hærri en hið
sérstaka útgerðarlán, með sömu
eða hagstæðari lánskjörum og á
því eru. Það er ennfremur skilyrði,
að skuldbreyting þessi í heild
verði hvergi meiri en svo, að eftir
standi eðlilegar og venjulegar
viðskiptaskuldir að mati við-
skiptabanka. Lánin verði yfirleitt
til 5—7 ára, eigin lán banka og
viðskiptaaðila með verðtryggingu
og lögleyfðum vöxtum, nú 4%, en
útgreidd lán með gengisbindingu
og hliðstæðum vöxtum við erlend
lán til þeirra nota.
Viðskiptabankar sjávarútvegs-
fyrirtækja munu hver um sig
kanna þörf viðskiptamanna sinna
fyrir umrædda skuldbreytingu
samkvæmt þeim heimildum, er
þar liggja fyrir. Forráðamenn
fyrirtækja verða hins vegar sjálfir
að taka frumkvæði að samningum
gagnvart öðrum skuldheimtu-
mönnum sinum og koma gögnum
þar að lútandi á framfæri við
viðskiptabanka sinn eða sparisjóð,
en framkvæmd skuldbreytingar-
innar verður í hverju tilviki háð
því, að viðunandi heildarniður-
staða náist að því er varðar trygg-
ingar og möguleika fyrirtækjanna
til að standa í skilum.
Sjávarútvegsráðuneytið,
30. maí 1984.
[ðaffunclur Félags íslenskra rithöfunda:
ISkorar á ríkisstjórnina ad
bjóða Sakharov landvist
ADtLFUNDUR Félaes íslenskra orkuver af neinu tæi og veröa ekki skipti eiga sér stað nnlli þjóðanna.
Askorunin til utanríkisráðherra
„RÍKISSTJÓRNIN hefur ekki fjall
að um þessa áskorun Félags ís-
lenskra rithöfunda, en hún hefur
verið send utanríkisráðherra," sagði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra er blaðamaður Morgun-
blaðsins spurði hann í gær hvort
fjallað hefði verið um áskorun aðal-
fundar Félags íslenskra rithöfunda
til ríkisstjórnarinnar á ríkisstjórn-
arfund. Áskorunin er eins og kunn-
ugt er þess efnis að ríkisstjórn fs-
lands lýsi því yfir að hjónunum
Andrei Sakharov og konu hans sé
heimil landvist á íslandi.