Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAl 1984
Ungfrú Hollywood og Sólarstjama Úrvals:
Úrslit kynnt annað
kvöld í Broadway
ÚRSLITIN í keppninni um titilinn ungfrú Hollywood og sólarstjarna Úrvals
fara fram annað kvöld, föstudagskvöld, í veitingahúsinu Broadway, en sigur-
vegari í keppninni um titilinn ungfrú Hollywood verður fulltrúi íslands í
keppninni Miss Young International.
Þátttakendur í keppninni eru
sex stúlkur, sem kynntar hafa ver-
ið undanfarnar vikur í veitinga-
húsinu Hollywood, og fá allir
þátttakendur vikuferð til Ibiza í
verðlaun, nema sigurvegarnir fá
þriggja vikna ferð, auk þess sem
stúlkurnar fá föt, ilmvötn og ým-
islegt fleira.
Húsið opnar kl. 19.00. Boðið
verður upp á þríréttaða máltíð,
auk ýmissa skemmtiatriða. Á
matseðlinum er koníakslöguð
rjómahumarsúpa, grísahnetusteik
og stjörnuísdesert. Stúlkurnar
koma fram þrivegis um kvöldið, á
síðkjólum og í baðfötum, en úrslit
verða kynnt á miðnætti. Norska
hljómsveitin Four Jets leikur um
kvöldið, en hún verður hér á landi
einungis þessa helgi. Þá verður
tískusýning frá versluninni Goldie
og dans frá dansstúdíói Sóleyjar.
Kynnir á kvöldinu verður Páll
Þorsteinsson og heiðursgestur
Berglind Johansen, nýkjörin feg-
urðardrottning íslands.
Frá blaðamannafundi Samhygðar.
Ljósm. Mbl. Friöþjófur.
Samhygð með undirskriftasöfnun
Félagsmáladeild Samhygðar
gengst um þessar mundir fyrir und-
irskriftasöfnun undir heitinu „Her-
ferð með atvinnu og gegn atvinnu-
leysi“, og hafa nú safnast um 40
þúsund nöfn. Söfnun þessari lýkur
4. júní og verða undirskriftirnar þá
afhentar ríkisstjórn fslands og Sam-
einuðu þjóðunum, en þangað mun
Samhygðarfólk í Evrópu einnig
senda samskonar undirskriftir.
Á blaðamannafundi Samhygðar
30. maí sl. kom meðal annars fram
að ýmis verkalýðsfélög og lands-
sambönd launþega s.s. Dagsbrún,
Félag byggingarmanna, ASÍ og
BSRB, styðja söfnunina.
Þeir Jón S. Halldórsson og Bragi Guðmundsson hafa
keypt þennan 180 hestafla Opel Kadett og munu nota
hann í Skoska alþjóðarallinu. Bfllinn er enskur en stýrið
hefur verið fært á réttan stað...
Birgir Bragason og Eiríkur Friðriksson leigja 260 hest-
afla Ford Escort RS frá Jeff Churchill Motorsport í
Englandi, en það er eitt virtasta leigufyrirtæki Bretlands.
Bfllinn er samskonar þeim er þeir sigruðu JóJó-rallið á,
en þó mun aflmeiri. Morgunblaðið/Gunnlaugur.
Rallakstur:
Skotlandsfarar í vandræðum
Tveir keppnisbflanna ónothæfir eftir óhöpp
„ÉG ER MARGSINNIS búinn að hætta við og ákveða síðan aftur að fara, eftir
að vandræðin með Talbot-bílana komu upp. Núna er ég þó ákveðinn í að fara,
enda búinn að flnna góðan keppnisbíl," sagði Birgir Bragason, í samtali við
Morgunblaðið, en hann er einn átta ökumanna sem hugðist keppa í alþjóðlegri
rallkeppni í Skotlandi í júní. Ein áhöfn hefur orðið að hætta við þátttöku,
vegna óhapps er henti Talbot-bfla, sem þrjár áhafnir hugðust nota í keppninni.
Tveir Talbot Sunbeam Ti bílar,
sem íslensku keppendurnir ætluðu
að leigja frá Nichols Motorsport í
Glasgow urðu fyrir alvarlegum
óhöppum í rallkeppni fyrir viku. I
samtali við Morgunblaðið sagði
Charlie Nichols, eigandi bílanna:
„Þetta var dæmalaus óheppni,
annar bíllinn valt i keppninni, en
hinn billinn ók útaf eftir aðeins
500 metra á fyrstu sérleiðinni og
gjöreyðilagðist! Þann fyrri er hægt
að lagfæra, en vegna tímaskorts er
ekki hægt að færa stýrið yfir fyrir
íslendingana."
Eins og kunnugt er hafa Bretar
stýrið hægra megin í bilunum, í
stað vinstra megin eins og hérlend-
is. Þótti engum íslensku keppend-
anna ráðlegt að aka slíkum bíl og
því stóð aðeins einn nothæfur
Talbot Ti keppnisbíll eftir. Þann
bíl fengu Ásgeir Sigurðsson og
Logi Einarsson, eftir miklar
vangaveltur um hver skyldi næla í
farkostinn. Eftir fjölmargar hring-
ingar til Englands í rallbílaleigur í
leit að bíl fannst Ford Escort RS
keppnisbíll, með stýrið vinstra
megin, en á háu leiguverði enda vel
útbúinn. Eftir að hafa hugsað mál-
ið fram og aftur ákváðu þeir Birgir
Bragason og Eiríkur Friðriksson
að leigja bílinn. Þeir Þorsteinn
Ingason og Sighvatur Sigurðsson
hættu hinsvegar við þátttöku
vegna vandræðanna, en ekki þó
fyrr en að hafa athugað hvort lög-
legt væri að aka Lada Sport í
keppninni. Það mun hinsvegar ekki
löglegt vegna nýrra keppnisreglna.
Fjórði keppnisbíllinn er Opel Kad-
ett þeirra Jóns S. Halldórssonar og
Braga Guðmundssonar, sem þeir
hafa fest kaup á í Englandi. Hefur
stýrið í þeim bíl verið flutt á réttan
stað. Um^líma töldu þeir bílinn
ekki löglegan vegna nýju reglanna,
en í gær kom í ljós að ekkert var
því til fyrirstöðu að bíllinn tæki
þátt í keppninni.
Öll þessi vandræði hafa breytt
málunum töluvert fyrir íslensku
keppendurna, en Talbot-bílarnir
þrír áttu að keppa undir merki
Talbot-umboðsins hérlendis og
bera sömu auglýsingar. „Þessi
vandræði hafa klúðrað dæminu
fyrir okkur, en bílarnir áttu að
vera eins í útliti og með sömu aug-
lýsingar. Þetta mun því koma
þyngra við budduna en við gerðum
ráð fyrir," sagði Ásgeir Sigurðsson
um málið, en allir kapparnir eru
þessa dagana að reyna að safna
auglýsingum til keppninnar í
Skotlandi og undirbúa ferðina.
G.R.
Til margra verka
Skeljungsbúðin
LÍMOG ÞÉTTIEFNI
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
■<?&<
Lisser Frost-Larsen mun leiðbeina fslendingum í líkamsrækt í næstu viku.
Lisser Frost-Larsen til íslands á ný
LISSER Frost-Larsen, ein fremsta líkamsræktarkona heims, kemur hingað til
lands eftir helgina og þjálfar hjá Líkams- og heilsuræktinni Borgartúni 29. Lisser
verður viku hér á landi, frá 2. júní til 7. júní. „Lisser kom hingað til lands í vetur
og vakti óskipta hrifningu og aödáun. Hún er ákaflega alúðleg og þægileg kona og
verður öllum, sem stunda líkams- og heilsurækt í Borgartúni, til aðstoðar með
æflngar. Þá mun hún leiðbeina fólki með mataræði, en hún er vel að sér í þeim
fræðum og sérfræðingur í að ná fitu af fólki,“ sagöi Finnur Karlsson, einn eigenda
Líkams- og heilsuræktarinnar í samtali við Mbl.
Fyrirhugað er að Lisser haldi sýn-
ingar og fyrirlestra fyrir meðlimi
Líkams- og heilsuræktarinnar. Liss-
er heldur síðar í sumar til Banda-
ríkjanna í boði bandaríska blaðsins
/
„Muscle and fitness" til viðtala og í
myndatökur. Blaðið býður árlega
fremsta líkamsræktarfólki heims, og
þykir mikill heiður að hljóta boð
blaðsins.
Sölufélag garðyrkjumanna:
Ekkert því til fyrirstöðu
að garðyrkjubændur
skipti beint við verslanir
MORGUNBLAÐINU hefur borist fréttatilkynning frá Sölufélagi garðyrkju
manna, þar sem sagt er frá einróma samþykkt stjórnar félagsins þann 30. maí sl.
„Stjórn Sölufélags garðyrkju-
manna ítrekar það sem þegar hefur
komið fram m.a. í grein framkv.stj.
félagsins, sem birtist í Morgunblað-
inu í dag, að á því eru engir ann-
markar í samþykktum félagsins, að
þeir félagsmenn sem þess óska segi
sig úr félaginu og hefji viðskipti
beint við smásöluverslanir eða við
þá heildsöludreifingaraðila, sem að
undanförnu hafa lýst áhuga sínum á
sölu og dreifingu innlendrar græn-
metisframleiðslu."
í grein Þorvaldar sem vitnað er til
segir hann m.a. að Sölufélag garð-
yrkjumanna hafi ekkert einkaleyfi,
hvorki til sölu á innlendu grænmeti
né innfluttu og sé þar af leiðandi
enginn einokunaraðili.