Morgunblaðið - 31.05.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
23
Steingrímur Sigurðsson sýnir í Eden:
„Leitast við að kalla
stemmningu í hverri
----------- \
fram Flaggstengur
myndu fyrir þjóðhátíð
Þessi mynd var tekin fyrir framan Innrömmun Renate á Laufásvegi 58 í
Reykjavík, en þar vann Steingrímur af kappi að því að ramma myndir sínar
inn fyrir sýninguna. Þau málverk sem sjást á þessari mynd eru „Frá Höfnum
á Reykjanesi“ og „Frá Reykjanesvita". Ljósm. Mbi. köe.
fíTEINGRÍMUR StTh. Sigurðsson
opnaði í gærkvöldi málverkasýningu í
Edcn f Hveragerði. Sýningin sem
stendur til II. júní er tileinkuð einka-
dóttur Steingríms, Halldóru Maríu
Margréti Steingrímsdóttur sem á 18
ára afmæli í dag.
Þetta er 53. málverkasýning
Steingríms heima og erlendis, og sú
áttunda sem hann heldur í Eden.
Alls eru til sýnis og sölu um 60
myndir, flestar vatnslitamyndir og
nokkrar olíumyndir. Flestar eru
myndirnar málaðar á siðastliðnu ári
og nú i ár.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
Steingrím að máli og spurði hann
meðal annars hvert hann sækti yrk-
isefni sitt.
„Ég sæki yrkisefni meðal annars
vestur á Granda, í Breiðholtið, á
Reykjanes og einnig á austurstríind-
ina, Stokkseyri og Eyrarbakka.
Ennfremur eru nokkrar myndanna
gerðar í Þýskalandsferð 1983. Ég tel
að á Suðurnesjum sé ein mesta
orkustöð á íslandi að Snæfellsnesi,
undir Jökli, og ýmsum stöðum á
Vestfjörðum ólöstuðum."
Eru þær myndir sem þú sýnir
núna að einhverju leyti frábrugðnar
hinum fyrri sem þú hefur sýnt?
„Svo er mér tiáð af óvilhöllum og
trúverðugum. Eg hef gengið nær
sjálfum mér í vinnubrögðum en oft
áður. Sennilega eru myndirnar mót-
aðar af nýjum lífsstíl, „prógram-
inu“, eins og ég kalla það. Ég get til
að mynda ekki hugsað mér að senda
frá mér eina einustu mynd, fyrr en
ég er kominn að mestu leyti í sátt
við hana.“
Hvað áttu við?
„Ég hef orðið að gera kyrfilega
i'.tfobt á siálfiim mér undanfarin
gjöri án þess að gefa sjálfum mér
grið sem ábyrg manneskja. Þetta
hlýtur að hafa áhrif á myndgerð
mína, það fer ekki hjá því. Ég reyni
eftir fremsta megni að tjá mig með
þeim hætti að viðhorf mín gagnvart
lffinu og tilverunni speglist í gegn-
um verkin."
Er ekki hætta á að listmálari sem
málar svo mikið og hefur haldið svo
margar sýningar staðni og taki að
endurtaka sama hlutinn og hann
var að gera fyrir mörgum árum?
„Að sjálfsögðu er hætta á því og
það er ábyrgðarhluti að gefa sig út
Eftir þvf sem tfminn líður og full-
gerðum myndum fjölgar eru vax-
andi kröfur gerðar til manns. Það
reynir óneitanlega meira á mig nú
en áður varðandi endurnýjun, en ég
leitast við að kalla fram stemmn-
ingu í hverri einustu mynd. Sem
betur fer finnst mér lífið ennþá vera
barmafullt af lífi og stemmningu og
þess vegna ætla ég að halda áfram
að mála og skrifa," sagði Stein-
grímur St.Th. Sigurðsson að end-
ingu, en sýning hans var opnuð sem
fyrr segir f Eden í Hveragerði f gær-
kvöldi. Henni lýkur 11. júní nk. kl.
I
Við eigum ávallt til flaggstengur (hvítar
eða lakkaðar), flaggstangafcetur,
fána og línur.
Efni: Oregonpine eða greni.
Lengdir: 6 m, 8V2 m, 11 m, 12 m.
Aðrar stærðir sérsmíðaðar.
'IMBURSALA
SLIPPFELAGSINS
Mýrargötu 2 - simi 10123
aÁeimi//S
Stflhrein form
í þýsku gæðastáli
30 stvkki í
glæsilegum
gjafakassa
spegilslípað.
Juwel 6000. Verð kr. 3.510,- 30 stk. f kassa. 3 stk. kr. 442,-. Spegilslípað með 23 Kanada. Verð kr. 3.510,- 30 stk. í kassa. 3 stk. kr. 442,- spegilslípað.
karata gyllingu.
RAMMAGERDIN
HAFNARSTRÆTI 19 sImar 17910& 12001
Sendum
í póstkröfu.
Athugið að allar gerðir
hnífaparanna eru seld í
stykkjatölu, þannig að
hægt er að fylla uppí eða
auka við eftir þörfum.