Morgunblaðið - 31.05.1984, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
„Mestu skiptir að Vestur-
landabúar haldi siðferðis-
legum styrk sínum“
— segir William A. Rusher, einn helsti
talsmaður bandarískra íhaldsmanna
William A. Rusher, útgefandi bandaríska tímaritsins National Review,
sem margir íslendingar kannast við, var staddur hér á landi á dögunum í
boði Menningarstofnunar Bandaríkjanna, og átti þá blaðamaður Morgun-
blaðsins stutt spjall við hann um bandarísk stjórnmál og stjórnmálaviðhorf
íhaldsmanna, en Rusher, sem er lögfræðingur að mennt og hefur einn um
sextugt, er í hópi kunnustu talsmanna
ur, hnittinn og vel aö sér.
Kosningarnar í Bandaríkjunum
í nóvember nk. eru ofarlega í huga
margra og þótti við hæfi að spyrja
Rusher fyrst hvort hann teldi
sennilegt að Ronald Reagan yrði
endurkjörinn forseti.
„Já, ég er fullviss um að hann
verður kosinn á ný með miklum
meirihluta atkvæða," sagði Rush-
er. „Og mér þykir sennilegt að
Repúblikanaflokkurinn haldi
meirihluta sinum í öldungadeild-
inni, þótt hann verði kannski
naumari nú en eftir síðustu kosn-
ingar. Líklega verða demókratar
áfram í meirihluta í fulltrúadeild-
inni.“
Reagan hefur verið mjög um-
deildur forseti, en Rusher hélt því
fram að hann nyti mikilla vin-
sælda meðal bandarískra kjós-
enda. Hann væri fulltrúi íhalds-
samra viðhorfa, sem ættu rík tök í
bandarísku þjóðinni. „Reagan er
íhaldsmaður og skoðanir hans eru
yfirleitt afdráttarlausar og það
kann fólk að meta.“
Ég spurði í hverju íhaldssemi
forsetans væri einkum fólgin.
„Það má orða það svo, að hann sé
ekki sérlega áhugasamur um að
beita ríkisvaldinu," sagði Rusher,
„og í utanríkismálum aðhyllist
hægristefnu í Bandaríkjunum, rökfast-
hann þá stefnu, að vera á varð-
bergi gagnvart Sovétríkjunum."
Rusher kvað Walter Mondale, sem
um þessar mundir er líklegasta
forsetaefni Demókrataflokksins,
fylgja öndverðri stefnu. „Mondale
finnst sjálfsagt að auka útgjöld
ríkisins og umsýslu þess í þjóðfé-
laginu og hann hefur nokkra til-
hneigingu til að taka mark á frið-
artali Kremlverja."
Ég spurði Rusher hvert yrði að-
almál kosninganna í nóvember.
„Án nokkurs vafa verða efna-
hagsmálin í brennidepli," sagði
hann. „Þau hafa yfirleitt skipt
mestu máli. En auðvitað snúast
kosningarnar líka um önnur mál,
þ.á m. utanríkismál."
Eru Bandaríkjamenn fylgjandi
þeirri utanríkisstefnu sem Reagan
fylgir? „Ef unnt er að tala um al-
menn viðhorf í utanríkismálum þá
held ég að segja megi, að Banda-
ríkjamenn fylgi skoðunum Reag-
ans. Almenningur er t.d. ánægður
með hve staðfastlega forsetinn
gætir hagsmuna okkar á erlendum
vettvangi," sagði Rusher. Hann
kvað á hinn bóginn skoðanamun
um stefnu í einstökum málum. Ef
tekið væri dæmi af Mið-Ameríku,
en viðburðir þar hafa verið mikið í
William A. Rusher
Mbl./Emilía.
fréttum um hríð, þá virtust
Bandaríkjamenn þeirrar skoðun-
ar, að koma yrði í veg fyrir að ný
Kúba yrði til og jafnframt að
bandarísk hernaðaríhlutun kæmi
ekki til greina. Það kynni að vera
vandi að sameina þessi viðhorf og
engin lausn í sjónmáli.
Ákveðni gagnvart Rússum
{ skýrslu, sem breska herfræði-
stofnunin (IISS) í Lundúnum
sendi frá sér fyrir nokkrum dög-
um, kom fram það álit að sambúð
austurs og vesturs hefði ekki verið
verri í tvo áratugi og sérfræðingar
stofnunarinnar töldu að ráðamenn
í Moskvu og Washington yrðu að
deila ábyrgð á því í sameiningu.
Að vonum var Rusher ekki á sama
máli. „í fljótu bragði kannast ég
ekki við þessa stofnun," sagði
hann. „Þær eru æði margar sem
heita svona nöfnum. En hvað sem
því líður er ég ósammála þessu
mati. Ef eitthvað er búum við nú
við meira öryggi en á dögum
Kúbudeilunnar og það má þakka
það Reagan forseta."
Rusher benti á, að það viðhorf,
að taka mark á friðartali Kreml-
verja og leggja ofurkapp á vin-
samleg samskipti við þá, hefði
beðið skipbrot. Hvað sem fögrum
orðum og fyrirheitum Sovét-
manna liði settu þeir hagsmuni
kommúnismans ofar öllu. A dög-
um slökunarstefnunnar hefðu þeir
aukið kúgunina i Sovétríkjunum
og brotið alla frelsisviðleitni í
Austur-Evrópu niður með valdi.
Slökunarstefnan hafi ekki getað
stöðvað innrásirnarí Tékkóslóvak-
íu og Afganistan eða ofbeldis-
verkin í Póllandi og Vesturlanda-
búum því í reynd einskis virði.
Hvaða stefnu á þá að fylgja?
Hvernig er unnt að koma Sovét-
ríkjunum á kné? „Ef Sovétríkin
líða á annað borð undir lok þá ger-
ist það smám saman en ekki í einu
vetfangi. Tíminn — og þá á ég
ekki við blaðið — er bandamaður
okkar," sagði Rusher.
„Það mikilvægasta fyrir okkur
Vesturlandabúa er að við höldum
siðferðisstyrk okkar og samfélög
okkar verði áfram aðlaðandi. Við
verðum að vera áfram frjálsar
þjóðir og ögra þannig einræðinu í
kommúnistaríkjunum."
Bandarískir íhaldsmenn
Það er alkunna að hugtök og
heiti í stjórnmálaumræðu eru
mjög á reiki og rétt að vekja at-
hygli lesenda á því, að menn sem
t.d. eru kenndir við frjálslyndis-
stefnu í Bandaríkjunum mundu í
Evrópu vera kallaðir jafnaðar-
menn eða kenndir við vinstri
stefnu af einhverju tagi. íhalds-
maður þar vestra gæti allt eins
heitið frjálshyggjumaður á Is-
landi. Og það kom raunar á daginn
að Rusher hafði hitt að máli
nokkra íslenska frjálshyggjumenn
og var sammála viðhorfum þeirra.
„Þeir leggja mesta áherslu á
markaðsfrelsi," sagði hann, „og
það er mikilvægt að gera, en við í
Bandaríkjunum, sem köllum okk-
ur íhaldsmenn, teljum ekki síður
þýðingarmikið að fjalla um ýmis
siðferðileg og félagsleg efni. I því
efni byggjum við á bandarískri
hefð og kennum hana við breska
stjórnspekinginn Edmund Burke."
William A. Rusher er félagi í
Repúblikanaflokknum, en sú
stjórnmálahreyfing, sem hann tel-
ur sig einkum til, nefnist „Americ-
an Conservative Movement" og er
rösklega þriggja áratuga gömul. í
fjölmiðlum er oft minnst á „nýja
hægristefnu" og „nýja íhalds-
stefnu" í Bandaríkjunum og við
^ spurt og svarad
I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINSI
Eins og undanfarin ár svarar Hafliði Jónsson garð-
yrkjustjóri spurningum lesenda um garðyrkjumál.
Hægt er að koma spurningum á framfæri í síma
10100 klukkan 13 til 15 alla virka daga.
Kristín Friðriksdóttir spyr:
1. Steinselja
Mig langar til að spyrja um
nokkur atriði viðvíkjandi ræktun
grænmetis.
Er betra að sá steinseljufræjum
innanhúss? Ef svo er, hvenær er
þá heppilegt að flytja plönturnar
út í garð? Éf steinselja er ræktuð í
plastkössum innanhúss, getur
maður þá ræktað hana allan árs-
ins hring? Og að lokum: Hvaða
jarðvegur er heppilegastur fyrir
steinselju og er æskilegt að til-
búinn (kemískur) áburður sé bor-
inn í jarðveginn? Ef svo er, þá
hvaða tegund áburðar?
2. Gulrætur
Ég hef heyrt að heppilegt sé að
leggja gulrótarfræ í bleyti í einn
sólarhring til að þau spíri. Er það
rétt? Gæti hið sama gilt um
steinselju? Er heppilegt að láta
gulrótarfræin liggja lengur en
einn sólarhring í bleyti? Hvaða
jarðvegur er heppilegastur fyrir
gulrætur? Er gott að gróðursetja
gulrætur í sendinn jarðveg?
3. Tómatar og paprika
Hvenær á að sá fyrir tómat- og
paprikuplöntum sem ræktaðar eru
innanhúss? Þurfa þær að vera í
glugga?
4. Kabarbari
Er nauðsynlegt að hafa rabar-
bara á sólríkum stað í garðinum?
5. Jarðarber:
Er hægt að sá fyrir jarðarberj-
um? Ef svo er, hvenær á að sá
fyrir þeim og hvernig á að með-
höndla plöntuna? Hvers konar
jarðvegur er heppilegastur fyrir
jarðarberjaplöntur og hvaða
áburð er best að setja í jarðveg-
inn?
Svar 1: Steinseljan er tvíær og
þarf langan vaxtartíma áður en
hún ber nægilegt af blöðum til að
hægt sé að fara að neyta þeirra.
Til að lengja vaxtartímann er
hyggilegt að sá fræinu í skálar eða
potta og hafa í góðri birtu innan-
húss og heppilegur sáningartími
er eftir miðjan mars, en þá þarf að
gera ráð fyrir því að hægt sé að
planta ungplöntunum í gróðurreit
seinast í apríl eða byrjun maí og
þurfa þær 10x10 sm vaxtarrými
sem algert lágmark, en ekki er þó
ástæða til að hafa mikið bil milli
plantna. Vonlítið er að fá verulega
uppskeru sé ræktað á opnu landi,
en hinsvegar getur steinseljan
gegnt því hlutverki á góðu sumri
að vera bæði nytja- og skrautjurt í
trjábeðum. Eftir að farið er að
taka blöð og stilka til neyslu, þarf
að gefa aukaskammt af köfnunar-
áburði öðru hvoru til að örva
áframhaldandi blaðvöxt hjá plönt-
unum. Að sjálfsögðu er hægt að
lengja vaxtartímann langt fram
eftir vetri með ræktun þeirra inn-
anhúss við góða birtu, en það er
einnig hægt að yfirvetra þær í
gróðurreit úti, ef moð eða létt
skjólefni er lagt yfir og þær eru
varðar fyrir raka, meðan þær hvíl-
ast fyrir næsta vaxtarskeið. Mörg-
um hefur vel gefist að sá fyrir
steinselju í gróðurreit að haustinu
og hafa glugga yfir reitnum allan
veturinn. Steinseljan þarf frjóa og
létta garðmold og nægir tún-
áburður til að góður árangur ná-
ist.
Svar 2: Gamalt og gott ráð er að
leggja gulrótarfræ í bleyti í einn
eða tvo sólarhringa fyrir sáningu,
það flýtir fyrir spírun þess um
tvær til þrjár vikur. Ekki má þó
setja fræið í of mikið vatn. Láta
aðeins fljóta yfir fræið eftir að
það hefur allt blotnað. Rétt er að
hræra í því tvisvar eða þrisvar
sinnum á dag, og leyfa fræinu síð-
an að þorna lítið eitt á dagblaði
eða öðrum heppilegum pappír sem
tekur vel við raka, eða þar til fræ-
ið hefur náð að þorna nægilega til
að það loði ekki saman og að auð-
velt sé að sá því. Gott ráð er að
blanda fræinu saman við sand eða
þurran kaffikorg til að fyrir-
byggja of þétta sáningu. Varast
ber að sá of djúpt — aðeins tvisvar
sinnum þykkt fræsins, eða sem
næst því. Gildir sú regla fyrir flest
fræ.
Tilgangslítið er að færa eða
planta gulrótarplöntum, en mörg-
um hefur hinsvegar vel gefist að
sá í mjólkurhyrnur í janúar eða
febrúar og rækta í gróðurskálum
fram til vors, en þá eru þær flutt-
ar út í garð og grafnar niður hlið
við hlið og verða þannig til raðir
með 15 sm millibili. Þetta er þann-
ig gert að skorinn er botninn úr
hyrnunum og þeim raðað á fjöl
eða plastdúk. Góð mold sett í þær
og fræinu sáð í eina röð í hverja
kyrnu. Við útplöntun er þess gætt
að moldin losni ekki úr ílátunum
meðan verið er að koma þeim ör-
ugglega fyrir í beðinu. Eftir að
uppskeru lýkur eru hyrnuleifarn-
ar fjarlægðar úr garðinum og má
sem best nota þær aftur næsta ár,
ef vel er með þær farið í vetrar-
geymslu. Besti jarðvegur fyrir
gulrætur er sandblandin garð-
mold. í þéttum jarðvegi hættii
gulrótunum til að greina sig í rót-
ina og verða kubbslegar í vextin-
um.
Svar 3: Bæði paprika og tómatar
þurfa alla þá birtu sem völ er á og
ekki eru þær heppilegar til stofu-
ræktunar. Þeim fylgir ekki sérlega
ljúfur ilmur að flestra dómi, en
hafa hinsvegar þann kost að fæla
á brott húsflugur og fleiri hvim-
leiða gesti. Til þessara plantna
þarf að sá í desember eða janúar