Morgunblaðið - 31.05.1984, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
25
hæfi þótti því að spyrja hver væri
munurinn á hinni gömlu íhalds-
stefnu og nýgræðingunum.
„Þeir sem kenna sig við „nýja
íhaldsstefnu" eru flestir fyrrver-
andi jafnaðarmenn, New York-
búar og gyðingar. Þeir gáfust upp
á sósíalismanum á hádögum ný-
vinstristefnunnar á árunum
kringum 1966. Irwing Kristol er
einna kunnastur i þessum hópi.
„Nýju hægristefnuna" má rekja til
ársins 1974 og menn sem telja sig
til þeirrar hreyfingar hafa mestan
áhuga á ýmsum félagslegum mál-
um, eru t.d. miklir andstæðingar
fóstureyðinga. Þetta eru menn,
sem eru raunverulega virkir í
stjórnmálum frá degi til dags,
sitja á þingum, í ráðum og nefnd-
um o.s.frv. Loks get ég nefnt hóp
hægri manna, sem lætur sér mjög
annt um trúarleg efni, hinn
svonefnda „siðaða meirihluta".
Milli þessara hópa er ekki ágrein-
ingur um nein grundvallaratriði,
en skoðanir eru skiptar um ýmsa
hluti," segir Rusher.
Sem fyrr segir er William Rush-
er útgefandi tímaritsins National
Review, sem hann skilgreinir sem
Journal of opinion", en í því felst
að það er eingöngu vettvangur
greina af ýmsu tagi þar sem menn
fara ekki í launkofa með skoðanir
sínar á mönnum og málefnum. Við
tímaritið starfa engir blaðamenn,
en ritstjóri þess er hinn kunni rit-
höfundur William Buckley. Rush-
er heldur því fram að National
Reviewsé höfuðrit hægri manna í
Bandaríkjunum og kannski er það
til að leggja áherslu á það, að
hann segir mér að Ronald Reagan
forseti sé áskrifandi og hafi verið
það í aldarfjórðung! Auk þess að
skrifa í eigið tímarit er Rusher
það sem þar vestra er kallað
„syndicated columnist", þ.e. grein-
ar sem hann skrifar eru keyptar
og birtar samtímis í mörgum blöð-
um um Bandaríkin þver og endi-
löng. Einnig kemur hann reglu-
lega fram í útvarpi og sjónvarpi,
þ.'a m. í hinum víðfræga sjón-
varpsþætti ABC „Good Morning
America". Hann er ennfremur
höfundur nokkurra bóka og sú síð-
asta The Making of the New Maj-
ority Party, sem kom út 1975, seld-
ist í fleiri en 250 þúsund eintökum.
GM
ef uppskeru á að vænta um mitt
sumar.
Svar 4: Engar matjurtir gera
minni kröfur til ljóss en rabar-
bari, en mat sinn heimtar hann ef
hann á að skila uppskeru. Hús-
dýraáburð sem borin er að honum
á haustin launar hann ríkulega og
gefur þá grautarefni í maí, en sé
af honum tekið þarf að bæta við
hann næringu af og til yfir sumar-
ið svo að hann skili góðum hlut í
frystikistuna eða til sultugerðar
sem vetrarforða.
Svar 5: Oft er fáanlegt í blóma-
búðum fræ af jarðarberjum, en
fæstum mun það vel gefast og þarf
langvinna þolinmæði til að bíða
eftir að sjá árangur þeirrar rækt-
unar og endast fáir til, nema
ræktunarmenn með vfsindabakt-
eríu í blóðinu. Þetta eru villiber
eða næstu afkomendur þeirra og
ekki eftirsóknarverð fyrir þá sem
stefna að því að fá hin ljúffengu
jarðarber, sem eru komin af
margra alda kynbættum stofnum
og ávallt fjölgað með blaðskotum
frá jarðrenglum, sem leyft er að
vaxa frá móðurplöntunni þegar
stefnt er að fjölgun, en annars
skornir af, því að þessar renglur
draga nokkuð úr berjauppsker-
unni, einkanlega með því að berin
verða þroskaminni.
Jarðarber eru ekki kröfuhörð
um jarðveg en mikilvægt er að þau
fái nægan raka og að jörð sé vel
undirbúin með nægum húsdýra-
áburði fyrir gróðursetningu. Sem
minnst ætti að hreyfa við jarðvegi
eftir að plöntun hefur átt sér stað.
Annars er þess enginn kostur að
gefa fullnægjandi leiðsögn um
ræktun jarðarberja í þeim svörum
sem hér er hægt að veita og aldrei
geta orðið tæmandi leiðbeiningar
um meiri háttar ræktun.
Sumarið er komið og framundan eru ferðalög og útilegur.
En hvert sem leið þín liggur, skaltu hafa með þér góða
bók og birtugjafa af bestu gerð; litla Ijósálfinn
Þegar aðrir tjaldbúar eru komnir í fastasvefn, þá skalt þú
festa litla Ijósálfinn á bókina og lesa síðan í ró og næði,
án þess að trufla svefnfriðinn.
Einn stærsti kostur iitla Ijósálfsins er að hann getur notast
við rafhlöður og þannig lýst þér við lesturinn, í bílnum,
bátnum, flugvélinni, tjaldútilegunni, sumarbústaðnum, -
hvar sem er!
Borgartúni 22, sími 24590, Reykjavík
Fæst einnig í bóka- og gjafavöruverslunum
Splunkunýtt og smart!
Kynnum nýjar vandaðar innréttingar. Skoðið eldhús
sem er „öðruvísi", svo eigum við allt í stíl, frá
smáhlutum upp í næstum allt sem þér dettur í hug.
H»KIN