Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 32
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆT122
INNSTRÆTI, SÍMI 11630
OPID ÖLL FtMMTUDAfíR- FfiSTl inAKS-
INNSTRÆTI, SÍMI 11340
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Comedie
Francaise
ekki á
Listahátíð
EKKERT verður af komu leik-
ara frá Parísarleikhúsinu
Comedie Francaise á Listahátíð
eins og auglýst hafði verið. Áttu
tvær sýningar að vera á verki
Moliere, Kvennaskólanum, en
þær falla niður.
Að sögn Guðbrands Gísla-
sonar, blaðafulltrúa Listahá-
tíðar, reyndist ekki unnt að
tryggja leikurunum flutning
til Kanada í tæka tíð, þar sem
þeir áttu að sýna tveimur dög-
um eftir sýningarnar hér á
landi.
„Við getum ekki annað en
harmað hvernig fór en það
reyndist ógjörningur að
tryggja hópnum far til
Montreal í tæka tíð, þar sem
hann átti bókaðar sýningar.
Við getum hins vegar huggað
okkur við, að Comedie Franca-
ise hefur boðist til að senda
okkur gestaleik á næstu Lista-
hátíð," sagði Guðbrandur.
Dorgað á bryggjusporði
Við stefni togarans dorga strákarnir á bryggjusporði í Hafn- verið margbreytilegur
arfirði. Ekki er vitað um aflabrögð, en sjálfsagt hefur aflinn breytni á góðviðrisdegi.
-v
Morgunblaðið/ Lárus Karl.
og veiðiskapurinn skemmtileg til-
Erill á Reykjavíkurflugvelli
TÓLF ERLENDAR flugvélar voru á Reykjavíkurflugvelli seint í
gærkvöldi. Þar á meðal voru tvær flugvélar, sem British Aerospace
framleiðir og nú eru mikið að ryðja sér rúms. Flugmenn British Aer-
ospace eru að reynslufljúga annarri hér við land og hin er f eigu Royal
Air Force. Þá voru tvær glæsilegar einkaþotur og Fokker F-28 þota í
eigu kanadíska flugfélagsins Piedmont, en það mun hafa keypt 20
slíkar frá Hollandi.
Einnig voru nokkrar litlar vélar, sem verið er að ferja milli Ameríku
og Evrópu, og bandarískir Rotary-félagar voru á nokkrum flugvélum á
leið á Rotary-þing í Evrópu.
Skuldbreyting í sjávarútvegi:
150 milljónir til að
minnka lausaskuldir
— Hjálpar, en dugar þó skammt í
erfiðri stöðu segir formaður LÍÚ
„ÞESSAR RÁÐSTAFANIR verða vonandi til þess að koma þess-
um málum eitthvað á rekspöl," sagði Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra í samtali við blm. Morgunblaðsins um breyt-
ingar á viðskiptaskuld sjávarútvegsfyrirtækja í lengri lán, sem
ákveðin var í gær, og verður til þess varið 150 milljónum króna,
sem aflað hefur verið með erlendri lántöku. Halldór sagði að
hálfhægt hefði gengið að ákveða þær breytingar sem nú hefðu
verið ákveðnar, en niðurstaða lægi nú fyrir, og yrði vonandi til
góðs.
Kristján Ragnarsson, formað-
ur Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna, sagði að þessi
ákvörðun ráðuneytisins væri
efnd á loforði frá því að fiskverð
Hagnaður Hafskips
22,2 milljónir króna
Tap félagsins af Eddunni var rúmar 19 milljónir
HAGNAÐUR Hafskips hf. af rcglulegri starfsemi félagsins á síðastliðnu ári
nam 41,5 milljónum króna. Tap félagsins af Farskip hf., sem gerði út
farþegaskipið Édduna síðastliðið sumar, nam rúmlega 19 milljónum króna
og var hagnaður félagsins því 22,2 milljónir. „Síðastliðið ár var gott í sögu
Hafskips að flestu leyti. Rekstrartekjur jukust meira en rekstrargjöld og
hagnaður varð á rekstrinum," sagði Páll Bragi Kristjónsson, framkvæmda-
stjóri fjármála- og rekstrarsviðs félagsins, í samtali við Mbl. Aðalfundur
félagsins verður á morgun í Domus Medica.
Rekstrartekjur Hafskips námu
á síðastliðnu ári rúmlega 580
milljónum króna, sem er 76,1%
aukning frá árinu 1982 á sama
tíma og rekstrargjöld félagsins
jukust um 67,5%. Hagnaður af
rekstri félagsins fyrir afskriftir og
fjármagnsgjöld nam tæpum 128
milljónum króna, sem er 22% af
rekstrartekjum. Hafskip hefur nú
7 skip í föstum áætlunarferðum.
f tilefni 25 ára afmælis Haf-
skips hefur félagið meðal annars
látið Erik Smith, listmálara,
myndskreyta ársskýrslu félagsins,
sem lögð verður fram á aðalfund-
inum á morgun.
Engu er líkara en ríkisstjórnin
telji að hægt sé að hækka út-
gerðarkostnað án hækkunar
tekna þótt það sé gert samfara
minnkandi afla. Slík þróun hlýt-
ur að leiða til uppgjafar. Skuld-
breyting er engin lausn á núver-
andi vanda," sagði Kristján
Ragnarsson.
Sjá fréttatilkynningu sjávarút-
vegsráðuneytisins á miðopnu.
var ákveðið í febrúar. Þetta
hjálpaði útgerðarfyrirtækjum
vissulega, en dygði þó skammt.
Þau fengju með þessum aðgerð-
um þriðja hluta ógreiddra
skulda lánaðan til lengri tíma af
fyrrnefndum 150 milljónum, en
þyrftu síðan að semja um %
hluta lánanna við fyrirtæki, t.d.
veiðarfærasala, olíufélög, smiðj-
ur og fleiri.
Nú stæðu yfir viðræður um
nýtt fiskverð og þyrfti það að
hækka talsvert til að skipum
yrði ekki lagt eins og Austfirð-
ingar hefðu talið óumflýjanlegt
á fundi sínum með ráðherra á
dögunum. Þar hefðu þeir talað
fyrir munn flestra útgerðar-
manna, sem einfaldlega sæju
ekki út úr vandanum. Yfirvof-
andi væri olíuverðshækkun,
veiðarfæri hefðu hækkað um
4% hjá Hampiðjunni í gær og
svo væri um fleiri kostnaðarliði.
„Á sama tíma aflast yfirleitt
illa og veiðar eru takmarkaðar.
Grænmeti
flutt inn
með leyfí
ráðherra
Landbúnaöarráöherra veitti
Eggerti Kristjánssyni hf. síödegis
í gær leyfi til innflutnings á
grænmeti. Er hér um tuttugu feta
gám að ræöa meö 8—10 tegund-
um af grænmeti, og var það
væntanlegt til landsins seint í
gærkvöldi.
Að sögn Gísla V. Einarsson-
ar, framkvæmdastjóra Eggerts
Kristjánssonar hf. er von á
annarri sendingu í næstu viku.
Aðspurður sagðist Gísli líta
svo á að með heimild landbún-
aðarráðherra í gær hefði fyrir-
tækið í raun fengið leyfi til
innflutnings á grænmeti.