Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 8

Morgunblaðið - 27.06.1984, Side 8
48 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 Séd niður á barð Þeir hurfu fram af bjargbrúninni Gálgahúmor í hávegum hafður meðan beðið er eftir uppferð FÖSTUDAGINN 25. maí fór Björgtinarsveit Slysavarnafé- lags íslands á Patreksfírði í eggjatökuferð í Látrabjarg en slík ferð hefur verið farin árlega síöastliðin 8 ár, til þess að fjármagna rekstur sveitarinnar. Að þessu sinni fóru 30 manns að bjargbrún- inni, þ.ám. þrír sigmenn og einn Ijósmyndari en hinir sáu um aö slaka sigmönnunum niður. Sigið var niður á stall sem nefndur er „Barðið“ og skagar um 150 metra út frá sjálfu bjarginu. Barðið er frægt fyrir það að af því er dregið nafn sýslunnar, Barðastrandarsýsla. Sigið niður á bjargið er langt og hættulegt og vart framkvæm- anlegt nema undir traustri stjórn reyndra bjargmanna. Bjargið sjálft er á þessum stað 220 metra niður í sjó, en barðið stendur um 50 metra upp úr sjó, er því sigið niður á Barð um 160 m. Bjargið er því þrisvar sinnum hærra en Hallgrímskirkjuturn. Sá sem fyrstur fór í bjargið að þessu sinni heitir Erlend- Gæúaeftirlitið að starfi Kggin send upp ur Kristjánsson, sem var fyrsti maður til að síga niður á Barð ásamt Jóhanni Svav- arssyni eftir 40 ára hlé, en þá hafði afí Erlendar verið síð- asti sigmaður á Barðið. Ég stóð einn eftir á bjargbrún- inni. Þá sagði einhver: „Þú ert næstur góði.“ Ég verð að viður- kenna að þegar ég hugsaði um mig eftir örstutta stund hangandi í bandi niður 160 m sig fékk ég að- eins i magann. Jæja, hugsaði ég, ég er ennþá lifandi og því skyldi ég ekki lifa þetta af, auk þess er ég alltof ungur til að deyja. En lengra komust vangaveltur mfnar ekki, því nú þurfti ég að fara í „sigbuxurnar" og tilheyrandi út- búnað, og taka t.d. talstöð með mér sem ég átti að nota til að segja hversu hratt ég vildi síga, þ.e. hratt, rólega eða stopp. Nú þegar undirritaður var búinn að síga rólega niður fyrstu 40 m eða svo með hjartað í buxunum þá ætlaði sá hinn sami að sýna hvað í honum byggi og bað um „hratt" og það var hratt, en svo illa vildi til að skömmu eftir þessa vanhugs- uðu ákvörðun bilaði talstöðin (þessi elska) þannig að þegar Keli litli (ég) vildi fara hægar heyrðist ekkert í talstöðinni uppi og ég hélt áfram með sama hraða niður, með þeim afleiðingum að minnstu munaði að eitthvað fleira færi f buxurnar en hjartað. Þetta var þó ekki nóg heldur snilliputtinn ég (trúlega þumalputti) að fara vit- laust niður og lenti því ekki á barðinu fræga heldur framhjá og langleiðina niður í sjó þar til einn bjargmannanna með talstöð í lagi gat gert viðvart þannig að ég var hífður spottakorn upp aftur og gat leiðrétt þessa skekkju. Ég komst síðan heilu og höldnu niður á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.