Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 9

Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 49 EfSgjatínslan á fullu Smjattað á súkkulaði í einni pásunni Barð. Þegar þangað var komið og búið að bjóða mig velkominn fór ég að litast um, en barðið er eins og fyrr sagði um 150 m langt og 50 m hátt úr sjó og frá 20 cm upp í 3 m á breidd á brúninni. Augnabliki síðar var maður önnum kafinn við eggjatöku og ljósmyndun. Þarna er fuglinn svo gæfur og frjósamur að við lá að hann verpti uppí mann ef maður geispaði of lengi. Þannig gekk þetta fyrir sig í nokkra tíma, tínt og rétt blásið á milli, a.m.k. hjá hinum þremur, ég gerði lítið annað en að þvælast fyrir. Nú var farið að líða á nótt- ina og veður tekið að versna og við fórum því að hugsa til heimferðar og fyrsti maður farinn að gera sig kláran fyrir uppferð. Þegar hann var kominn upp for ég og var feg- inn að þurfa ekki að bíða lengur því það var orðið fremur napurt þarna niðri. Ferðin upp var ekki síður ævin- týraleg en ferðin niður. Allt gekk eins og í sögu þar til ég var kom- inn uppá nös sem stendur utúr bjarginu en þá hjálpuðust hlið- arstrekkingin á línunni og vindur- inn að við að feykja mér til hliðar, þannig að ég sprangaði þarna nokkra tugi metra en var ekki við- búinn þessu og náði því ekki að setja fæturna fyrir mig og kom þá gamli klifurhjálmurinn að góðum notum rétt einu sinni. Gerðist þetta svo skjótt að enginn tími gafst til að verða hræddur, enda ekkert slakað á með hífinguna. Skömmu síðar stóð ég hreykinn á bjargbrúninni. Hinir tveir sem eftir voru komu svo von bráðar og urðu þá allir fegnir, enda hafði tekist vel til þrátt fyrir smá óhöpp og rúmlega 2.500 egg höfðust upp úr krafsinu. TOYOTA 71 -rtafe tófftiarks bi\ana: + tíðni, bjóðum við fyrUt,Y8®’ ferðaskobun. .ftuteim, olía EW >T!aail5 Ébaereitthvaðsérstakt S.'Srsi-t * fyr'ir I h ,|jKrx Ferbaskoðun TOYOTA Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.