Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 16
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
Boston Celtics enn einu sinni „I
Sigraði Lakc
úrslitakeppni
— Það þótti ekki góðs viti ffyrir Lakers að Abdu
Boston Celtics eru Bandaríkjameistarar í körfuknattleik 1984. Þeir sigri
111 stigum gegn 102. Leikurinn fór fram á heimavelli Boston. Larry Bird, fi
Þaö þurfti sjö leiki til aö knýja fram úrslitin þetta áriö, en nýjar reglur g<
Úrslitakeppninni er nú þannig háttaö, að 8 efstu liöin í hvorri deild ööla
leik, fyrr en þaö hefur tapað þremur eða fjórum leikjum í umferð. í fyrstu u
sinnum til aö halda velli.
Los Angeles Lakers voru einráöir í vesturdeildinni eins og undanfarin á
af orðið Bandaríkjameistarar tvisvar. Leiö þeirra í lokaúrslitin var greiö.
umferö. Dallas Mavericks fengu viölíka útreiö (4—0) og Phoenix Suns i
greinilega í toppformi og sýndi allar sínar bestu hliöar.
Liö Boston Celtics átti ekki eins auövelt uppdráttar í úrslitum austurde
reglulegri deildakeppni meö 62 sigra og 20 töp.
I fyrst umferö sigruöu þeir Washington Buliets (3—1), en síðan lá viö aö
liö þetta keppnistímabil og fóru batnandi. Einn leikmanna þeirra er Berm
jafnt, þrír sigrar á báöa bóga, en Boston náöi aö merja sigur í síðasta leiki
Þaö var fleira sögulegt í fyrstu
umferöunum í austurdeildinni.
Meistarar síöastliöins árs, Phila-
delpia 76ers duttu út í fyrstu umferö.
Liöiö mætti New Jersey Nets og tap-
aöi 2—3. New Jersey vann fyrstu
tvo leikina, Philadelphia náöi aö
jafna, en varö aö lúta í lægra haldi f
æsispennandi lokaleik, 98—101.
Auk þess aö hafa veriö slappir, hefur
Philadephia átt viö ýmsa erfiöleika
aö etja. Miöherjinn, Moses Malone,
sem var frá í 3 vikur vegna meiðsla
og sneri aftur feitur og þungur, náöi
sér aldrei almennilega á strik og dr.
Julius Erving var kraftlítill og virkaöi
þreyttur.
New Jersey tapaöi síöan fyrir
Milwaukee Bucks í næstu umferö,
sem mætti svo Boston Celtics í síö-
ustu umferö austurdeildarinnar.
Boston varö fyrir mestu auömýkingu
i sögu liösins í fyrra, þegar Milwauk-
ee vann þá í fjórum leikjum í röö og
geröi alla úrslitadrauma aö engu.
Celtics voru ákveönir í aö láta þaö
ekki endurtaka sig og sigruöu í
þremur fyrstu leikjunum, töpuöu
þeim fjóröa en unnu þann fimmta.
Liö Milwaukee var ekki auöunniö, en
Boston-liöiö sýndi góöa leiki.
Þar meö var Ijóst, aö draumur
körfuknattleiksáhugamanna var
oröinn aö veruleika. Boston Celtics
og Los Angeles Lakers leiddu loks
saman hesta sína í úrslitum um
NBA-titlinn.
Þaö eru fimmtán ár síöan þessi iiö
kepptu síöast í úrslitum NBA. Þaö
var á þeim árum, þegar Biil Russell
og Wilt Chamberlain voru skærustu
stjörnur deildarinnar. Russell var þá
leikmaöur og þjálfari Boston Celtics,
en Chamberlain lék meö Los Angel-
es Lakers. Þeir voru báöir miöherjar
og böröust hart og lengi. Cham-
berlain var þá á hápunkti ferils síns,
sem væntanlega mun teljast sá
makalausasti í sögunni, þrátt fyrir aö
ýmsum hafi tekist aö ná af honum
einni og einni skrautfjööur. Eftir
stendur, aö á fjórtán ára ferli varö
Wilt aldrei aö hverfa af leikvelli meö
6 víti (í NBA þarf sex víti til aö dæma
leikmann úr leik og fær hann ekki
eitt viöbótartækifæri í framleng-
ingu), sem er ótrúlegt, þegar haft er
í huga, aö hann tók aö meöaltali
22,7 fráköst í leik á ferli sínum, var
yfirburða varnarmaöur og varöi skot
í akkoröi. Enginn státar af öörum
eins skorafrekum og Chamberlain.
Kareem Abdul-Jabbar tók aö vísu af
honum heildarstigametin í vetur, en
Wilt heldur enn nokkrum tugum
meta. Eitt leiktímabil skoraði hann til
dæmis rúm 50 stig aö meöaltali i
leik. Þaö áriö skoraöi hann 100 stig
í einum leikjanna. Kareem hefur
skoraö mest 55 stig í einum leik, en
Wilt lék 73 leiki, þar sem hann skor-
aöi 55 stig eöa meira.
Chamberlain haföi hins vegar einn
veikan punkt, Bill Russell. Russell
var fyrirliöi og andlegur leiötogi
Boston Celtics á blómaskeiöi liösins
á sjöunda áratugnum, þegar Boston
vann til 9 af meistaratitlunum 15,
sem liöiö státar nú af. Geta hans
náði yfir endamörk og hliöarlínur,
enda varö heimsfrægt á þessum ár-
um hiö svonefnda Celtic-stolt, nokk-
urs konar KR-harka, sem síöan hef-
ur gert liðum lífiö leitt og verka-
mannakörfubolta aö aðalmerki liös.
Leikaöferö, sem oannar uppgjöf en
heimtar bardaga og skriöþunga alls
staöar á vellinum, þrátt fyrir aö þaö
bitni stundum á leikfeguröinni.
Red Auerbach, sem lætur af
störfum sem framkvæmdastjórl
Boston Celtics i sumar, var þjálfari
liösins til 1966, þegar Russell tók viö
þjálfuninni. Boston vann Los Angel-
es örugglega í úrslitakeppninni 1968
meö fjórum sigrum gegn tveimur.
Áriö eftir voru allir spádómar Los
Angeles í hag. Liöiö haföi aldrei unn-
iö titilinn, tapaö 5 sinnum fyrir Bost-
on á 7 árum og hungraöi því í krún-
una. Að auki var Wilt Chamberlain
heldur á uppleiö, en stjarna Bill
Russeis fór dvínandi. Samt fór þaö
svo, aö Celtic-stoltiö og ægimáttur
Bill Russell bar sigur úr býtum, en
eins og nú þurfti sjö leiki til aö ná
fram úrslitum. Þaö var Don Nelson,
þáverandi Celtic-leikmaöur, en nú-
verandi þjálfari Milwaukee Bucks,
sem átti siöasta oröiö í þeim leik
meö skoti, sem fór í körfuhringinn
og hoppaöi næstum aftur fyrir körfu-
spjaldiö, en hætti viö og fór ofan í
körfuna í staöinn. Boston vann
108—106. Bill Russell segist hafa
glataö viröingunni fyrir Chamberlain
sem andstæöingi í þeim leik.
Chamberlain var slæmur í hné og
fór út af, þegar fimm mínútur voru
eftir af leiknum. Los Angeles var þá
7 stigum undir, en Wilt orkaði ekki
inn á völlinn aftur, þrátt fyrir góöan
vilja. Russell sagöi eftir á, aö ekkert
minna en fótbrot heföi haldiö sér
utan vallar í þeim leik.
Þaö er sem sagt ýmislegt fleira en
fagurbolti og loftfimleikar, sem gildir
í þessari íþrótt.
Sögulegar staöreyndir einar eru
þó ekki meginástæöan fyrir ánægju
manna meö titilbardaga milli Celtics
og Lakers.
Ekki síöur gladdi þaö unnendur
íþróttarinnar aö fá aö sjá Larry Bird
hjá Celtics og Earvin „Magic“ John-
son hjá Lakers kljást. Liöin leika
hvort í sinni deildinni og þess vegna
keppa þau aöeins tvisvar á hinu
reglulega keppnistímabili. í úrslita-
leikjunum þurftu þeir hins vegar aö
berjast í aö minnsta kosti fjórum
leikjum á tveimur vikum, jafnvel
oftar, ef svo fóru leikar.
Persónuleg keppni Bird og John-
son hefur staöiö allt frá því þeir
kepptu meö háskólaliðum. Þeir
mættust si’öast í meiri háttar úrslita-
leik voriö 1979, þegar Indiana State
University, skóli Larry Bird, og Mich-
igan State University, skóli Ervin
Johnson, komust í úrslit um
háskólameistaratitilinn. Michigan
vann og lagöur var grunnur aö hat-
rammri samkeppni, sem væntanlega
á eftir aö standa í mörg ár enn.
Frá því NBA hóf göngu sina 1947,
hefur stjörnustríö alltaf átt sér staö í
einhverri mynd. Þaö sem gerir stríð-
iö milli Bird og Johnson sérstakt er,
hversu ólíkir þeir eru aö öllu leyti,
ekki aöeins aö hörundslit, heldur og
um alla þætti leiksins. i fyrsta lagi
leika þeir ólíkar stööur á vellinum.
Magic er bakvöröur en Larry fram-
herji. Magic er fljótur og liöugur og
lykilmaöur ( eitraöasta hraöaupp-
hlaupi, sem sést á körfuknatt-
leiksvelli. Hann er stjarnan, þegar
Los Angeles-sirkusinn fer í gang,
hefur ótrúlega boltameöferö og er
meistari í aö láta hiö ómögulega
viröast auövelt. Þess vegna fékk
Earvin Johnson viöurnefniö „Magic".
Hann er töframaöur með körfubolta.
Hann er haröur keppnismaöur, hvet-
ur samherja sína til dáöa í oröi og á
boröi. Magic hefur samiö sig vel aö
stjörnulífi Suöur-Kaliforníu. Hann
trallar ekki aöeins í sturtunni eftir
leiki heldur er hann jafnframt
ókrýndur kóngur diskótekanna í Los
Angeles, þessi síbrosandi blökku-
maöur hefur unniö hug og hjörtu
köruknattleiksunnenda, sem eru
þakklátir honum fyrir aö hafa hafiö
leikinn í æöra veldi.
Larry Bird kann betur viö sig, þar
sem menn bera húfur meö Internat-
ional Harvester-merki. Hann er
stundum nefndur Indiana Jones
körfuboltans, ekki aöeins af því aö
hann er frá Indiana, heldur ekki síö-
ur vegna fjess, aö hann bregst ekki.
Larry er 27 ára, þremur árum eldri
en Magic. Þeir hófu atvinnumennsku
í íþróttinni um leiö haustiö 1979, og
hafa ekki skipt um lið sföan. Larry
Bird er trúlega besti alhliöa körfu-
knattleiksmaöur, sem uppi er. Marg-
ir halda þvi fram, aö hann sé sá
besti fyrr og síöar. Larry er ekki eins
flinkur meö boltann og Magic. Hann
virkar oft dálítiö klunnalegur, en þaö
bitnar ekki á árangrinum. Hann hef-
ur ótrúlegt auga fyrir samleik og gef-
ur boltann yfirleitt meö eldsnöggum
sendingum á dauðafría samherja.
Hann tekur flest fráköst allra, hittir
svo vel utan af velli, aö þegar hann
fær boltann, fellur undantekningalít-
iö varnarmaður á Larry til hjálpar
þeim, sem er ábyrgur fyrir honum.
Þaö opnar aö sjálfsögöu leiðir fyrir
hina leikmenn Celtics. Hann er nán-
ast óbrigöull í vítaskotum. Hann hef-
ur áunniö sér ómælda aödáun
áhorfenda, leikmanna og ekki síst
þjálfara. Einn þeirra lét svo um
mælt, aö ef líf hans lægi viö, léti
hann boltann í hendurnar á Larry
Bird.
Larry Bird minnir mig um margt á
Anton Bjarnason innan vallar, þó aö
Anton sé ólíkt sviphreinrii maöur.
Þaö eina sem er sameiginlegt
þeim Larry Bird og Magic Johnson
er hæöin. Þeir eru báöir 2,06 metrar
(körfuknattleikur er ekki fyrir smá-
fólk).
1. leikur:
Los Angeles 115 — Boston 109,
í Boston 27. maí
Urslitakeppnin um titilinn hófst í
Boston á heimavelli Boston Celtics,
Boston Gardens. Boston náöi best-
um árangri í deildakeppninni og lék
því á heimavelli fyrstu tvo leikina.
Næstu tveir leikir eru síöan leiknir á
heimavelli mótherjans, skipt er um
völl í þeim fimmta og aftur í þeim
sjötta. Ef þarf aö leika sjö leiki, fer
sá fram á heimavelli liösins sem náöi
bestum árangri í deildakeppninni.
Þaö getur því haft gífurlega mikiö aö
segja aö standa sig vel yfir veturinn.
Þaö er alltaf uppselt á heimaleiki
Boston og var svo einnig nú. En
þetta fékk ekkert á Los Angeles
Lakers. Þeir tóku leikinn í sínar
hendur strax í upphafi. Celtics áttu
engin svör viö fullkomnum hraöa-
upphlaupum Lakers.
Hinn 37 ára gamli Kareem Abd-
ul-Jabbar var stjarna Lakers. Hann
hefur átt viö migrenisjúkdóm aö
strföa og var fársjúkur maöur, þar til
klukkutími var i leikinn. Hann varö
hins vegar aöalhöfuöverkur Celtics,
skoraði 32 stig.
Þrátt fyrir aö Boston, meö Larry
Bird í fararbroddi, væru trúir Celtic-
stoltinu og neituöu aö gefast upp,
áttu þeir aldrei möguleika í þessum
leik. Allar tilraunir þeirra mistókust,
körfuskot fóru ekki rótta boöleiö og
fráköstin fóru í hendurnar á Lakers.
Leikmenn liösins virkuöu þungir og
þreyttir og dyggum aödáanda liös-
ins leist ekkert á blikuna. Bjóst viö
snöggu baöi og snubbóttum endi.
2. leikur:
Boston 124 — Los Angeles 121,
í Boston 31. maí
Þjálfari Boston Celtics heitir K.C.
Jones (k-iö og c-iö eru ekki
skammstafanir). Hann varö ólympíu-
meistari meö liði Bandaríkjanna
1956 og var leikmaöur Celtics á gull-
aldarárunum. K.C. haföi þaö hlut-
verk aö gefa boltann á Bill Russell.
K.C. Jones er afskaplega hæglátur
og prúöur og skiptir ekki skapi í
leikjum. Hann hefur náö mjög góö-
um og afslöppuöum tengslum viö
leikmenn sína og gefiö þeim mátu-
legt athafnafrelsi. Hann breytir
sjaldan hernaöaráætlunum snögg-
lega. Hann haföi greinilega komist
aö þeirri niöurstöðu aö besta vopniö
á Lakers væri yfirvegaöur leikur,
foröast skyldi vafasöm skot og
stööva leifursóknir Lakers strax í
upphafi.
Mikilvægi sigurs í þessum leik
fyrir Boston Celtics fór ekkert á milli
mála. Meö 0—2 í veganesti yfir til
Los Angeles gætu þeir svo gott af-
skrifaö titilinn.
Þaö leit nokkuö vel út framan af
fyrir Boston. Hittnin var góö og leik-
aöferöin gekk upp. En skyndilega
misstu þeir tökin á leiknum í hendur
Lakers, sem unnu upp þrettán stíga
forskot á örskammri stund. Boston
rétti örlítiö úr kútnum í seinni hálfleik
og náöi forystu, sem virtist ætla aö
duga til sigurs. Um miöjan seinni
hálfleik losnaöi hins vegar um Jam-
es Worthy, sem hefur leikiö meö
Lakers frá þvf hann hóf atvinnu-
mennsku fyrir tveimur árum. Worthy
þessi er einn af undramönnum
fþróttarinnar. Meö hraðanum einum
snýr hann af sór hvern mann og auk
þess er hann gæddur þeim eigin-
leika aö geta losaö upp á aödráttar-
afli jaröar ööru hvoru. Hann skoraöi
ellefu stig í röö meö blöndu af fljúg-
andi furöu- og pumpukörfum. Staö-
an var 113—111 Lakers í vil og tutt-
ugu sekúndur voru til leiksloka. Celt-
ics pressuðu allan völlinn og komust
inn í bogasendingu. Staöan var þá
jöfn og þrettán sekúndur eftir, næg-
ur tfmi til aö skora. En pressa Celtics
kom í veg fyrir þaö og Magic John-
son komst hvorki í skotfæri, né gat
hann sent boltann á frían samherja.
I framlengingunni léku Lakers Ifkt
og í sjokki eftir stórslys. Mistök á
mistök ofan, sem Boston bjuggu til
körfur úr og björguöu þar meö and-
litinu. Staöan var 1 — 1. Þrátt fyrir
allt hagstæö úrslit fyrir Lakers, þvf
aö nú færöist vettvangur yfir á þeirra
heimavöll næstu tvo leiki. Los Ang-
eles-liöiö var greinilega mun betra
en liö Boston Celtics og leikmenn
jafnframt greinilega staöráönir aö
bæta fyrir ófarirnar í úrslitum sfö-
asta árs, þegar Philadelphia þurrk-
aöi Lakers út 4—0.
• Larry Bird meö knöttinn. Trúlega baati alhliöa körfuknattleiksmaöur
sem uppi er í dag. „Bird minnir um margt i Anton Bjarnason innan
vallar,“ segir Magnús Þrándur í grein sinni.