Morgunblaðið - 27.06.1984, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984
59 .
Það vantar frelsi í bókaútgáfu
— eftir Ásgeir
Hvítaskáld
Föstudaginn 15. júní birtist eft-
irfarandi í leiðara Morgunblaðs-
ins:
„En útgáfufyrirtæki eiga undir
högg að sækja, ekki sfður en bók-
in. Sumir segja, að ástæðan sé sú,
að rithöfundar skrifi ekki nógu
góðar bækur ..."
Þessu vil ég harðlega mótmæla.
Nú á að kenna rithöfundum um
óvinsældir bóka. En ég vil benda á
að það eru bókaútgefendur sem
velja bækurnar til útgáfu, þeir
velja vitlaust og gefa bara út lé-
legar bækur. Það er aðeins lítið
brot af því sem skrifað er gefið út.
Hér i bæ er fullt af ungum
mönnum sem skrifa ágætar sögur
en fá engin tækifæri. Útgefendur
hafa á sínum snærum allskonar
bókmenntafræðinga og spesíalista
í nútímabókmenntum og ég veit
ekki hvað. Þessir menn hafa svo
bara graut í hausnum. Halda að
skáldskapur eigi að vera eftir
formúlu, þar sem aðeins ákveðin
form og stefnur ríkja. Annað er
ekki gefið út. Það sem er nýtt og
ferskt kemst ekki að. Vegna þess
eru íslenskar bókmenntir staðnað-
ar. Svo er sagt að rithöfundar
skrifi ekki nógu góðar bækur.
Alls staðar eru háir pólar, hjá
útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum og
útgáfum, meirihlutinn er þröng-
sýnn sem þykjast vita hvað
skáldskapur er, en veit í raun ekki
baun. Menn komast engu nær
skáldagyðjunni þó þeir sitji á
skólabekk, skáldskapurinn kemur
þaðan sem grasið grær, þaðan sem
vindurinn blæs og þaðan sem eld-
urinn brennur í hjarta þínu.
Lognmollan yfir íslenskri bóka-
útgáfu er ekki rithöfundum að
kenna heldur þröngsýni bókaút-
gefenda. Ritstjórar og útgefendur
treysta ekki á sína eigin dóm-
greind. Það getur enginn haft vit á
skáldskap öðruvísi en með smekk
sínum. En þeir sem þora að skrifa
eins og þeir sjálfir vilja og þeir
sem þora að segja það sem þeim
sýnist og hafa skoðanir — sem
sagt þeir sem þora að vera rithöf-
undar — þeir fá ekkert útgefið.
Þannig er nú sannleikurinn.
En aftur á móti er ég sammála
höfundi leiðarans þar sem hann
talar um að það þyrfti að styðja
við bókaútgáfuna. En það yrði að-
eins gert með tveim leiðum. í
fyrsta lagi með að fella niður sölu-
skatt. Rithöfundurinn fær 11% af
útsöluverði bókarinnar en ríkið
30%. Er nema von bækur séu dýr-
ar. Þær áttu að vera fyrir alla,
almúgann líka. Enda kom það í
ljós á síðustu jólum, að fólk keypti
ekki bækur til jólagjafa, því þær
voru of dýrar. Þegar verðið lækkar
þá eykst salan. Ef þetta yrði gert
þá myndi skapast nýr grundvöllur
fyrir bókaútgáfu.
1 öðru lagi að fella niður starfs-
laun til rithöfunda. Það myndi
Asgeir Hvítaskáld
bæta bókmenntirnar. Þannig að
þær bækur sem seljast vel myndu
styrkja sína höfunda. Litlar
nefndir og klíkur úthluta launum
til rithöfunda sem skrifa bara
rugl. Margir menn í góðum stöð-
um fá styrki, til hvers? Þeir sem
eru fátækir og óþekktir fá ekki
krónu. Hvað hefur lítil þjóð eins
og ísland að gera við næstum 100
rithöfunda á launum? Fáránlegt.
Hvaða nefnd getur skorið úr um
það hverjir ættu að skrifa og
hverjir ekki? Ég er viss um að ís-
lenskir rithöfundar væru til í að
láta leggja þessar fölsku greiðslur
niður ef söluskattur á bókum yrði
felldur niður. Það myndi stórauka
sölu á bókum, höfundum í hag.
Fleiri útgáfur bættust í hópinn,
„Þeir sem þora að
skrifa eins og þeir sjálf-
ir vilja og þeir sem þora
að segja það sem þeim
sýnist og hafa skoðanir
— sem sagt þeir sem
þora að vera rithöfund-
ar — þeir fá ekkert út-
gefið.“
fleiri rithöfundar fengju tækifæri.
Nýjar íslenskar bókmenntaperlur
kæmu þá í dagsins ljós. Nei, hér
þýðir ekki að kenna rithöfundum
um. Það verður að auka frelsi í
útgáfumálum ef við eigum að fá
góðar bækur.
Ásgeir Hrítaskíld er rithöfundur,
sem gefur sjiifur út eigin bækur.
>
PASSA-
MYNDIR
Ath. í sumar höfum
viö opiö kl. 9—17
BÚRKARFI ER FISKVÖÐVI TILBÚINN
TIL MATREIÐSLU RÉTT EINS OG
HVER ÖNNUR STEIK.
BURKARFI er:
1. Ferskt karíaílak
2. Roðlaust
3. Beinlaust
4. Unnið undir
gœðaettirliti BÚR
MATREIÐSLUSNILLINGARNIR
Skúli Hansen á
Arnarhóli og Úlíar Eysteinsson
á Pottinum og pönnunni hafa
stoltir boðið gestum sínum karta
allt frá þvi þeir opnuðu sín frábœru
veitingahús. Raunar er karíi otarlega á
blaði hjá tlestum góðum veitingahúsum.
Þeir Úlfar
og Skúli haía
fallist á að birta
nokkrar uppskriftir
sinar í bœklingv .n
sem boðnir eru ókeypis
hvar sem BÚRKARFI fœst.
BÆJARUTCERB RÍYKJAVÍKUR
ÓKEYPIS BÆKLINCAR
Við lífgum hressilega upp á kœliborð
matvöruverslana:
BJÓÐUM ÞAR BÚRKARFA
H7F7W1