Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 19

Morgunblaðið - 27.06.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 1984 59 . Það vantar frelsi í bókaútgáfu — eftir Ásgeir Hvítaskáld Föstudaginn 15. júní birtist eft- irfarandi í leiðara Morgunblaðs- ins: „En útgáfufyrirtæki eiga undir högg að sækja, ekki sfður en bók- in. Sumir segja, að ástæðan sé sú, að rithöfundar skrifi ekki nógu góðar bækur ..." Þessu vil ég harðlega mótmæla. Nú á að kenna rithöfundum um óvinsældir bóka. En ég vil benda á að það eru bókaútgefendur sem velja bækurnar til útgáfu, þeir velja vitlaust og gefa bara út lé- legar bækur. Það er aðeins lítið brot af því sem skrifað er gefið út. Hér i bæ er fullt af ungum mönnum sem skrifa ágætar sögur en fá engin tækifæri. Útgefendur hafa á sínum snærum allskonar bókmenntafræðinga og spesíalista í nútímabókmenntum og ég veit ekki hvað. Þessir menn hafa svo bara graut í hausnum. Halda að skáldskapur eigi að vera eftir formúlu, þar sem aðeins ákveðin form og stefnur ríkja. Annað er ekki gefið út. Það sem er nýtt og ferskt kemst ekki að. Vegna þess eru íslenskar bókmenntir staðnað- ar. Svo er sagt að rithöfundar skrifi ekki nógu góðar bækur. Alls staðar eru háir pólar, hjá útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum og útgáfum, meirihlutinn er þröng- sýnn sem þykjast vita hvað skáldskapur er, en veit í raun ekki baun. Menn komast engu nær skáldagyðjunni þó þeir sitji á skólabekk, skáldskapurinn kemur þaðan sem grasið grær, þaðan sem vindurinn blæs og þaðan sem eld- urinn brennur í hjarta þínu. Lognmollan yfir íslenskri bóka- útgáfu er ekki rithöfundum að kenna heldur þröngsýni bókaút- gefenda. Ritstjórar og útgefendur treysta ekki á sína eigin dóm- greind. Það getur enginn haft vit á skáldskap öðruvísi en með smekk sínum. En þeir sem þora að skrifa eins og þeir sjálfir vilja og þeir sem þora að segja það sem þeim sýnist og hafa skoðanir — sem sagt þeir sem þora að vera rithöf- undar — þeir fá ekkert útgefið. Þannig er nú sannleikurinn. En aftur á móti er ég sammála höfundi leiðarans þar sem hann talar um að það þyrfti að styðja við bókaútgáfuna. En það yrði að- eins gert með tveim leiðum. í fyrsta lagi með að fella niður sölu- skatt. Rithöfundurinn fær 11% af útsöluverði bókarinnar en ríkið 30%. Er nema von bækur séu dýr- ar. Þær áttu að vera fyrir alla, almúgann líka. Enda kom það í ljós á síðustu jólum, að fólk keypti ekki bækur til jólagjafa, því þær voru of dýrar. Þegar verðið lækkar þá eykst salan. Ef þetta yrði gert þá myndi skapast nýr grundvöllur fyrir bókaútgáfu. 1 öðru lagi að fella niður starfs- laun til rithöfunda. Það myndi Asgeir Hvítaskáld bæta bókmenntirnar. Þannig að þær bækur sem seljast vel myndu styrkja sína höfunda. Litlar nefndir og klíkur úthluta launum til rithöfunda sem skrifa bara rugl. Margir menn í góðum stöð- um fá styrki, til hvers? Þeir sem eru fátækir og óþekktir fá ekki krónu. Hvað hefur lítil þjóð eins og ísland að gera við næstum 100 rithöfunda á launum? Fáránlegt. Hvaða nefnd getur skorið úr um það hverjir ættu að skrifa og hverjir ekki? Ég er viss um að ís- lenskir rithöfundar væru til í að láta leggja þessar fölsku greiðslur niður ef söluskattur á bókum yrði felldur niður. Það myndi stórauka sölu á bókum, höfundum í hag. Fleiri útgáfur bættust í hópinn, „Þeir sem þora að skrifa eins og þeir sjálf- ir vilja og þeir sem þora að segja það sem þeim sýnist og hafa skoðanir — sem sagt þeir sem þora að vera rithöfund- ar — þeir fá ekkert út- gefið.“ fleiri rithöfundar fengju tækifæri. Nýjar íslenskar bókmenntaperlur kæmu þá í dagsins ljós. Nei, hér þýðir ekki að kenna rithöfundum um. Það verður að auka frelsi í útgáfumálum ef við eigum að fá góðar bækur. Ásgeir Hrítaskíld er rithöfundur, sem gefur sjiifur út eigin bækur. > PASSA- MYNDIR Ath. í sumar höfum viö opiö kl. 9—17 BÚRKARFI ER FISKVÖÐVI TILBÚINN TIL MATREIÐSLU RÉTT EINS OG HVER ÖNNUR STEIK. BURKARFI er: 1. Ferskt karíaílak 2. Roðlaust 3. Beinlaust 4. Unnið undir gœðaettirliti BÚR MATREIÐSLUSNILLINGARNIR Skúli Hansen á Arnarhóli og Úlíar Eysteinsson á Pottinum og pönnunni hafa stoltir boðið gestum sínum karta allt frá þvi þeir opnuðu sín frábœru veitingahús. Raunar er karíi otarlega á blaði hjá tlestum góðum veitingahúsum. Þeir Úlfar og Skúli haía fallist á að birta nokkrar uppskriftir sinar í bœklingv .n sem boðnir eru ókeypis hvar sem BÚRKARFI fœst. BÆJARUTCERB RÍYKJAVÍKUR ÓKEYPIS BÆKLINCAR Við lífgum hressilega upp á kœliborð matvöruverslana: BJÓÐUM ÞAR BÚRKARFA H7F7W1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.