Morgunblaðið - 07.07.1984, Page 1
48 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
153. tbl. 71. árg.
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verkföll valda
skorti í Bólivíu
U Paz, 6. júlí. AP.
ALLSHERJARVERKFALL, sem efnt hefur verið til í Bólivíu
til að mótmæla lágu kaupi, háu matvælaverði og miklum
skuldum við útlönd, hefur valdið skorti á benzíni og brauði,
en ráðherrar og verkalýðsleiðtogar könnuðu í dag möguleika
á bráöabirgðasamkomulagi til að binda enda á verkfallið.
Námur, skólar, opinberar
skrifstofur og verksmiðjur hafa
lamazt. Flutningaverkamenn
hunzuðu verkfallið, en margir
„Ekkert aö
vanbúnaði“
segir þingforseti írans
Muuma, Bakrmia, 6. júlí. AP.
SÓKNIN mikla gegn írak er
„óhjákvæmileg“ og getur hafizt
hvenær sem er, var haft eftir Hoj
Rafsanjani, forseta þjóðþings írans,
í dag. Sagði hann, að nú væri ekkert
lloyatolesalem Kafsanjani.
að vanbúnaði til þess að hefja sókn-
ina og hefði öflugt herlið frans tekið
sér stöðu víðs vegar meðfram vfglfn-
unni.
Rafsanjani ítrekaði, að það væri
„ófrávíkjanlegt markmið með
styrjöldinni að steypa Saddam
Hussein af stóli sem forseta fraks
með sama hætti og þegar frans-
keisara var steypt af stóli“. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
hafa franir enn flutt mikinn
fjölda skriðdreka að vfglínunni
undanfarna daga til undirbúnings
sókninni gegn Irak.
Verðbólga
580%
í Argentínu
BuenoN Aires, 6. júlí. AP.
VERÐBÓLGAN í Argentfnu á kíÖ-
ustu 12 mánuðum nam 580%.
Samkvæmt frétt frá fjármála-
ráðuneyti landsins jókst fram-
færslukostnaður í sfðasta mánuði
einum um 17,9%. Verðbólgan í
júní var 15,8% meiri en í sama
mánuði í fyrra.
f júní í fyrra hafði verðbólgan
næstu 12 mánuði á undan numið
340%.
flutningabílar eru orðnir benzín-
lausir, þar sem benzinafgreiðslur
eru lokaðar, og það hefur leitt til
þess að bakarí fá minna af korni
en áður.
Tveir þriðju einkafyrirtækja í
höfuðborginni hafa orðið að loka,
en flest fyrirtæki starfa eins og
venjulega f Santa Cruz og Cocha-
bamba. Bankastarfsmenn hættu
við þátttðku í verkfallinu, svo að
bankar starfa eðlilega, og verk-
fallið hefur ekki haft áhrif á starf
sjúkrahúsa, flugfélaga og opin-
berra þjónustufyrirtækja.
Mynd þessi var tekin á Stanstead-flugvelli í London í gær og er af flugvélinni frá Nígeríu, sem stöðvuð var og leit
gerð (. Þar fundust tveir kassar og er þeir voru opnaðir, fannst Umaru Dikko, fyrrum samgönguráðherra Nfgerfu í
öðrum þeirra. Var hann í dái sökum deyfilyfja. Með honum f kassanum var annar maður og hafði sá meðferðis
sprautu og deyfllyf. í hinum kassanum fundust tveir menn, sem talið er, að átt hafl hlutdeild í mannráninu.
Níu menn enn í haldi
eftir ránið á Dikko
London, 6. júlf. AP.
ENSKIR lögreglumenn, sem vinna
að rannsókn mannránsins á Umaru
Dikko, fyrrum samgönguráðherra í
Nígeríu, handtóku f dag 17 manns,
þeirra á meðal alla úr áhöfn flugvél-
arinnar, sem flytja átti Dikko nauð-
Umaru Dikko, fyrrverandi
samgöngumálaráðherra f Nfgerfu.
Hann er 47 ára að aldri og hefur
heitið því að innleiða lýðræði f Nfg-
eríu að nýju.
ugan til Nígerfu. í hópi hinna hand-
teknu voru 9 Nfgerfumenn og 3 Bret-
ar en 5 frá öðrum löndum. Síðdegis í
dag voru 8 af þeim, sem handteknir
voru, látnir lausir aftur.
Leon Brittan, innanríkisráð-
herra Bretlands, staðfesti í dag
fréttina um að Dikko hefði fundizt
á Stanstead-flugvelli fyrir utan
London. Var Dikko í lokuðum
kassa og 1 dái vegna deyfilyfja.
Með honum i kassanum hefði ver-
ið annar maður og hafði sá með-
ferðis sprautu og deyfilyf. Á kass-
ann var letrað, að hann ætti að
fara til utanrfkisráðuneytisins í
Lagos og væri sendandinn sendi-
ráð Nígeríu í London. Kassanum
hefði hins vegar ekki fylgt nauð-
synleg skjöl, sem þurfti til þess að
hann nyti friðhelgi sendimanna og
því hefði kassinn verið opnaður á
Stanstead-flugvelli. Sama máli
gegndi með annan kassa, sem
tveir menn hefðu fundizt í.
í Lagos, höfuðborg Nígeríu,
kyrrsettu stjórnvöld í dag brezka
farþegaþotu. Var hún lögð af stað,
en var skipað að snúa við, áður en
hún var komin út úr lofthelgi
landsins. Talið er, að þetta hafi
verið gert í hefndarskyni fyrir
kyrrsetninguna f Stanstead á
flugvélinni frá Nígeríu. Með
brezku vélinni voru 222 farþegar
og 22 manna áhöfn. Sfðdegis í dag
var farþegum vélarinnar sleppt og
þeim leyft að fara frá Nígerfu.
Mynd þessi er af risaþotu af gerðinni Boeing 747, sams konar og þeirri, sem
kyrrsett var í Lagos í Nígerfu.
Gullverð lækkar
London, 6. júlí AP.
GULLVERÐ féll mjög í dag og
lækkaði um rúml. 23 dollara úns-
an. Verð Bandaríkjadollars hélzt
hins vegar að mestu óbreytt, en í
gær var hann hærri gagnvart sterl-
ingspundi og ítölsku lírunni en
nokkru sinni áður. Verð á gulli
hefur aftur á móti ekki verið lægra
í tvö ár og hafði það fallið um 30
dollara únsan á einni viku.
Fjórir helztu bankar Bret-
lands hækkuðu í dag vexti um
Ekki verið lægra
síðastliðin tvö ár
% % og var ástæðan léleg staða
pundsins. Með hærri vöxtum
standa vonir til þess, að staða
pundsins batni líkt og dollars, en
það eru einmitt háir vextir í
Bandaríkjunum, sem valdið hafa
háu gengi dollarans.
Lækkun gullverðsins kom
mönnum mjög á óvart í dag. Á
peningamarkaðinum í Ziirich
var sú skoðun ríkjandi, að gullið
ætti enn eftir að falla. Sterl-
ingspundið hækkaði hins vegar
aðeins f dag, eftir að hafa verið i
algeru lágmarki í gær. Er vaxta-
hækkuninni þökkuð þessi breyt-
ing. Gert hafði verið ráð fyrir
þessari vaxtahækkun, þrátt fyrir
yfirlýstan vilja frú Margaret
Thatcher forsætisráðherra um
að halda vöxtum niðri.