Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 19
MOKCtrkBL'AÐffi;LAOGARDAGUK1.'JtlLnðSj viðstaddur opnun nýrra skóla i litlum þorpum þar sem flótta- menn frá Búrúndi fengu að setjast að fyrir 10 árum. Þá voru þetta fátæklegar flóttamannabúðir en fólkið fékk að vera í friði á svæði á stærð við Fjón og festi þarna ræt- ur. Þriðja lausnin er að útvega fólki dvalarstað einhvers staðar í heiminum og flytja það úr flótta- mannabúðunum þegar hægt er. Bátsfólkið er besta dæmið um þetta. Það hefur komið til Thai- lands, Malasíu og Indónesíu, getur ekki snúið aftur heim og getur helst ekki fengið að vera. Yfir ein milljón manns hefur verið flutt úr flóttamannabúðum á undanförn- um átta árum. Það er ekki mikið þegar hugsað er til þess að það eru 10 milljónir flóttamanna 1 heimin- um, tæpar þrjár milljónir í Pak- istan, yfir fjórar milljónir í Afr- íku, o.s.frv. o.s.frv. En nú vil ég bara koma 40—60.000 flóttamönn- um í Indónesíu fyrir annars stað- ar, það er allt og sumt. Ég segi fólki að það geti verið alveg rólegt, ég ætla ekki að senda 3 milljónir flóttamanna frá Pakistan til ís- lands eða margar milljónir Afr- íkubúa til Bandaríkjanna. Það er best að hjálpa fólki þar sem það er niðurkomið og mikilvægast er að gefa því tækifæri til að hjálpa sér sjálft. Mér þykir mjög sárt að fylgjast með útlendingahatri aukast í Évr- ópu. Þess verður vart í Sviss, Þýskalandi, á Norðurlöndunum, Bretlandi og í Frakklandi. Við berjumst mjög hart gegn þessum hugsunarhætti en vandinn er sá að margir segjast vera flótta- menn, sem kannski eru það ekki, og láta skattgreiðendur halda sér uppi. Fólk reiðist þessu og vill senda alla útlendinga úr landi. En það verður að gera greinarmun á þeim sem alls ekki geta snúið heim og hinum sem eru bara í leit að betri atvinnu og afkomu. Flóttamannastofnunin hjálpar aðeins pólitískum flóttamönnum. Það er fólk sem getur átt á hættu að vera drepið ef það fer ekki úr landi. Stjórnvöld kalla það oft uppreisnarmenn og svikara. En ég vil benda á að meirihluti flótta- fólks eru konur og börn. Það er fátæka fólkið úr kofunum sem eru eyðilagðir þegar stjórnarherir og skæruliðar, frelsishetjur, eða hvað sem á að kalla her stjórnarand- stöðunnar, berjast um völd í land- inu. Við reynum eftir fremsta megni að halda vopnuðum bar- áttumönnum fyrir utan flótta- mannabúðirnar og hjálpum aðeins þar sem við getum haft frjálsan aðgang að búðunum og fylgst með því sem þar fer fram og reynum að vernda flóttafólkið fyrir hryðju- verkamönnum en það er stundum erfitt." Hartling er guðfræðingur að mennt. Hann var meðal stofnenda dönsku flóttamannahjálparinnar og hafði langa reynslu í stjórn- málum þegar hann var valinn í starf yfirmanns Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hann sagðist stundum verða vondaufur þegar hann hugsar til þess að það eru enn 10 milljónir flóttamanna í heiminum en hann er feginn því að það eru ekki sömu 10 milljónirnar og fyrir fimm ár- um. „Þetta er dálítið eins og að vinna á sjúkrahúsi," sagði hann. „Læknar og hjúkrunarkonur gætu hugsað með sér að starf þeirra væri ekki til neins, það væru alltaf einhverjir veikir, sama hvað þau læknuðu og hjúkruðu. En maður hugsar ekki þannig. Flóttamanna- stofnunin hefur hjálpað 25 milljón manns á 30 árum, Sameinuðu þjóðirnar eru ekki til einskis. Ég hef hjálpað við að stuðla að þvi að fólk þyrfti ekki ávallt að vera flóttafólk. Ég hef ekki reynt að veita þvi hamingju, það er ekki mitt starf, en reynt að hjálpa þvi að standa á eigin fótum, til að rækta eigið land eða opna matstað í Brussel, hjálpað þvi til að geta nýtt kraftana í samfélaginu. Það hefur verið þess virði að takast á við þetta starf." ab 19r Bandarísk stórblöð fjalla um skák á íslandi Skák Margeir Pétursson UNDANFARNA mánuði hefur oft verið vikið að íslandi í skákdálkum og skákfréttum erlendra stórblaða, rétt eins og árið 1972 þegar Fischer og Spassky tefldu heimsmeistara- einvígi sitt. Nú hafa alþjóðlegu skákmótin hér á landi í vetur og vor og ágætur en óvæntur árangur heimamanna beint augum skákdálkahöfunda að íslandi á ný. Þær tvær greinar sem hér fara á eftir birtust nýlega i víðlesnum dagblöðum í New York, Herald Tribune og New York Tribune og eru báð- ar skrifaðar af þekktum stór- meisturum úr ólympíuliði Bandaríkj amanna. Robert Byrne sér um skák- dálka Time & Life-samsteyp- unnar, sem gefur m.a. út New York Times og Herald Tribune. Skákþættir hans og skýringar þykja afar vandaðir og er Byrne vafalaust mest lesni skákdálkahöfundur utan Sov- étríkjanna. Hann spinnur þætti sína utan um ákveðnar skákir og nýlega varð fyrir val- inu hjá honum æsispennandi skák þeirra Helga ólafssonar og Walters Browne, sem tefld var á alþjóðlegu móti í New York i vor: „Þegar skákmaður hefur fengið á sig áhættufórn verður hann að gera sér fulla grein fyrir veikleikum sínum til að geta séð fyrir hugsanlega árás andstæðingsins. Án varnar- áætlunar getur jafnvel traust- asta staða tæst í sundur svo sem sézt af viðureign þeirra Walters Browne frá Berkeley í Kaliforníu, núverandi Banda- ríkjameistara, og Helga Ólafssonar, íslensks stór- meistaraefnis, í sjöundu um- ferð alþjóðalega skákmótsins í New York. Markmiðið með leik Brown- es, 9. Bc4, í þessu vinsæla af- brigði drottningarindversku varnarinnar, var að endurbæta taflmennsku Kasparovs í fyrstu skák hans við Korchnoi í einvíginu í London í desember. í þeirri skák náði Korchnói öfl- ugu mótspili gegn hvíta mið- borðinu eftir 9. Bd3 — Bg7, 10. e4 Rxc3, 11. bxc3 — c5, 12. Bg5 - Dd6, 13. e5 - Dd7 og svartur hefur ágæta stöðu. Hugmyndin á bak við 9. Bc4 sézt eftir 14. Hdl — Browne hafði valdað miðborðspeð sín án þess að skemma sterka víg- stöðu þeirra. Leikur Ólafssonar, 16. — c4!? þröngvaði í raun Browne til að fórna peði, því svartur hefur frábæra stöðu eftir 17. Bxc4? — Rxc4,18. Dxc4 6 Bxe4. Eftir 17. De3!? - Dxa3, 18. Bbl er ljóst að langur tími mun líða þar til svartur getur hagnýtt sér umframpeð sitt og á meðan hugðist Browne ná sókn gegn fáliðuðum kóngsvængi svarts. Eftir 23. h5 misreiknaði Ólafsson mikilvægi opinnar hrókslínu fyrir hvít og leyfði 23. - Rf6?, 24. hxg6 - hxg6. Rétt var að drepa með 23. — gxh5 og miða síðan að gagn- sókn eftir g-línunni. Eftir 27. Dg3 átti ólafsson Helgi Ólafsson mjög erfitt val fyrir höndum vegna hinnar hræðilegu hótun- ar 28. f4, 29. Kf2 og 30. Hhl með vinnandi sókn eftir h-lín- unni í kjölfarið. Hann fórnaði því hrók með 27. — Re7, 28, Rxe6 — Rd5, 29. Rxd8 — Rf4 tií að ná virku mótspili. Browne gat hugsanlega mætt hótuninni 30. — Re2 mát með þvi að leika 30. Hfel, þar sem 30. — Bxg2,31. Dh2 — Dg5 er brotið á bak aftur með 32. Dh8+! - Kxh8,33. Rf7+ - Kg7, 34. Rxg5. Hvað sem því líður gaf 30. Dxf4! - Dxf4, 31. Rxb7 honum hrók og tvo menn fyrir drottningu og takmarkaða mótspilsmöguleika fyrir svart. Hrókakaupin í 37.-38. leik tryggðu síðan enn aðstöðu Brownes. Hins vegar gaf hið vafasamt 40. e6? (40. Ba2 hefði unnið auðveldlega) Ólafssyni færi á að grugga vatnið með 40. - Dxbl. T.d. er framhaldið 41. He3 - Dc2+, 42. Kf3 - Ddl+, 43. Kf4 — Dgl! mjög óljóst. En Ólafsson missti af þessu tæki- færi. Eftir 49. Hh3! var ólafsson varnarlaus gagnvart hótuninni 50. Hh7+ og gafst því upp. Hvítt: Walter Browne. Svart: Helgi Ólafsson. Drottningarindversk vörn 1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 - b6, 4. a3 - Bb7, 5. Rc3 - d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7. e3 — g6, 8. Bb5+ — c6, 9. Bc4 — Bg7,10. e4 - Rxc3,11. bxc3 — c5, 12. Bg5 - Dd6,13. Dd3 - Rc6,14. Hdl - 0-0,15. 0-0 - Ra5,16. Ba2 - c4, 17. De3 - Dxa3, 18. Bbl - Hfe8, 19. h4 - f6, 20. Bh6 - Bxh6, 21. Dxh6 6 Df8, 22. De3 - Had8,23. h5 - Rc6, 24. hxg6 - hxg6, 25. e5 - f5, 26. Rg5 - Dh6, 27. Dg3 - Re7, 28. Rxe6 - Rd5, 29. Rxd8 - Rf4 30. Dxf4 - Dxf4, 31. Rxb7 - He7, 32. Rd6 - Hh7, 33. Hfel - Hh2, 34. He3 - Dh4, 35. Kfl Stefín Hilmarsson - Hhl+, 36. Ke2 - Dg4+, 37. Hf3 - Hxdl, 38. Kxdl - Dxg2, 39. Ke2 - Dhl, 40. e6 - Kf8, 41. He3 - Ke7,42. Rc8+ - Ke8, 43. Rd6+ - Ke7, 44. Rc8+ - Ke8, 45. Bc2 - b5, 46. e7 - Dh5+, 47. Kd2 - Dh2, 48. Kcl - Dc7, 49. Hh3 - gefið.“ Viðtal stórmeistara við bankastjóra Sovézki stórmeistarinn land- flótta, Lev Alburt, tefldi á tveimur mótum á íslandi í vet- ur. Hann bindur sig ekki við hráar skákskýringar og fréttir af mótum, en kemur víða við í skrifum sínum i New York Tri- bune, t.d. skrifar hann mikið um mál sovézkra skákmanna og nýlega kom hann á fram- bæri bréfi frá Boris Guljko, fyrrum Sovétmeistara, þar sem Guljko biður alla skákmenn um að veita sér liðsinni sitt í baráttu hans og konu hans fyrir að fá að flytja úr landi. Hér fer á eftir ein af greinum hans um Búnaðarbankaskák- mótið. Eftir að hafa fjallað ýt- arlega um úrslitin á mótinu og glæsilegan árangur Jóhanns Hjartarsonar reynir hann að útskýra fyrir lesendum sínum hvers vegna mótið hafi verið haldið: „Einn af þessum mönnum sem Iögðu mikið af mörkum til að þetta mót gæti farið fram var Stefán Hilmarsson, banka- stjóri Búnaðarbankans. Ég hitti Stefán oft og vildi m.a. fá að vita hvers vegna banki hans stæði fyrir skákmótinu. Hann er 58 ára gamall, lítur út fyrir að vera yngri og hefur starfað fyrir Búnaðarbankann (Agricultural Bank) síðustu 22 árin. Áður var hann háttsettur diplómat í Bandaríkjunum. Frá 1956-62 bjó Stefán í Washington þar sem hann starfaði sem sendifulltrúi. Hann segir sér hafa líkað lífið hér í Bandaríkjunum, en ákvað að flytja heim til íslands því hann hafði áhyggjur af því að dætur sínar yrðu fyrir of mikl- um amerískum áhrifum og tengsl þeirra við Island myndu slitna. Stefán varð eftirmaður föður síns, sem var bankastjóri Bún- aðarbankans í mörg ár. Hann lærði að tefla sem drengur og tefldi oft við föður sinn. Eins Walter Browne og margir aðrir lítur Stefán svo á að skák sé mjög gott þroskatæki fyrir börn. Ég spurði hann hvort hann teldi mót sitt hafa heppnast vel. Hann játaði því og gaf þá skýringu að „áhuginn meðal starfsmanna okkar og almenn- ings er þegar orðinn miklu meiri en við þorðum að vona, sennilega vegna góðrar frammi- stöðu Piu Cramling og íslensku skákmannanna, sem sumir vinna í Búnaðarbankanum." LA: Hvað telurðu vel heppnað? Eða hreint út sagt, hvers vegna er fé eytt í þetta skákmót? SH: Fyrst og fremst er skák skemmtilegur leikur og mikil- vægur þáttur i menningarlífi okkar. Banki okkar styður list og því einnig skák. Áuðvitað höfum við heldur ekkert á móti umfjölluninni sem við höfum fengið hjá blöðum, sjónvarpi og útvarpi. Við erum einnig ánægð með þá ágætu umfjöllun sem mótið hefur fengið í sum- um erlendum blöðum, svo sem þeim sænsku og New York Tri- bune sem þú skrifar í. ísland er lítið land og bank- inn okkar er mun smærri en margir bandarískir bankar. En við getum boðið upp á ýmislegt sem þið hafið ekki, svo sem óspillta náttúru. Við viljum láta fleiri Bandaríkjamenn vita af okkur og síðast en ekki síst þá teljum við mótið vera þjónustu við starfsfólk okkar. Það er löng hefð í Búnaðar- bankanum fyrir því að styðja við bakið á skáklistinni. Hún var löngu til orðin áður en ég kom til bankans. Við eigum best skáklið af öllum íslensk- um bönkum og höfum keppt við erlenda banka. Við höfum sigr- að bæði hollenska Amro-bank- ann og lið enskra bankamanna, þrátt fyrir að við séum miklu smærri en þeir. Við getum tal- að um að Davíð hafi lagt Goliat og það kitlar stolt okkar. Nú viljum við gjarnan tefla við bandaríska banka því við höf- um frétt af árlegri skákkeppni bankanna í New York. Og ef bankarnir ykkar leggja ekki í okkur hver fyrir sig erum við alls óhræddir við að mæta sameinuðu liði þeirra. Stefán telur að Búnaðar- bankamótið verði haldið með reglulegu millibili í framtíð- inni og vonast eftir því að aðrir bankar fylgi fordæmi Búnað- arbankans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.