Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984 21 Ragnar Ólafsson hefur starfað við samlagið i rúm 20 ár og er sá starfsmaður þess sem hefur starfað þar lengst. Snör handtök er það sem gildir og unga snótin gefur ekkert eftir og hand- samar hverja fernuna á fætur annarri og kemur fyrir í kassa. an aukist og framleiðslutegundum hefði fjölgað. Kvað hann 60% af þeirri mjólk sem Mjólkursamlagið fengi til vinnslu fara í neyslu á dreifingarsvæðinu en þau 40% sem eftir væru færu aðallega til ostagerðar sem Osta og Smjörsal- an sæi meðal annarra um að dreifa. „Auk þess að sinna Snæfellsnes- _ inu, Dalasýslu og Barðaströndinni norður í Þorskafjörð fluttum við á síðasta ári um 700 þúsund lítra suður til Reykjavíkur vegna mjólkurskorts þar,“ sagði Sigurð- ur Rúnar. „Þannig að segja má að við höfum stundum þurft að fara út fyrir okkar venjulega dreif- ingarsvæði sem er þó stórt, en bíl- arnir sem keyra vöruna út þurfa að fara sem svarar vegalengdinni kringum landið í hverjum túr. En það er ekki vegalengdin, sem fara þarf með vöruna, sem máli skiptir heldur eru það gæði vör- unnar og við hér hjá Mjólkursam- lagi Búðardals, og Mjólkursamsal- an, höfum lagt áherslu á vöru- þróun og keppt að því að hafa eitthvað nýtt að bjóða viðskipta- vinum okkar. Við teljum okkur standa framarlega í þessari vöru- þróun hér á landi, ef ekki fremst, og það má geta þess að bráðlega sendum við frá okkur á markað þrjár nýjar tegundir sem við von- umst til að verði tekið vel,“ sagði Sigurður Rúnar. „Starfsemin og reksturinn hefur gengið mjög vel undanfarin tvö ár þrátt fyrir mikinn mótvind i land- búnaðarmálum og það er mjög mikilvægt fyrir byggðarlagið hér að starfsemi sem þessari verði haldið hér gangandi því það hefur svo styrkjandi áhrif á atvinnulíf sveitarinnar," sagði Sigurður Rúnar að lokum. „Hef starfað við Mjólk- ursamlagið frá upphafi“ Mjólkursamlag Búðardals hefur haldist vel á starfsfólki frá því það tók til starfa og hafa þrír starfs- menn þess starfað þar frá upp- hafi. Þla eru þeir nokkrir sem hafa starfað við fyrirtækið á ann- an tug ára en enginn hefur verið jafn lengi og Ragnar ólafsson, sem nánast hefur starfað við alla þætti vinnslunnar. „Ég byrjaði reyndar að starfa við Mjólkursamlagið áður en það tók til starfa þvi ég vann við bygg- ingu húsnæðisins og við uppsetn- ingu véla,“ sagði Ragnar ólafsson, „alt muligtmand" hjá Mjólkur- samlaginu. „Ég hef starfað við Mjólkursamlagið frá upphafi og gripið inn í flest, en þó hef ég ekki enn tekið þátt í framleiðslu osta. Fyrstu árin var ég starfandi sem bílstjóri og keyrði þá mjólk- ina út en þá var yfirreiðarsvæðið mun minna en það er í dag, en það gat samt oft verið erfitt að komast leiðar sinnar enda vegir verri í þá tíð en í dag. Síðan fór ég að starfa við vinnsluna og síðustu árin hef ég aðallega verið við vélaviðhald og viðhald á bílum. Tækninni hef- ur vissulega fleygt fram á þessum árum og öll starfsaðstaða hefur breyst mikið. Þá hefur framleiðsl- an aukist mikið og starfsfólkinu fjölgað þannig að það er allt ann- að að starfa við þetta i dag en þegar starfsemin var að hefjast. Rýmið er orðið mun meira og hreinlætið hefur aukist þannig að þetta er allt að breytast til hins betra. Mesta breytingin sem ég man samt eftir að hafa orðið er þegar við losnuðum við að þurfa að sækja mjólkina í brúsum og hófum að sækja hana á tankbílum, það hefur haft stórgóð áhrif á framleiðsluna og aukið á allt hreinlæti í kringum vöruna," sagði Ragnar að lokum. Vegagerðin aldrei jafn hjálpsöm og í vetur Óhætt er að segja að eitt erfið- asta starfið í því ferli að koma mjólkinni frá bændum til neyt- enda sé að keyra að vetri til um dreifingarsvæðið, ýmist í því skyni að ná i mjólk til mjólkur- framleiðendanna eða að koma henni til viðskiptavinarins. Lúðvík Þórðarson hefur starfað við út- keyrslu fyrir mjólkursamlagið í rúm tíu ár en hann hefur unnið við útkeyrslu í 37 ár þannig að þeir eru margir kílómetrarnir sem hann hefur lagt að baki. „Ég hef alltaf kunnað vel við mig í keyrslunni, hvort sem ég hef verið í ferðum á milli landshorna eða verið í innanbæjarakstri sem leigubílstjóri," sagði Lúðvík. „Það má kannski segja að maður mæti vissum erfiðleikum í akstrinum, sérstaklega þegar snjóþungt er, en það eru alltaf einhverjir ljósir púnktar í starfinu sem gerir það að verkum að áhuginn helst. Ég get ekki sagt að ég hafi lent í neinum svaðilförum eða hafi lent í einhverjum erfiðleikum sem orð er á gerandi. Það hefur að vísu komið fyrir að ég hefi fest mig en oftar hef ég þurft að snúa við áður en að því hefur orðið. Reyndar sat ég einu sinni fastur, fyrir u.þ.b. fjórum árum, undir ólafsvík- urenninu en þá höfðu fallið skrið- ur sitt hvorum megin við mig svo ég komst hvorki áfram né afturá- bak. Það höfðu fallið um 8 eða 9 skriður, en sem betur fer ekki á mig. Það má kannski telja það merkilegt að þó svo oft hafi far- artækjum hlekkst á þarna undir enninu hefur ekki til þessa orðið slys á mönnum, og er það hin mesta mildi. Vegagerðin hefur verið ákaflega hjálpsöm í vetur við að greiða götu okkar langferðabílstjóranna og sennilega hafa þeir aldrei verið jafn hjálpsamir og í vetur. Þeir hafa lagt áherslu á að halda Hey- dalnum opnum i stað þess að ryðja Fróðárheiðina og Kerlingarskarð. Annars er ég kominn á fram- hjóladrifinn bíl núna og það er miklu betra að komast leiðar sinn- ar á veturnar á honum. Sumstaðar fór ég um keðjulaus í vetur þar sem ég áður hafði verið að böðlast um með keðjur. En eins og ég sagði þá eru alltaf einhverjir ljós- ir punktar við starfið og maður reynir að sjá björtu hliðarnar, og þær eru æði margar. Það er oft sem tekið er vel á móti manni á Snæfellsnesinu, þangað sem ég keyri, þegar maður kemur með mjólkina," sagði Lúðvík um leið og hann fór út til að skola ferðarykið af bílnum. ALLTAF Á SUNNUDÖGUM OG EFNISMEIRA BLAÐ! ERU HUGSJÓNIR HERSTÖÐVAAND- STÆÐINGA TIL SÖLU? HUNDADAGAR GENGIÐ Á GENES- ARETVATNI Seinni grein frá ísrael eftir Elínu Pálmadóttur ÍSLENZKAR LISTAKONUR PORTÚGAL Jóhanna Kristjónsdóttir skrifar um heimsókn til OPORTO RÉTTARHÖLD YFIR SOVÉZKUM ANDÓFSMÖNNUM HVAÐ ER MANNSKEPN- AN ANNAÐ EN VANI? Rætt viö Guöjón Sigurösson bakara- meistara á Sauöárkróki VSUR OG GAMANMÁL meö Birni á Sveinsstööum VERÖLD L A X í þættinum Matur & matgerö er fjall- aö um matreiöslu á LAXI KROSS Á ÞJÓÐSÖGU SHCHARANSKY Áratugur þjáningar ÍSLENDINGAR í SUÐURGÖNGU SOLAR-MAX Brotiö blaö í sögu geimvísinda Reykjavikurbréf/ Á drottins degi/ Myndasögur/ Fólk á förnum vegi/ Úr heimi kvikmyndanna/ Velvakandi/ Dans-bíó-leikhús/ Fasteigna- markaöurinn/ Hugvekja/ Útvarp & sjónvarp/ Peningamarkaöurinn/ Dag- bók/ Minningar Swmudagurinn byrjar á síðum Moggans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.