Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984 35 Minning - Brynjar Oli Einarsson Fæddur 17. september 1936 Dáinn 27. júní 1984 í leit að því sem liðið er þá lifnar dauðinn fyrir mér í dögun þá er dagur minn að falla. en ó hve mig iangar að líkjast þvf sem lifir og deyr — en vaknar á ný í eyðimörk lifsins er angandi blómstur að kalla. (Vilmundur Gylfason.) Það er alltaf átakanlegt þegar fólk á besta aldri er kallað burtu frá fjölskyldu sinni, ungum börn- um og óloknu ævistarfi. Við andlát Brynjars óla Einarssonar sannast það sem oft áður að við mennirnir ráðum ekki ferðinni hér á jörðu og enginn veit hvenær dagur er að kveldi kominn. Á hvítasunnudag hélt Brynjar í fylgd með konu sinni til London á sjúkrahús til að gangast undir uppskurð við hjartameini sem hann hafði átt við að stríða um nokkurra mánaða skeið. Hann var sjálfum sér líkur áður en hann hélt utan, hispurslaus, hnyttinn í tilsvörum, hressilegur og áreiðan- lega fullur bjartsýni á að hann næði fullri heilsu aftur, enda stóðu allar vonir til þess. Aðgerðin heppnaðist vel og til landsins kom hann 22. júní og átti að vera nokkra daga á Landspftalanum. Allt virtist eðlilegt. Snöggt and- látið kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti. Dúddi, eins og hann var alltaf kallaður, fæddist á Siglufirði 17. sept. 1936, næstyngstur af sjö börnum hjónanna Dórotheu Jónsdóttur og Einars Ásgrímsson- ar (d. 5.10. 1979). Systkini hans eru Jón, búsettur í Garðabæ, Ásta í Reykjavík, Ásgrímur á Siglu- firði, Guðiaug í Sandgerði, Sólveig í Hafnarfirði og Stella sem er yngst og búsett á Siglufirði. Dúddi kynntist síldarævintýrinu af eigin raun, fór snemma að vinna fyrir sér við alla algenga vinnu á þeim tímum sem sjómaður á Siglufirði og má segja að sjórinn hafi verið vettvangur starfs hans upp frá því. Árið 1963 fór hann til Vest- mannaeyja. Þar kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Guð- rúnu Ólafsdóttur, ættaðri frá Gilbakka, Arnarneshreppi, Eyja- firði, dóttur Ingibjargar Jóhanns- dóttur og Ólafs Baldvinssonar. Alltaf var kært með Dúdda og tengdafólki hans. í Vestmanna- eyjum hafa þau hjónin búið síðan, að undanteknum þeim tíma sem gosið og uppbygging Eyjanna eftir það kom í veg fyrir búsetu þar. Dúddi og Gunna eignuðust þrjú börn, Ingibjörgu sem nú er 20 ára, unnusti hennar er Unnar Jónsson, ólafur er 19 ára og Helgi er 10 ára. Dóttur eignaðist Dúddi áður en hann giftist, hún heitir Benný og er búsett í Reykjavík. Eins og áður sagði starfaði Dúddi lengst af sem sjómaður og nú síðast sem stýrimaður á Haferninum í Vest- mannaeyjum. í erfiðum veikind- um undanfarna mánuði stóð Dúddi ekki einn því þá sem áður átti hann góða að. Kona hans fór til Englands með honum og vék sér varla frá þann tima sem hann dvaldi á sjúkrahúsinu þar né eftir að heim var komið og hann lagðist inn á Landspítalann. Dúddi fór ásamt systkinum sín- um norður til að vera með móður sinni á áttatíu ára afmælisdegi hennar í maf sl. og eitt það fyrsta sem Dúddi gerði eftir komuna að utan var að hringja í hana norður á Siglufjörð, það var og verður henni ómetanlegt. t rauninni urðu kynni okkar Dúdda aldrei náin en þó að oft hafi liðið langur tími á milli þess að við hittumst var hann alltaf eins í viðmóti. Stuttu áður en hann hélt utan töluðum við saman í síma. Hann sagðist vona að ég liti til hans á Landspítalann þegar hann kæmi til baka. Af því varð þvi miður ekki. Að leiðarlokum vil ég þakka honum viðkynninguna og óska honum velfarnaðar á ókunnum stigum. Við Höddi og börnin send- um eiginkonu hans og börnum, móður, systkinum og öðrum ætt- ingjum og vinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Freyja K. Þorvaldsdóttir „Æ vertu sæll þú sefur vel og rótt, hér sit ég einn og minningunni fagna og ég skal brosa og bjóða góða nótt uns brosin dvina og vinarkveðjur þagna.“ Með þessu fallega ljóði Steph- ans G. Stephanssonar kveð ég kæran bróður minn. Við andlát hans er mér efst i huga söknuður og þakklæti fyrir öll árin sem við áttum saman. Við höfum öll mikið misst, en þeim sem stóðu honum næst, móð- ur okkar, eiginkonu hans og börn- um, votta ég og fjölskylda min okkar innilegustu samúð. Ásta Einarsdóttir Minning: Kristín Mikaels- dóttir Akuregri Fædd 27. ágúst 1918 Dáin 28. aprfl 1984 Þann 28. apríl lést á sjúkrahús- inu á Akureyri Kristín Mikaels- dóttir eftir stutta sjúkralegu. Hún hafði samt borið þennan erfiða sjúkdóm lengi. En bjarsýni henn- ar og kjarkur gerði það að við héldum að við fengjum aö hafa hana lengur hjá okkur. Nú er þessi elskulega kona dáin, en eftir eigum við minningarnar um hana sem er fjársjóður sem gott er að eiga. Það er sárt til þess að hugsa að eiga ekki eftir að hitta Kristínu oftar og tala við hana um lífið og tilveruna og heyra hennar já- kvæðu skoðanir. Hún hafði þá trú að allir hlutir hefðu meiri til- hneigingu til að fara vel en illa og þess vegna var alltaf bjart og gott í návist hennar. Við þökkum henni samveruna á liðnum árum. AuAur og Birna Á heimili ömmu og afa á Akur- eyri áttum við ánægjustundir sem hefðu svo gjarnan mátt vera fleiri. Alltaf gaf amma sér tíma fyrir okkur barnabörnin. Hún kenndi okkur að trúa á það góða i öllu og það fordæmi mun alltaf koma okkur til góða. Hið stóra skarð sem hún skildi eftir verður seint fyllt og vottum við afa okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Kristín Jóhanna, Birgir, Sól- veig Kristín, Ragnar og Bergur. Kveðja frá dóttursonum í Ilanmörku Amma Kristín var 65 ára þegar hún dó. Við hefðum svo gjarnan viljað hafa hana mikið lengur hjá okkur, en við vissum að hún hafði lengi verið mikið veik. Nú er hún hjá horfnum ástvinum sínum i heimi ljóss og friðar, og þar líður henni vel. Við eigum svo margar yndisleg- ar minningar frá öllum samveru- stundunum með ömmu, bæði á Is- landi og hér í Danmörku. Hún heimsótti okkur oft á sumrin og var hjá okkur mánuðum saman. Við dvöldum líka mörg jól hjá henni og afa á Akureyri. Siðast vorum við hjá þeim í tvo mánuði síðasta haust og jól. Minningarnar frá siðustu samverunni með ömmu eru svo lifandi og kærar. Amma var svo blið og góð og hafði alltaf tima fyrir okkur börn- Minning: Hjalti Dan Kristmundsson Kveðja Nú hefur kvatt þennan heim elskuleg amma okkar, Kristin Mikaelsdóttir, og við stöndum eft- ir með sorg í hjarta. Eina huggun okkar er að hægt er að ylja sér við eld minninganna og þær eru sann- arjega yndislegar. Hún var ein af þeim sem gerði gott úr öllu. Hún treysti á góðan guð og sú trú gerði henni kleyft að lifa hamingjuríku lífi. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Fæddur 31. október 1966 Dáinn 1. júlí 1984 í dag er til moldar borinn frændi okkar, Hjalti Dan Krist- mannsson, næstelstur þriggja sona hjónanna Elsu Guðrúnar Hjaltadóttur og Kristmanns Dan Jenssonar. Nú þegar sorg og söknuður hvíl- ir yfir heimili Hjalta og enginn mannlegur máttur getur þar um breytt, er það bæn okkar að góður Guð veiti foreldrum hans, bræðr- um, afa og ömmum á Fáskrúðs- firði svo og öðrum ættingjum styrk og huggun. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurormum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga, en sér í lagi þau, sem tárin lauga, og sýndu miskunn ötlu því, sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. (Sb. 1886 - M.Joch.) Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, in. Oft spilaði hún við okkur, las sögur eða söng vögguljóð. Hún kunni líka svo margar skemmti- legar þulur, sem við höfðum mikla gleði af. Við bræðurnir þökkum elsku ömmu fyrir allt sem hún var okkur. Minningin um hana mun ylja okkur um ókomna ævi. Okkur langar að kveðja hana með þessu ljóði: Frá öllum heimsins hörmum, svo hægt í friðar örmum þú hvílist helst við lín. Nú ertu af þeim borin hin allra síðustu sporin, sem með þér unnu og minnast þín. Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endir. í æðri stjómarhendi er það, sem heitt í hug þú barst. Guð blessi lífs þíns brautir, þitt banastríð og þrautir og starfs þíns mark og mið. Við hugsum til þfn hljóðir. Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. (Einar Benediktsson) Guð blessi minningu Kristínar ömmu. Guðjón Emil og Ragnar Mikael Svendborg. lit og blöð niður lagði, — líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson.) Þegar við minnumst Hjalta nú viljum við senda ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Frændfólkið í Kópavogi Notaðir bflar til sölu Saab 99 GL 5 gíra Km 21.000 — bronsblár. Út- varp + segulbund. Snjódekk. Kr. 345.000. Góö kjör. Chevrolet Caprece Classic árg. 1979 Eklnn 73.000 km — svartur/silfurgrár. Einn eigandi. Toppbfll. Kr. 375.000, Opel Ascona Berlina árg. 1983. Ekinn 5.000 km. Reyrbíll, hvítur. Kr. 400.000. Plymouth Volaree Premier Station, árg. 1979, ekinn aöeins 50.000 km. Góöur bíll. Kr. 280.000. Opel Kadett Luxus Ekinn aöeins 10.000 km. Rauö- ur, sem nýr. Kr. 280.000. SAAB 99 GLi Arg. 1981, ekinn 49.000 km, blár, toppbíll, kr. 315.000. Honda Dunted Arg. 1981, ekinn 42.000, góöur bill. Kr. 275.000. Lancer GS.R. 5 gira, árg. 1982, ekinn aöeins 367.000. Útvarp, snjódekk o.fl. Aukahl. einn eigandi, kr. 265.000. SAAB 900 Turbo Arg. 1982, ekiijn 26.000, vökva- stýri, topplúga. Steingrár. Allur sem nýr. Kr. 565.000. Opið laugardaga HOFDABAKKA9 ie4R€YKJAVIK §.398ÍÓ—687300.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.