Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAÚGARDAGÚR 7. JÚLÍ 1984 7 InnUegar þakkir foeri ég öUum þeim fjölmörgu sem heiöruðu mig og glöddu með heimsóknum, gjöfum, blómum og hlýjum kveðjum á áttræöisafmæli mínu þann 11. júni sl Megi guð blessa ykkur ölL Sigurður Elíasson. JVIitsubishi eigendur! í júlí gefum við 10% staðgreiðsluafslátt á eftirtöldum vöruflokkum í ALLAR Mitsubishi bifreiðar Dæmi um verð: Kerti ....Frákr. 40 - -10% FTatínur .... — 50 - - 10% Kveilqulok .... — 95 - -10% Kveikjuhamar .... — 35 - - 10% Vrftureimar .... — 50 - - 10% Þurkublöð .... — 150 - - 10% Auitilífar .... — 160 - - 10% BremsukJossar.... .... — 285 - - 10% Loflsíur .... — 195 - - 10% Olíusíur .... — 155 - -10% Framdemparar ... .... — 995 - -10% Afturdemparar .... .... — 400 - -10% Kúplingsdiskar .... 840 - -10% VIÐURKENND VARA í HÆSTA GÆÐAFLOKKI MEÐ ÁBYRGÐ fHlHEKLAHF | Laugavegi 170-172 Sími 21240 „Af undirskriftum“ Miklar umræöur hafa oröiö um hugsanlega byggingu ál- vers viö Eyjafjörö. Skiptast menn í tvo hópa eftir afstööu til slíkrar stóriðju, með og á móti. Báðir þessir hópar hafa hafiö undirskriftasöfnun í Eyjafiröi, til framdráttar sínum málstaö. Dagur á Akureyri gerir þessar safnanir aö um- talsefni í leiöara nú nýlega, og er hann birtur í Staksteinum í heild í dag. Þá er einnig vitnaö í skrif Fylkingarmannsins Árna Sverrissonar, þar sem hann fagnar hernaðarupp- byggingu kommúnistaríkjanna. Álver við Eyjafjörð Dagur á Akureyri gerir að umtaLsefni í leiðara, þann 4. júlí síðastliðinn, hugsanlega byggingu ál- vers við Eyjafjörð. Þar er alvarlega varað við þv{ að menn hafni að óathuguðu máli þessum kosti, sem óncitanlega myndi ef raunhæfur er skjóta styrk- ari stoðum undir atvinnulíf í firðinum: „AndsUeðingar hug- mynda um byggingu álvers við Eyjafjörð hófu herferð til kynningar málstað sín- um nú á vordögum. Reyna þeir að fá menn til fylgis við skilyrðislausa andstöðu og s^ína undirskriftum til stu inings kröfu sinni. Það fór að vonum, að þessi harðdræga afstaða vakti upp annan hóp, það'fólk sem ekki viil hafna þeim möguleika að næsta stórið- juveri á íslandi verði val- inn staður við Qörðinn. Þessi hópur hefur einnig hafið söfnun undirskreifta, ekki til skilyrðislauss stuðnings við álver heldur færa þeir fram kröfu um það að undirbúningsvinnu og rannsóknum verði fram haldið og endanleg afstaða byggð _ á niðurstöðum þeirra. Á þeim sem undir þessa lista skrifa hvflir ábyrgð. Undirskriftalistana má skoöa sem óformlega könnun á afstöðu manna til þessa hitamáls. Þeir sem með undirskrift sinni hafna öllum athugunum verða að gera sér Ijóst að andstaða þeirra getur orðið til þess að næsta stórfjár- festing í orkuiðnaði verði á Reykjanesi og auki enn á aðdráttarafl þess svæðis. Þannig yrði að óathuguðu máli á glæ kastað mögu- leika til öflugrar uppbygg- ingar atvinnulífs við Eyja- fjörð. Þeir, sem með undir- skrift sinni velja að halda áfram undirbúningi, verða að vera viðbúnir þvi að ekki reynist unnt að reisa álver á Islandi, hvað þá við Eyjafjörð. Stóriðja ein leys- ir ekki atvinnumál fslands í framtíðinni. Þau 15.000 störf sem skapa þarf á ís- landi fram til aldamóta verða ekki nema að nokkru leyti til í þessum atvinnuvegi. Til að reist verði stóriðja á íslandi þarf að uppfylla mörg skilyrði. Þýðingarmest þeirra eru að samningar við erlenda að- ila skerði ekki sjálfstæði okkar, að fyrirtækið skili viðunandi arði, og að ver- inu sé fundinn staður þar sem það vinnur ekki skaða á umhverfi sínu. Þeir, sem með undir- skrift sinni lýsa þeirri von að staðurinn geti orðið Eyjafjörður, verða að gera upp endanlegan hug sinn í Ijósi þeirra upplýsinga sem enn er óaflað um umhverf- isáhrif. Til þess gefst góður tími, samningar um stað- setningu hefjast ekki fyrr en seint á árinu 1985. Vonandi bera Eyfirð- ingar gæfu til að gaumgæfa álverskostinn til hlítar áður en honum er hafnað eða ráöist verður í byggingu versins. Öfgafull aðstaða í þessu máli getur aðeins orðið til skaða fyrir þetta byggðarlag." Hervæðingu Varsjárbanda- lagsins fagnað Fylkingin, deild bylt- ingarmanna, innan Alþýðu- bandalagsins, gefur út blaðið Neista. f þriðja tölu- blaði þessa árs ritar Árni Sverrisson grein um „heimsvaldastefnuna". Þar færir hann lof á aust- antjaklsríkin, vegna her- væðingar þeirra sem gert hefur þeim kleift að verja byhingu kommúnista viðs vegar um heim. Árni segir meðal annars: „Á heimsmælikvarða hefur vopnavæðing verka- lýðsríkjanna fyrir sitt leyti komið í veg fyrir það, að heimsauðvaldið geti beitt sér óheft gegn byltingaröfl- um. Nokkrum sinnum hefur heimsvaldasinnum tekist að kæfa í fæðingu bylt- ingarferli. oft hafa þeir I takmarkað verulega þróun- S armöguleika byltinga, en aldrei hefur þeim tekist að brjóta á bak aftur verka- lýðsríki, sem komin eru á legg- Sérstaklega hefur vopn- væðing verkalýðsrikjanna komið í veg fyrir allsherjar- átök, sem drekkir frelsis- vilja alþýðu og stéttarvit- und í blóði verkamanna á vígvöllunum og stöðvuðu framsókn heimsbyltingar- innar um langan tíma. í stað þess hefur heims- valdastefnan varist á mörg- um vígstöðvum, og beðið ósigra, sem hafa takmark- að verulega möguleika hcimsauðvaldsins til að ráðskast með framtíð mannkynsins. Það er til að mynda ekki fyrr en nú, að bandarísku heimsvalda- sinnarnir eru rétt að byrja að ná sér eftir Víetnam- stríðið og eftirköst þess í Bandaríkjunum sjálfum, og reka grímulausa hern- aðarstefnu um allan heim, holdgerða í flugvélamóð- urskipum þeirra á San Diego-flóa, fyrir ströndum Líbanon og Persaflóa." Vopnafjörður: Garður rifinn Vopnafirði, 29. jðnf. UM ÞESSAR mundir stendur yfir niðurrif á einu af elstu húsunum hér á Vopnafirði, er það húsið Garður á Kolbeins- götu 24. Garður sem er tvílyft timburhús með báru- járnsklæðningu er að mörgu leyti nokkuð merkilegt fyrir staðinn og þess vegna nokk- ur eftirsjá að því, þar sem það gegndi í fjöldamörg ár hlutverki sjúkraskýlis hér eða allt fram til ársins 1979 að hin nýja heilsugæslustöð var tekin í notkun. Það er félag burtfluttra Vopnfirð- inga, Vopnfirðingafélagið 1 Reykjavík, sem sér um að láta rífa húsið, en síðar er ætlunin að nota innviði og klæðningu eftir því sem hægt er í sumarhús sem fé- lagið hyggst reisa hér skammt innan við þorpið. Vopnafjarðarhreppur gaf fé- laginu húsið til niðurrifs, en það fékk síðan 3 vaska menn til að rífa fyrir sig. BB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.