Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ1984 3 Gustur og Ragnar Hinriksson sem urðu I efsta sæti forkeppni A-flokks. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson. ,* i nsa ■■ ii i iii i 11 innun t — 1 Dúkka og HróAmar Bjarnason sem urðu efst f forkeppni B-flokksins. Fjóröungsmótið á Kaldármelum: Gustur í efsta sæti forkeppni Kaldármelum, 6. júní. Frá Valdimar Kristinasyni, blaðamanni Mbl. FÖRKEPPNI í A-flokki gædinga lauk um fimmleytiö í dag og uröu efstir Gustur og knapinn Ragnar Hinriksson. í öðru sæti uröu þeir Rööull og Jón Steinbjörnsson og því þriöja Randver og Reynir Aöal- steinsson, en hann er meö fimm hesta í úrslitum af átta sem þar Slys á Kaldármelum Kaldármelum, 6. júlí. Frá Valdimar Kristinssyni, fréttamanni Mbl. LAUST fyrir klukkan 21 í kvöld meiddist 18 ára gömul stúlka, sem var gestur hér á fjórðungsmóti hesta- manna á Vesturlandi, illa á fæti er hcstur hennar prjónaði með hana svo hún féll af baki og lenti undir hestin- um. Hlaut stúlkan opið ökklabrot. Heilsugæslulæknir kom úr Borg- arnesi og veitti henni aðhlynningu ásamt lækni sem hér var staddur. Félagar úr Björgunarsveitinni Brák i Borgarnesi, sem hér eru á slysa- vakt, höfðu samband við aðalstöðvar Slysavarnafélags Islands i Reykja- vík sem fékk Leiguflug Sverris Þór- oddssonar til að sækja stúlkuna þeg- ar í stað. Ekki hefur frést frekar af liðan stúlkunnar. A-flokks mæta. Auk þess, sem Reynir er meö Randver í þriðja sæti, er hann meö Júpíter í fjórða sæti, annan Randver í sjötta sæti, Smára í sjöunda sæti og Brímnir í áttunda sæti. f fimmta sæti eru Snarfaxi og Hróömar Bjarnason. Þessir átta hestar mæta ( úrslitakeppni, sem fram fer á sunnu- dag. Veður hefur verið mjög gott á Kaldármelum, skýjað en hlýtt og logn. Um kvöldmatarleytið var talið að hátt í 3 þúsund manns væru á svæðinu og búist við fjölg- un um kvöldið og á morgun, laug- ardag. Framkvæmd dagskrár gekk sæmilega og ljóst er að á mótinu eru sterk keppnishross, bæði með- al kynbótahrossa og gæðinga. Á morgun, laugardag, hefst dagskrá kl. 9 með kynningu á þátttakendum í unglingakeppni og síðan verða gæðingar kynntir. Um eittleytið verður mótið sett og að því loknu verða kynbótahross sýnd. Síðan verður hópsýning ræktunarbúa, sem er orðin fastur liður á fjórðungs- og landsmótum. Um kl. 18 fara fram milliriðlar í kappreiðum og kl. 19 verður sölu- sýning. Dagskrá lýkur með kvöld- vöku, sem hefst kl. 21. 70 % viðbótargjald lagt á innflutt kjarnfóður Landbúnaöarráðherra hefur ákveð- ið, að fengnum tillögum frá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins, að gjald af innfluttu kjarnfóðri verði hækkað, þannig að nú verði lagt á viðbótar- gjald, sem nemi 70% af cif-veröi inn- flutts kjarnfóðurs. Viðbótargjaldið verði endurgreitt af kjarnfóðri, sem eðlilegt getur talist að nota til fram- lciðslu á ákveðnu magni afurða. Til alifugla- og svínaframleiðslu verði endurgreitt miðað við framleiðslu tveggja síðustu ára samkvæmt nánari reglum sem settar kunna að verða. Landbúnaðarráðherra hefur skip- að nefnd með fulltrúum hagsmuna- aðila til að gera m.a. tillögur um fyrirkomulag á endurgreiðslu á kjarnfóðurgjaldi. Á fyrstu 10 mánuðum þessa verð- lagsárs óx mjólkurframleiðslan um 3,8 millj. lítra, þar af í júnímánuði einum um 723 þús. lítra. Það er því augljóst, að framleiðslan verður verulega umfram innanlandsneyslu. En útflutningsverð á smjöri er t.d. innan vð 10% af heildsöluverði, þannig að aðeins fæst þar greiddur litill hluti af vinnslukostnaði og ekkert af afurðaverði til bóndans. Landbúnaðarráðuneytið leggur áherslu á, að samhliða samdrætti í mjólkurframleiðslunni verði dregið sem allra mest úr aðkeyptum rekstrarkostnaði búanna, þannig að sem stærstur hltuti söluverðsins verði kaup bóndans. Þess vegna er nauðsynlegt að draga eins og kostur er úr framleiðslu á mjólk með inn- fluttum fóðurbæti, sem minna en ekki neitt fæst fyrir. (Frétutilkjrnning.) í HJÁESSO íFOSSVOGI NÆST! Nú er búiö að stór- bæta aðkeyrsluna að bensínafgreiðslu okkar i Fossvogi bannig að nú geturðu hæglega rennt við á leið úr Reykjavík í suðurátt. Þar færðu auk bensíns og olíu alls konar smávörur i bíl- inn s.s. kerti, platinur, viftureimar, o.fl., o.fl. Einnig hreinsivörur og ferðavörur i miklu úrvali. - Svo geturðu þvegið bilinn á þvotta- planinu. Við hliðina er Nesti með allt i ferðanestið. - Komdu við hjá ESSO í Fossvogi næst þegar þú átt leið suður úr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.