Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 2
2 *WOr I lTr. " T .n . Kr./nrLfnn MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984 Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálfstæðisflokksins: Forusta Alþýðubanda- lagsins einangruð „ÉG VERÐ nú að svara því fyrst til, að mér finnst skelfing skrýtið að Morgunblaðið skuli elta alla fjöl- miðla í því að gera aðalspurningu um þetta hreina aukaatriði. Það er augljóst að þetta er veigaminnsta at- riði þessarar könnunar og það kem- ur fram af hálfu höfundarins að hann gerir ákveðna fyrirvara um þessar niðurstöður vegna þess hvernig spurt var,“ sagði Þorsteinn Pálsson þegar blaðamaður Morgun- blaðsins innti hann álits á niður- stöðu skoðanakönnunar þar sem fram kemur að meirihluti íslendinga er hlynntur gjaldtöku af varnarlið- inu. „Auðvitað verður að taka þann fyrirvara höfundar með í reikn- inginn. í öðru lagi er spurningin svo óljós að það verður ekkert af þessu ráðið hvað fólkið vill í raun og veru í þessum efnum. Við höf- um í dag talsverðan efnahags- legan ávinning af viðskiptum, sem eðlilega fylgja veru vamarliðsins og með ýmsum öðrum hætti eins og afnot af flugvellinum. stefnu og tekið afstöðu með lýð- ræðisþjóðunum. Þessi könnun leiðir það í ljós að forusta Alþýðubandalagsins er að ein- angrast í þessum efnum eins og ýmsum öðrum og kjósendur þeirra eru að fara inn á aðrar brautir." Bretarnir heim í dag BRETARNIR, sem bjargað var af Eiríksjökli, Francis Sikora og Michael Dukes, eiga að fá að fara af Borgarspítalanum í dag og halda þá tafarlaust heim til sín. Samkvæmt upplýsingum brezka sendiráðsins er talið, að Sikora þurfi að leggjast aftur inn i sjúkrahús, þegar heim kemur, en hins vegar er talið að Dukes þurfi ekki á frekari sjúkravist að halda. „Karnival“ á Arnarhóli Á vegum Æskulýðsráðs Reykja- víkur eru haldin námskeiö fyrir börn á aldrinum 6—12 ára í félags- miðstöðvum borgarinnar. Nám- skeiðin eru frá 10—4 á daginn og standa í 1—2 vikur. Farið er í stuttar ferðir á hverjum degi t.d. á söfn, eitthvað út fyrir borgina, eða stuttar skoðunarferðir. í gær hittust hópar úr Þrótt- heimum, Bústöðum, Árseli, Tón- abæ og Fellahelli á Hlemmtorgi kl. 1, og gengu fylktu liði niður Laugaveg og Bankastræti og þaðan upp á Arnarhól. öll börn- in voru mjög skrautlega klædd, enda var þetta nokkurs konar „karnival". Á Arnarhóli var far- ið í hringdansa, pokahlaup og reiptog, auk annarra skemmti- legra leikja. Þegar blm. kom þar við í gær virtust allir skemmta sér hið besta. Þetta er í fyrsta skipti sem hópar úr öllum félagsmiðstöð- vum í borginni hittast á þennan hátt. Auk þessara námskeiða stend- ur Æskulýðsráð fyrir sumar- starfi í Nauthólsvík og Saltvík. Það breytir ekki afstöðu minni til þess að ég er mótfallinn hug- myndum um beina gjaldtöku. En það sem skiptir meginmáli varð- andi þessa skoðanakönnun er að hún sýnir að það er yfirgnæfandi fylgi við þátttöku okkar í Atl- antshafsbandalaginu, sem hefur verið grundvallaratriði okkar utanríkisstefnu. Það er mikill meirihluti sem styður varnar- samstarfið við Bandaríkin. Könn- unin leiðir það í ljós að fjórðungur stuðningsmanna Alþýðubanda- lagsins styður aðildina að Atl- antshafsbandalaginu, það eru langmerkustu nýmælin og sýnir að allur hamagangurinn og öll tor- tryggnin, sem reynt hefur verið að vekja upp vegna utanríkisstefnu okkar, hefur að engu haldi komið. Fólkið í landinu hefur þjappað sér saman um þessa grundvallar- INNLENT Guðmundur Guðjónsson Lést á Brjánslæk Maðurinn, sem lést í vinnuslysi við hrefnuskurð á Brjánslæk á Barðaströnd á miðvikudag, var Guðmundur Guðjónsson til heim- ilis að Hnífsdalsvegi 13 á Isafirði. Guðmundur var útgerðarmaður og hluthafi í hrefnuvinnslunni Flóka hf. á Barðaströnd. Hann var á átt- ræðisaldri og lætur eftir sig eig- inkonu og uppkominn börn. Endurskoðuð þjóðhagsspá: 13—14 % verðhækkanir og 10 % verðbólga um áramót tekjur ríkissjóðs fyrstu 5 mánuði ársins jukust um 50 % frá síðasta ári Spáð er 13 til 14% verðhækkun frá upphafi til loka þessa árs og um 10% verðbólguhraða um áramót að óbreyttum kjarasamningum og gengisstefnu í endurskoðaðri þjóö- hagsspá Þjóðhagsstofnunar fyrir þetta ár. Þar kemur ennfremur fram að kaupmáttur ráðstöfunartekna er talinn verða svipaður og á síðasta ársfjórðungi 1983 eða 5 til 6% lakari en að meðaltali það ár. Sagt er að erlendar lántökur verði afar miklar á árinu og að skuldir þjóðarinnar iækki ekki í hlutfalli við þjóðar- framleiðslu. Þá kemur fram hjá Þjóðhags- stofnun, að tekjur ríkissjóðs fyrstu fimm mánuði ársins hafi aukizt um rúmlega 50% frá síð- asta ári en gjöld aðeins um 37%. Hækkun þessi umfram gjöld stafi meðal annars af hækkun veltusk- atta nokkuð umfram verðbreyt- ingar á þessum tíoma. Þetta eigi sérstaklega við almennar tolltekj- ur auk mikillar aukningar bíla- innflutnings. Þá hafi ekki gætt samdráttar í söluskattstekjum, þrátt fyrir áætlaða rýrnum kaup- máttar. Loks hafi innheimta beinna skatta aukizt um 57% frá fyrra ári, en á síðari hluta ársins sé búizt við mun minni breyting- um eða nálægt 20%. Morgunblaðinu barst í gær eft- irfarandi frétt frá Þjóðhagsstofn- un: „Þjóðhagsstofnun hefur í dag birt endurskoðun þjóðhagsspár fyrir árið 1984 í ljósi framvind- unnar það sem af er ári. Helstu niðurstöður eru dregnar saman í inngangskafla skýrslunnar, Ágrip úr þjóðarbúskapnum nr. 2, júlí 1984, á þessa leið: ■ Þjóðarframleiðsla dregst minna saman árið 1984 en spáð var í ársbyrjun, eða um 1 'k % í stað um 4% frá fyrra ári. Hér veldur meðal annars rýmkun aflakvóta, en einnig almenn aukning eftirspurnar í landinu frá fyrri spá. Ýmis merki eru um það, að botni hafi verið náð í hagsveiflunni. ■ Hagur atvinnuvega er misjafn um þessar mundir. Sjávarút- vegsfyrirtækin berjast sum í bökkum vegna minnkandi þorskafla og mikilla skulda, sem hvíla á fiskiskipaflotanum og farið hafa vaxandi samtímis þverrandi afla. Hagur iðnaðar og ýmissa annarra atvinnu- greina virðist á hinn bóginn með besta móti, og sér þess stað í áformum um framkvæmdir og ný fyrirtæki. ■ Atvinnuástand hefur, þegar á heildina er litið, verið svipað og árið 1983 og ekki virðast horfur á miklum breytingum á því á næstunni. ■ Spár um þróun verðlags og laun á árinu eru lítt breyttar frá þeim, sem settar voru fram að afstöðnum kjarasamningum og fjármálaráðstöfunum, sem þeim fylgdu. Spáð er 13—14% verðhækkun frá upphafi til loka árs og um 10% verðbólguhraða um áramót að óbreyttum kjara- samningum og gengisstefnu. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á árinu er talinn verða svipaður og var á síðasta fjórðungi árs- ins 1983, eða um 5—6% lakari en að meðaltali það ár. Nokkur óvissa ríkir um raunverulega tekjuþróun, og fremur á þann veg að tekjur og kaupmáttur í heild verði meiri en beinar áætlanir benda til. ■ Samdráttur einkaneyslu virðist lítill það sem af er ári, og fyrir árið allt minni en fylgja ætti beinum áætlunum um kaup- mátt tekna almennings. Endur- skoðun á fjárfestingarhorfum bendir nú til lítilsháttar aukn- ingar í stað fyrri spár um nokk- um samdrátt. í heild virðast horfur á, að þjóðarútgjöld minnki lítt eða ekki þetta ár. ■ Vegna mikils innflutnings það sem af er ári eru nú horfur á mun meiri viðskiptahalla en áð- ur var gert ráð fyrir, eða allt að 4% af þjóðarframleiðslu, þrátt fyrir meiri útflutningsfram- leiðslu og útflutning en áður var spáð. ■ Á bak við viðskiptahallann gagnvart útlöndum býr mis- vægi í innlendum fjármálum og peninga- og lánamálum. Nokk- ur halli er á ríkisbúskapnum og þenslu gætir á lánamarkaði þrátt fyrir hækkun raunvaxta. Erlendar lántökur verða afar miklar á árinu og skuldir þjóð- arinnar erlendis lækka ekki í hlutfalli við þjóðarframleiðslu. Framvindan á fyrri hluta ársins sýnir, að afar mikið hefur dregið úr verðbólgu. Enn er þó við veru- legt misvægi að glíma í þjóðar- búskapnum. Þetta misvægi birtist nú fyrst og fremst í mynd vaxandi viðskiptahalla." um nefndum. Jón var heiðursfélagi í Verka- lýðsfélagi Hólmavíkur, Bifreiða- stjórafélagsins Frama og í Al- þýðuflokknum. Hann var sæmdur gullmerki sjómannadagsráðs 1976 og Fálkaorðunni 1973. Þá var Jón ritstjóri Neista, blaðs jafnaðar- manna í Siglufirði, 1935 til 1937. Fyrri kona Jóns var Emilía Jóna Einarsdóttir, en þau skildu. Síðari kona Jóns var Jóhanna Guð- mundsdóttir og lifir hún mann sinn. Jón Sigurðsson, fyrrum forseti $jómannasam- bands Islands, látinn JÓN Sigurðsson, fj'rrum forseti Sjó- mannasambands íslands, er látinn, 82 ára gamall. Jón var fæddur þann 12. maí 1902 í Hafnarfirði og var sonur hjónanna Sigurðar Jónssonar fiskmatsmanns þar og konu hans, Guðnýjar Ágústu Gísladóttur. Jón nam við Barnaskóla Hafn- arfjarðar og að Ási í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Hann stundaði sjómennsku á togurum, bátum og skútum á unga aldri, en síðar vann hann aðallega að skrifstofu- og fé- lagsmálastörfum fram á elliár. Hann var erindreki ASÍ frá árs- byrjun 1934 og framkvæmdastjóri þess 1940 til 1944 og 1949 til 1954. Starfsmaður Pósts og síma var hann frá 1945 til 1948, fram- kvæmdastjóri Félags sérleyfis- hafa 1955 til 1958, forstjóri Inn- flutningsskrifstofunnar 1958 til 1960, skrifstofustjóri hjá verðlags- stjóra 1961 til 1966 og 1968 til 1972. Hann var starfsmaður Sjó- mannasambands íslands 1966 til 1968 og 1972 til 1976. Ritari Sjó- mannafélags Reykjavíkur 1932 til 1934 og 1951 til 1961 og formaður þess 1967 til 1971. Jón var forseti Sjómannasambands íslands frá stofnun þess 1957 til 1976. For- maður fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Reykjavík 1959 til 1963 og í stjórn ASÍ 1938 til 1944, 1948 til 1954 og 1966 til 1967. Hann sat í Verðlagsráði sjávarútvegsins frá stofnun þess 1961 til 1977, þar af formaður 1966 til 1968 og í húsráði Norræna hússins frá opnun þess 1968 til 1979, í hafnarstjórn Reykjavíkur frá 1958 til ársloka 1963, í stjórn SR 1934 til 1937 og 1974 til 1976, í verðlagsnefnd 1960 til 1980, í Sölunefnd setuliðseigna 1945 til 1947, í stjórn Alþýðu- flokksins 1936 til 1976, þar af í 25 ár í framkvæmdastjórn flokksins og formaður verkalýðsmálanefnd- ar flokksins í 20 ár. Hann átti auk aíPt.i í mftrcniTTl st.iAmalrinnA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.