Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.07.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984 Sigurvegarar í flokki 500cc, talið frá vinstri: Jón S. Halldórsson, sem varð annar, Þorvarður Björgúlfsson, sem var í fyrsta sæti og Ragnar I. Stefáns- son, sem hafnaði í 3. sæti. Motocross-keppni VÍK: Þorvarður sigraði í kraftmeiri flokknum Meðfylgjandi myndir tók Kristján Ari Einarsson af keppni í Motocross sem haldin var nýlega á vegum vélhjólaíþróttaklúbbsins (VÍK). Um 16 félagar tóku þátt í keppninni og var keppt í tveimur flokkum. Sigurvegarar í 250cc voru Valdimar Jónsson og Henrik Thorarensen, en sigurvegarar í flokki 500cc voru Þorvarður Björgúlfsson, Jón S. Halldórsson og Kagnar I. Stefánsson. Þorkell Ágústsson, sem hafnaði í 4. sæti. Sigurvegarinn, Þorvarður Björgúlfs- son. Þorkell Ágústsson Lv. og Jón S. Halldórsson Lh. Jón S. Halldórsson Lv. og Þorvarður Björgúlfsson Lh. Mjólkursamlag Búðardals 20 ára: Höfum lagt á- herslu á vöruþróun — Viðtal við Sigurð Rúnar Friðjónsson, mjólkursamlagsstjóra Mjólkursamlagiö í Búðardal hefur nú veriö starfandi í 20 ár en upphafleg ástæða þess aö ráðist var í aö setja á stofn mjólkursamlag var sú að auka atvinnumöguleika íbúa sveit- arinnar. Fulltrúar úr öllum hreppum Dalasýslu héldu fund að As- garði í Dölum og ræddu þar um fyrirhugaða stofnun mjólkur samlaga. Á fundinum voru kosnir þrír menn í undirbúings- nefnd sem kanna skyldi hvaða leiðir skyldi fara og hvernig best væri að snúa sér í þessu efni. Ákveðið var að ræða við Mjólkursamsöluna í Reykjavík og Kaupfélag Hvammsfjarðar um að taka að sér byggingu og rekstur mjólkurstöðvar í Búðardal og var niðurstaðan sú að Mjólkursamsalan í Reykjavík tók að sér verkefnið. Framleiddi í upphafi neyslumjólk fyrir Búð- ardal og nágrenni „Það var hafist handa við að reisa húsakynni þau er mjólkur- samlagið skyldi starfa í í ágúst 1962 og Mjólkursamlagið í Búð- ardal tók síðan formlega til starfa 18. mars árið 1964,“ sagði Sigurður Rúnar Friðþjófsson, fram- kvæmdastjóri Mjólkursamlagsins, í viðtali við blm. Morgunblaðsins. „Það má segja að stofnun Mjólk- ursamlagsins hafi fyrst og fremst verið í þvi skyni að tryggja íbúum Búðardals og nágrennis reglu- bundna afurðasölu frá mjólkur- framleiðendum. í fyrstu var ein- ungis framleidd neyslumjólk fyrir þetta svæði en síðan hefur starf- semin aukist og fjöldi þeirra mjólkurafurða sem við framleið- um í dag er meiri en á fyrstu árum starfseminnar. Þá var einnig starfrækt smjörgerð í Mjólkur- samlaginu frá fyrstu tíð. Fyrstu þáttaskilin sem áttu sér stað í rekstri Mjólkursamlagsins ef svo má til orða taka, voru þau að tekið var við rekstri Mjólkur- samlagsins á Grundarfirði árið 1974, en þar hafði verið starfrækt mjólkursamlag í u.þ.b. tíu ár en reksturinn ekki gengið sem best. Við það að taka við rekstri Mjólk- ursamlagsins á Grundarfirði stækkaði auðvitað dreifingar- svæði Mjólkursamlagsins hér. Dreifingarsvæðið hafði verið Dal- asýsla og Austur-Barðástrandar- sýsla en við það bættist nú norð- anvert Snæfellsnesið." Mjólkurframleiðendum hefur fækkað „Á dreifingarsvæði okkar í dag eru um 6200 íbúar og það eru u.þ.b. 90 mjólkurframleiðendur sem sjá okkur fyrir hráefni til vinnslu. Þegar Mjólkursamlagið í Búðardal var sett á laggirnar fyrir Sigurður Rúnar Friðjónsson, mjólk- ursamlagsstjóri Mjólkursamlagsins í Búðardal. Hann tók við því starfi fyrir sjö árum og hafði þá verið starf- andi hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík. 20 árum voru mjólkurframleið- endur um 270, eða um þrisvar sinnum fleiri en þeir eru í dag og það er spá mín að þeim eigi enn eftir að fækka verulega á næstu árurn," sagði Sigurður Rúnar. „Fyrstu árin var húsnæði Mjólkursamsölunnar um 750m2 en árið 1975 var ráðist í það að stækka húsnæðið og byggja I250m! við og var starfsemi sam- lagsins aukin um leið. Var hafist handa við að framleiða osta og f júlí 1977 var fyrsti osturinn fram- leiddur af Mjólkursamlaginu í Búðardal. Var til að byrja með einungis framleiddur Gouda-ostur en ostategundunum sem fram- leiddar eru átti eftir að fjölga og árið 1981 komu tvær nýjar teg- undir af ostum á markað, Dala- yrja og Dala-Brie. Lögum besta skyrið á íslandi „Á árunum 1967 til 1977, eða um tíu ára skeið, var framleidd þurrmjólk hér í Búðardal en með tilkomu ostagerðarinnar féll sú framleiðsla niður með öllu,“ sagði Sigurður Rúnar. „Auk þess að framleiða algengustu mjólkuraf- urðir, s.s. neyslumjólk og osta þá framleiðum við einnig skyr sem við teljum það besta á fslandi og selst það vel og er verst að allir landsmenn geti ekki fengið að njóta þess. Auk þess að framleiða mjólk- urvörur sjáum við einnig um dreifingu á þeim mjólkurafurðum sem við framleiðum ekki sjálfir. Við sjáum t.d. um alla dreifingu á G-mjólkurvörum, jógurti og ís- blöndu fyrir MS, en það er Mjólk- ursamlagið í Reykjavík sem á og rekur Mjólkursamlagið hér í Búð- ardal. Svo þetta samstarf er ekki óeðlilegt. Þá dreifum við einnig framleiðsluvörum frá Osta- og Smjörsölunni. Við búum hér við mjög góða vinnuaðstöðu, það er sæmilega rúmt um okkur enn sem komið er og því hefur okkur tekist að hafa húsakynnin, þar sem framleiðslan fer fram, snyrtileg og hrein. Einn- ig er hér fullkomin rannsókna- stofa þar sem við getum unnið að rannsóknum á okkar framleiðslu og borið hana saman við fram- leiðslu annarra og við miðum okkar framleiðslu einungis við það besta frá öðrum framleiðendum." 18 manns fastráðnir við Mjólkursamlagið „Þegar Mjólkursamlagið tók til starfa voru starfsmenn þess ein- ungis 6 og tvö til þrjú fyrstu árin var það svo. Þegar byrjað var að framleiða þurrmjólkina var fjölg- að og í dag eru 18 starfsmenn fast- ráðnir. Á sumrin sjáum við einnig skólafólki fyrir atvinnu og við höf- um verið heppnir með það því við höfum fengið sama sumarstarfs- fólkið ár eftir ár. í dag er umfang starfseminnar miklu meira en til að byrja með, bæði er dreifingarsvæðið stærra og einnig hefur samstarf við önn- ur mjólkursamlög orðið meira. Fyrir fjórum árum hófum við samstarf við Mjólkursamlagið á Patreksfirði, auk þess sem við náttúrlega höfum mikil samskipti við mjólkursamlögin á fyrsta verðlagssvæði, en það eru þau sem í raun eiga Mjólkursamlag Búð- ardals. Hafa lagt áherslu á vöruþróun Sigurður Rúnar sagði að á und- anförnum árum hefði framleiðsl- Lúðvík Þórðarson hefur starfað við mjólkursamlagið í rúm 10 ár en hef- ur starfað við keyrslu í 37 ir. Sigurður Rúnar, samlagsstjóri, leiðbeinir ungu starfsfólki i rannsóknastofu mjólkursamlagsins en það fylgist með af athygli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.