Morgunblaðið - 07.07.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ1984
17
AVARP
framkvæmdanefndar alþjóðasambands samvinnumanna
á alþjóðadegi samvinnumanna 7. júlí
Góðir samvinnumenn
Samstaða
í samvinnu 1984 felst staðfesting á spakmælinu kunna, „samein-
aðir stöndum við, en sundraðir föllum við". Með því er jafnframt
viðurkennt, að tugur manna sem vinnur saman, fær meiru til
leiðar komið með þeim hætti en þeir gerðu samanlagt, ef hver
ynni fyrir sig. Þetta á einnig við um starfsemi samvinnufélaga
framleiðenda, hvort sem um er að ræða samvinnufélög verka-
manna eða samvinnufélög í landbúnaði eða sjávarútvegi. Þessu
er sömuleiðis þann veg farið í viðleitni samvinnufélaga neytenda
við að bæta kjör manna og gildir þá einu hvort um er að ræða
samvinnufélög, sem fást við vörusölu, tryggingar, byggingar,
lánastarfsemi eða annað. Samstaða er samvinnumönnum í blóð
borin.
Frelsi
í samvinnu 1984 felst frelsi til þess að velja í stað þess að láta
neyða upp á sig skoðunum eða sannfæringu annarra. í því felst
að móta ákvarðanir. Jafnframt felur þetta í sér, að fólk getur sjálft
valið milli samvinnufélaga.
Við eigum líka að leggja fram okkar skerf við stefnumörkun og
stjórn samvinnufélags okkar. Það er siðferðileg skylda, sem
leiðir af þeirri ákvörðun okkar að ganga í samvinnufélag. Sam-
vinna leggur mönnum skyldur á herðar jafnframt því sem hún
felur í sér frelsi, því að innan samtaka samvinnumanna er sú
ábyrgð sem menn taka sjálfviIjugir á sig, forsenda frelsisins.
Réttlæti
í samvinnu 1984 felst einnig, að menn vilji endurheimta þá hug-
sjón sem birtist í því, „að það sem þú vilt, að aðrir menn gjöri
þér, það skalt þú og þeim gjöra". Þessi réttlætishugsjón á að
sjálfsögðu við það að hver bæti annan upp, þannig að jöfnuður
í samskiptum miðist við gildi þess sem hver gerir fyrir annan.
Samvinna er líka réttlæti.
Eigi réttlæti að ríkja í veröldinni, hljótum við að leitast við að
vinna saman í daglegu lífi, jafnvel án þess að gera okkur alltaf
grein fyrir því. En í heimi eins og þeim sem við búum í, þar sem
margt orkar tvímælis, háttarþóöðru vísitil. Þessvegna erokkur
nauðsyn að halda vöku okkar.
Með því að leitast við að efla samstöðu, frelsi og réttlæti styrkjum
við friðinn.
Samvinna og þróun
Nú eru í heiminum 370 milljónir karlaog kvenna, sem tekið hafa
höndum saman í samvinnufélögum, stórum og smáum, og
vinna saman að margvíslegum efnahags- og félagslegum verk-
efnum. Þetta fólk á sér sömu hugsjónirogfrumkvöðlarnir í Roch-
dale, og margir aðrir á síðustu öld.
Samvinnufélög hafa á lýðræðislegan hátt lagt mikið að mörkum
til þess að draga úr vöruverði og bæta starfsskilyrði - og keppi-
nautar þeirra hafa orðið að fara að dæmi þeirra. Leggja verður
áherslu á, að trú á samvinnuhugsjónina er jafnframt trú á lýð-
ræði.
Samvinnufélög hafa myndað landssamtök, eftir viðfangsefnum,
til þess að auka styrk sinn. Þessi samtök hafa aftur myndað með
sér sambönd.
Með því að beita aðferðum, sem hæfðu við lausn þeirra vanda-
mála sem við var að etja á þeim tíma kom þar 1895, að stofnað
var alþjóðasamband samvinnumanna. Meginmarkmið þess er
að tryggja, að grundvallarreglum samvinnumanna sé fylgt á
öllum sviðum. Enginn sigur er endanlegur og hvert mannlegt
samfélag þarf sífellt að bæta, ef það á að eiga sér lífs von. Sam-
vinnuhreyfingin á að vera í stöðugri þróun.
1984
Alþjóðasamband samvinnumanna - ICA — heldur þing sitt á
þessu ári — og það tækifæri þarf að nota til þess að efla
samvinnuhugsjónina. í október koma um 1000 fulltrúar hvað-
anæva úr heiminum saman í Hamborg með þetta markmið í
huga. Þeir munu fjalla um lög og áætlanir sambandsins og þau
vandamál sem samvinnuhreyfingin á við að etja um þessar
mundir, og ræða mögulega lausn á þeim, til þess að efla þrótt
samtakanna og búa þau undir framtíðina.
Hver einstaklingur getur lagt sinn skerf að mörkum í þessu efni
með því að glöggva sig á þeim hugsjónum sem hann tengir sam-
vinnunni og gera grein fyrir þeim og deila þeim með öðrum
samvinnumönnum á fundum í hverju samvinnufélagi. „Draum-
ar eins manns verða aðeins draumar — en þeir eru upphaf nýs
veruleika, ef menn deila þeim með öðrum".
í samvinnu felst sameining. Með þeim hætti eiga menn saman
vonina um heim, þar sem ríkir meiri jöfnuður, frelsi og friður en
nú gerist. Jafnframt vinna þeir að því að gera þessa von að veru-
leika. Alþjóðasamband samvinnumanna, sérnefndir þess, að-
ildarfélögin og þær 370 milljónir manna sem í þeim eru um heim
allan, munu helga þessari hugsjón krafta sína.
Megi 62. samvinnudagurinn verða til þess að efla starf og
umræðu sem beinist að þessu marki.
Framkvæmdanefnd ICA
Alþjóðasamband samvinnumanna
SENDUM ÍSLENSKU SAMVINNUFÓLKI
ÁRNAÐARÓSKIR íTILEFNI
ALÞJÓÐADAGS SAMVINNUMANNA