Morgunblaðið - 07.07.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 1984
27
íslenski hópurinn í húsakynnum franska þingsins.
íslenskir þingmenn heimsóttu franska í vor:
Viðleitni til að efla
skilning milli þjóða
HÓPUR alþingismanna úr flestum
stjórnmálaflokkum lagði leið sína
til Frakklands í vor í boði franskra
þingmanna, en þeir voru með þess-
ari ferð að endurgjalda ferð sem
Alþingi hafði boðið þeim í fyrir
tveimur árum. Salome Þorkels-
dóttir, forseti efri deildar Alþingis,
var fyrir hópnum sem heimsótti
Frakkland.
„Það eru vináttuhópar innan
þjóðþinga Frakklands og ís-
lands, sem hafa staðið fyrir
þessum gagnkvæmu heimsókn-
um,“ sagði Salome í samtali við
Morgunblaðið. „Það hefur tíðk-
ast innan þjóðþinga um víða ver-
öld að innan þeirra séu myndað-
ir vináttuhópar til að efla
tengslin við önnur lönd. Ávinn-
ingurinn af þessum samskiptum
er talinn sá að með þeim kynnist
menn innbyrðis og öðlist þekk-
ingu á vandamálum annarra
þjóða," sagði Salome.
Hún sagði að frönsku þing-
mennirnir hefðu komið hingað
til lands í júlí 1982 og þau hefðu
endurgoldið heimsóknina í maí í
vor. Sex þingmenn og einn
starfsmaður þingsins hefðu farið
til Frakklands og dvalist í viku.
„Þetta var ógleymanleg ferð
og það var tekið á móti okkur af
miklum höfðingskap og hlýju.
Mér virtist Frakkarnir vera sér-
staklega einlægir í því að vilja
tengjast vináttuböndum við Is-
land, enda voru í þessum vin-
áttuhóp franska þingsins þing-
menn úr þeim héruðum Frakk-
lands, sem þeir frönsku sjómenn
komu frá, sem stunduðu ís-
landsmið hér áður fyrr og ef-
laust er áhuginn að einhverju
leyti tengdur þeirri forsögu,"
sagði Salome.
Salome sagði að það hefði ver-
ið farið með þau í skoðunarferð
um París og í heimsókn í franska
þjóðþingið. Þar hefði þá verið
Frá móttöku forseta franska þingsins.
fyrirspurnartími, en einnig
hefðu þau orðið vitni að minn-
ingarathöfn um nýlátinn þing-
mann. Síðan hefðu þau verið
ávörpuð og þingheimur fagnað
þeim. Þá hefði forseti þingsins
veitt þeim áheyrn og þau skoðað
húsakynni þingsins og annað,
sem aílt hefði verið með miklum
glæsibrag og borið vitni um þá
margra alda sögu, sem Frakkar
ættu að baki sem ein fremsta
menningarþjóð Evrópu.
Salome sagði að leiðin hefði
síðan legið suður á bóginn. Þau
hefðu meðal annars heimsótt
vísindastofnun í Orleans, sem
fengist við eldfjalla- og jarð-
hitarannsóknir og hefði komið í
ljós að við gætum miðlað Frökk-
um upplýsingum um margt í
þeim efnum. Þá hefðu þau skoð-
að hinn forna páfagarð í Avign-
on, skoðað flugvélaverksmiðj-
urnar, sem framleiddu þyrlur
sömu gerðar og þá sem við ís-
lendingar hefðum nú fest kaup á
fyrir Landhelgisgæsluna, Mar-
seille hefði verið heimsótt og
fleira.
Salome sagði það hafi verið
greinilegt að opinber heimsókn
forseta íslands, Vigdísar Finn-
bogadóttur, til Frakklands fyrir
nokkru hefði verið okkur mikil
landkynning. „Ég held þessi ferð
hafi tvímælalaust orðið til þess
að styrkja vináttutengslin milli
landanna. Það var tekið á móti
og farið með okkur eins og þjóð-
höfðingja. Til að mynda var mér
fenginn lífvörður við komuna,
sem fylgdi mér hvert fótmál og
hefur það sennilega verið fyrir
það að ég var fyrir hópnum,"
sagði Salome.
Auk Salome tóku þátt í ferð-
inni Árni Johnsen, Geir Gunn-
arsson, Guðmundur Bjarnason,
Jón Baldvin Hannibalsson,
Kristín Kvaran og ólafur
Ólafsson, deildarstjóri á skrif-
stofu Alþingis. Þá fylgdi þeim
einnig á ferð þeirra sendiherra
íslands í Frakklandi, Tómas
Tómasson.
íslandsmót í svifflugi
FLUGMÁLAFÉLAG ísiands gengst
fyrir íslandsmóti í svifflugi, sem
hefst á Helluflugvelli í dag, mun
standa í 9 daga.
Eftirtaldir 10 keppendur og
svifflugur verða í keppninni: Ág-
úst J. Magnússon (Club-Liebele,
TF-SIS), Garðar Gíslason (LS3-17,
TF-SLS), Höskuldur Frímannsson
(KA-6E, TF-SAE), Baldur Jónsson
(Speed Astir IIB, TF-SIP), Eggert
Norðdahl (Ka-6CR, TF-SAS),
Kristján Sveinbjörnsson (Vasama,
TF-SIK), Sigmundur Andrésson
(Std. Astir, TF-SOL), Steinþór
Skúlason (K-8B, TF-SAV), Tom
Knauff (HP-16, TF-SIA), og Þor-
geir Árnason (BG-12/16, TF-
SON). Auk keppenda eru f hverju
keppnisliði einn til þrfr aðstoð-
armenn.
Mótsstjóri verður Þórmundur
Sigurbjarnarson, en auk hans
verða í mótsstjórn Marvin Frið-
riksson, Sigurbjarni Þórmunds-
son, Sverrir Thorláksson og Þórir
Indriðason. Ráðgjafi mótsstjórnar
verður Guðmundur Hafsteinsson,
veðurfræðingur, en hann hefur
sérstaklega kynnt sér erlendis
veðurspár fyrir svifflug.
Missögn leiðrétt úr
Sagnabanka mínum
eftir Leif Sveinsson
Laugardaginn 30. júnf birtist í
Sagnabanka minum í Lesbók Mbl.
frásögn af frk. Brynhildi Sörensen
og Birni Bjarnasyni frá Steinnesi.
Er nú komið í ljós, að heimildar-
maður minn hefur þar farið með
staðlausa stafi. Þau Brynhildur og
Björn hafa að sjálfsögðu aldrei
verið handtekin í London og þaðan
af síður ákærð.
En íslensk réttarvitund er ákaf-
lega sérstæð. ólafur hét maður og
hjá honum var brotist inn og
miklu fémætu stolið. Hann var
jafnan síðan kallaður óli þjófur.
Kennari minn í eðlisfræði í Gagn-
fræðaskóla Reykvíkinga hét Sig-
fús Sigurhjartarson cand. theol.
og háttsettur í Stórstúku Islands
og hafði aldrei bragðað vfn á
ævinni. Hann var kallaður Fúsi
flaska.
Nú er komið f ljós, að svipað er
með hina ágætu sendiráðskonu
frk. Brynhildi. Hún hafði þann
starfa m.a. f sendiráði íslands að
leysa út íslendinga úr dyblissum
Lundúnaborgar. Varð hún þvf
málkunnug flestum lögregluvarð-
stjórum í hjarta Lundúna. Virðist
hún gjarnan hafa farið f kvöld-
göngur að vitja um á lögreglu-
varðstöðvunum, hvort einhver
stórlaxinn frá Islandi hefði lent f
neti lögreglunnar. Björn Bjarna-
son fylgdi henni stundum á þess-
um kvöldgöngum, ef hann var f
heimsókn í London.
En sjaldan launar kálfur ofeldi.
Nú hefur einhver tugthúslimur-
inn, sem Brynhildur leysti úr
rasphúsi í London, hannað þessa
lygasögu um frk. Brynhildi, og
verð ég að harma það að hafa lagt
trúnað á slíkt. Að Birni Bjarna-
syni hafi verið flækt í söguna, er
einnig miður og ber að harma það.
Sagnabanki minn er tilraun til
nýjunga í Lesbókinni og hafa orð-
ið þar nokkrar slæmar missagnir
og fáein „slys“.
f framtíðinni verður kappkostað
að koma i veg fyrir missagnir og
„slys“, því ekki var meiningin að
þetta yrði svívirðingabanki, held-
ur sagnabanki til að létta
mönnum skammdegi, slyddu og
byl.
Reykjavík, 6. júlf 1984.
Leifur Sveinsson
Albert hefur
greitt sektina
ALBERT Guðmundsson, fjár-
málaráðherra, hefur greitt 6.500
króna sekt í ríkissjóð, fyrir að
halda hund í Reykjavík.
Náttúruskoðun
Sunnudaginn 8. júlí verður farið í
alhliða náttúruskoðunarferð um
Hnjóskadal á vegum Náttúrufræði-
félags íslands og Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri.
Farið verður frá Náttúrugripa-
safninu á Akureyri, Hafnarstræti
81, kl. 9 að morgni, og komið þang-
að aftur um kvöldið. Farið verður
í Hnjóskadal
í rútu og kostar sætið 300 kr.
Þátttakendur hafi með sér nesti.
Hreggviður Norðdahl jarðfræð-
ingur verður aðalleiðbeinandi í
ferðinni, ásamt fleiri jarðfræðing-
um, grasa- og dýrafræðingum frá
Reykjavík og Akureyri.
(Úr fr^tutilkynninjru)
Bókaklúbbur AB:
Ný bók eftir Kosinski
BÓKAKLÚBBUR Almenna bókafé-
lagsins hefur sent frá sér skáldsög-
una Stefnumót við óvissuna eftir
Jerzy Kosinski f þýðingu Franz
Gíslasonar.
í fréttatilkynningu frá AB seg-
ir: „Þetta er þriðja skáldsagan
sem kemur út eftir Kosinski á ís-
lensku, en hinar sem á undan eru
komnar eru Skræpótti fuglinn og
Fram í sviðsljósið, og kom sú síðar-
nefnda út hjá bókaklúbbnum 1981.
Eftir þeirri sögu var gerð kvik-
mynd sem varð mjög fræg og var
sýnd hér lengi árið 1982, ein af
síðustu myndum Peter Sellers.
Kosinski er einn af víðlesnustu
höfundum samtímans, enda eru
skáldsögur hans í fyllsta máta
sérkennilgar og bera svip af hans
sérstæðu ævi, sem er í senn hrylli-
leg, undarleg og ævintýraleg. Kos-
inski hefur f fáum orðum sagt
brotist úr „hræðilegri niðurlæg-
ingu bernskuáranna gegnum und-
arlega röð atvika til þess að verða
prinsinn sem kvæntist prinsess-
unni og erfði ríkið“ eins og komist
er að orði um hann í fröttabréfi
bókaklúbbsins.
Þessi saga Kosinskis sem nú
kemur út, Stefnumót við óvissuna,
heitir á frummálinu Blind date.
Hún er að einhverju leyti sjálfs-
ævisaga rakin f þáttum. Hún hefst
f Val Pina, vinsælu skfðahóteli f
Sviss og síðan er farið aftur í tím-
ann, æskuár austur i Rússlandi,
flótti, furðuleg atvikakeðja á Vest-
urlöndum. Hér er lýst bæði fögr-
um og ógeðfelldum viðburðum,
hvergi dregið undan, en „frásögn-
in einkennist þó oftast af mjög
mennskri hlýju, glettni og gáska
sem einatt getur orðið að bitrasta
háði“, eins og þýðandinn Franz
Gíslason kemst að orði f eftirmála.
Sjálfsagt er þessi bók eins konar
þverskurður af okkar sérkennilegu
tfmum og þeim óteljandi þver-
sögnum sem hvarvetna gætir."
Stefnumót við óvissuna er 264
bls., unnin í Prentsmiðju G. Bene-
diktssonar og Félagsbókbandinu.
Nýtt nafn
og ný lög
SVEINAFÉLAG húsgagnasmiða hef-
ur nú skipt um nafn og heitir Félag
starfsfólks í húsgagnaiðnaði. Á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn var f
lok júní, voru samþykkt ný lög fyrir
félagið og segir í þeim m.a.: „Rétt til
inngöngu í félagið hafa þeir, sem
samkvæmt landslögum hafa öðlast
sveinsréttindi í húsgagnasmíði og
bólstrun.
Ennfremur eiga rétt til inn-
göngu i félagið þeir launþegar,
sem hafa starfsréttindi við hús-
gagnasmíði og bólstrun."
Á aðalfundinum var fjallað um
kjaramál og var samþykkt að
segja upp launaliðum kjarasamn-
inga frá febrúar sl. frá og með 1.
september næstkomandi.