Morgunblaðið - 18.07.1984, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
Starfsmenn Fylkis í Grimsby:
Ætluðu sjálfir að
landa úr Berki NK
— vegna verkfalls hafnarverkamanna
FISKLANDANIR íslenzkra fiskiskipa ganga enn eðlilega fyrir sig í Hull í
Englandi enda hefur verkfall hafnarverkamanna ekki náð þangað. Gyllir ÍS
landaði þar í gær og í nótt var hafin löndun þar úr Þórshamri GK. Hins vegar
veldur verkfallið nokknim erfiðleikum í Grimsby, en ekki óyfirstíganlegum að
sögn Jóns Olgeirssonar, forstjóra Fylkis, sem þar sér um fisklandanir. Sagði
hann að starfsmenn fyrirtækisins og aðfenginn vinnukraftur myndu sjá um
löndun úr Berki NK, sem hefjast átti þar seint í gærkvöldi.
Gyllir ÍS landaði alls 163,8 lest-
um í Hull í gær. Heildarverð var
4.271.000 krónur, meðaiverð 26,05.
Uppistaða afla Gyllis var þorskur,
en nokkuð smár, og auk þess var
hann með um 40 lestir af ufsa,
karfa og ýsu, sem dró meðalverð
nokkuð niður.
Jón Olgeirsson sagði ennfremur í
samtali við Morgunblaðið, að þó
hafnarverkamenn væru óánægðir
með að þessi háttur væri hafður við
fisklandanir, virtist ekkert benda
til þess, að þeir gætu hindrað lönd-
un, en Börkur væri með 115 til 120
lestir, sem fara ættu á uppboð í
morgun, miðvikudagsmorgun.
Hann sagði einnig, að sér virtist
engin lausn á verkfallinu vera í
sjónmáli nú, þó hann teldi ólíklegt
að það stæði lengi. England væri
vissulega eyja og því kæmi verkfall
hafnarverkamanna mjög fljótt
niður á almennu atvinnulífi og að-
föngum fólks. Hins vegar virtist
sér vera komin meiri pólitísk lykt
af verkfallinu. Búið væri að leysa
þau mál, sem sett hefðu verið á
oddinn í upphafi og gæti pólitíkin
haft einhver áhrif til lengingar.
Um það væri þó erfitt að spá og því
væri bara að bíða framvindu mála.
Þjónustuhús Stálfélagsins í Fögruvík á Vatnsleysuströnd, en þar fyrir neðan mun 3.200 fermetra verksmiðjuhús rísa.
Morgunblaðiö/Arnór
Fjármálaráðherra veitir
Stálfélaginu ríkisábyrgð
Fjárraálaráðherra ákvað síðastlið-
inn mánudag að veita Stálfélaginu
hf. ríkisábyrgð fyrir 45 milljónum
króna. Að sögn Alberts Guðmunds-
sonar fjármálaráðherra er það bund-
ið því að veð er Stálfélagið leggur
fram séu samþykkjanleg af Ríkis-
ábyrgðarsjóði.
Ríkisábyrgðin er eitt skilyrða
sem Framkvæmdasjóður setti
fyrir hlutabréfaeign upp á 9 millj-
ónir króna. í samtali við Morgun-
blaðið sagðist einn forsvarsmanna
Stálfélagsins fagna þessari ákvörð-
un fjármálaráðherra, enda væru
málefni félagsins með henni að
komast í höfn.
Svar Norðmanna jákvætt
fyrír okkur íslendinga
— segir Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra
FORMLEGT svar frá Norðmönnum vegna mótmæla íslendinga við
samkomulagi Norðmanna og Dana þar sem þeira síðarnefndu er veitt heim-
ild til að veiða 20 þúsund tonn af loðnu á Jan Mayen-svæðinu, barst til
utanríkisráðuneytisins sfðastliðinn raánudag, og í samtali við Morgunblaðið
í gær sagði Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, það væri jákvætt fyrir
fslendinga. En að sögn Geirs Hallgrímssonar hafa Norðmenn fallið frá því
að veita þriðja aðila, í þessu tilfelli Dönum, veiðikvóta í lögsögu Jan Mayen.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýuppteknar kartöflur frá Dísu-
koti í Þykkvabæ.
Stutt í fyrstu
kartöflurnar
EKKI er langt í að fyrstu kartöfl-
urnar á þessu sumri komi í versl-
anir á höfuðborgarsvæðinu. Eru
það kartöflur sem kartöflubænd-
ur í Þykkvabæ rækta undir
plastdúk en útlit er fyrír að kart-
öfluuppskeran hefjist almennt
um næstu mánaðamót, sem er
þremur vikum fyrr en f meðalári.
Kristinn Markússon kart-
öflubóndi í Dísukoti í Þykkva-
bæ sagði í samtali við blaða-
mann Mbl. í gær að hann væri
aðeins farinn að taka upp í soð-
ið en vonandi væri ekki langt í
að hann gæti farið að taka upp
kartöflur sem ræktaðar væru
undir acryl-dúk. Hefðu bændur
farið út í þetta í tilraunaskyni
og kæmi þessi plastræktun
mjög vel út; kartöflurnar væru
talsvert á undan. Bjóst hann
við að almennt yrði byrjað að
taka upp um mánaðamótin
næstu, sem væri þrem vikum
fyrr en í meðalári. Sagði hann
að kartöflurnar spryttu vel og
væri útlit fyrir stóruppskeru á
þessu hausti.
Þá hafa Norðmenn ennfremur
ákveöið að senda varðskip til að
hafa eftirlit með veiðum, auk eft-
irlits úr lofti, en í mótmælum ís-
lendinga var lýst yfir áhyggjum
vegna ráðagerða Norðmanna um
hið gagnstæða.
Að sögn Geirs Hallgrímssonar
neita Norðmenn að hafa gert sam-
komulag við Dani. „Norðmenn
leggja hins vegar áherslu á sam-
ráð milli íslands og Noregs, eins
og við gerum og áskilið er í Jan
Mayen-samkomulaginu. Það sem
eftir stendur er óvissan hvort um
einhverjar veiðar verði að ræða á
Grænlandssvæðinu nú f sumar af
hálfu Dana eða annarra Efna-
hagsbandalagsríkja. Það hefur
ekki tekist neinn samningur við
Efnahagsbandalagið og ennfrem-
ur er óljóst hvort reynt verður að
stunda þessar veiðar á svæðinu
milli miðlínu milli Grænlands og
Jan Mayen og 200 mflna frá
Grænlandi. En þetta svæði er um-
deilt og báðir aðilar vilja eigna sér
það. En Norðmenn og íslendingar
telja einsýnt að miðlína eigi að
gilda. Ég hef gert utanríkisráð-
herra Danmerkur grein fyrir af-
stöðu okkar íslendinga, og ítrek-
aði ég þessa afstöðu við Paul
Schluter, forsætisráðherra Dana,
Framfærsluvísitalan hefur
hækkað um 7,5% á sfðustu 6
mánuðum og ef hún hækkar jafn
mikið næstu 6 mánuði og hún
gerði síðasta hálfa árið samsvar-
ar hækkunin 15,6% verðbólgu á
er hann var hér í opinberri heim-
sókn fyrir nokkru."
— Var í svari Norðmanna
minnst á þríhliða viðræður þeirra,
Íslendinga og Efnahagsbandalags-
ins, sem samningsaðila fyrir hönd
Grænlendinga, um veiðar á um-
ræddu svæði?
„Ekki beint en þessar viðræður
hafa átt sér stað við og við um
nokkurt skeið og auðvitað höfum
við áhuga á því að gerður verði
heildarsamningur um nýtingu
loðnustofnsins, sem er flökku-
ári. Vísitalan hefur hækkað um
24,73% frá því í júlfmánuði í
fyrra. Af þessari 0,93% hækkun
vísitölunnar frá júní til júlí stafa
0,3% af hækkun á verði kjötvöru
og 0,3% af hækkun á verði ann-
stofn. Ákvörðun um frekari við-
ræður hafa ekki verið teknar."
Aðspurður sagði Geir Hall-
grimsson að í svari Norðmanna
hefði komið fram að ekki verði
ákveðnir neinir gagnkvæmir kvót-
ar fyrir norsk eða dönsk skip á
svæðinu milli Grænlands og Jan
Mayen. Utanríkisráðherra lagði
áherslu á að fylgst verði grannt
með framvindu þessara mála og
hagsmunir íslands þannig tryggð-
ir samkvæmt Jan Mayen-sam-
komulaginu.
arrar matvöru og drykkjarvöru
svo sem á nýjum fiski, sælgæti,
öli og gosdrykkjum. Ýmsar aðrar
verðhækkanir, að frádreginni
verðlækkun á nokkrum vörum,
námu sem svarar 0,3% af hækk-
uninni frá júní til júlí.
KR í undan-
úrslitin
Framfærsluvísital-
an hækkar um 0,93 %
samsvarar 11,75% verðbólgu á ári
KAUPLAGSNEFND hefur reiknað vísitölu framfærslukostn-
aðar miðað við verðlag í júlíbyrjun 1984. Reyndist hún 106,82
stig, eða 0,93% hærri en í júníbyrjun sl., er hún var 105,84
stig. Þessi hækkun framfærsluvísitölunnar frá júní til júlí
samsvarar 11,75% verðbólgu á ári.
Ágæt veiði í Grímsá
Um 350 laxar voru komnir á
land úr Grímsá þegar biaðamað-
ur hafði samband við veiðihúsið
þar. Að sögn starfsstúlku í veiði-
húsinu hefur veiði gengið ágæt-
lega og veiddust ellefu laxar
fyrir hádegi f gær flestir á bilinu
7—11 pund, þar af 19 Vh punda
hængur og er það sá þyngsti
fram að þessu. Hængurinn
fékkst á Blue-rat í Ferjupolli.
Eingöngu er veitt á flugu og er
vatnsmagnið í ánni eðlilegt.
Um 600 laxar úr Laxá íKjós
Frekar dræm veiði hefur verið í
Laxá i Kjós undanfarna daga, en
samkvæmt upplýsingum er feng-
ust í veiðihúsinu við ána virðist
sem veiðin sé aftur farin að
glæðast. Fyrir hádegi í gær
veiddust 10 laxar, allir vænir.
Þyngsti laxinn til þessa er
19'4 pund en sfðustu daga hefur
smálaxinn farið að gera vart við
sig. Eingðngu er veitt á flugu, en
um 600 laxar hafa komið á land.
Veiði farin að glæðast á nf
Fimm laxar veiddust fyrir há-
degi í gær í Vfðidalsánni, þar af
var einn 22 V4> punda hængur,
sem fékkst í Dalfarósi. Að sögn
Vignis Kristjánssonar í Veiði-
húsinu Víðidalsá, er eingöngu
veitt á flugu.
Um 200 laxar hafa komið á
land og er meðalþyngdin 10—11
pund. Smálaxinn hefur enn ekki
sést en veiði er farin að glæðast
verulega
550 laxar komnir
úr Norðurá
Þyngsti laxinn sem veiðst hef-
ur til þessa f Norðurá er 19 xk
punda hængur og fékkst á
Black-sheet, 93,5 mm. Að sögn
Ara Gunnarssonar veiðihúsinu
við Norðurá hefur mikið veiðst
af smálaxi allt frá mánaðamót-
um. Fyrir hádegi í gær komu 10
laxar á land allir á flugu, en sfð-
ustu daga hefur hún eingöngu
verið notuð.
GUNNAR Gíslason tryggði KR-ing-
um sigur á Þór, Akureyrí, og sæti í
undanúrslitum bikarkeppni KSÍ í
gærkvöldi er hann skoraði á 114.
mín. leiksins á KR-vellinum. KR
sigraði 2:1. Gunnar skoraði með
skalla utan úr teig.
Bjöm Rafnsson náði forystu
fyrir KR á 23. mín. með föstu skoti
utan úr teig eftir sendingu Gunn-
ars Gíslasonar en skömmu fyrir
leikhlé jafnaði Sigurður Pálsson
fyrir Þór. Hann fékk knöttinn yst
í vítateignum eftir glæsilega sókn
Þórsara og skoraði í bláhornið.
í síðari hálfleik sóttu Þórsarar
nær linnulaust og voru betra liðið.
En KR skoraði fleiri mörk og fer
því áfram.
jnnlentJ