Morgunblaðið - 18.07.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 1984
23
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GEORGE W. BALL
þar vissu, að eini maðurinn, sem
hefur vald til að fyrirskipa kjarn-
orkustríð, væri of veikburða til að
hugsa og taka ákvörðun — eða
væri jafnvel ófær um hvaðeina.
Á árinu 1967 glímdu þingmenn
við vandamál í sambandi við van-
hæfi forseta og samþykktu breyt-
ingartillögu við stjórnarskrána
þar að lútandi. En hún breytir því
ekki, að neyðarástand getur skap-
ast, verði forsetinn ófær um að
ist þess samt sem áður, að hann
léti af völdum, yrðu báðar deildir
þingsins að útkljá málið með
tveimur þriðju hlutum atkvæða
innan 24 daga.
En hvernig gengi allt þetta
fyrir sig í framkvæmd?
Varaforseti drægi það vafalaust
lengi við sig að hætta á að verða
sakaður um valdarán með því að
reyna að koma forsetanum frá. Og
hann ætti enn erfiðara með að
sannfæra tvo þriðju hluta ráð-
herranna, sem allir hafa verið
valdir í embætti sín vegna holl-
ustu sinnar við forsetann, um að
halda málinu til streitu, nema
fullvissa væri um, að hann kæm-
ist aldrei framar til heilsu.
Og það yrðu áreiðanlega fáir
ábyrgir læknar fáanlegir til að
gefa yfirlýsingu um slíkt. Þegar
svona væri komið, væri forsetinn
Er Reagan of gamall til að gegna
embætti forseta Bandaríkjanna?
Ef Ronaid Reagan verður endurkjörinn í embætti Bandaríkjaforseta,
verður hann 74 ára gamall í upphafi seinna kjörtímabils síns og nærri 78
ára, þegar því lýkur.
Auðvitað gæti þó svo farið, að honum entist ekki aldur til að halda um
stjórnartaumana svo lengi, því að samkvæmt útreikningum trygginga-
fræðinnar á 74 ára gamall maður aðeins 66Vs% möguleika á að lifa í
fjögur ár til viðbótar.
Og í rauninni á forsetinn enn minni möguleika, þar sem áttundi hver
forveri hans á þessari öld hefur verið myrtur — og slík ódæmi eru ekki
tekin með í reikninginn hjá tryggingunum.
Nú þegar hefur Reagan forseti
lifað sjö ár umfram 66 ára
aldurinn, sem er meðalaldur 35
látinna forseta okkar. Og ekki
virðast nútíma læknislyf hafa
aukið nema spönn við aldur for-
setanna, því að meðalaldur þeirra
það sem af er 20. öldinni er 67 ár.
Samt er áhættan við að kjósa
aldraðan forseta ekki fólgin í því
að hann deyi í embætti. Skýr
ákvæði eru um það, hver taki við,
þegar forseti fellur frá, og þau
taka sjálfkrafa gildi. Áhættan er
aðallega sú, að hann verði veikur,
gamalær eða seinn að hugsa og
bregðast við. Flestir kannast við
það úr eigin fjölskyldu, hversu oft
slíkt gerist, þegar fólk er komið
hátt á áttræðisaldurinn.
Woodrow Wilson forseti fékk
fyrst slag í septembermánuði árið
1919. í 19 mánuði gat hann aðeins
verið við stjórn að nafninu til og
stundum ekki einu sinni það.
Hann lá í herbergi sínu í Hvíta
húsinu lamaður að nokkru leyti og
var stranglega gætt af eiginkonu
og lækni, auk fulltrúa forsetans
sem hafa varð landstjórnina á
hendi. Forsetinn sá enga aðra og
hafði ekki samband við neina aðra
nema með veikburða kroti á ein-
hverjum bréfsnuddum eða með
skilaboðum sem kona hans kom
áleiðis.
Á sérstöku aukaþingi urðu 28
frumvörp að lögum án staðfest-
ingar forsetans, þar sem hann var
ófær um að undirrita þau eða
synja um slíkt.
Á sama tíma veltu landsmenn
því fyrir sér og heimurinn allur,
hvernig forsetanum liði í raun og
veru.
Til allrar hamingju höfðu
Bandaríkin, þegar þetta var, ný-
lokið þátttöku sinni í stórstyrjöld
og ekkert óvinaríki gat ógnað ör-
yggi landsins. En nú horfumst við
í augu vlð óvin, sem búinn er
kj arnorkuvopnum.
Ég var einn af ráðunautum
John F. Kennedy forseta, þegar
úfar risu með stórveldunum
vegna eldflaugastöðvanna á
Kúbu. Mér rennur kalt vatn milli
skinns og hörunds við að hugsa til
þess, hvernig farið gæti, ef slíkt
ástand skapaðist, þegar forsetinn
væri ófær um að gegna embætti.
Hvernig gengi okkur að eiga við
Sovétríkin, ef æðstu ráðamenn
gegna embætti sínu. Samkvæmt
stjórnarskránni getur forsetinn
nú fengið varaforsetanum völdin.
Hann varður þó áður að gefa full-
trúadeildinni skriflega yfirlýs-
ingu um, að hann sé ekki lengur
fær um að gegna skyldustörfum
sínum.
Enginn forseti, sem orðinn væri
ófær um að gegr.a embætti, gæti
gefið slíka yfirlýsingu; og væri
forseti með fullri rænu og í gæslu
árvakrar eiginkonu og tryggra
samstarfsmanna, mundi hann í
lengstu lög forðast að taka þessa
ákvörðun.
Aðeins varaforsetinn og meiri-
hluti ríkisstjórnarinnar geta
brotist úr þessari sjálfheldu með
því að senda fulltrúadeildinni
sameiginlega yfirlýsingu um van-
hæfi forsetans. En forsetinn gæti
á móti hunsað slíka yfirlýsingu og
sent þinginu þau skilaboð, að
hann sé enn fær um að gegna
embætti. Ef varaforsetinn krefð-
ef til vill gersamlega einangraður
í umsjá nánustu aðstandenda og
samstarfsmanna, eins og var með
Woodrow Wilson, og það eina sem
fréttist af honum væru marklaus-
ar tilkynningar þess efnis, að
hann væri að hressast. Á meðan
gengju hvers kyns sögusagnir
fjöllunum hærra í fjölmiðlum.
Þetta er vandamál í stjórnskip-
an okkar. í tíð þriggja síðustu
stjórna Sovétríkjanna hefur orðið
að komast af um tíma án leiðtog-
anna vegna veikinda þeirra. Slíkt
var mögulegt vegna þess að
æðstaráðið hafði þau valdaforráð
sem þurfti til þess. Sama var upp
á teningnum á síðustu dögum
Winstons Churchills. Ríkisstjórn-
in var starfhæf, þótt forsætis-
ráðnerrans nyti ekki við.
Því er hins vegar þannig farið
um ríkisstjórn Bandaríkjanna, að
hana skortir valdaforráð; stjórn-
skipanin er óvirk án handhafa
forsetavalds.
Guð hjálpi landi okkar, ef við
ættum einhvern tímann eftir að
standa frammi fyrir slíku fári.
George W. Ball, höfundur þessarar
greinar, er 74 ára að aldri. Hann rar
adstoóamtanríkisrádherra í stjórn-
artíð þeirra Kennedrs og Johnsons
og fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum árið 1968.
Reagan forseti ávarpar þingið. Fyrir aftan hann eru George Bush, vara-
forseti, og Thomas P. O’Neill, forseti fulltrúadeildarinnar.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Handhægar gjafir
til vina og kunningja
Ylur
mínninga...
fltargmiÞliifeifr
Áskriftarsímirm er 83033