Morgunblaðið - 10.08.1984, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1984
Stórflóð í Bangladesh:
Yfir 1200 manns
hafa misst lífið
Dhaka, 9. áffúst. AP.
GEYSILEGT regn, sem fylgt hefur
í kjölfar monsún-vindanna, hefur
Þingið felldi
tillögu
Mitterrands
Pmrfs, 9. ágúst AP.
TILLAGA Francois Mitterr-
ands, Frakklandsforseta, um
þjóöaratkvæðagreiöslu í mál-
efnum, sem varða „frelsi al-
mcnnings", var felld með yfir-
gnæfandi meirihluta í öldunga-
deild þingsins í dag.
Þingið hafði rökrætt tillög-
una í tvo daga og lyktaði um-
ræðunum þeim á þann veg að
stjórnarandstaðan, sem hefur
meirihluta í öldungadeildinni,
hafði yfirhöndina og var neit-
að að taka tillöguna fyrir með
207 atkvæðum gegn 106.
Robert Badinter, dóms-
málaráðherra, hafði sagt að
tillagan fæli í sér að almenn-
ingur væri í raun handhafi
lýðræðis síns, en andstæð-
ingarnir kölluðu tillöguna
hættulega og pólitískt belli-
bragð.
Stjórn Mitterrands hefur
meirihluta í neðri deild þings-
ins.
valdið stórfelldum flóðum í
Bangladesh undanfarnar 6 vikur.
Vitað er um 1.225 manns, sem
beðið hafa bana af völdum flóð-
anna og milljónir hafa orðið heim-
ilislausar.
Það eru fyrst og fremst stór-
fljótin Ganges og Brahmaputra
— aðalfljótin í Indlandi og
Bangladesh — sem flætt hafa
yfir bakka sína á mörgum stöð-
um. Fjöldi þorpa hefur horfið
undir vatn og einnig liggur víð-
áttumikið akurlendi undir vatni.
Þá hafa flóðin einnig eyðilagt
orkuver, símalínur og vegi á
stórum svæðum.
Annar flugræningjanna, sem rændu írönsku pflagrímaþotunni á leiðinni
frá Teheran til Saudi-Arabiu aðfaranótt miðvikudags, er hér færöur til
yflrheyrslu, eftir að þeir gáfust upp á Ciampino-flugvelli á Ítalíu á mið-
vikudagskvöld.
Víðtækar óeirðir
á Norður-írlandi
Einn beið bana — Meira en 50 handteknir
Belfast, 9. ágúst. AP.
MAÐUR, sem grunaður er um að-
ild að IRA, lét líflð, er sprengja,
sem hann hafði í höndunum,
sprakk af vangá snemma í morgun
i bænum Newry á Norður-frlandi.
Yflr 50 manns höfðu þá verið
Ungverskir kommúnistar:
Fagna batnandi sambúð
A- og V-Þýskalands
Kúdapesl, 9. ágúst. AP.
MÁLGAGN kommúnista í
Ungverjalandi fagnaði í dag
batnandi sambúð Austur- og
Vestur-Þýskalands, en sagði
að frekari samkipti bæru ekki
árangur nema bæöi ríkin
legðu áherslu á að halda friö-
inn.
Blaðið sagði að eflaust
fögnuðu öll ríki á Vestur-
löndum þessari framför hjá
þýsku ríkjunum, að undan-
skildum Bandaríkjunum.
Blaðið minntist ekki einu
orði á gagnrýni Sovétríkj-
anna á aukin samskipti ríkj-
anna, en lagði áherslu á and-
stöðu kommúnista við tengsl
V-Þjóðverja og NATO.
Það sagði einnig að ríkin
bæru mikla ábyrgð á friði í
heiminum og þeim bæri að
vinna saman til þess að aldrei
aftur yrði stíði komið af stað
af þýskri grundu.
Öldungadeild Bandaríkjaþings:
Aukaaðstoð til E1
Salvador samþykkt
Washington, 9. ágúst AP.
ÖLDUNGADEILD bandaríska
þingsins samþykkti í dag aukahern-
aðaraðstoð til El Salvador að upp-
hæð um 117 milljónir bandaríkja-
dala.
Repúblikanar hafa meirihluta í
öldungadeildinni og var tillagan
samþykkt þar með 62 atkvæðum
gegn 32. Tillagan fer nú til um-
ræðu í nefnd sem skipuð er bæði
fulltrúum úr öldungadeildinni og
fulltrúadeildinni, til að finna
lausn á málinu, en fulltrúadeildin
hafði áður fellt tillögu um meiri
hernaðaraðstoð til E1 Salvador.
Búist er við að nefndin taki til
starfa sem fyrst, svo hægt sé að
afgreiða málið áður en þingið fer í
frí á morgun.
handteknir í víðtækum óeirðum í
borgunum Belfast, Londonderry
og Downpatrick, eftir að óeirðir
þessar höfðu staðið alla nóttina.
Maðurinn, sem beið bana, hét
Kevin Watters. Hann var 24 ára
gamall. Annar maður lézt af
hjartaslagi skammt frá stuttu
eftir að sprengjan sprakk í húsi
systur Watters. Skýrði talsmað-
ur lögreglunnar, Dave Hanna,
ennfremur frá því í dag, að 8
manns hefðu slasazt illa í mögn-
uðum óeirðum, þar sem grímu-
klæddir unglingar óðu um og
vörpuðu bensínsprengjum að
lögreglunni.
Byssumenn í Bogside-hverf-
inu í Londonderry, þar sem
óeirðirnar í landinu hófust fyrir
15 árum, skutu í dag á lögreglu-
menn, en ekki hafa enn borizt
fréttir af manntjóni í þeim
óeirðum.
Innanlandsóeirðirnar á
Norður-írlandi hófust 12. ágúst
1969 og á þeim tíma, sem síðan
er liðinn, hafa 2.384 manns verið
drepnir þar, þar af 42 á þessu
ári. Búizt er við miklum óeirðum
næstu daga í tilefni þess að 15
ár eru liðin síðan innanlands-
óeirðirnar hófust.
ERLENT
Norska ríkisstjórnin
ergileg út í kónginn
ÓLAFUR Noregskonungur hefur
sent alþjóðaólympíunefndinni
bréf, þar sem hann fer fram á, að
vetrarleikarnir, sem fram eiga að
fara árið 1992, verði haldnir í Lille-
hammer í Noregi.
Þessi málaleitan konungsins,
sem komið hefur á óvart og er
algerlega að frumkvæði hans
sjálfs, hefur vakið gremju I ríkis-
stjórninni, sem óskar þó ekki eftir
að troða illsakir við konung.
Þetta frumkvæði Ólafs 5. veldur
því, að nú eru tveir kóngar f spil-
inu, því að Gústav Svíakonungur
berst fyrir því með oddi og egg að
leikarnir verði haldnir í Falun í
Svíþjóð.
Norski kóngurinn lét nægja að
senda bréf, en Svíakonungur fór í
eigin persónu til Los Angeles. Það
hét svo, að hann væri í einka-
heimsókn, en fáir velktust þó í
vafa um tilgang fararinnar.
Meðan vetrarleikarnir stóðu yf-
ir f Sarajevo í vetur otuðu kóng-
arnir sinum tota í því skyni að fá
leikana ’92.
Það hefur verið mikið þrætu-
efni í Noregi, hvort landið eigi að
sækjast eftir að fá leikana, og
mestar hafa deilurnar verið í
Lillehammer. Þeir sem eru á móti
segja að þetta verði allt of dýrt,
auk þess sem slíkt umstang setji
allt á annan endann í litlu samfé-
lagi eins og Lillehammer.
Bæjarstjórnin verður að taka
ákvörðun í málinu í haust. And-
stæðingar mótshaldsins halda
fram, að Ólafur konungur hafi
með útspili sinu þrýst óþyrmilega
á kjörna fulltrúa sveitarfélagsins,
og það er nokkuð sem Noregskon-
ungar mega ekki gera sig seka
Ólafur Noregskonungur
um.
Fylgjendur mótshaldsins eru
hins vegar hinir ánægöustu með
frammistöðu konungs síns. Þeir
líta svo á, að slagurinn um vetr-
arieikana sé þegar unninn.
Khadafy á
fundi með
yfirmanni
N-Kóreuhers
Tripólí, Líbýu, 9. ágúsL AP.
í GÆR átti Moammar Khadafy
Líbýuleiðtogi fund með Oguk Yol
hershöfðingja, yfirmanni Norð-
ur-kóreska hersins.
Var hershöfðinginn sagður hafa
haft meðferðis skilaboð Kim II
Sung, ieiðtoga Norður-Kóreu, þess
efnis að hann væri ánægður með
„jákvæða þróun vináttusambands
og samvinnu" þjóðanna.
Tókst að flýja
frá Austur-
Þýzkalandi
MUnchen, 9. ágúst AP.
AUSTUR-ÞÝZKUM manni tókst í
gær að flýja heilu og höldnu til
Vestur-Þýzkalands aðeins nokkr-
um klukkustundum eftir að landa-
mæraverðir kommúnista höfðu
tekið úr sambandi sjálfvirkar
vélbyssur á þessu svæði, á meðan
verið var að endurnýja þær.
Haft var eftir vestur-þýzkum
lögreglumanni við landamærin í
Bæjaralandi, að Austur-Þjóðverj-
inn væri 25 ára gamall og að hon-
um hefði tekizt að kiifra yfir 3
metra háa stálgirðingu á landa-
mærunum. Flóttamaðurinn er 8.
Austur-Þjóðverjinn á 9 dögum,
sem flýr til Vestur-Þýzkalands. Þá
flýði einn maður frá Tékkósló-
vakíu einnig land fyrir mjög
stuttu síðan.
Rússar falla
í Angólu
Lúwabon, 9. ágúst AP.
TALSMENN UNITA-hreyfingar-
innar, sem berst gegn marxískri
stjórn Angólu, segja að tveir Sov-
étmenn og 13 Kúbumenn hafi ver-
ið í hópi 233 manna, sem féllu í
átökum skæruliða við stjórnar-
hermenn í átta héruðum landsins
um mánaðamótin.
í fréttatilkynningu, sem gefin
var út í Lissabon, sagði, að Sovét-
mennirnir hefðu fallið í árás á
herstöð í Lukala í norðurhluta
landsins og átta Kúbumenn að
auki. Hinir Kúbumennirnir voru
felldir annars staðar. Talið er, að
25.000 kúbanskir hermenn séu í
Angólu til að verja stjórnina falli.
Byssukona
handtekin
Los Angeles, 9. ágúst. AP.
LOULLE Jane Reynard, tæplega
sextug húsfreyja í Los Angeles,
var handtekin í gær, þegar hún
kom til að horfa á hnefaleika-
keppni á Ólympíuleikunum vegna
þess hún reyndist bera byssu á
sér. Ekki var ijóst af hverju hún
teldi nauðsynlegt að hafa skot-
vopn með til að horfa á keppnina.
Miklar öryggisráðstafanir og
varzla er á leikunum og hefur
fram að þessu allt gengið frið-
samlega fyrir sig.
Manntjón
í flóöum
Ríó de Janeiró, 9. ág. AP.
TÍU MANNS að minnsta kosti
hafa drukknað í miklum flóðum í
Santa Catarina-héraði í suður-
hluta Brazilíu. Yfir tvö hundruð
þúsund manns eru heimilislausir
og mikið eigna- og uppskerutjón
hefur orðið.
Óttast er, að ekki séu öll kurl
komin til grafar og sem stendur er
ekkert sem bendir til að flóðin séu
í rénum. Símasambandslaust er
við 48 bæi og þorp og fimmtán eru
rafmagnslaus og hafa ekki drykkj-
arvatn.