Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 Blómaball í Hveragerði HTeragerði, 28. ágúst. KNATTSPYRNUDEILD Ungmennafélags Hverageröis og Ölfuss hélt sinn árlega blóma- dansleik í Hótel Ljósbrá laugardaginn 25. ág- úst sl. Húsið var allt blómum skreytt og kjörin var blómadrottning ársins úr hópi samkomu- gesta. Sú sem varð fyrir valinu að þessu sinni heitir Fjóla Grétarsdóttir. Hún er fædd 1968, dóttir hjónanna Guðrúnar Guðmundsdóttur og Grét- ars J. Unnsteinssonar, skólastjóra Garðyrkju- skóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Hefur hún alist upp hjá foreldrum sínum á þessu ágæta menningarsetri. Fjóla er mjög jákvæð og dugleg stúlka, bæði í námi og félagsstarfi skólans og hefur einnig lagt stund á píanónám við Tónlist- arskólann í Árnessýslu. Hún er að hefja nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð í Reykjavík. Hér á árum áður þótti blómaballið fínasta samkoma ársins hér í Hveragerði og var vel sótt af bæjarbúum, en á seinni tímum hefur þótt síga á ógæfuhliðina vegna þess að hingað hefur safnast mikill fjöldi aðkomufólks og ölvun og óspektir hafa keyrt úr hófi, fjöldinn jafnvel ver- ið 4 til 6 hundruð manns í þessu litla húsi. Að þessu sinni varð að samkomulagi milli knatt- spyrnudeildarinnar og hinna nýju eigenda hót- elsins að takmarka fjöldann og ætla dansleikinn fyrst og fremst fyrir Hveragerði og nágrenni. Gestir voru um 200 talsins. Félagar knatt- spyrnufélagsins önnuðust alla gæslu á staðnum og leystu það starf samviskusamlega af hendi. Blómadrottningin Fjóla Grétarsdóttir. Dansmúsík annaðist hljómsveitin Ljósbrá, en hana skipa fimm félagar úr Hveragerði og þykir hún bjóða vandaða tónlist og nýtur síaukinna vinsælda. Dansleikur þessi þótti takast vel og átaka- laust, en mikið vantaði á að umgengnin væri nógu góð. „Betur má ef duga skal.“ Sigrún Albert Guömundsson, fjármálaráðherra: „Það er skylda opin- berra aðila að hlaupa undir bagga“ Segist helst vilja leggja Framkvæmdastofn- un niður og vonar að það verði samkomu- lag um slíkt á milli stjórnarflokkanna „ÉG HEF ekkert um þessa af- greiðslu stjórnar Framkvæmda- stofnunar aö segja. Þetta boð mitt var einungis tilraun til þess að auö- velda þeim aö hlaupa undir bagga meö byggðarlagi í vanda,“ sagöi Al- bert Guðmundsson, fjármálaráö- herra, er blm. Mbl. spurði hann álits á afstöðu stjórnar Framkvæmda- stofnunar til tilboðs hans aö útvega Byggöasjóöi þegar í stað 8 milljónir ef þaö mætti veröa til þess að hjálpa Jökli hf. á Raufarhöfn í fjárhagsörö- ugleikum fyrirtækisins. „Ég tel það vera skyldu opin- berra aðila, ríkisstjórnarinnar og þá ekki síður stofnana eins og Framkvæmdastofnunar sem hefur það hlutverk að standa vörð um byggðastefnuna, að koma til að- stoðar þegar heilu byggðalögin eru í vanda stödd." Albert var spurður hverju hann svaraði því sem kemur fram í til- kynningu stjórnar Framkvæmda- stofnunar, að framlag ríkissjóðs til Byggðasjóðs nemi 83,8 milljón- um króna, en nú nýverið hafi fjár- málaráðherra beitt sér fyrir því að þessi upphæð var lækkuð um 5,4 milljónir króna: „Ég beitti mér fyrir því, því ég vildi helst leggja þessa stofnun alla niður, en ekki bara lækka framlög til hennar. Ég tel að það eigi að vera hlutverk Alþingis og ríkissjóðs að ákveða fjárúthlutanir og að hlaupa undir bagga með þeim sem eiga í vanda." Aðspurður um hvort ekki væru einmitt líkur á því að stjórnar- flokkarnir gerðu nú sameiginlega tillögu um að Framkvæmdastofn- un í núverandi mynd verði lögð niður, sagði Albert einungis: „Eg vona að það takist, en ég þori ekki að vera of bjartsýnn." Pauli Ellefsen, lögmaður Færeyja: Landstýrið ræður ekki við veiðisamninga einstakra skipa „ÞAÐ, sem gerzt hefur er það, að Grænlendingar hafa gert sérstakt samkomulag við færeysk nótaskip. Af slíkum sér- samningum hafa Færeyingar mikið, bæði við Grænland og Kanada svo eitthvað sé nefnt. Landstýrið hefur ekki heimild til að koma í veg fyrir slíka samninga,“ sagði Pauli Ellefsen, lögmaður Færeyja, í samtali við Morgunblaðið. Við leggjum ennfremur alltaf áherzlu á það, að aðstoða ein- stök skip við að ná slíkum samningum því við höfum of lít- ið af fiski og við fáum of litla kvóta frá öðrum ríkisstjórnum. Því teljum við okkur mikinn hag í því að útgerðir okkar nái sérstökum veiðisamningum við önnur lönd. En þrátt fyrir að landstýrið vildi koma í veg fyrir þetta, getum við það ekki. Eins og undanfarin ár feng- um við 7.000 lesta loðnukvóta frá Efnahagsbandalaginu og hann höfum við tekið. En und- anfarin ár höfum við ekki tekið þennan kvóta vegna þess, að ís- lendingar hafa beðið okkur að láta það vera. Á þessu ári kom engin beiðni um það að við tækjum ekki þetta magn fyrr en veiðin var komin vel á veg. Vegna stöðu íslendinga vildum við ekki biðja EBE um meiri loðnu, þó ég telji að það hefði fengizt. Við vildum heldur ekki biðja Dani, sem meðlimi í EBE, um aflakvóta. Við eigum tvo góða vini á Norður-Atlantshafi, íslendinga og Grænlendinga og við reynum að eiga sem bezt viðskipti við þá báða og varðveita vinskapinn. Þegar tekið er tillit til þess, hve hliðhollir Færeyingar hafa ver- ið íslendingum undanfarna ára- tugi; þrátt fyrir útfærslu land- helginnar, sem kom okkur illa, veittum við þeim fullan stuðn- ing; í tvö ár höfum látið vera að veiða loðnu, sem við höfðum fullan lagalegan rétt á vegna beiðni íslendinga, er ég fullvis um það, að íslendingar láti það ekki koma niður á fiskveiði- samningi þjóðanna, þó nokkur færeysk skip hafi gert sérsamn- inga við grænlensk fyrirtæki um loðnuveiði í grænlenzkri landhelgi. Því trúi ég hreinlega ekki. Hvað varðar boð Halldórs Ás- grímssonar um að ég komi til Islands til viðræðna, þegar Jón- atan Motzfelt verður þar, vil ég segja það, að ég nota hvert tækifæri, sem gefst, til að koma til íslands. Oski íslendingar nærveru minnar, kem ég,“ sagði Pauli Ellefsen. í frétt frá stjórn Framkvæmda- stofnunar segir jafnframt að áætlað hafi verið í upphafi þessa árs að Byggðasjóður hefði til ráðstöfunar 197,5 milljónir á ár- inu, og hann hafi þegar samþykkt lánveitingar og ákveðið lán sam- kvæmt útlánaáætlun, sem nemi ca. 25 milljón krónum umfram áætlað ráðstöfunarfé sjóðsins, m.a. vegna erfiðrar innheimtu og niðurskurðar á ríkisframlagi. Því hafi tilboð fjármálaráðherra á engan hátt leyst úr fjárvöntun sjóðsins. Hafberg GK fékk 22,62 í meðalverð HAFBERG GK lauk við að landa afla sínum í Mallaig í Skotlandi i gær. Alls landaði skipið 52 lestum. Heildarverð var 1.176.100 krónur, meðalverð 22,62. Aflinn fór hins vegar ekki á markað þar, heldur var fluttur til Grimsby og seldur þar. Hinn eini og sanni ST0R- útsölumarkaður hefst kl. 13 að Fosshálsi 27 (fyrir neöan Osta- og smjörsöluna Árbæ, viö hliðina á nýju Mjólkurstööinni.) Opið til kl. 19. Fjöldi fyrirtækja - Gífurlegt vöruúrval.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.