Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 35 Minning: Olafur Eiríksson byggingameistari arhug. Hannes var hæglátur mað- ur og kurteis og starfi sínu gegndi hann af snyrtimennsku og reglu- semi. Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm stóð hann meðan stætt var og eiginlega miklu lengur. En þegar kraftarnir eru þrotnir er hvíldin kærkomin. Ég bið Hannesi fararheilla. Blessuð sé minning hans. Pöllu frænku og Báru dóttur þeirra sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj ur. Hjátmar A. Jóelsson Nú er Hannes frændi minn allur og margar minningar streyma fram í huga minn, þegar ég hugsa til hans og lít til baka. En sú fyrsta er þegar þau giftu sig Palla og hann. Ég fékk að fara í brúðkaupið og er mér enn minn- isstætt hvað mér fannst allt fal- legt og fínt í litlu sotfunni í Stakkadal. Palla og Hannes voru sérstaklega samhent og hamingju- söm hjón alla tíð og mikil birta og hlýja yfir lífi þeirra til hans dauðadags. Mér er líka mjög minnisstætt þegar ég fór ung að árum í vinnu til Hannesar. Fyrsta morguninn sem ég mætti sagði hann brosandi setningu, sem ég aldrei gleymi: „Það er bara eins og hún Gunna Jóns sé komin í eld- húsið," (en það var móðir mín). Mér hefur oft verið hugsað til þessara orða Hannesar. Hann var mér eins og besti faðir og mjög tryggur vinur og ég gleymi heldur aldrei þeirri hjálp og vinsemd sem hann sýndi mér þegar ég bjó um tíma á heimili þeirra vegna veik- inda. Hann taldi ekki eftir sér að fara niður á Landspítala daglega mín vegna. Hannes var dagfarsprúður mað- ur, alltaf léttur og kátur og sló á létta strengi hvernig sem á stóð. Jafnvel stuttu áður en hann dó var hann að grínast þótt hann væri fárveikur og reyndi að leyna því hve sjúkur hann væri. Hannes og Palla áttu eina kjördóttur og var sérstaklega kært á milli þeirra feðgina. Elsku Palla, Bára og fjölskylda. Guð gefi ykkur styrk til að komast yfir þennan erfiða hjalla. Ég sendi ykkur mína dýpstu samúð. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V.Briem) Kaja Finnbogadóttir Fæddur 20. júní 1888 Dáinn 16. nóvember 1982 Merkismaðurinn Ólafur Eiríks- son byggingameistari lést á sjúkrahúsi Sauðárkróks 16. nóv- ember 1982 og hafði þá freka fjóra um nírætt. Ólafur fæddist í Hvalnesi í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu. Sonur hjónanna Eiríks Halldórssonar frá Volaseli í sömu sveit og síðari konu hans Guðrúnar Bjargar Ein- arsdóttur. Alsystkinin voru fimm, tvær systur: Oddný Sigríður og Þórdís. Og bræðurnir: Einar at- hafnamaður á Hvalnesi, en hann reit m.a. Einvaldsklærnar á Hornafirði; ólafur og Sigurður yngstur. Þau eru öll látin nema Þórdís, 97 ára. — Fyrri kona Ei- ríks Halldórssonar var Oddý Steinsdóttir. Af börnum þeirra komust tveir synir til fullorðins- ára, Þorleifur og Halldór, en hann dó í blóma lífsins. — Tvíbýli var þá á Hvalnesi og mótbýlismaður- inn Bjarni Bjarnason. Fyrri kona hans var Gróa, systir Eiríks Hall- dórssonar. En síðari kona Bjarna var Guðrún Þorleifsdóttir. í glöðum systkinahópi ólst ólaf- ur upp í foreldrahúsum og starfaði vð bú þeirra fram á manndómsár. Hann var þriggja álna hár og svo vel vaxinn, að á orði var haft. Blíð- lyndur, hversdagsgæfur og glað- sinna. Um þrítugt hleypti hann heimdraganum og vann að smíð- um hjá Kristni Jónssyni vagna- smið í Reykjavík. 1918 var einkennilegt ár. Frosthörkur gífurlegar í byrjun ársins, þar sem frostið skriplaði á milli 20 og 36 stiga og hafís teppti siglingaleiðir kringum landið. Um miðjan október hóf Katla að gjósa eftir tæplega 60 ára þögn. Bæir eyddust og fénaður fórst. Og þá er þeim ósköpum linnti í byrjun nóv- ember, lauk einnig öðrum, fyrri heimsstyrjöldinni, og nýjar hrell- ingar hófust. Skæð drepsótt herj- aði á landslýð, spánska veikin. Á skömmum tíma létust um þnú hundruð manns í Reykjavík og Is- lendingar fögnuðu fullveldi í skugga dauðans. I þessum hörm- ungum var miklum vandkvæðum bundið að fá líkkistur bæði vegna skorts á timbri og líkkistusmiðir önnuðu ekki eftirspurn. Þá var það meðal annars tekið til bragðs, að smíða líkkistur í Slippnum. Á þessum tíma starfaði ólafur Ei- ríksson við slíka smíði á verkstæði Kristins vagnasmiðs, uns hann tók þessa illkynjuðu veiki og lá lengi milli heims og helju, en naut einstakrar aðhlynningar á heimili hinna mætu hjóna Ingibjargar Jónsdóttur og Jóns ljósmyndara (Jónssonar) Dahlmanns. Ólafur átti lengra líf fyrir hönd- um og hresstist svo, að hann gat hafið störf á ný. Vann hann um hríð við legsteinagerð syðra og bera tveir steinar í Stafafells- kirkjugarði í Lóni vitni um lista- handbragð hans. Steinarnir voru að öllu leyti handunnir heima, en á Hvalnesi er gnægð forngrýtis, svo sem gabbró og granófýr. Ólafur fluttist svo til Hafnar í Hornafirði, í grennd við æskuslóð- ir. — í félagi við Þórdísi systur sína og mann hennar, Benedikt (Moritzson) Steinsen trésmið frá Krossbæ í Nesjum, byggði hann íbúðarhúsið Bjarg og reisti einnig smiðahús. Þar smíðaði hann sér meðal annars trillu, er hann brúk- aði sem bringingarbát við upp- skipun og fleiri verkefni. Á vertíð- um var margt aðkomubáta og hafði hann því talsverða vinnu við útgerðina. — ólafur stundaði sjó- mennsku í eitt ár og gerði út bát í félagi við aðra, en veiktist af brjósthimnubólgu og varð að hætta. Félagarnir sögðu þá skilið við útgerðina, sem var á nafni ólafs. Sat hann þá uppi með skuldasúpuna og var árum saman að greiða. í nágrenni Hornafjarðar byggði Ólafur nokkur íbúðarhús, svo sem: á Þorgrímsstöðum í Breiðdal, Flugustöðum í Álftafirði og undir lok þriðja áratugarins Sólhól á Djúpavogi fyrir Jón Sigurðsson verslunarmann, er síðar varð kaupfélagsstjóri þar. Hvarvetna gat Ólafur sér hið besta orð fyrir traustan og góðan frágang og Ingibjörg Elísabet Markúsdóttir - Minning Nú fækkar óðum þeim trúu og dyggu þegnum þessarar þjóðar, sem unnu verkin af alúð og trúmennsku, og lögðu í þau alla orku sína. Fóru fyrstir á fætur að morgni og háttuðu síðastir að kvöldi, spurðu ekki um laun, en glöddust yfir að heyra verk sín metin að verðleikum. Eina úr þessum hópi kveðjum við hér í dag. Ingibjörg Elísabet Markúsdóttir hét hún fullu nafni, ávallt kölluð Inga af vinum og vandamönnum. Fædd var hún í Keldudal í Dýrafirði 2. september 1889, dóttir hjónanna Guðmundu Ólafsdóttur og Markúsar Arnbjörnssonar sjó- manns. í Keldudal átti hún lengst af heima, ung að aldri kom hún til Elínborgar og Guðjóns á Arnar- núpi sem léttingur og síðan vinnu- kona. Nítján ára fer hún í vist til Patreksfjarðar til Sigurðar læknis og Ester konu hans og sagðist hafa lært margt af þeirri góðu konu. Næst lá leiðin til Bíldudals, þar var hún í þrjú ár. Eftir það kom hún svo aftur til Keldudals til föð- ur síns að halda honum heimili. 11. október 1925 giftist hún Stef- áni Guðjónssyni og settu þau bú saman á Móum í Keldudal. Þau eignuðust tvö börn; Markús, sem nú er verslunarstjóri í bygginga- vöruverslun SÍS á Suðurlands- braut, og dóttur, sem skírð var við kistu föður síns Ingibjörg Stef- anía, en hann andaðist 28. október 1929. Fjórtán dögum síðar var hún svo jarðsett við hlið föður síns. Þennan mikla missi bar Ingi- björg í hljóði og af þeim kjarki og æðruleysi sem einlæg Guðstrú gefur. Eftir þetta flyst hún svo að Arnarnúpi með son sinn, til Guð- bjargar Guðjónsdóttur og Krist- jáns Guðmundssonar, og hjá þeim var hún þar til þau brugðu búi 1956 og fluttust til Reykjavíkur, og áfram lá leið þeirra saman um mörg ár uns hún fór til sonar síns og tendadóttur um tíma, en flutt- ist svo á Elliheimilið Grund, þá farin að heilsu og lést þar þann 25. ágúst síðastliðinn. Allan þann tíma sem Inga var með þeim Guðbjörgu og Kristjáni vann hún á heimilinu af slíkri trúmennsku að fágætt er. Og það hefur Guðbjörg sagt mér, að þá hafi hún harðast lagt að sér er erfiðleikar steðjuðu að og mest reið á, og engin orð nægðu til að lýsa þakklæti sínu fyrir það. Ingibjörg var nærkona góð og var ósjaldan sótt er barns var von í heiminn. Mun hún hafa tekið á móti nokkuð á annan tug barna. Ekkert mátti hún aumt sjá og hjálpar þurfi, að hún reyndi ekki eftir mætti að hlynna að því. Ingibjörg var bókhneigð, gáfuð kona og las allt sem hún komst yfir, en stundir til lestrar voru alltof fáar. Hún var stálminnug og sjálfmenntaður ættfræðingur, hún kunni að rekja margar ættir. Til hennar sóttu fræðimenn upp- lýsingar, og munu oftar en ekki hafa orðið nokkurs vísari. Hún var einstaklega vandvirk, svo sem handavinna hennar bar ljósast merki um. Útsaumur, hekl og prjón, allt var það af slíkum næm- leik unnið að kennara myndi vel sæma. Hún er nú kvödd af vinum öllum með þakklæti og vissu um að nú sé hún í hópi áðurgenginna ástvina. „Far þú í friði, friöur guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt“. (V. Briem) Hjörleifur Guðmundsson hversu verkið vannst hratt ásamt haganlegri skipulagningu. Árið 1932 byggði hann svo íbúð- arhúsið á Hamraendum á Snæ- fellsnesi, en nokkru áður hófust kynni þeirra Ólafs og Þóris Bald- vinssonar arkitekts, síðar for- stöðumanns Teiknistofu landbún- aðarins. Afskipti Þóris voru eink- um fólgin í eftirliti og úttekt íbúða- og peningshúsa í sveitum. Einnig varðandi vinnuteikningar meira og minna og undantekn- ingalaust er laut að lánsumsókn- um. Þórir minnist Ólafs, sem mikils dugnaðar- og hagleiksmanns, er vann verk sitt fljótt og vel. En umfram allt voru byggingar hans ódýrar, sem var mikils um vert því bændur voru í þann tíð einhver fátækasta stétt landsins, enda al- menn bágindi og lán skorin við nögl. í þeim efnum bar Ólafur hag bændanna meira fyrir brjósti en sinn eigin og vann ávallt langan vinnudag, 12—14 tíma á sólar- hring og bar ekki meira úr býtum en 5—7 krónur á dag. Þess utan var álagning meistaraprósentu óþekkt. Svo að slíkt gæti blessast þurfti vitaskuld feikna útsjónar- semi og Þórir Baldvinsson minnist meðal annars nýjungar Ólafs varðandi múrhúðun utanhúss. En fyrrmeir voru steinsteypt hús al- gengari en á þeirri kvistafurutíð sem nú ysjar. Hugkvæmni Ólafs varðandi múrverkið var fólgin í því, að draga múrblönduna á með grófum hanska, sem gerði það að verkum, að blandan þrýstist inn í allar hol- ur og lokaði steypunni mun betur en með ákasti múrskeiðar. Auk- heldur kom þetta í stað fokdýrrar múrhúðunar, sem raunar lá að baki hugmyndinni. En margt fleira í þessum dúr hvað snerti stór og smá handverk kom Ólafi til hugar, enda maðurinn hagur vel á tré og járn og allt með hand- bragði listamanns. Það talast svo til milli bróður míns Hróbjartar múrarameistara og Þóris Baldvinssonar, að hinn síðarnefndi ráði Ólaf að Egg í Hegranesi í Skagafirði. Þar byggði hann íbúðarhúsið árið 1933 og þá kynntist ég ólafi mínum. Er hann lauk verkinu um miðjan nóvember fórum við til Hornafjarðar og gift- um okkur á nýársdag 1934. Flutt- um svo norður um vorið, þar sem Ólafur reisti húsið á Vatnsleysu og heimkynni hans urðu í Skaga- firði eftir það. Síðan fórum við að eiga börn og þurftum samastað. Þá keypti Ólafur minn hálfa jörðina Vatns- kot í Hegranesi á móti Leó bróður mínum af Sigurði hreppstjóra Ólafssyni á Hellulandi. Jörðin var í eyði og húsalaus. Ólafur fékk ián til bygginga og annað til ræktun- ar. En ekki var heyslítingurinn, sem við fengum af túnskæklinum fyrsta árið nema tuttugu hestar. Ekkert áttum við nema hendurnar og heilbrigða sál í hraustum lík- ama. Þetta varð svo heimili okkar og skírðum kotið Hegrabjarg, en Leó sinn part Svanavatn. Árið 1937 byggði Ólafur íbúð- arhúsið á Páfastöðum í Staðar- hreppi hér í Skagafirði og sam- sumars fékk hann iðnbréf og meistarabréf fjórum árum síðar. — Á Hegrabjargi eignuðumst við og ólum upp fimm myndarlegar dætur. Þær eru: 1. Lilja Guðrún, f. 1934, ógift, búsett í Hveragerði. Dóttir hennar er Sæunn Jónsdótt- ir, f. 1963, bóndi á Svanavatni. 2. Þórdís Sigríður, f. 1936, búsetj í Reykjavík. Sambýlismaður Hjalti Jóhannsson, myndlistarm. og rith. Sonur þeirra er Jóhann, f. 1966, menntaskólanemi. 3.-5. Margrét, Sigrún og Sigurlaug, f. 1941. Já, ólafur minn fékk annað og meira um að þenkja en meistara- bréfið árið 1941, því 3ja júní það ár eignuðumst við þríburadætur. — Nú búa tvær þeirra, Margrét og Sigrún, ógiftar hér á Hegrabjargi og voru okkar skjól á ævikvöldinu. — Sigurlaug er gift Jóni Bene- diktssyni, bónda. Þau búa á Kleif á Skaga í Skefilsstaðahreppi og eiga sex myndarbörn. Ólafur Eiríksson var þjóðhaga- smiður og öll viðfangsefni léku í höndum hans. Slíkur völundur bjó vitanlega vel í haginn. Hann smíð- aði sér til að mynda fótstiginn rennibekk, hjólsög með rafmótor og smærri handverkfæri. Einnig spunavélar, vefstóla og rokka. Við fínsmíðina skipti ekki máli hvort efniviðurinn var rauðtré eða hvalbein, allt var fansað af snilli. Auk óteljandi eldhúsinnréttinga, smiðaði ólafur meðal annars stofu- og fataskápa, rúm, skrif- borð, kommóður, saumakassa listilega o.s.frv. — Eftir seinna heimsstríð hófst innflutningur á blæjujeppum og byggði ólafur yf- ir marga slíka. Hann reisti um það bil þrjátíu ibúðar- og peningshús i Skagafirði. Fékk snert af lömun- arveiki er á ævina leið og varð þá að hætta húsasmíði að mestu, en vann lengi að smærri verkefnum. Meðal síðustu verka Ólafs í húsa- smíði var hið myndarlega skóla- hús að Reykjum í Tungusveit í Lýtingsstaðahreppi, (Steinsstaða- skóli). Ólafur Eiríksson var alblindur síðustu sextán árin. Það var lang- ur tími fyrir svo fjölhæfan og vinnugefinn mann. Hann var elskulegur eiginmaður og mikill heimilisfaðir. — Á langri ævi skiptast á skin og skúrir í tilver unni og í ófullkomleika sínum glímir manneskjan ávallt við hina torráðnu lífsgátu og fellir í ljóð- rænar spurningar, líkt og hinar meistaralegu línur skáldsins: Á meðan brimið þvær hin skreipu sker og skýjaflotar sigla yfir lönd, þá spyrja dægrin: Hvers vegna ertu hér, hafrekið sprek á annarlegri strönd? (J. Helgason) Margs er að minnast og sakna og „minningarnar mun ég geyma, meðan lífs ég anda dreg“. Blessuð sé minning ólafs Ei- ríkssonar. — í Guðs friði. Sæunn Jónasdóttir, Hegrabjargi. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, VILHJÁLMS SIGTRYGGSSONAR, Túngötu 14, Húsavfk. Kristrún Jóhannsdóttir, María Vilhjálmadóttir, Helga Vilhjólmsdóttir, Sigtryggur Vilhjálmsson, Friörik Vilhjálmsson, Selma Vilhjálmsdóttir, Dagur Vilhjálmsson, Oddný Vilhjálmsdóttir, Arnar Sígurmundsson, Klemens Sigurgeirsson, Rikey Guömundsdóttir, Sólrún Björnsdóttir, Þorgils Haröarson, Garöar Tryggvason. Kolbrún Sigurjónsdóttir, Valgeröur Briem, barnabörn og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.