Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.08.1984, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 + Faöir okkar og sonur minn, VALDIMAR KRISTJÁNSSON, vélsmiöur, Nýlendugötu 15, Reykjavík, lést í Landspítalanum aöfaranótt 30. ágúst. Stelnunn Valdimarsdóttir, Emil Valdimarsson, Brynjar Valdimarsson, Bolli Valdimarsson, Kjartan Valdimarsson, Kristján Valdimarsson, Ingibjörg Árnadóttir. t Systir mín, mágkona og móöursystir, INGIBJÖRG S. GÍSLADÓTTIR frá Seljadal, Smyrlahrauni 9, Hafnarfiröi, lést í Hafnarfjaröarspítala þriöjudaginn 28. ágúst. Guömunda Gísladóttir, Gisli Magnússon, Guörún Agústsdóttir, Jarþrúöur Guömundsdóttir. Bróöir minn. + AKSEL PfÍHEL, verkfrœöingur, Holtsbúö 91, Garöabm. andaöist 30. ágúst. Karen Pííhel. ■ Móöir okkar og tengdadóttir, h MAGDALENA JÓSEFSDÓTTIR, er látin. Hulda Valdimarsdóttir, Birgir Valdimarsson, Helga Valdimarsdóttir, Eltas Valgeirsson, Margrét Jónsdóttir. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, HANSfNU BÆRINGSDÓTTUR frá Bolungarvik, Bústaóavegi 53. Svanhvit Jónasdóttir, Ingunn Jónasdóttir, Sigurður Báróarson, Magnús Jónasson, Helga Sigurlaugsdóttir, Finnbogi Jónasson, Elísabet Gunnlaugsdóttir og aðrir aóstandendur. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför stjúpmóöur okkar og systur, JÓNÍNU HELGU ERLENDSDÓTTUR, sjúkraþjálfara, Skipasundi 65. Arndís Hjaltadóttir, Hulda Hjaltadóttir, Aöalheiöur Erlendsdóttir, Anna Erlendsdóttir. + Þökkum innilega sýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför mannsins mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, RÚTS KRISTINS HANNESSONAR, hljóöfasraleikara, Öldugötu 42, Hafnarfiröi. Sérstakar þakklr færum viö stjórn og félögum i Félagi íslenskra hljómlistarmanna og starfsfólki Landspítalans fyrir góöa umönnun i erfiöum veikindum. Guö blessi ykkur öll. Ragnheiöur Benediktsdóttir, Albert S. Rútsson, Erla Haraldsdóttir, Harpa Rútsdóttir, Georg Þór Kristjánsson, Rut Rútsdóttir, Birgir Guöbjörnsson, Eygló Rútsdóttir Backström, Kjell Backström, Helóar Rútsson, Jónas Rútsson, Hannes Rútsson, Ragnar Rútsson og barnabörn. Hannes Jónsson Minningarorð Feddur 7. aprfl 1912 Dáinn 21. ágúst 1984 { dag er kvaddur Hannes Jóns- son, matreiðslumaður, kær vinur og frændi. Hann fæddist á Látrum í Aðalvík 7. apríl 1912. Foreldrar hans voru hjónin Jón Þorkelsson og Halldóra Guðnadóttir bæði frá Látrum. Hann var fjórði í röð fimm bræðra. Hann ólst upp við þau erfiðu kjör sem víðast hvar voru á þessum tímum og snemma urðu þeir bræður að rétta hjálp- arhönd, en faðir þeirra var lengi heilsulítill og lést þegar Hannes var um fermingaraldur. Hannes fór á sjóinn strax og hann gat, og þegar hann hleypti heimdragan- um fór hann á bátana á ísafirði, sem þá eins og í dag var mikill útgerðarbær. En bátarnir voru litlir og aðbúnaður lélegur á þeim árum. Hannes gerðist fljótlega matsveinn og var það alla tíð. En bátarnir stækkuðu, síðan tóku togarar við, strandferðaskip, sumarhótel, veitingahús og síð- ustu 24 árin var hann hjá Flugfé- lagi íslands og Flugleiðum á með- an heilsan leyfði. Hann gekk að eiga æskuvinkonu sína Pálmeyju Kristjánsdóttir frá Látrum 1939. Var það mikið gæfuspor fyrir bæði. Þau voru óvenju samrýnd hjón, meðal annars unnu þau bæði hjá Flugfélagi íslands í rúm tutt- ugu ár og fylgdust í vinnu og úr allan tímann. En þau undu sér líka vel utan vinnunnar, ferðuðust saman, skemmtu sér saman, þar sem annað fór var hitt nærri. Sól- argeislinn í lífi þeirra var kjör- dóttirin Bára, sem þau opnuðu faðm sinn fyrir 1941 á þeim dimmu dögum stríðs og skipskaða. Þau eiga nú þrjár dótturdætur og einn dóttur-dótturson sem er augasteinn allrar fjölskyldunnar. Þau hjónin settu saman bú á fsafirði, en þaðan lá leiðin til Pat- reksfjarðar 1943, þar sem Hannes starfrækti mötuneyti, en fór síðan á togara þar. Til Reykjavíkur fluttu þau 1950. Nú fór Hannes á strandferðaskipin Esju og Heklu, var á Bifröst og Valhöll á Þing- völlum nokkur sumur. Hann réðst síðan á veitingahúsið Naust þegar það tók til starfa. Þar hóf hann nám í matreiðslustörfum, því Hannes vildi aldrei gera neitt til hálfs. Allt varð að vera sem best sem hann lagði hönd að. Hann lauk þaðan sveinsprófi f mat- reiðslufræðum 1956, þá kominn á fimmtugsaldur. Eftir það var hann yfirmatreiðslumaður í Tjarnarcafé þar til hann fór til Fiugfélags fslands 1960 og var þar eftirleiðis. Hannes var góður matsveinn en hann var líka góður maður. Á sinni löngu starfsæfi á mörgum stöðum átti hann samleið með fjölda fólks. Hann var sérlega vel liðinn og vinsæll meðal sam- starfsfólks. Það sýndi sig best á tyllidögum eins og stórafmælum, hve unga fólkið flykktist til hans til að óska „elsku afa“ til ham- ingju með daginn og gleðjast með honum. Þar á heimilinu eru mörg hlýlega skrifuð kort og skeyti geymd, sem segja sína sögu. En við hjónin þökkum elsku- legum vini æfilanga vináttu og tryggð. Ef eitthvað bjátaði á komu Hannes og Palla ævinlega og spurðu: „er nokkuð sem við getum gert?“. Fram í hugann streyma minningar um ferðir í Aðalvík og víðar. Við vorum saman á ferð síð- ast i júlí í Hollandi. Margar minn- ingar frá æskuárum byltast í hug- um okkar en við höfum öll þekkst frá bernsku. Við höfum verið sam- an á góðum stundum og lfka erfið- um stundum. Slíkt er aðal sannrar vináttu. Elsku Palla, Bára, Gunnar og fjölskyldan öll. Við vottum ykkur innilega samúð og biðjum Guð að vera með ykkur á þessum erfiðu stundum. Guð blessi minningu Hannesar Jónssonar Asta og Hilli Hannes Jónsson, matreiðslu- maður, Stóragerði 10, er látinn. Við fréttum fyrr á árinu að hann væri með illkynja sjúkdóm og að leitað væri allra færra leiða til að halda honum niðri, en nú er baráttunni lokið. Hannes réðst sem yfirmat- sveinn til Flugfélags fslands hf. árið 1960 og skömmu síðar eftirlif- andi eiginkona hans, Pálmey Kristjánsdóttir, sem starfskona í mötuneyti starfsmanna og í eld- húsi. Síðar, eftir sameiningu fé- laganna, unnu þau hjá Flugleiðum hf., þar sem Pálmey starfar enn. Það eru margar góðar minn- ingar frá liðnum árum enda oft glatt á hjalla í mötuneytinu, sem var einnig athvarf okkar starfs- fólks til tómstunda- og félags- starfa að afloknum vinnudegi. Hannes var grannur maður og spengilegur, svipfastur og svip- hreinn og bauð af sér góðan þokka. Mér fannst hann dæmigerður, sem góður fagmaður, því að svo snyrtilegur var hann og nákvæm- ur í allri framgöngu og vinnu. Hann skilaði góðu dagsverki fyrir félagið, stundvís og áreiðan- legur, iðinn og skapgóður. Hann þurfti gjarnan á þessum eiginleik- um að halda, þvi álagið var oft mikið, sérstaklega eftir að matar- gerð fyrir farþega í millilanda- flugi varð stærri hluti verkefna eldhússins og þurfti vel til alls að vanda og brást Hannes ekki því trausti, sem til hans var borið. Eftirtekt vakti, hve Hannes og Pálmey voru samrýnd, enda urðu samverustundirnar fleiri, þar sem þau unnu á sama vinnustað. Ég held að það hafi verið báðum til gæfu. Pálmey og Hannes eignuðust eina kjördóttur, sem heitir Bára. Bára er gift Gunnari Jakobssyni og eiga þau þrjár dætur, sem nú sakna góðs afa. + Innilegar þakkir til þelrra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför elginmanns mins og fööur okkar, SIGUROAR H. FRIÐRIKSSONAR, framreiðslumanns, Unnarbraut 13, Seltjarnarnasi. Valborg Bjarnadóttir, Bjarni Sigurösson, Andri Sigurösson. + Innilegar þakkir til allra sem auösýnt hafa okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur, JÖRGENS K. STEFÁNSSONAR, Firöi 6, Soyöisfiröi. Sigríöur Bsrgþórsdóttir og synir. Að leiðarlokum þökkum við samstarfsfólkið Hannesi fyrir góð kynni og margar ánægjulegar samverustundir og biðjum góðan guð að styrkja Pálmey, Báru og fjölskyldu í sorg þeirra. Guðmundur Snorrason Hann afi er dáinn. Það er erfitt að trúa þeirri staðreynd. Elsku góði afi, alltaf svo léttur og kátur. Ofá voru sporin okkar til hans og alltaf gátum við leitað til afa með okkar mál. Hann var okkur ástrík- ur og umhyggjusamur og í honum áttum við einlægan vin. Afi fæddist að Látrum í Aðalvík og ólst þar upp. Þar fæddist líka og ólst upp amma okkar, Pálmey Kristjánsdóttir. Við vorum svo heppnar að fara nokkrar ferðir með þeim í fallegu sveitina þeirra og mikið var gaman þegar afi laumaðist til að vekja okkur eldsnemma og við læddumst fram að á til að veiða. Það var montinn hópur sem kom heim með silung i matinn þegar hinir voru rétt að opna augun. Eins eigum við dásamlegar minningar úr sumarbústaðnum sem afi og amma byggðu með pabba og mömmu í Grímsnesinu. Þar var oft glatt á hjalla og mikið sungið. Við fráfall afa verður eftir tómarúm sem seint verður fyllt. En við eigum þó eftir minninguna um elskulegan afa, sem alltaf var tilbúinn að hugga ef eitthvað bját- aði á, eða slá á létta strengi og glettast svo að allar sorgir gleymdust. Við stelpurnar hans erum inni- lega þakklátar fyrir það sem hann var okkur. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér. Við biðjum góðan Guð að blessa afa okkar og ömmu okkar sem hefur misst svo mikið. Við blessum þig og bjóðum góða nótt, nú blika daggartár á legstað þínum. Hvíldin er ljúf og grafarhúmið hljótt, nú hjúfrar eilíf þig að barmi sínum. (Guðrún Magnúsd., ljóðab. ómar) Megi afi hvíla í friði og hafi hann þökk fyrir allt og allt. Ommu vottum við okkar innilegustu sam- úð. Hanna, María og Þóninn. Þegar ég nú kveð Hannes hinstu kveðju er mér efst f huga þakk- læti. Þakklæti fyrir að hafa notið samvista við og kynnst þessum prúða og góða frænda mínum. Hannes var kvæntur Pöllu móð- ursystur minni. Ég minnist þess með ánægju þegar ég fékk að fara í fyrsta sinn til Reykjavíkur og dvelja hjá Pöllu og Hannesi, hve vel þau tóku mér og ávallt síðar eins og væri ég þeirra eigin sonur. Á námsárun- um buðu þau mér að bua hjá sér. Frá þeim tíma minnist ég margra gleðistunda. Hannes var glettinn og spaugsamur. Við áttum það til að gantast hvor við annnan svo að Pöllu þótti nóg um, en allt var það græskulaust gaman. Þessi ár, sem ég bjó á heimili Hannesar og Pöllu, verða mér ógleymanleg og mun ég ávallt minnast þeirra með hlýjum þakk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.