Morgunblaðið - 31.08.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
5
Þóroddsstaðar-
kirkja afhelguð
ÞÓRODDSSTAÐARKIRKJA í Staðarfellsprestakalli í Þingeyjarsýslu
hefur nú verið afhelguð og er þessa dagana unnið að niðurrifi á henni.
Tíu ár eru nú liðin frá því að ákveðið var að rífa kirkjuna sakir slæms
ásigkomulags, en eitthvað dróst það á langinn að málum yrði hrundið í
framkvæmd.
i
Eins og mönnum mun vera
kunnugt kom upp sú hugmynd í
vor, að kirkjan yrði flutt um set
en henni var hafnað. Séra Jón A.
Baldvinsson, fráfarandi sókn-
arprestur í Staðarfellspresta-
kalli, afhelgaði Þóroddsstaðar-
kirkju fyrir stuttu, en hann er á
leið til Lundúna þar sem hann
mun starfa sem sendiráðsprest-
ur. Blm. ræddi við séra Jón og
innti hann eftir ástæðu þess að
lokaákvörðun var tekin um af-
drif kirkjunnar.
„Kirkjan var í mjög slæmu
ásigkomulagi", sagði Jón, „og
var hún of lítil til að mæta kröf-
um safnaðarins. Augljóst var að
orðið hefði að endurreisa hana
að miklu leyti af nýjum viðum.
Ákveðið var fyrir tíu árum að
rífa kirkjuna en sakir trassa-
skapar var ekki búið að því. 1 vor
kom upp sú hugmynd meðal
nokkurra manna að flytja kirkj-
una að sumarbúðum þjóðkirkj-
unnar að Vestmannsvatni, en
það hefur lengi verið draumur
þjóðkirkjunnar að reisa þar
kirkju. Þar sem sýnt þótti að það
Þóroddsstaðarkirkja í Þingeyjarsýslu.
myndi reynast dýrara að endur-
byggja Þóroddsstaðarkirkju þar
en að reisa nýja, var ekki áhugi
fyrir hendi hjá Æskulýðssam-
bandinu að hún yrði flutt þang-
að. Því var það samþykkt á al-
mennum safnaðarfundi að af-
helga kirkjuna sem ég og gerði
að lokinni kveðjuguðsþjónustu
12. ágúst sl.
Ráðgert er að reisa nýja
kirkju á kirkjustæði Þórodds-
staðarkirkju og verður hún með
sama sniði, nema nokkuð stærri.
Stefnt er að því að hún verði orð-
in fokheld fyrir veturinn. Nokkr-
ir hlutir eru heilir úr Þórodds-
staðarkirkju en það eru kirkju-
klukkur, altaristafla og forláta
predikunarstóll frá 18. öld. Þeir
munu að sjálfsögðu prýða hina
nýju kirkju Staðarfellspresta-
kalls,“ sagði séra Jón A. Bald-
vinsson.
Herra Pétur Sigurgeirsson,
biskup yfir íslandi, var í vor
andvígur því að Þóroddsstaðar-
kirkja yrði rifin og vildi eins og
fleiri að hún yrði flutt að Vest-
mannsvatni. I samtali við blm.
sagði biskup að hann væri sáttur
við þessi málalok. „Sérfróður
maður frá Þjóðminjasafni ís-
lands kannaði kirkjuna og stað-
festi að hún væri það illa farin
að ekki væri grundvöllur fyrif
því að flytja hana, enda sýndi
Æskulýðssambandið því ekki
lengur áhuga, að hún yrði flutt
að Vestmannsvatni. Því er ég
sáttur við að kirkjan hafi verið
rifin þó að það sé auðvitað sárt
að sjá á bak henni," sagði Pétur
Sigurgeirsson.
Reyndi að smygla 100 g
af amfetamíni:
Tvítug stúlka
í viku gæslu-
varðhald
TVÍTUG stúlka var í gærmorgun úr-
skurðuð í allt að sjö daga gæsluvarð-
hald í Sakadómi í ávana- og fíkniefna-
málum vegna innflutnings á um 100
grömmum af amfetamíndufti. Efnið
hafði stúlkan falið í iðrum sér og skil-
aði það sér eftir náttúrulegum leiðum.
Stúlkan var handtekin ásamt
stöllu sinni á Keflavíkurflugvelli á
þriðjudaginn þegar þær voru að
koma til landsins frá Amsterdam í
Hollandi. Voru þær fluttar til
Reykjavíkur en þar var annarri
stúlkunni sleppt. Þess var óskað af
hinni, að hún gengist undir lækn-
isskoðun, þar sem grunur lék á að
hún væri með fíkniefni innvortis.
Þegar hún neitaði var kveðinn upp
um það sérstakur dómsúrskurður
og var stúlkan færð til röntgen-
myndatöku í fyrradag. Kom þá í
ljós að í iðrum sér hafði stúlkan
komið fyrir torkennilegum hlutum,
sem síðar reyndust vera fimm 20
gramma blöðrur, fúllar af amfeta-
míndufti.
Gerð var húsleit heima hjá stúlk-
unni í fyrrakvöld án þess að þar
fyndust fíkniefni. Stúlka þessi hef-
ur ekki komið við sögu hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykjavík
en grunur féll á hana vegna náins
kunningsskapar við kunna fíkni-
efnasala.
Gangverð á amfetamíndufti „á
götunni" hérlendis mun nú vera um
2500 krónur fyrir grammið. Fíkni-
efnasalar hafa þann hátt á, að
blanda duftið með hveiti eða talk-
úmdufti og geta með því móti allt
að fimmfaldað magnið. Það má þvi
gera ráð fyrir, að söluverðmæti 100
grammanna sé nærri einni milljón
króna. Áætlað kaupverð efnisins í
Amsterdam er 15—20 þúsund krón-
ur.
8 tækjum og
nærri 100
snældum stolið
ÁTTA myndsegulbandstækjum og
70—100 myndsnældum var stolið úr
myndbandaleigunni Myndbandalag-
inu í Mosfellssveit í fyrrinótt.
Um er að ræða Sharp-tæki af
ýmsum undirgerðum, þar á meðal
tvö ferðatæki. Myndsnældurnar eru
með kvikmyndum af margvíslegu
tagi. — Málið er í rannsókn hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem
minnir á, að varasamt getur verið
að kaupa vörur af óljósum uppruna.
Skipast veður í k>fti
Frá og meö Höfuödegi leggjum viö
auðvitað höfuðáherzlu á hausttízkuna!
Umboösmenn okkar úti á landi enc
ÚU á iandc EpKð — isaflröi, Eyjabær — Vestmarmæyjum, Fataval — Keflavk, Álthól — Sigluflröi, Nma — Akranesi, Ram — Húsavfc, Bakhúsiö — Hafnarflröi, Kauptél.
Rangæinga — Hvotevei, Spsrta — Sauöárkróki, Skógar — Egibstööum, tebjömirm — Borgamesi, Lindin — Settossi, Báran — Grindavk, Þórshamar — Stykkishólmi,
Homabaer — Hötn Homaflröi, Nesbær — Neskaupstaö, Verslunin Noröurfetl — Akureyri.
Opið
frá kl. 9—12
á morgun
laugardag