Morgunblaðið - 31.08.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
7
Ekki hægt að byggja upp
góðan dansflokk á Islandi
ef allir flýja land
HINN EFNILEGI ungi listdansari,
Jóhannes Pálsson, hyggur á dans-
nám í Bandaríkjunum nú í vetur.
Jóhannes fékk ásamt Sigrúnu
Guðmundsdóttur og Katrínu Hall,
styrk úr Styrktarsjóói ungra list-
dansara þegar veitt var úr honum í
fyrsta sinn. Styrkinn notaði Jó-
hannes til að fara á sumarnám-
skeið í New York.
Siðastliðinn vetur starfaði Jó-
hannes með íslenska dansflokkn-
um og var á svokölluðum nem-
endasamningi.
Blaðamaður hitti Jóhannes og
innti hann eftir því hvert förinni
væri heitið.
„Ég er búinn að fá inni i skóla í
Philadelfíu sem heitir School of
Pennsylvania Ballet. Ég hafði
mikinn áhuga á að fara utan og
Einar Sveinn Þórðarson, sem var
i ballettflokki sem er tengdur
Philadelphiu, mælti með honum
við mig. Ég fór svo á 6 vikna
námskeið i sumar til að athuga
hvernig mér líkaði, og líkaði mjög
vel. Ég þreytti inntökupróf í skól-
ann sem gekk vel, og var mér boð-
inn styrkur sem fellst í því að ég
fæ niöurfelld öll kennslu- og
skólagjöld.
Verður þú bæði í klassískum og
nútíma ballett?
Aðal áherslan í skólanum er á
klassiskan ballett, en á sumar-
námskeiðinu var meiri fjöl-
breytni.
Annars má segja að það sé orð-
ið erfitt að skilja á milli nútíma-
balletts og klassísks balletts i
Bandaríkjunum t.d. i New York.
Rætt vid Jóhannes
Pálsson, sem fer til
Bandaríkjanna í
haust í dansnám
Jóhannes Pálason dansaði á móti
ólafíu Bjarnleifsdóttur f ballett
sem íslenski dansflokkurinn sýndi
í vetur.
Þar er öll uppbyggingin klassísk
en formið er nútímalegt, er það
stíll sem hefur komið frá George
Balanchine.
Færð þú námslán til þessa
náms?
Það er dálítið erfitt að fá lán til
sérnáms eins og listdans, enda
get ég ekki sýnt fram á neinar
einkunnir. Aftur á móti get ég
fengið umsögn skólans. Eg er
ennþá ekki búinn að fá neitt end-
anlegt svar frá lánasjóðnum, en
ég vonast til að fá það á næst-
unni. Ef þeir koma til með að
neita mér um lán, efast ég um að
ég geti farið. Ég vona að ég fái
góða fyrirgreiðslu. Það eru for-
dæmi fyrir því að dansarar hafi
fengið lán frá sjóðnum, svo það er
óþarfi að vera svartsýnn.
Hvað hyggstu vera lengi?
Til að byrja með verð ég næsta
vetur, en sé svo til hvernig geng-
ur. Ég býst ekki við því núna að
verða lengur, en það er aldrei að
vita hvað gerist. Auðvitað hef ég
áhuga á því að þreifa fyrir mér
erlendis sem dansari en sam-
keppnin er geysilega hörð og
margir um hituna. Eins og er, er
ekki mjög spennandi að koma
hingað og dansa hér. Núna eru
aðeins 10 samningar í Dans-
flokknum, og á meðan svo er eru
ekki mikil tækifæri fyrir yngri
dansara. Ég er sannfærður um að
það er hægt að byggja upp öflug-
an flokk hér og gera skemmtilega
hluti, en það segir sig sjálft að ef
allir flýja land þá verður það
ekki.
Jón Páll Halldórsson
Jón Páll sagði ennfremur, að
ljóst væri að vendipunkturinn
í afkomumálum fiskvinnslunn-
ar hefði verið í byrjun jání,
þegar nýtt fiskverð var ákveð-
ið og launaliðir og þjónusta
hækkaði án þess að nokkrar
tekjur hefðu komið á móti. Á
12 mánaða tímabili, frá 1. ág-
úst 1983 til sama dags á þessu
ári, hefði dollar hækkað um
11%, þýzka markið staðið í
stað og pundið lækkað um tæp
4%. A sama tíma hefði fisk-
verð hækkað um 15 til 16%,
laun fiskvinnslufólkg um
Fiskvinnslan þolir
ekki iaunahækkanir
— segir Jón Páll Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Norðurtangans á ísafirði
„VIÐ óbreyttar aðstæður er það
alveg Ijóst aö fiskvinnslan þolir
ekki frekari launahækkanir en
orðið hafa á þessu ári. Hún er
rekin með bullandi tapi og
launahækkanir gera stöðuna
bara enn verri. Fiskvinnslan
hefur aldrei verið verr í stakk
búin en einmitt nú til að taka á
sig auknar álögur og staða
þeirra byggðarlaga, sem byggja
afkomu sína á framleiðslu sjáv-
arafurða verður ákaflega erfið á
næstu vikum,“ sagði Jón Páll
Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Norðurtangans á ísafirði,
í samtali við blm. Morgunblaðs-
ins.
11,5% og rafmagn um 26%.
Þrátt fyrir þessa þróun hefðu
menn aukið framleiðsluna
fyrir Evrópumarkað til þess að
reyna að létta á þenslunni á
Bandaríkjamarkaði og væri
þar um hreina markaðspólitík
að ræða. Síðan kæmi á móti
þessu, að verðlækkanir afurða
í dollurum vægu upp á móti
hækkun dollarans, þannig að
afurðaverð hefði staðið í stað á
þessu 12 mánaða tímabili. Það
væri hverjum manni ljóst að
ekkert fyrirtæki þyldi þetta og
því rýrnuðu stöðugt möguleik-
ar fiskvinnslunnar á jákvæðri
afkomu.
ittumst
Höllinni
Við bjóðum alla velkomna á
Heimilissýninguna og þar með upp á
hressingu á básnum okkar í
Laugardalshöllinni. Stúlkurnar okkar
munu bjóða upp á SPRITE og FRESCA
og e.t.v. er eitthvað smávegis í
pokahorninu handa unga fólkinu.
Sjáumst á Heimilissýningunni.
Verksmiðjan