Morgunblaðið - 31.08.1984, Side 15

Morgunblaðið - 31.08.1984, Side 15
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 15 Forstöðukona heilsuhælis fyrir getulausa færir einsöngvaranum Helga R. Einarssyni blóm eftir tónleika í Odessa. Tónleikar { verkalýðshöllinni { Odessa. Fremst i sviðinu var komið fyrir skilti, sem i stóð „Sæl og blessuð". Kórfélagar tóku lagið i ströndinni við Odessa, „við gífurlegan Tögnuð við- staddra“, að eigin sögn. sagði Einar. „Einn kórfélaga sagði, að á íslandi væri synt með höndum og fótum, en við kynnum ekki að synda með læknisvottorð- um. En við þetta sat, við komumst ekki i sund. Þessar reglur eru sjálfsagt af hreinlætisástæðum, en ekki var hreinlætið alls staðar jafn mikið í Moskvu, t.d. eru um- búðir um matvæli á mjólkur- brúsastiginu," bætti Einar við. „Það er lítið að marka að vera gestur í Sovétríkjunum, því þá er allt látið eftir manni," sagði Páll kórstjóri nú. „En það er greinilegt að Sovétmenn eru langt á eftir hvað þjónustu varðar, t.d. eru eng- in kaffihús, eins og áður er sagt.“ Þrúður bætti við: „Bílaeign er al- mennt lítil og okkur fannst sér- staklega eftirtektarvert að sjá alls engin reiðhjól. Leigubílar eru ríkisreknir og bilstjórar eru á tímakaupi. Það þurfti því yfirleitt að gauka einhverju smávægilegu að þeim til að þeir fengjust til að aka, því þeir fengu jú sitt kaup eftir sem áður.“ „Sovétmenn eru harðir á því að fólk stundi vinnu," sagði Jón nú. „Samkvæmt stjórn- arskrá eru menn skyldir til að vinna og ef svo er ekki, þá eru þeir sakhæfir. Við spurðum túlkana hvort menn gætu skipt um vinnu að vild, en við fengum heldur loðin svör. Okkur skildist að hægt væri að skipta um vinnu, en hvernig það gengur er annað mál. Annars þýddi lítið að spyrja um svona hluti, ef við spurðum: „Af hverju?" þá var svarað: „Af því bara.“ Ef við þrjóskuðumst við, þá brostu Sovétmenn blítt og svöruðu: „Farðu að sofa.“ Kórfélagar voru yfirleitt mjög hrifnir af Moskvu, en voru sammála um að áheyrend- ur þar hefðu ekki verið pins léttir og í Odessa og Minsk. Sigríður minntist sérstaklega á að um Moskvuborg væri grænn gróður- hringur, því þar eru gróðursett tré gagngert til að mynda súrefni. Alafosskórinn hélt til Kaup- mannahafnar 19. júlí og stór hluti kórsins hélt síðan til bæjarins Daun í Eifel í V-Þýskalandi, þar sem lagið var að sjálfsögðu tekið nokkrum sinnum. Kórfélagar voru mjög ánægðir með förina og vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra, sem gerðu hana mögulega. Þeir ætla ekki að láta deigan síga, heldur syngja sem vfðast á komandi árum. Of pottþétt Hljomplotur Finnbogi Marinósson Joe Cocker/ Civilized Man Fyrir nokkru sendi Joe Cocker frá sér nýja plötu og heitir hún „Civilized Man“. Nú kveður við allt annan tón en á siðustu plötu hans „Sheffield Steel“. Til að byrja með er platan tvískipt. Hlið eitt er tekin upp í L.A. og sér til aðstoðar hefur Joe sankað að sér flestum þekktustu nöfn- unum í heimi amerískrar popp- tónlistar. Má þar nefna Jeff Porcaro, Jim Keltner og Steve Lukather. Hliðin byrjar á titillaginu. Ágætt lag og það eina sem ein- hver kraftur er í. Næstu fjögur lög eru öll í rólegri kantinum. Þau hvorki letja né hvetja hlust- andann til að spila sig aftur. Eru ósköp hlutlaus og næsta óþol- andi pottþétt. Meira er lagt í að allt sé rétt og slétt en að eitthvað áhugavert liggi að baki. Lítil til- finning er i lögunum og er greinilegt að hver og einn er að vinna sitt verk og selur ekkert meira en hæfni sína. Það eina sem er gott við þetta er að hljómgæðin eru eins og best verður á kosið. Þau sjá samt ekki til þess að platan verði áhuga- verðari en hún er. Seinni hliðin er tekin upp í kántrýbænum Nashville. Hér sjá sömu mennirnir að mestu um allan undirleikinn. Fyrsta lagið á þessari hlið heitir „I Love The Night“. Eftir bestu heimildum átti Joe Cocker tilbúna plötu í fórum sínum með þessu nafni. Hún ku hafa verið tekin upp á Bahama eins og „Sheffield Steel“ og með sömu aðstoðarmönnum. En einhverra hluta vegna hætti kappinn við útgáfu á því efni og tók upp þessa plötu. Þrátt fyrir að skipt hafi verið um upptöku- stað og aðstoðarmenn er tón- listin jafn leiðinlega pottþétt á þessari hlið hinni fyrri. Hljóm- gæðin og vinnslan eru frábær, en það einfaldlega bjargar ekki tónlistinni. Það vantar alla til- finningu í þetta allt saman til að platan geti talist áhugaverð. Það er mótsagnakennt að hafna plötu á þeim forsendum sem eru gefnar upp hér að fram- an, en þannig er þetta nú samt. Platan spilast nokkrum sinnum og týnist síðan innan um plötur sem eitthvað persónulegt hefur verið lagt í. Takið eftir Takið eftir Áhugamenn um feröalög og 4WD-bíla Nú gefst í fyrsta sinn tækifæri til ar bæöi nýir og notaöir til sýnis og þess hérlendis aö sjá á einum staö sölu. allt hiö besta í framleiðslu Einnig veröur sýndur sérhannaður 4WD-farartækja í heiminum. Ótrú- fylgi- og feröabúnaður fyrir legt úrval, ótal geröir. 4WD-bíla. Jeppar, pallbílar og aörir 4WD-bíl- Látiö ekki þetta einstaka tækifæri framhjá ykkur fara. Sýningin stendur aöeins þennan eina dag, laugardaginn 1. sept. kl. 13.00—17.00. j □ GjVj — E 9 — rr™ —. H — BíLVANGURsf HOFÐABÁKkÁ“9 SÍMl' 687300 # # I l I i I >L L j Texti: Ragnhildur Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.