Morgunblaðið - 31.08.1984, Side 16

Morgunblaðið - 31.08.1984, Side 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984 16 íranskri orrustu- þotu lent í írak Bagdad, 3«. ágúst AP. ÍRANSKRI orrustuþotu var í dag lent á flugvelli í írak og báðu flug- mennirnir báðir um hæli í landinu sem pólitískir flóttamenn. Var þeim veitt það að bragði. Farþegar ír- önsku þotunnar, sem var rænt fyrir nokkrum dögum og lent í írak, eru enn í skoðunarferð um landið í boði stjórnvalda og munu ákveða að henni lokinni hvort þeir vilja snúa heim. Talsmaður íraska hersins sagði í dag, að íranska orrustuflugvélin hefði verið af gerðinni F-4 Phant- om og að flugmennirnir væru nú „gestir írösku þjóðarinnar". Er það orðalag haft þegar mönnum er veitt pólitískt hæli í írak. Fyrir tveimur dögum var ír- anskri farþegaþotu í innanlands- flugi rænt og snúið til íraks. Voru þar að verki ung hjón, sem flýja vildu kúgunina í landi sínu. Var þeim að sjálfsögðu vel tekið í írak og líka hinum 204, sem með vél- inni voru. Hafa þeir verið síðan í skoðunarferð um írak í boði stjórnvalda og stjanað við þá á all- an hátt. Munu þeir ákveða að reis- unni lokinni hvort þeir vilja fara heim. Engin skýríng enn á B-l-flugslysinu JefTenwn, Texas, 30. ágúst AP. FLUGSTJÓRINN, sem beið bana, er sprengjuflugvél af gerðinni B-1 hrapaði í Kaliforníu í gær, var þraut- þjálfaður flugmaður með nær þriggja áratuga reynslu að baki sér. Var hann á æfingaflugi í lítilli hæð yfir Mojave-eyðimörkinni, er þotan hrapaði. Hún var ekki búin neinum kjarnorkuvopnum. Skýrði talsmaður bandaríska flughersins frá þessu í dag. Tveir aðrir áhafnarmeðlimir liggja á sjúkrahúsi talsvert slas- aðir, en líðan þeirra var í dag sögð sæmileg. Tókst þeim að skjóta sér burt úr stjórnklefa vélarinnar, er hún hrapaði. Enn hefur engin skýring fengizt á flugvélarslysinu. Flugvél þessi er búin fjórum þotuhreyflum og var hún á 127. reynsluflugi sínu, er hún fórst. Reykur sást koma aftan úr henni, rett áður en hún hrapaði um 120 km norðaustur af Los Angeles. Flugslys þetta gerist nú aðeins viku áður en ný sprengjuþota B-IB átti að fara í sitt fyrsta reynsluflug. Flugvélin, sem fórst, var af gerðinni B-IA. Áætlunin með B-l-sprengjuþot- urnar hefur verið mjög umdeild í Bandaríkjunum. Stjórn Jimmy Carters hafnaði áætluninni, en hún var tekin upp að nýju, eftir að Ronald Reagan varð forseti og Bandaríkjaþing hefur samþykkt, að þessi sprengjuþota komi í stað B-52-sprengjuþotanna, sem nú eru komnar til ára sinna. Flugvélin, sem fórst nú, var ein af elztu flugvélunum af gerðinni B-IA og hafði henni fyrst verið flogið í júní 1976. Árið 1978 setti þessi vél hraðamet fyrir flugvélar af gerð- inni B-l, er hún náði meira en tvö- földum hraða hljóðsins. Prúðbúnar tennisstjörnur Tennisstjörnurnar Martina Navratilova (til vinstri) og Chris Evert Lloyd sjást hér skarta öðrum fatnaði en sínum venjulega tennisbúningi. Mynd þessi var tekin af þeim við verðlaunaafhendingu í New York fyrir skömmu, en þar var Navratilova útnefnd bezti tennisleikari ársins 1984. Handtökur og her- vörður í Amritsar Mannfall hjá Eþfópíumönnum Nairobi, 30. kfrúnl. AP. SKÆRULIÐAR í Eritreu felldu 300 hermenn frá Eþíópíu og særðu 420 til viðbótar í árás 26. ágúst sl. Skýrði útvarp skæruliða í Mogadishu frá þessu í dag. Eritreumenn hafa barizt fyrir sjálfstæði nyrzta héraðsins í Eþíópíu undanfarin 24 ár. Hafa þeir hert á hernaðaraðgerðum sínum að undanförnu og er ekki vitað til þess, að þeir hafi staðið fyrir jafn um- fangsmiklum hernaðaraðgerðum og nú. Engin staðfesting hefur þó fengizt enn annars staðar frá á þessum aðgerðum. Nýju Delhi, 30. ágúsL AP. INDVERSKIR stjórnarhermenn handtóku a.m.k. 800 sikha í dag, komu fyrir vegartálmunum og her- verði um hið helga musteri sikha í Amritsar. Var þetta gert til að koma í veg fyrir ráðstefnu, sem sikhar höfðu boðað til í borginni. Heimsráðstefna sikha er fyrir- huguð í Amritsar nk. sunnudag og er talið, að hana muni sækja um 10.000 manns. Hefur rikisstjórnin í Nýju Delhi bannað ráðstefnuna og er talið líklegt, að umferð til borgarinnar verði bönnuð um helgina. Er því borið við að öfga- fullir sikhar ætli sér með ráð- stefnunni að kynda undir ólgunni í Punjab, sem ekki sé á bætandi. Fimm æðstu prestar í sikha- dómi hafa svarað aðgerðum yfir- valda með því að hvetja hina trúuðu að koma til Amritsar áður en borginni verður lokað og kunn- ur rithöfundur og þingmaður með- al sikha hefur beðið hæstarétt Indlands um að ógilda bannið við ráðstefnuhaldinu. Bendir hann á, að sikhar, hlynntir Indiru Gandhi, hafi átölulaust fengið að efna til ráðstefnu í borginni fyrr í mánuð- inum. Lögreglukonur rænd- ar í Central Park New York, 30. ágwL AP. TVÆR bandarískar lögreglukonur voru rændar um hádegisbilið í dag þar sem þær sátu að snæðingi í forsælu í Central Park, einu helsta útivistarsvæði í miðborg New York. Ræningjarnir, sem voru tveir og vopnaðir hníf, birtust svo óvænt að lögreglukonurnar höfðu ekki ráðrúm til að grípa til skotvopna, sem þær báru á sér. Þeir tóku byssurnar og allt fé- mætt af konunum, þar á meðal skartgripi þeirra, og handjárn- uðu þær að lokum með þeirra eigin járnum. Mennirnir tveir hlupu síðan á brott og hefur ekkert til þeirra spurst. Hvaða málmsuðuaðferðir eru hagkvæmastar, hvar og hvers vegna? Fyrirlestur Alberts Söndergaard efnaverkfræöings ESAB og Erik Henriksen sölustjóra ESAB um þetta efni verður í kvöld kl. 8 e.h. í samkomusal Héöins, Seljavegi 2, Reykjavík. Skýringarmyndir og umræöur á eftir. Allir málmiönaöarmenn, tækni- fræöingar og verkfræöingar eru hvattir til aö mæta. MÁLMSUÐUFÉLAG ÍSLANDS, HÉÐINN H/F.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.