Morgunblaðið - 31.08.1984, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
252 þúsund
ísraelar hafa
flutzt á brott
Tel A»i», 30. ágúsL AP.
STJÓRNSKIPUÐ nefnd sem hef-
ur unnið að samantekt um mál-
Líbanon:
Gemayel
syrgður
Beirút, 30. áfpóst AP.
PIERRE Gemayel, sem lést í gær, var
í dag syrgður jafnt af fornum fjend-
um sínum sem samherjum, en hann
var um langt skeið mestur atkvæða-
maður meðal kristinna manna í Líb-
anon. Hann var faðir núverandi for-
seta, Amin Gemayels.
Kirkjuklukkum var hringt, fánar
dregnir í hálfa stöng og tregaful!
tónlist leikin í útvarpi til minn-
ingar um hinn fallna foringja Fal-
angistaflokksins. Leiðtogar Araba-
ríkjanna og ísraels vottuðu Líb-
önum samúð sína. Dauði Pierre
Gemayels þykja ill tíðindi og mun
ekki auðvelda það sáttastarf, sem
nú er unnið í Líbanon.
efni útflytjenda og innflytjenda til
og frá Israel, hefur skilað niður-
stöðum sínum og kemur þar fram,
að 252 þúsund Israelar hafa flutzt
brott úr landinu síðan það varð
sjálfstætt ríki árið 1948. Lang-
flestir hafa sezt að í Bandaríkjun-
um og Kanada.
Formaður nefndarinnar, dr.
Ahron Fein, sagði, að tuttugu
prósent þessa fólks hefðu farið
af fjárhagsástæðum, 35 prósent
hefðu farið til náms og ekki
komið aftur, tíu prósent hinna
burtfluttu gerðu það til að fá
framhaldsmenntun eða til að
sinna sérstökum verkefnum og
28 prósent af öðrum ástæðum.
í blaðinu Ha’aret sem skýrði
frá niðurstöðunum var sagt, að
láðst hefði að geta um þá ís-
raela sem byggju erlendis án
þess að hafa tilskilin leyfi.
Benti blaðið á að i nýlegri at-
hugun um það hefði komið
fram, að í Bandaríkjunum ein-
um væru 500 þúsund ólöglegir
íbúar frá ísrael.
Vidkun Quisling fyrir rétti 1945.
Quisling:
Var valið úr skjölunum í
málaferlunum gegn honum?
Oeirðir og mótmæli
gegn Japönum í Seoul
Seonl, S-Kóreu, 3«. ágúst AP.
TALSMAÐUR lögreglunnar í Seoul
skýrði frá því á fimmtudagsmorgun,
að eitt hundrað og fjörutíu námsmenn
hefðu verið handteknir vegna þátttöku
f mótmælaaðgerðum, sem beindust
gegn Japan. Efnt var til funda á ýms-
um stöðum í borginni, en alvarlegasta
atvikið varð við upplýsingastofnun
Japana í Seoul á miðvikudagskvöld.
Hópur kóreskra stúdenta braut
rúður f byggingunni og lét ófriðlega.
Síðan var reynt að komast að jap-
anska sendiráðinu, en lögreglan
varnaði þeim vegar.
óeirðir þessar brutust út f tilefni
af því að minnst var um þessar
mundir að árið 1910 tóku Japanir
Kóreu hernámi, sem stóð f þrjátfu
og fimm ár. Á næstunni ætlar Chun
Doo Hwan, forseti S-Kóreu, að fara
f opinbera heimsókn til Japans í
fyrsta skipti í sögunni. Mjög skiptar
skoðanir eru um þá för, einkum f
röðum stúdenta og margir eru för
forsetans andvígir.
Ósló, 30. ágúsL Frá Ju Erik
Laare, frétUriUra Mbl.
„Quisling-hirngekjan" snýst
áfram hér í Noregi. Maöurinn, sem
heldur því fram, að hann hafi fundið
u.þ.b. 1.200 bréf og skjöl Quislings
úti á götu í Ósló þegar pappírssöfnun
fór fram á 6. áratugnum, segist nú
vilja, að pappírarnir gangi til rfkis-
ins; hann hafi gefið upp alla von um
milljónagróða með því að selja safn-
ið einstaklingum.
Það er á hinn bóginn mikið
vafamál, hvort maðurinn, sem nú
er upplýst að sé leigubílstjóri hér í
borg, hafi yfirleitt nokkurn ráð-
stöfunarrétt yfir skjölunum. Lög-
maður ríkisstjórnarinnar hittir
hann að máli í dag og e.t.v. næst
þá samkomulag um, að hann fái
þóknun fyrir að hafa komið með
skjölin fram í dagsljósið.
Vera kann, að skjölin hafi kom-
ist á flakk eftir að norskir her-
menn gerðu þau upptæk einhvern
fyrstu dagana eftir stríðið. Skjölin
voru fengin dómsmálaráðuneytinu
og hluti þeirra notaður í málaferl-
unum gegn Quisling. Tilnefndur
var sérstakur tilsjónarmaður
ríkisins til að varðveita skjölin.
Hann var lögfræðingur hér, en
lést fyrir nokkrum árum.
í gær fundust eftirhreytur af
skjalasafni og nokkrir aðrir munir
Quislings uppi á háalofti, þar sem
lögfræðingur þessi bjó. Er talið
hugsanlegt, að dómsmálaráðu-
Bandaríkjamenn óttast
of mikinn stálinnflutning
Innflutningur aldrei meiri en nú
WaahÍBítoi, 30. ágúxL AP.
INNFLUTNINGUR á stáli til
Bandaríkjanna nam 2,7 milljónum
tonna í júlímánuði eða 33% af því
stáli, sem Bandaríkjamenn notuðu í
þeim mánuði. Eru báðar þessar tölur
hærri en nokkru sinni fyrr.
Donald Trautlein, forseti stál-
fyrirtækisins Betlehem Steel,
sagði í dag, að þrátt fyrir það að
stálframleiðendur i Japan og Evr-
ópu hefðu rætt um að draga úr
útflutningi stáls til Bandaríkj-
anna, hefði reyndin orðið allt önn-
ur og útflutningurmn orðið tvöfalt
Yassir Arafat
í Norður-Jemen
M»nma. Bahnin, 30. ágúnL AP.
YASSER Arafat, formaður Frels-
issamtaka Palestínumanna, PLO,
Kínversk-
ur ráðherra
í Japan
Tókýó, 30. áfúnt. AP.
LI LENG, varaforsætisráðherra
Kína, kom í þrettán daga opinbera
heimsókn til Japans í morgun.
Hann mun ræða við stjórnmála-
menn og ýmsa fulltrúa í viðskipta-
lífinu og fara vítt um landið, með-
al annars um vesturhluta Japans
og til Hokkaido.
kom til Sanaa, höfuðborgar
Norður-Jemen, í dag. Hann ætlar
að ræða hagsmunamál Palestínu-
manna og ýms málefni sem varða
araba við forseta landsins, Ali
Abdullah Saleh.
Arafat sagðist mundu greina
Saleh frá framvindu mála inn-
an PLO og störfum þjóðarráðs
Palestínumanna, sem Arafat
kallar útlagaþing Palestínu.
Forystumenn í Jemen-lönd-
unum báðum hafa rætt saman
um ágreining þeirra sem snýr
að Palestínumálum og mun
hafa þokast töluvert í átt til
meiri samstöðu milli þeirra.
Arafat var glaðbeittur og
hress að sögn AP og svaraði
spurningum fréttamanna skor-
meiri nú en í júli 1983, en þá nam
hann 1,4 millj. tonna. Jafnframt
hefði innflutningur á stáli frá þró-
unarlöndunum verið meiri en
nokkru sinni fyrr.
Trautlein lagði enn einu sinni
til, að Bandaríkjaþing léti málið
til sín taka með þvf að takamarka
innflutning á stáli við 15% af því
magni, sem notað væri i Banda-
ríkjunum. Jafnframt hvatti hann
til „afdráttarlausra aðgerða" af
hálfu Ronald Reagans forseta,
sem í næsta mánuði verður að
taka tillit til þeirrar ályktunar
þingsins að setja tolla og kvóta á
erlendar stálvörur.
neytið hafi endursent heim til
hans þau skjöl, sem ekki þurfti að
nota við réttarhöldin, og þeim ver-
ið komið fyrir á háaloftinu.
Enginn hefur hins vegar getað
útskýrt, hvernig staðið getur á
hvarfi þeirra þaðan.
Skjöl þau, sem nú hafa komið
fram, gefa allt aðra og fegri mynd
af landráðamanninum Quisling en
þá sem t.d. getur að líta i almenn-
um sagnfræðiritum. Við réttar-
höldin lýsti Quisling eftir mörgum
af þeim skjölum, sem nú eru fund-
in, af því að hann ætlaði að nota
þau við málsvörn sína. Sagnfræð-
ingar draga nú í efa, að mál Quisl-
ings hafi fengið réttláta meðferð.
Svo getur virst sem dómsmála-
ráðuneytið hafi valið úr þau skjöl
sem voru honum í óhag, en sent
hin heim til tilsjónarmannsins.
Flestir eru þó sammáia um, að
Quisling hefði engu að síður hlotið
dauðadóm, hvernig sem þau mál
hefðu skipast.
Eitt dagblaðanna hér upplýsir í
dag, að maðurinn sem fann skjöl-
in, sé 37 ára gamall leigubílstjóri
hér í borg, en búsettur rétt hand-
an sænsku landamæranna. Hann
er þekktur fyrir að safna hvers
kyns nasistaminjum frá stríðsár-
unum. Vinir hans telja líklegt, að
hann hafi komist yfir skjölin með
löglegum hætti og ætli nú að selja
þau eingöngu spenningsins vegna.
Gerd Heidemann, fyrrverandi
fréttamaður þýska blaðsins Stern,
sem kærður var fyrir að hafa fals-
að Hitlers-dagbækurnar svoköll-
uðu, segir i viðtali, að honum hafi
þegar árið 1982 verið boðin skjöl
og munir úr eigu Quislings — m.a.
armbandsúr, sem Hitler gaf Quisl-
ing. Aldrei varð af þeim kaupun-
Allsherjarverk-
fall í Argentínu
Yaæer Arafat
inort með neitun, þegar hann
var inntur eftir því, hvort hann
væri í raun búinn að missa tök-
in á útlagaþingi Palestínu.
Buenos Aires, 30. ágúflt. AP.
STÆRífrU verkalýðssamtök í Arg-
entínu hafa hvatt til allsherjarverk-
falls í landinu, en slitnað hcfur upp
úr viðræðum þeirra við stjórnvöld
um kjaramál.
Ákvörðunin þykir mikið áfall
fyrir stjórn Rauls Alfonsin, sem
hefur reynt mikið til að komast að
samkomulagi við verkalýðsfélögin
um stefnuna í launamálum. Það,
sem varð til þess að upp úr slitn-
aði, er samkomulag, sem tókst
fyrir viku, um að lágmarkslaun
skuli vera 16000 pesóar á mánuði,
um 6600 ísl. kr. Vinnumálaráð-
herra stjórnarinnar segir, að inni
í þessari upphæð séu bónus-
greiðslur og uppbætur ýmsar, en á
það vilja verkalýðsfélögin ekki
fallast.
Verðbólga í Argentínu er nú
615% á ársgrundvelli og hefur
stjórnin því fyrirskipað mánaðar-
legar kauphækkanir til launþega
til að bæta þeim kjararýrnunina.
Verkalýðsfélögin, sem eru flest í
höndum perónista, sem eru i
stjórnarandstöðu, fara hins vegar
fram á miklu meiri hækkanir og
segja, að laun í landinu hafi i raun
lækkað um helming á átta árum.