Morgunblaðið - 31.08.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1984
25
Hvammskirkja í Dölum.
Kirkjugestir sjást hér ganga fri kirkju að lokinni hitíöarguösþjónustu.
Kirkjuhátíð í Hvammi
Hvoli, Dolasýslu, 28. ágúut.
Síðastliöinn sunnudag, 26. ágúst,
var haldin kirkjuhitíö í Hvammi í
Dölum og var hún fjölsótt. Minnst
var hundrað ira vígsluafmælis
kirkjunnar en hún var vígö i annan
piskadag 14. aprfl 1884. Kirkjuhi-
tíðin hófst meö hitíöarguðsþjón-
ustu í Hvammskirkju kl. tvö eftir
hidegi þar sem biskupinn yfir ís-
landi, herra Pétur Sigurgeirsson,
predikaöi, en sóknarpresturinn,
séra Ingiberg J. Hannesson próf-
astur i Hvoli, flutti ávarp og sagði
fri framkvæmdum við kirkjuna á
undanfornum irum. Hann þjónaði
fyrir altari isamt séra Guðmundi
Agústssyni í Ólafsvík, séra Gísla H.
Kolbeins í Stykkishólmi og séra
Friðriki J. Hjartar í Búðardal.
Organisti var Halldór Þórðarson i
Breiðabólsstað og Ásgeir Stein-
grímsson trompetleikari lék við
messugjörðina. Kirkjukór sóknar-
innar söng isamt kórfélögum úr
öðrum sóknum Hvammspresta-
kalls. Skírð voru tvö börn í mess-
unni, Auður og Víðir.
Að messu lokinni var boðið til
kaffisamsætis á vegum sóknar-
innar í Laugaskóla og stjórnaði
sóknarprestur hófinu. Þar flutti
Einar Kristjánsson, fyrrverandi
skólastjóri á Laugum, fróðlegt og
yfirgripsmikið erindi um sögu
kirkju og staðar í Hvammi og
kirkjukórinn söng. Auk þess var
almennur söngur og biskup flutti
ræðu. í Hvammi hefur kristin
trú verið iðkuð allt frá land-
námsöld því landnámskonan
Auður djúpúðga „var skírð og vel
trúuð" og í Hvammi hefur kirkja
lengi staðið. Þrjár aðrar kirkjur
voru í Hvammssveit, sú elsta,
Sælingsdalstungukirkja, var af-
lögð 1853, Asgarðskirkja var af-
lögð 1852 og auk þess stóð kirkja
í Knarrarhöfn fram á 16. öld. Þá
voru bænhús í Sælingsdal og á
Skarfsstöðum.
Verulegar endurbætur hafa á
undanförnum árum farið fram á
Hvammskirkju en hafist var
handa svo um munaði árið 1977
er Þorvaldur Brynjólfsson,
kirkjusmiður frá Hrafnabjörgum
á Hvalfjarðarströnd, tók að sér
að sjá um endurbætur á henni.
Kirkjunni var lyft af grunni og
nýr steyptur undir, hún var öll
einangruð, nýir gluggar og hurð-
ir settar og gerð voru skrúðhús.
Þá var kirkjan máluð og skreytt,
en það verk unnu Sigurður
Karlsson og Þrúður Krist-
jánsdóttir í Búðardal. Þá lét
kvenfélag sveitarinnar gera fal-
lega girðingu umhverfis kirkjuna
og hlaðinn var steinveggur undir
vesturhlið hennar, undir hand-
leiðslu Jóhannesar Arasonar,
sem jafnframt sá nú um að
leggja hellustétt frá kirkju að
sáluhliði. Þá hefur kirkjan öll
verið teppalögð og máluð að utan
ásamt minni háttar lagfæring-
um. Ný bílastæði hafa verið gerð
við hana og ýmislegt verið unnið
til fegrunar umhverfis og bættr-
ar aðstöðu, utan sem innan.
Þannig er hin 100 ára gamla
kirkja nú hið hlýlegasta og veg-
legasta guðshús, sem vafalaust
mun gegna sínu hlutverki enn
um sinn.
í tilefni afmælisins bárust
kirkjunni margar veglegar gjaf-
ir: Skírnarfontur, hinn fegursti
gripur sem hannaður er og unn-
inn í tré af Björgvini Svavars-
syni frá Hrútsstöðum. Gefendur
eru systkinin frá Glerárskógum,
Magnús, Guðbjörg og Sigurborg
og makar þeirra, og er gjöfin til
minningar um foreldra þeirra.
Helgu Ásgeirsdóttur og Sigur-
björn Magnússon. Ljóskross á
turn kirkjunnar gaf Jóna Sigríð-
ur Sigmundsdóttir frá Skarfs-
stöðum og var gjöfin til minn-
ingar um foreldra hennar, Sigur-
björgu Jónsdóttur og Sigmund
Grímsson, og eiginmann hennar,
Andrés Magnússon, svo og dætur
hennar tvær, Ernu Kristínu og
Guðrúnu Sigurbjörgu. Þá barst
kirkjunni gylltur kross á altari,
fagur gripur og eru gefendur
systkinin frá Knarrarhöfn og er
gjöfin til minningar um foreldra
þeirra, Ingunni Ólafsdóttur og
Hjört Egilsson í Knarrarhöfn.
Þá bárust peningagjafir, kr.
10.000 frá Unni Guðjónsdóttur,
ekkju séra Péturs T. Oddssonar,
og börnum þeirra og skal gjöf-
inni varið til styrktar kirkju-
kórnum og söngstarfi í sókninni.
Ennfremur bárust kr. 20.000 frá
systrunum Lóu Fanneyju Jó-
hannesdóttur og Steinunni Jó-
hannesdóttur til minningar um
foreldra þeirra, Jóhannes Guð-
mundsson og Helgu Sigmunds-
dóttur frá Teigi í Hvammssveit.
Þannig birtist hlýhugur til kirkj-
unnar úr öllum áttum. 1 tilefni
afmælisins hefur verið gefinn út
veggplatti með mynd af kirkj-
unni, teiknaður af Halldóri
Ólafssyni, í 500 tölusettum ein-
tökum og er hann fáanlegur hjá
sóknarnefnd og sóknarpresti. (
sóknarnefnd sitja nú ólafur
Jensson Laugum, Erla Ólafsdótt-
ir Ásgarði og Jóhanna Jóhanns-
dóttir Magnússkógum. Safnaðar-
fulltrúi er Elín Melsted Hólum.
Segja má að þessi afmælis- og
minningardagur hafi í heild ver-
ið mjög ánægjulegur, þó veðrið
hefði mátt vera betra því talsvert
rigndi eftir nokkra ágæta
þurrkdaga, sem komu sér ákaf-
lega vel fyrir bændur hér um
slóðir og gátu margir lokið
heyskap, þó enn eigi sumir nokk-
uð eftir að heyja.
Ingiberg
VIKA FYRIRKR. 15.213.-EÐA HELCIFYRIR KR. 10.329,-
Kaupmannahöfn er ekki bara Kastrup flugvöllur. Handan við græna hliðið hvílir hin forna
höfuðborg Islands - töfrandi og vinaleg.
I miðbænum, spottakorn frá einhverju úrvalshótelanna sem þú getur gist á, er marqfrægt Strikið
með öllum sínum fjölda verslana, veitingahúsa og ölkráa. I raun gætirðu eytt fríinu á Strikinu
án þess að þurfa að fara lengra - en það er bara svo margt annað að sjá og „opleve".
Pú getur t.d. farið í Tívolí, dýragarðinn eða sirkus, skoðað vaxmyndirnar hennar Tussaud
í návígi, fylgst með glerblæstri og postulínsgerð, farið í kynnisfero um eitthvert brugghúsanna
og... o.fl. o.fl.
Dæmi um verð: Vika Helgi
Hotel Cosmopole 10.466.- 15.213.-
Hotel Sheraton 10.466.- 16.311.
Hotel Imperial 11.244.- 17.028.-
Innifalið: Flug, morgunverður og gisting fyrir einstakling í 2ja manna herbergi með baði, síma,
útvarpi og/eða litsjónvarpi.
Brottför á fimmtudögum og föstudögum.
Af skiljanlegum ástæðum þorum við ekki að lofa neinu um litlu hafmeyjuna.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVOL
Vertu samferða!