Morgunblaðið - 09.12.1984, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
SVIPMYND á sunnudegi/ Bob Hawke, forsætisráöherra Ástralíu
Það fer ekki á milli mála, að
úr.slit kosninganna í Ástr-
alíu nú alveg nýlega urðu mörg-
um undrunarefni. Búist hafði
verið við stórsigri núverandi for-
sætisráðherra, Bob Hawke, og
Verkamannaflokks hans. Að
vísu heldur Hawke meirihluta
sínum, en stjórnarandstaðan,
samsteypuflokkur Frjálslyndra
og hjóðlegaflokksins undir for-
ystu Andrew 1‘eaecock söxuðu
ótrúlega mikið á það fylgi sem
Verkamannaflokkurinn fékk í
síðustu kosningum.
Ástæðan fyrir því að Hawke
var spáð velgengni var ekki síst,
að kosningarnar þóttu vel tíma-
settar. Lækkun tekjuskattstiga í
fjárlögum næsta árs mæltist vel
fyrir svo og ýmiskonar félagsleg-
ar ráðstafanir sem hafa verið
boðaðar og taka senn gildi. Búist
var við að Hawke yrði þetta til
framdráttar svo og ekki síður
hversu mjög hann hefur dregið
Ástralíu nær umheiminum síðan
hann varð forsætisráðherra í
mars 1983. Malcolm Fraser
fyrirrennari hans þótti litlaus og
ná litlum árangri hvað varðaði
innanríkismál og utanríkismál.
Á hinn bóginn hefur Hawke ver-
ið athafnasamur og honum hef-
ur tekist að efla þjóðernisvitund
Ástralíumanna og vekja með
þeim meiri tilfinningu að þeir
eigi að líta á sig sem heild, en
ckki þjóðarbrot alls staðar að úr
heiminum, sem seint gangi að
skjóta rótum í Ástralíu.
Hann hefur sjálfur sagt í við-
tali fyrir skömmu, að sá efna-
hagsbati og sú uppsveifla sem
hefur orðið í atvinnulífi Ástralíu
sé merki um að stefna hans hafi
lánast. Þaö er að vísu öldungis
rétt að efnahagsmál hafa þar
sem annars staðar færst til betri
vegar, en á hitt ber að líta að
ekki hefur tekist að vinna bug á
atvinnuleysinu sem hefur aukist
frekar en hitt.
En persónulegar vinsældir
Hawke draga fáir í efa og þrátt
fyrir þessi úrslit nú mun Hawke
án efa halda til streitu stefnu
sinni og lætur það ekki slá sig út
af laginu, þótt öll þau atkvæði
sem hann vonaðist eftir skiluðu
sér ekki.
Bob Hawke hefur átt tiltölu-
lega skjótum frama að fagna í
pólitíkinni. Hann var fyrst kjör-
Samantekt:
Jóhanna
Kristjónsdóttir
Hann
þykir
hafa
eflt
metnað og þjóðernisvitund
landa
hefja afskipti af stjórnmálum.
Hawke segir að hann sé bæði
vel heima í því sem lýtur að
verklýðsmálum og störf hans í
þágu þeirra samtaka hafi reynst
sér ómetanleg. Hann kveðst
einnig vel kunnugur öllum
helstu atvinnurekendum og allt
þetta létti sér róðurinn, þar sem
hann finni, að honum sé treyst á
báðum þessum vígstöðvum.
Þegar Hawke tók við sagðist
hann líta á sig sem sáttasemjara
og hann myndi beita sér af öllum
kröftum fyrir því að ástralska
þjóðin bæti öll sem ein litið á
hann sem forsvarsmann sinn.
Ekki verður annað sagt en hon-
um hafi tekist bara vel sú ætlan-
in. Hann var stórorður þá, djarf-
ur og hiklaus. Ýmsir spáðu því
að honum yrði hált á sigursvell-
inu og myndi gera skyssur, þar
sem hann væri óskólaður í póli-
tískum sjó og hann væri of
opinskár og of mikil tilfinninga-
vera og þetta gæti orðið honum
fjötur, breytt aðdáun i aðhlátur
og vantrú. En þeir hafa ekki
reynst sannspáir í þessu heldur
pólitískir andstæðingar hans.
Bob Hawke er óumdeilanlega
litríkur persónuleiki. Hann er
maður glettinn og hlýr og í kosn-
ingunum 1983 og aftur nú vakti
framganga hans athygli fyrir
fjör og meiri hressleika en menn
áttu að venjast. Hann hefur
blandað geði við öðruvísi fólk en
Bob Hawke, forsætisráðherra Ástralíu.
smna
inn á þing árið 1980 og varð
formaður flokksins 3. febrúar
1983, sama dag og Fraser boðaði
til kosninganna, sem Hawke
sigraði síðan í.
Bob Hawke er prestssonur.
Hann lagði stund á háskólanám
í Ástralíu, las lögfræði og hélt
síðan til Englands og lauk prófi
frá Oxford. Hann þótti góður
námsmaður og gat sér einnig orð
fyrir afskipti af íþróttum. í
Englandi vakti hann á sér at-
bygli fyrir annað afrek, sem
dugöi honum til að komast í
Heimsmetabók Guinness, er
hann svolgraði í sig 1,2 lítra af
bjór á tólf sekúndum og mun það
met enn ekki hafa verið slegið.
Hawke hefur verið mjög opin-
skár hvað varðar víndrykkju
sína og segist hafa átt við vanda-
mál að stríða. Eftir að hann var
kosinn á þing hét hann því að
halda sig frá flöskunni og það
hefur honum tekist. Aftur á
móti reykir hann vindla af mik-
illi nautn.
Þegar Hawke sneri heim frá
Englandi hóf hann störf fyrir
áströlsku verkalýðshreyfinguna
og þótti slyngur lögfræðingur og
komst skjótt til metorða. Hann
var fljótlega kosinn forseti ástr-
ölsku verkalýðssamtakanna, sem
hafa 2,5 milljónir innan sinna
vébanda. Sú staða styrkti hann
náttúrlega þegar hann ákvað að
fyrirrennarar hans, hann hefur
hyllt íþróttahetjur og farið á
fundi hjá ýmsum samtökum og
félögum, sem hafa aldrei látið
sig dreyma um að forsætisráð-
herra landsins hefði tíma til að
sinna þeim. Þó heldur hann
virðuleika sínum. Meira að segja
bitrustu andstæðingar hans
verða að viðurkenna að þrátt
fyrir frjálslegt fas haldi hann
jafnan virðuleikanum.
Bob Hawke er 54 ára gamall.
Kona hans heitir Hazel og þau
hjón eiga einn son og tvær dæt-
ur.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
.^^skriftar-
síminn er 830 33