Morgunblaðið - 09.12.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
B 15
Hvað hefði gerst ef ... ?
komið út
KOMIÐ er út á vegum Tannla-kna-
télags íslands Tannlæknatal
1854—1984. í ritinu er að finna
sviskrár 248 tannlækna. I>ar á med-
al eru nokkrir íslendingar, sem
starfað hafa erlendis og sömuleiðis
nokkrir erlendir tannlæknar, sem
fengið hafa íslenskt tannlækninga-
leyfi.
í bókinni er grein eftir Rafn
Jónsson um „Stofnun og starfsemi
Tannlæknafélags íslands fyrstu
30 árin 1927—1957.“ 1 bókinni er
einnig kandidataskrá, nafnaskrá
og skrá yfir stjórnir félagsins frá
upphafi.
Formaður ritnefndar Tann-
læknatals er Gunnar Þormar.
Bókin er samtals 232 bls. að stærð
og var sett í Prentþjónustunni hf.,
prentuð í Prentbergi hf. og bundin
Nú kætast allir
enda skemmtilegur og indæll tími framundan.
Á góðri stundu njóta allir sín vel
í peysu frá Iðunni.
Öðunnj
Árni Þórarinsson
Regnboginn: Konungsránið — To
('atch a King ★ ★
Bresk. Árgerð 1983. Handrit: Rog-
er O. Hirson, eftir skáldsögu
Harry Patterson. Leikstjóri: Clive
Donner. Aðalhlutverk: Teri Garr,
Robert Wagner, Horst Janson,
John Standing, Barbara Parkins.
„Ef þetta ráðabrugg heppnast
gæti það breytt öllum gangi
styrjaldarinnar," segir ein per-
sóna í To Catch a Thief, leikin af
enska leikaranum Barry Foster
með voðalegum þýskum hreim.
Og ráðabruggið sem öll myndin
snýst um er: Að Þjóðverjar ræni
hertoganum af Windsor, þar
sem hann dvelur í Lissabon árið
1940 eftir að hafa afsalað sér
konungstign vegna ástar sinnar
á fráskilinni amerískri konu, og
fá hann til liðs við Þriðja ríkið:
hann sé hvort eð er spældur út í
bresku stjórnina vegna dóna-
skapar í garð hans og frúar
hans.
Mikill fjöidi skáldsagna og
kvikmynda byggir á svona leik
með staðreyndir mannkynssög-
unnar: Hvað hefði gerst ef...
Hvað hefði gerst ef Hitler hefði
fengið króníska kveisu á sjötta
degi annarrar heimsstyrjaldar-
innar? Hvað hefði gerst ef Nap-
óleon hefði elskað ömmu sína?
Hvað hefði gerst ef Adam hefði
komist að því að þau Eva voru
systkin? Þetta eru saklausir
samkvæmisleikir sem vel má
færa í dramatískt- eða skáld-
sagnaform. Hér er byggt á sögu
sama manns og skrifaði The
Eagle Has Landed um hvað hefði
gerst ef Þjóðverjar hefðu komist
Tannlæknatal
frá 1854—1984
nærri því að myrða Churchill; þá
bók skrifaði höfundur undir
nafninu Jack Higgins, en þessa
sem Harry Patterson. Og báðar
hafa nú verið kvikmyndaðar.
Þessi mynd er eftir tilefninu,
— saklaus afþreying í millivigt.
Dramatískt er þetta plott spennt
í eins konar ástarþríhyrning.
Teril Garr leikur bandaríska
blússöngkonu sem fær það verk-
efni í Berlín að aðvara hið enska
tignarmenni um mannránsáætl-
unina og ekkert alltof sannfær-
andi í hlutverinu. Horst Janson
leikur þýska nasistaforingjann
sem á að framkvæma mannránið
og fyrir einskæra tilviljun er
hrifinn af blús og söngkonunni
sem syngur hann; Janson leikur
nokkuð vel af ljóshærðum stein-
gervingi að vera. Robert Wagner
leikur svo bandarískan veitinga-
húseiganda i Lissabon, sem i
stríðsreddingum fyrir landa sína
og í hvítum smókingjakka minn-
ir mjög á Humphrey Bogart sem
Rick í Casablanca; Wagner verð-
ur auðvitað líka hrifinn af blús-
söngkonunni og leikur það bara
vel.
Fagvinna To Catch a King er
miðlungi góð og rétt dugir til að
binda saman söguþráð sem oft
vill slitna í sundur vegna ólík-
inda í atburðarás og viðbrögðum
persóna. En samt, sæmilega
spennandi afþreying.
Teri Uarr heillar n&zista með blússöng í Berlín.
Kvikmyndir
í Bókfelli hf.
Á kápuumslagi er mynd af
Brynjúlfi Björnssyni, sem var að-
alhvatamaður að stofnun Tann-
læknafélags Islands 1927.
SKERJABRAUT 1,
SELTJARNARNESI