Morgunblaðið - 09.12.1984, Side 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
SLEN& ÞUNGLYNDI
Stafar skamm-
degisdrunginn
af Tjósleysinu?
Að baða sig í björtu ljósi til að
hrekja burt þunglyndið,
svipta burt skammdegisdrungan-
um og breyta næturhröfnunum í
árvökula morgunhana er nú að
verða nýjasta tískufyrirbærið í
Bandaríkjunum.
Nú fyrir skömmu var haldin
fyrsta meiriháttar ráðstefnan um
líffræðileg og læknisfræðileg
áhrif Ijóssins og kom þar fram, að
sólarljósið og tilbúið ljós hafa
miklu meiri áhrif á líkamlega og
andlega heilsu manna en vitað
var.
Langmest eru áhrifin hjá fólki,
sem þjáist af „vetrarkvíða". Talið
er, að á þessum tíma árs bregðist
sumt fólk við minni dagsbirtu á
þann hátt, að það verði geðstirt,
ófélagslynt, áhyggjufullt og syfj-
að. Matarlystin, sérstaklega löng-
unin í kolvetni, eykst til muna og
engu er líkara en fólkið sé að búa
sig undir að leggjast í vetrardvala,
sem forfeður okkar kunna að hafa
gert einhvern tíma í fyrndinni.
Þegar vorar lifnar yfir þessu fólki
og það verður aftur eins og það á
að sér.
Á ráðstefnunni sagði dr. Norm-
al Rosentahl og samstarfsmenn
hans við bandarísku heilsufræði-
stofnunina frá því, að 30 af 34
sjúklingum hefðu breyst í „vor-
glatt" fólk þegar þeir voru látnir
vera í björtu ljósi í nokkrar
klukkustundir kvölds og morgna.
Á tveimur eða þremur dögum
hvarf vetrarkvíðinn eins og dögg
fyrir sólu, fyrr og betur en með
nokkrum lyfjum, en kom hins veg-
ar strax aftur þegar hætt var að
nota ljósin.
Ekki er alveg ljóst hvers vegna
ljósið hefur þessi áhrif en geð-
brigði eru nátengd breytingum á
hormóni, sem heitir melatonin, og
verður til í kirtli í heilanum. Aug-
að nemur ljósið og boðin berast
eftir sjóntauginni til kirtilsins.
Vísindamenn hafa þess vegna lát-
ið sér detta í huga, að lítið sólskin
á veturna í löndum eins og Svíþjóð
t.d. geti við ástæða fyrir tíðum
sjálfsmorðum.
Ætla mætti af þessu, að vel
upplýstur vinnustaður og heimili
gæti hjálpað fólki, sem er eitthvað
niðurdregið þótt það sé ekki bein-
línis alvarlega þunglynt. Vísinda-
mennirnir svara þessu ekki beint
en benda á þá alkunnu staðreynd,
að sumt fólk vill hest vinna á sól-
ríkum skrifstofum, búa í björtum
húsum og er vant því að fara í
sólarfrí á hverjum vetri.
Þeir spá því líka, að á næstu
fimm árum muni rannsóknum á
þessum málum fleygja mjög fram
og þá koma á á daginn hvaða
þættir það eru, sem hafa mest
áhrif á skapferli manna og hegð-
un. Er þá m.a. átt við ljósmagnið,
lit Ijóssins, tíma dags og þess
háttar.
Ekki eru allir sammála þessum
kenningum um ljósið og þarf ekki
að koma á óvart. Sumir láta sér
nægja að yppa öxlum en aðrir
gera grín að þeim og kalla þær
bara „eina dilluna enn“. Sumir
breskir sálfræðingar segja t.d., að
raunverulegur vetrarkvíði sé ákaf-
lega sjaldgæfur og að í þeim sjúkl-
ingum, sem þeir hafi haft til með-
ferðar vegna þunglyndis, hafi mel-
atonin-magnið verið með eðli-
legum hætti.
— CHRISTINE DOYLE
OKI)lTI4
Sumar
„hetjurnar“
eru bara
hrappar
I^Sovétríkjunum er blómlegur
svartamarkaður með medalí-
ur og önnur opinber virðingar-
tákn og segja blöðin, sem að
sjálfsögðu berjast gegn þessum
ósóma, margar sögur af
mönnum, sem skreyta sig með
orðunni „Hetja Sovétríkjanna"
og njóta allra fríðindanna, sem
henni fylgja.
Þessi glæpastarfsemi komst í
hámæli eftir að undiraðmíráll á
eftirlaunum var myrtur í
Moskvu af ungu pari, sem
komst inn til hans með því að
þykjast vera sagnfræðingar
með styrjöldina sem sérgrein.
Einkennisbúningana ásamt öll-
um orðunum seldu þau síðan
með góðum hagnaði.
Gennady Kalinin, ungi mað-
urinn umræddi, sem myrti
Georgy Kholostyakov, aðmírál,
og aldraða konu hans með
klaufhamri, var dæmdur til
dauða fyrir morðið og þegar
lögreglan handtók manninn,
sem keypti af Gennady, reynd-
ist hann vera búinn að viða að
sér medalíum, sem metnar voru
á fjórar milljónir ísl. kr.
Áð vera sæmdur orðunni
„Hetja Sovétríkjanna", er iík-
ast því að vera sleginn til ridd-
ara og það fylgir því fleira en
að fá borð í yfirfullum veit-
ingastað. Góðmálmur á borð
við „Hetju sósíalskrar vinnu"
tryggir mönnum sæti í Bols-
hoi-leikhúsinu og þeir, sem
hann eiga, þurfa ekki að standa
í biðröðum í venjulegum versl-
unum, þeir fá aðgang að versl-
unum fyrir hina útvöldu.
Þeir, sem bera orðurnar,
njóta mikillar virðingar og
sumar orðurnar eru raunar
gersemi í sjálfu sér. Sigurorðan
er t.d. gerð úr demöntum og
hvítum safírum og Lenínorðan
úr platínu og gulli. Svo eru aðr-
ar orður, „Hetjumóðirin" og
„Hetja vinnunnar" fyrir nú
utan allar medalíurnar í hern-
um.
Þeir, sem vilja njóta fríðind-
anna sem fylgja orðunum, eiga
alltaf að vera tilbúnir til að
sýna viðeigandi skjöl, en raunin
er sú, að orðan ein opnar
mönnum allar leiðir og engra
spurninga er spurt. í blaðinu
Literaturnaya Gazeta hefur
verið sagt frá mörgum mönnum
víða í Sovétrikjunum, Yalta,
Ama-Ata, Kiev og Moskvu, sem
voru staðnir að því að flagga
með orður, sem þeir höfðu aldr-
ei verið sæmdir.
Leonid heitinn Brezhnev var
mjög hrifinn af orðum og raun-
ar var áhugi hans á prjálinu
orðinn að almennu aðhláturs-
efni undir það síðasta. Áður en
hann var allur gat hann státað
af átta Lenínorðum, þremur
sem Hetja Sovétríkjanna, Frið-
arorðu úr gulli. tveimur orðum
Rauða fánans, Sigurorðu, orðu
þjóðfrelsisstríðsins og orðu
Rauðu stjörnunnar. Auk þess
hafði hann verið gerður að
Hetju Tékkóslóvakíu, Hetju
Einn oróuprúAur í Moskvu: forrétt-
indin fylgja glingrinu.
Mongólíu, Hetju Austur-þýska
alþýðulýðvteldisins og sæmdur
gullmedalíu menningarsamtak-
anna í Perú. Þegar Brezhnev
var borinn til grafar dugðu ekki
minna en 40 flauelspúðar undir
allar orðurnar.
Frá miðborginni: Engir englar I borg englanna.
Þúsund morð
á fjórum árum
Lögreglan í Los Angeles
hefur nú skorið upp herör
gegn óaldarflokkum unglinga,
sem fara um borgina ráns-
hendi og myrða saklaust fólk.
Nú er svo komið að í engri
borg í Bandaríkjunum eru
jafnmörg morð framin og í
þessari borg, sem þó er kennd
við engla.
Lögreglan segir að í þessari
„englaborg“ séu fleiri en 400
óaldarflokkar. Þarna eru á
ferðinni negrar, Asíubúar og
fólk af enskum og spænskum
uppruna og hafa flokkarnir
skipt með sér nær helmingi
alls borgarlandsins, sem þó er
500 fermílur að stærð.
Félagar í óaldarflokkunum
eru um fjörutíu þúsund. Þetta
eru einkum atvinnulausir
unglingar og þeir eru fjórð-
ungi fleiri en fyrir fimm árum,
en ein helsta ástæðan er sú, að
stöðugt streyma til borgarinn-
ar flóttamenn frá löndum
Asíu og Mið-Ameríku.
„Þessir unglingar eru
hryðjuverkamenn og hafa að
minnsta kosti þúsund morð á
samviskunni, sem framin hafa
verið á undanförnum fjórum
árum,“ segir Daryl Gates, lög-
reglustjóri í Los Angeles.
„Þeir hafa sagt okkur stríð á
hendur og við verðum að
hrekja þá af götunum."
í sumar var fremur hljótt
um þessa óaldarflokka enda
hafði lögreglan lagt mikið
kapp á að vernda gesti á
Ólympíuleikunum fyrir þeim.
En nú eru þeir farnir að láta
til sín taka á nýjan leik og á
örfáum dögum í síðasta mán-
uði urðu þeir tíu manns að
bana. Einn af þeim var 14 ára
unglingur sem skotinn var til
bana á leið úr skóla, og einnig
45 ára gömul kona og þriggja
barna móðir, sem varð vör við
hávaða úti í garðinum sínum
og fór út til að kanna hvað
væri á seyði. Þá hófu félagar
úr einum flokki skothrið á
keppinauta sína þar sem þeir
voru að skemmta sér úti á
götu og urðu fjórum þeirra að
bana.
Flestir eru drepnir í blökku-
mannahverfunum Compton og
Watts eða Spánverjahverfinu í
borginni austanverðri. En inn-
an við 40% þeirra sem falla
eru félagar í óaldarflokknum.
Flestir eru saklausir vegfar-
endur, sem verða fyrir skotum
þegar óvinalið eigast við.
Þessi glæpagengi fylkja liði
á götuhornum með skjaldar-
merki, göngustafi og hatta til
að skjóta vegfarendum skelk í
bringu. Margir tíðka það að
skjóta á ökumenn, sem þurfa
að stöðva bíla sína við rauð
ljós við Imperial-brautina,
sem liggur um hverfin Comp-
ton og Watts, og ræna þá síð-
an. Við slíkar aðstæður fremja
margir sín fyrstu morð að
sögn lögreglunnar.
Þjóðfélagsfræðingar við há-
skólann í Kaliforníu hafa ýms-
ar skýringar á þessum glæpa-
flokkum. Þeir kenna um at-
vinnuleysi og rýrum framlög-
um til menntamála og benda
jafnframt á þá óumdeilanlegu
staðreynd að hvergi annars
staðar í Bandaríkjunum setj-
ast eins margir útlendingar að
með ólöglegum hætti.
Lögreglan segir að tilraunir
þeirra til að stemma stigu við
starfsemi glæpaflokka hafi
m.a. strandað á ráðstöfunum
til að lækka skatta í Kali-
forníu. Þar eru 6.900 lög-
reglumenn undir vopnum til
að halda uppi lögum og reglu í
borg, sem telur þrjár milljónir
manna og er miðstöð sjö millj-
óna manna héraðs. Chicago er
álíka stór en hún hefur 14 þús-
und manna lögregluliði á að
skipa.
Aðrir telja skýringuna þá,
að alltof auðvelt sé að kaupa
skotvopn. Kenneth Hahn, einn
af embættismönnum Los Ang-
eles, er þeirrar skoðunar.
Hann segir: „f Bandaríkjunum
eru rúmlega 50 milljónir
skotvopna í höndum einstakl-
inga og fyrir þeim vopnum
falla árlega 32.000 manns.
Ástandið hér í borg stafar
meðal annars af því að unga
fólkið getur hæglega útvegað
sér byssur. Við þurfum að
koma á betra eftirliti með
skotvopnum."
— WILLIAM SCOBIE