Morgunblaðið - 09.12.1984, Page 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
The London Shakespeare Group sýnir Makbeð:
Takmarkið að sýna
leikritið á skýran
og einfaldan hátt
MAKBEÐ eitt kunnasta verk Will-
iams Shakespeare veröur sýnt í
l’jóöleikhúsinu og hjá Leikfélagi
Akureyrar dagana 12. til 15. des-
ember, en hingaö er kominn leik-
hópurínn The London Shake-
speare Group með sýninguna.
Makbeð er blóðidrifinn harm-
leikur, fjallar um valdarán,
harðstjórn og örlög heillrar
þjóðar. Leikurinn hefst á á því
að Makbeð og Bankó, skoskir að-
alsmenn, hafa unnið frækinn
sigur á uppreisnarmönnum og
eru á leið til konungs að flytja
honum gleðitiðindin. Þeir ganga
fram á þrjár nornir, sem gefa
þeim — einkum Makbeð — fyrir-
heit um mikla upphefð. Ef orð
nornanna rætast, þá mun Mak-
beð verða konungur, en Bankó
hinsvegar mun geta konunga en
ekki skrýðast kórónu sjálfur.
Konungurinn launar Makbeð
ríkulega fyrir dygga þjónustu og
er þá svo komið að ekkert virðist
einfaldara fyrir metnaðarfullan
aðalsmann, en að ryðja konungi
úr vegi og setjast sjálfur á
valdastól. En glæpur kallar á
annan glæp og morði fylgir morð
og að lokum er gervallt Skotland
löðrandi í blóði.
The London Shakespeare
Group er nú í heimsreisu og
kemur beint frá Japan, en ferðin
er farin á vegum British Council,
í tilefni 50 ára afmælis stofnun-
arinnar. Siðastliðin sjö ár hafa
leikhópar undir þessu nafni ferð-
ast víða um heim og sýnt verk
eftir Shakespeare en upphaflega
var nafnið notað árið 1%8 af
British Council þegar fjórir leik-
arar fóru til Japan til að kynna
verk Shakespeares með stuttum
leikatriðum. Árið 1975 var fjög-
urra manna hóp, þeim Gary
Raymond, Deiena Kidd, Suzan
Farmer og John Fraser, boðið að
fara með leikgerð af Rómeó og
Júlíu fyrir sjö leikara til Austur
Afríku og Asíu. þessi hópur hef-
ur verið kjarninn í leikflokkum
Ix>ndon Shakespeare Group síð-
an og tekið þátt í öllum ferðum
flokksins.
Takmark hópsins er að sýna
leikrit Shakespeare á eins skýr-
an og einfaldan hátt og mögulegt
er og að ná sem mestum sviðs-
áhrifum þó með takmörkuðum
farangri sem hópurinn hefur til
langferða, en farangurinn er yf-
irleitt aðeins þrjár kistur sem
oft hafa einnig verið notaðar
sem leikmynd.
Leikararnir í sýningunum hér
á landi eru Richard Heffer, sem
leikur Makbeð, Hilary Drake
sem leikur frú Makbeð, Gareth
Armstrong, Philip Bowen, John
Fraser, Mark Greenstreet og
Philip York. Leikmyndina gerði
John Fraser ásamt Dananum
Kristian Vang Rasmussen, sem
teiknaði einnig búningana. Lýs-
ingu og framkvæmdastjórn ann-
ast Howard Harrison.
Sýningarnar verða á Akureyri
12. og 13. desember en í Þjóð-
leikhúsinu 14. og 15. desember,
aðeins verða þessar fjórar sýn-
ingar.
Keðjumottur leysa vanda ökumanna. Allir ökumenn óttast að
sitja fastir í snjó, hálku, eða blautum jarðvegi.
Motturnar voru reyndar hjá Félagi danskra bifreiðaeigenda
(FDM) Niðurstaðan varð:
„Þær virka mjög vel og veita mikla spyrnu meira að segja á
svelli.“
Þetta er ný framleiðsla og við viljum, sem fyrst komast í
samband við sölumenn á Islandi. Kjörið tækifæri fyrir t.d.
bílasölur, bílaverkstæði og bílabúðir.
Hringið eða skrifið:
SKANDEXFYN
Sætting Strandvej 28, 5700 Svendborg
Sími: 09/213359
Skagfirzka söng-
sveitin með tónleika
SKAGFIRSKA söngsveitin í Reykja-
vík veröur með jólatónleika í Há-
teigskirkju fimmtudaginn 13. des-
ember kl. 21.00. Flutt veröur Missa
brevis (Litla orgelmessan) eftir Jos-
eph Haydn.
Einsöngvari er Halla Jónasdótt-
ir. Undirleikari Orthulf Prunner.
Þá verða einnig flutt sálmar og
jólalög, gömul og ný. Þar á meðal
tvö lög eftir söngstjórann Björg-
vin Þór Valdimarsson. Skagfirska
söngsveitin verður einnig með
jólatónleika í Hveragerðiskirkju
sunnudaginn 16. desember kl.
17.00 og Kópavogskirkju sama dag
kl. 21.00.
JÓLA-
TILBOÐ
SXiMnr
SKÍÐASKÓM
SKÁTABÚDIN
Snorrabraut 60 simi 12045