Morgunblaðið - 14.12.1984, Side 9

Morgunblaðið - 14.12.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 9 Ragnheiðarstaðir Hestar verða í rétt sunnudaginn 16. desember kl. 11 — 13. Flutningabílar á staðnum. Sætaferö frá félagsheimili Fáks v/Bústaðaveg kl. 9.30. Vetrarfóður á Ragnheiðarstöðum Tekið verður á móti hestum í vetrarfóður, sunnu- daginn 16. desember kl. 11 —13. Eigendur hesta á Ragnheiöarstööum eru minntir á aö þeir veröa að mæta til að afhenda hesta sína og merkja. Kjólar — buxnasatt brúðarfciólar — tlör og hattar Múasur & peysur Piar Cardin. ☆ Náttkjólar - njáttkjólaaett sktppar 1 velúrsamfestingar Lady-Marlene undirfatnaður Sundbolir — Frotte-inniskór Dagtöskur - kvöldtöskur Oscar de la Renta slssóur Perlufestar og eyrnalokkar Guerlaine-ilmvötn ☆ Jóladúkar — jólaborömottur Jólahandklæói — jólasvuntur Skartgripakassar og silkiherðatré Rúmteppi — Rúmteppi Falleg ódýr rúmteppi í úrvali. Baö- mottusett — sængurverasett — handklæöi — dúkar og m.fl. Nytsöm gjafavara á góöu veröi. fSuK*tiinuHúmið Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1, Sími 22235. Starfsmenn fjármálaráðuneytisins hlusta á fjárlagaumreðu. Minni skattheimta sem nemur milljaröi króna Síöustu fjárlög Ragnars Arnalds, fjármálaráðherra Alþýðu- bandalagsins, fyrir árið 1983 spönnuðu 30,7% af þjóðar- framleiðslu. í ár, 1984, lækkaði þetta hlutfall í 29,4°/ >g veröur sviþað á næsta ári. í fjárhæöum talið er hér um ð ræöa rúmlega milljarð króna, sem ríkið tekur minna til sín en á árinu 1983, þrátt fyrir það að þjóðarframleiðsla hafi dregizt verulega saman milli ára. Afnám tekju- skatts — fyrsti áfangi Tekju.skattar einstakl- inga 1985 lækka um 600 m.kr. miðað við |»ð sem þeir hefðu orðið að óbreytt- um .skattalögum. • Skattareglum er breytt þann veg að þessi Uekkun nýtist betur láglaunafólki. • Nkattareglum er breytt til að draga úr mismunun í skattheimtu heimila eftir því hvern veg tekjuöflun skiptist milli hjóna. I>essi skattalækkun er fyrsta skrefið til þeirrar áttar að afnema tekjuskatt af venjulegum launatekj- um, en tekjuskattur er ranglátur skattur af tveim- ur ástæðum. f fyrsta lagi kemur skatturinn mjög misjafnlega niður vegna þess hve margir taka laun fram hjá skattkerfinu. í annan stað er hyggilegra að skattleggja eyöshi um neyzhiskatta en vinnu- framlag fólks um tekjur. Lækkun tekjuskatta nú er í samræmi við kosningaiof- orð og stjómarsáttmála. Dregið hefur verið úr ríkisútgjöldum á margvis- legan máta, enda óhjá- kvæmilegt að ríkisbúskap- urinn axlaði að sínum hhita samdrátt i þjóöartekjum, minnkun sameiginlegs skiptahlutar. Þrátt fyrir þennan samdrátt stefnir í 700—800 m.kr. halia hjá ríkissjóði 1985. Tvennt kemur einkum tik fyrr- nefnd lækkun tekjuskatts og endurgreiðsla á u.þ.b. 400 m.kr. uppsöfnuðum söluskatti til sjávarútvegs, sem stendur illa rekstrar- lega m.a. vegna aflasam- dráttar og verðfalls sjávar- afurða. Söluskattur verður hækkaður um 0,5%, sem gefur 200 m.kr. tekjuauka, og hert innheimta 50 m.kr. Þessi hækkun samsvarar ekki nema helft af endur- greiddum söluskatti til sjávarútvegs. Víst ber að virða að- haldsaðgerðir sem mjög viða hefur verið gripið til i ríkísbúskapnum. En betur má ef duga skal. Bruðl er ekki úr sögu. Feröakostn- aður og risna, svo dæmi sé lekið, er víða utan sam- dráttareinkenna, varlega orðað. Mildandi aögerdir Sú leið var knúin fram á kjaravettvangi, illu heilli, sem færði „kaupauka" tii hækkandi vöruverðs inn- anlands og lækkandi geng- is út á við. Ríkisstjórnin ákvað ýmsar mildandi að- gerðir í kjölfar gengislækk- unar. • Bætur almannatrygg- inga vóru hækkaðar nokk- uð, í sumum tilfellum hhit- fallslega umfram almennar peningalaunahækkanir. Þessar umframhækkanir nema 100 m.kr. 1985. • Framlög til niður- greiðslna í vöruverði hækka til samræmis við áætlaðar verðlagsbreyt- ingar. • Tekjuskattar lækka. sem fýrr segir. um 600 m.kr. á næsta ári. Skatta lækkuninm verður eklti sízt beint að lægri launum. • Tekjur síðustu 12 mán- aða áður en menn hætta störfum fyrir aldurs sakir verða skattfrjálsar. Öll eru þessi skref til bóta, en minna jafnframt &, aö til eru fleiri leiðir til kaupauka en þær. sem í gegn um tíðina hafa reynzt færiband fyrir verðbólgu. Það er nauðsynlegt að for- ysta VSÍ og ASÍ setjist nú þegar á rökstóla með stjórnvöldum landsins til að varða í tíma veg launa- og verðlagsþróunar í land- inu 1985. Við megum ekki, enn og aftur, hnjóta um sama dýrtíóarþröskuldinn og á sl. haustnóttum — og raunar allan áratug hinna glötuöu tækifæra. Kvartett stjórnarand- stöðunnar Kór stjórnarandstöðunn- ; ar efnir, að venju, til sam- söngs út í þjóðfélagið — í tilefni fjárlagageröar. Flest lögin sem sungin verða vóru samin á árabilinu 1978—1983. Þau beraýmis nöfn eins og „verðbólgan Ijúfa", „skuldir bak við yztu sjónarrönd", „skattar á skatta ofan", ,JSvavar fjórtándi" oafrv. Kkki má þó gera ráö fyrir að textinn verði stefnumarkandi eða feli í sér kortlagða leið út úr þjóðarvanda. Það er allt eins líklegt að stjórnarand- stöðukvartettinn, þ.e.a.s. hver og einn af fjórflokk- unum, syngi eigin texta á skjön við texta hinna. Allt er þetta holtaþokuvæl hluti af skammdeginu, sem taka verður sem slíku. Kíklsstjórninni gengur ekki allt í haginn þessa dagana. Hún getur þó þakkað forsjóninni fyrir að í samanburði við jafn lé- lega stjórnarandstöðu hef- ur hún tvímælalaust vinn- inginn; hvursu mikinn skal ekki sagt að sinni. Góói dátinn GÓÐIDÁTINN SVEJK eftir Jaroslov Hasek í þýðingu Karls isfelds er komin út i nyrri utgáfu. Það er með öllu óvist að nokkur önnur þjóð en við íslendingar eigi jafnsnjalla þýðingu á þessu heimsfræga verki. Það er óþarfi að tíunda þetta snjalla skáldverk. Fyndnin er svo leiftrandi að það er dauð- ur maður, sem ekki tárast við lestur þókarinnar ORÐ MILLI VINA eftir Gunnar Dal er nýjasta Ijóðabók skáldsins. Enginn, sem ann góðum skáld- skap lætur þessa bók framhjá sér fara. SPAMAÐURINN eftir Kahlil Gibran í þýðingu Gunnars Dal nýtur stöðugt aukinna vinsælda hér á landi. Þessi heimsfrægi Ijóða- flokkur er nýlega kominn út í sjöttu útgáfu. Þarablöð Þætfir frá Breidafirði ÞARABLÖÐ ÞÆTTIR FRÁ BREIÐAFIRÐI eftir Bergsvein Skúlason flytur ýmsar frásagmr frá Breiða- firði. M.a. er að finna frásögn af breiðfirskum konum, sem öðrum fremur stunduðu sjóinn, bæði sem hásetar og formenn, en auk þess eru margvíslegir þættir og sögur og langur þáttur sem nefnist: Slætt upp af minnis- blöðum Jóns Kristins Jóhannes- sonar, gamansöm og fjörlega skrifuð frásögn. VÍKURÚTGÁFAN GRETTISGÖTU 29 - SÍMAR: 27714 36384

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.