Morgunblaðið - 14.12.1984, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
Landið
ísland,
ÚT ER komið hjá Erni og Örlygi
rimmta bindi bókaflokksins Landið
þitt ísland eftir þá Þorstein Jóseps-
son og Steindór Steindórsson. í
þessu bindi eru sérkaflar um Vest-
mannaeyjar og Þingvelli. Guðjón
Ármann Eyjólfsson skólastjóri ritar
um Vestmannaeyjar en Björn Þor-
steinsson sagnfrseðingur um Þing-
velli. Bókin er 272 blaðsíður. Lit-
myndir, teikningar og málverk eru
300.
Vestmannaeyjakaflinn er 35
blaðsíður með 52 myndum og
teikningum og Þingvallakaflinn er
50 blaösíður með 53 myndum.
Með þessu bindi lýkur upptaln-
þitt
5. bindi
ingu staða og bæja í stafrófsröð,
en eftir er eitt bindi í þessum
bókaflokki. í þvi verða aðgreindar
nafnaskrár og mun staðanafna-
skráin ein telja allt að 30 þúsund
nöfn segir m.a. í frétt frá útgef-
anda.
Undirbúning handrits til prent-
unar önnuðust þeir Helgi Magn-
ússon og Ögmundur Helgason.
Hönnun bókarinnar sáu þeir um
Kristinn Sigurjónsson og örlygur
Hálfdanarson. Tæknilega umsjón
hafði Kristinn Sigurjónsson.
Kápumynd tók Snorri Snorrason.
Setning var unnin í Prentstofu G.
Benediktssonar. Litgreiningar
voru tmnar hjá Prentsmiðjunni
Odda hf. og Prentmyndastofunni
hf. Filmuvinna var framkvæmd í
Korpus hf. en prentun og band var
unnið hjá Odda hf.
Fjölfræðibók í bóka-
klúbbi Arnar og Örlygs
BÓKAKLÚBBUR Arnar og Örlygs
hefur gefið út bókina Hversvegna,
hvenær, hvernig, hvar?; mynd-
skreytta fjölfræðibók í þýðingu
Fríðu Björnsdóttur blaðamanns.
Bókinni er skipt f fjóra megin-
flokka: 1. það gerðist fyrir löngu, 2.
Plöntur og dýr, 3. Hvernig gerast
hlutirnir, 4. Fólk og staðir. Hver
kafli er myndskreyttur með teikn-
ingum í lit, sem Colin og Moria
Maclean hafa gert.
f frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Hverjir voru víkingarnir?
Hvað er mósaik? Hvaða risaeðla
var stærst? Hversu lengi getur
selurinn verið í kafi? Hvers vegna
er sebra með rendur. Er hægt að
skrifa með kolkrabbableki?
Hvernig vaxa döðlurnar? Hvernig
SAARISTO
Fegurð og notagildiein órofa heild
Hlutur sem er nytsamur og
fagur, verður aldrei úreltur.
Þegar þú leltar að fallegum
hlut hafðu þá notagildið f
huga. Hvorttveggja eraðal
Arabia.
Sjáðu t.d. SAARISTO. Hver
hlutur er skapaður tll að veita
daglega gleði og jafnframt
hátíðarstemmningu sem
varlr.
Fegurð og notagildl - ein
Órofa heild.
ARABIA
FINLAND
SÓLDSTA^f*
Ksupgarður
BUOhöldog
d og Leikföng
Supafell
Skagsver
K.F Isfirðinga
K F Húnvetmnga
K.F EyfirAinga
K F HéraAsbúa
K.F. 5
HU
K F /
Hóiaakjðr
K.F Ves
Kópavom
Hafnarfirði
Keflavfk
auðvelda hjólin okkur að lyfta
hlutum? Hversu stórar geta öldur
orðið? Hvað veldur þvi að vindur-
inn blæs? Hvers vegna eru 50
stjörnur og 13 rendur í bandaríska
flagginu? Hversu stórt er tunglið?
Til hvers er húðin?
Þetta eru aðeins nokkrar þeirra
spurninga sem spurt er og svarað i
þessari stóru og litriku bók.“
Bókin er filmusett og umbrotin í
prentstofu G. Benediktssonar en
prentuð á Italíu.
Bók um
brjóstagjöf
ÚT ER komin hjá Erni og örlygi
Bókin um brjóstagjöf eftir Márie
Messenger. Halldóra Filippuadóttir
þýddi og staðfærði en Rannveig Sig-
urbjörnadóttir hjúkrunarfræðingur
las yfir texta og veitti leiðbeiningar.
Á bókarkápu segir m.a.:
Brjóstamjólk er besta fæða sem
hægt er að gefa nýfæddu barni, en
þrátt fyrir það eru margar mæð-
ur, sem ekki gefa brjóst eða gefast
upp eftir mjög skamman tíma. Oft
má kenna um skorti á sjálfs-
trausti og stuðningi.
Bókin um brjóstagjöf leggur
fram rök, hagnýtar upplýsingar
og leiðbeiningar, sem nauðsynleg-
ar eru til að ýta undir sjálfstraust
móður og hjálpa þannig til að gera
brjóstagjöfina einfalda, ánægju-
lega og vel heppnaða. Bókin er
byggð á traustum nýjum upplýs-
ingum úr heimi læknisfræðinnar,
ásamt reynslu höfundar sjálfs,
sem móður og ráðgjafa um
brjóstagjöf.
Textanum fylgja ljósmyndir og
teikningar til leiðbeiningar.
Bókin um brjóstagjöf er sett,
prentuð og bundin í Prentsmiðj-
unni Eddu.
_/^uglýsinga-
síminn er 2 24 80