Morgunblaðið - 14.12.1984, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
Rússar fylgjast með bandarískum flugmóðurskipum:
150 flugvélar til
móts við herskipin
Tókvn ÍX Hmpmhpr AP ™
^ Tókýó, 13. desember. AP.
Á ANNAÐ hundrað sovézkar stríðs-
flugvélar komu til móts við banda-
rísku flugmóðurskipin Carl Vinson
og Midway er skipin voru á siglingu
í Japanshafi í byrjun mánaðarins, að
sögn talsmanna flotans.
Howe í
Afríkuferð
London, 13. desember. AP.
SIR GEOFFREY Howe, utanrik-
isráðherra Bretlands, mun fara í
heimsókn til þriggja Afríkulanda
upp úr áramótunum þ.e. til
Zambíu, Zimbabwe og Kenya.
Howe sagði frá þessu í neðri
málstofunni í morgun. Brezkur
utanríkisráðherra fór síðast í
heimsókn til þessara landa 1982,
en þau eru öll í brezka samveld-
Japanskar heimildir herma að
minnst 150 sovézkar stríðsflugvél-
ar af ollum gerðum, þ.á m. Ilyush-
in-38 eftirlitsflugvélar, Sukhoi-15
og MiG-23 orrustuþotur, TU-95
(„Birnir") og TU-16 („Greifingj-
ar“) sprengjuflugvélar, hafi flogið
yfir skipadeildina, sem hafði ný-
lokið æfingum í vesturhluta
Kyrrahafsins.
Talsmaður flotans vildi ekki
meir um hið ákafa flug Sovét-
manna segja en að rúmlega
hundrað flugvélar í það heila hafi
flogið til móts við og hringsólað
um flugmóðurskipin og fylgiskip
þeirra. Hófst flug Rússa jafnharð-
an og skipin sigldu inn á Japans-
haf. Um tíma voru skipin í innan
við 80 km fjarlægð frá bækistöð
sovézka flotans í Vladivostock í
Síberíu.
Japanskar heimildir herma að
tilgangur með siglingunni hafi
verið að minna Rússa á styrk
bandaríska flotans og kanna
viðbrögð og varnarmátt þeirra.
Japanskir fjölmiðlar segja varnir
Rússa í austri hafa verið stórefld-
ar frá því sovézkar orrustuþotur
skutu niður kóreska farþegaþotu
með 269 manns innanborðs yfir
eynni Shakalin í fyrra.
Langþráð bað
Símamynd/AP.
Billy Nair bregður sér f bað í fyrsta skipti í þrjá mánuði. Hann var í hópi
manna sem settust að I bresku ræðismannsskrifstofunni í Durban í Suður-
Afrfku. Nair og félagar voru þar í þrjá mánuði til að mótmæla aðskilnaðar-
stefnu stjórnvalda.
Aðskilnad-
arstefnu
mótmælt
New York. 13. desember. AP.
RÚMLEGA 90 manns stilltu sér upp
fyrir utan ræðismannsskrifstofu
Suður Afríku í New York í dag til að
mótmæla kynþáttastefnu stjórn-
valda í Suður Afríku. Kom til rysk-
inga og voru 19 handteknir, þar á
meðal skólastjóri fjölmiðlaskóla í
District of Colombia.
Alls hafa um 100 manns verið
handteknir í yfirleitt friðsamleg-
um mótmælum við ræðismanns-
skrifstofur Suður Afríku síðan 21.
nóvember. Þar af eru nokkrir
þingmenn og verkalýðsleiðtogar.
Vaxandi ólga er í Bandaríkjunum
vegna tengsla Bandaríkjanna við
minnihlutastjórn hvítra í Suður
Afríku. Æ fleiri taka þátt í kröfu-
göngum og er krafan sú að Banda-
ríkin setji efnahagshömlur á Suð-
ur-Afríku og láti af fjárfestingum
þar í landi.
Ungverskur prestur fær uppreisn æru:
Zoltan Doka sett;
ur í embætti á ný
UNGVERSKI presturinn Zoltan
Doka, sem sviptur var hempunni í
lok ágúst vegna gagnrýni sinnar á
leiðtoga lútherstrúarmanna í
Ungverjalandi, Zoltan Kaldy bisk-
up, núverandi forseti Lútherska
heimssambandsins, hefur á ný ver-
ið settur til að gegna embætti sínu
innan ungversku kirkjunnar.
Zoltan Doka vakti heimsat-
hygli þegar hann ritaði heims-
þingi Lútherska heimssam-
bandsins, sem haldið var i Búda-
pest í júli og ágúst á þessu ári,
opið bréf og gagnrýndi þar harð-
lega yfirboðara sinn, sem hann
sakaði um að ganga erinda
kommúnistastjórnarinnar í
landinu með svonefndri „þjón-
ustuguðfræði", sem bryti í bága
við frelsunarguðfræði lúthersku
kirkjunnar. Auk þess að vera
leiðtogi lútherstrúarmanna í
Ungverjalandi, sem eru tæplega
hálf milljón, situr Kaldy biskup
á þjóðþinginu fyrir Kommún-
istaflokkinn og er þar áhrifa-
maður.
Ásakanir Doka komu til um-
ræðu á þinginu og áttu þátt í
Var sviptur hemp-
unni fyrir að gagn-
rýna forseta
Lútherska heims-
sambandsins
andstöðu margra þingfulltrúa
við að Kaldy yrði kjörinn forseti
heimssambandsins. Hann lýsti
því hins vegar yfir að Doka, sem
þá var í kynnisferð í Vestur-
Þýskalandi, mundi ekki þurfa að
gjalda fyrir að hafa opinberað
skoðanir sínar er hann sneri
heim. Þegar gengið var til at-
kvæða um næsta forseta hlaut
Kaldy 173 þeirra, en Daninn
Bodil Sölling, sem var helsti
keppinautur hans, fékk 124 at-
kvæði. Afstaða þingfulltrúa frá
þriðja heiminum réð úrslitum
um kjör Kaldys, en einnig
studdu hann nokkrir fulltrúar
Vesturlanda, þ.á m. biskup ís-
lands, sem sat þingið.
Þegar Doka sneri heim í ág-
ústlok ritaði prófastur hans,
Laszlo Kevehazi, honum bréf og
tilkynnti, að hann væri sviptur
kjóli og kalli. Bar hann hið opna
bréf fyrir sig og ennfremur það,
að Doka hefði dvalist mánuði
lengur erlendis en honum var
heimilt. Doka taldi þennan
brottrekstur ólögmætan þar sem
sérstök aganefnd þyrfti að fjalla
um mál af þessu tagi áður en til
brottrekstrar kæmi. Hann hélt
því áfram starfi í sókn sinni í
Hevizgyörd, sem er skammt
fyrir austan Búdapest, og naut
til þess dyggilegs stuðnings
safnaðar síns.
Brottrekstur Doka vakti
feiknarlega reiði margra lúth-
erstrúarmanna á Vesturlöndum
og meðal þeirra, sem opinber-
lega gagnrýndu Zoltan Kaldy
voru höfuðbiskupar Noregs og
Danmerkur. Var á það bent að
Kaldy hefði ekki efnt fyrirheit
sín á þingi Lútherska heims-
sambandsins og það var talið
sérstaklega gagnrýnisvert, að
hann hefði látið prófast víkja
Doka frá, sýnilega til að þvo
Zoltan Kaldy biskup
hendur sínar af verknaðínum.
Létu ýmsir kirkjunnar menn i
það skína að dagar Kaldys i
embætti forseta Lútherska
heimssambandsins væru taldir,
ef hann veitti Doka ekki upp-
reisn æru.
Hið opna gagnrýnisbréf Doka
var aldrei kynnt opinberlega í
ungversku kirkjunni, en efni
þess barst starfsbræðrum hans
eftir öðrum leiðum. Þegar Zoltan
Kaldy gekkst fyrir atkvæða-
greiðslu um mál Doka meðal
leiðtoga lúthersku kirkjunnar í
Ungverjalandi fyrir skömmu
reyndist meirihlutinn skila
auðu, sem Kaldy hafði þó áður
lýst yfir að væri fjandsamleg af-
staða gagnvart kirkjustjórninni.
Er talið að þessi málalok og hin
eindregna gagnrýni kirkjuleið-
toga á Vesturlöndum á embætt-
issviptingu Doka hafi ráðið þvi
að hann hefur nú verið settur til
starfa á ný.
saltonÖ
Kaffivélarnar Jrá Salton eru sann-
kallaðir nytjahlutir. Þæreru byggð-
arafv-þýsku hugviti og nákvæmni.
Vörugæði og lágt verð!
Árs ábyrgð.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8 105 REYKJAVÍK S: 84670