Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
Skíða-
kynning
EINAR HALLDÓR
Einar Úlfsson og Halldór Matthíasson
leiðbeina viðskiptavinum okkar um
val á skíðabúnaði í versluninni á
morgun.
Laugardag
kl. 14—18
AA FI5CHER
TYROLIA
DACHSTEIN
adidas ^
TOPPmerkin
í ikíóavörum
öfúS d
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670
BBC:
Keyptu flær með
smáauglýsingu!
Lundúnir, 13. denember. AP.
MÁTTUR smáauglýsinga getur
verið mikill, ekki síst ef auglýst
er í dálkinum „einkamál". Það
sannreyndi breska sjónvarps- og
útvarpsstöðin BBC fyrir
skömmu. BBC auglýsti eftir
mannaflóm og áður en langt um
leið skorti ekki tilboðin og sér-
fræðingar BBC vinna nú að því
að gera flærnar klárar fyrir sjón-
varpsþátt um dýralækni dýra-
garðs.
Auglýsing BBC í einkamála-
smáauglýsingu í London Times
hljóðaði þannig: 25 punda verð-
laun fyrir mannaflær, „pulex
irritans" vegna sjónvarps-
þáttagerðar. Hringið til BBC.
Sjónvarpsþátturinn heitir
„One by one“ og framleiðand-
inn heitir Bill Sellars. Hann
sagði að í fyrstu hefðu margir
leikarar misskilið auglýsing-
una og talið að BBC vantaði
fólk til að ieika flær. „En það
voru alvöru mannaflær sem
okkur vantaði og svo fór að það
hringdi i okkur kona sem sagð-
ist hafa keypt notað gólfteppi,
en þegar heim var komið hefði
komið í ljós að það moraði allt
í „pulex irritans" á teppinu og
við mættum hirða eins og við
vildum. Síðan höfum við verið
að heimsækja konuna með
tómar sultukrukkur er maður
hennar er farinn í vinnuna. Við
höfum fundið 8 flær og vantar
aðeins fáar til viðbótar," sagði
Sellers.
Marcos flettir klæðum
Ferdinand E. Marcos Filippseyjaforseti flettir upp skyrtunni á
ríkisstjórnarfundi til að sýna að á bringunni sé engin merki um
uppskurð að finna. Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að
Marcos hafi orðið að ganga undir meiriháttar hjarta- eða nýrnaað-
gerð á síðustu dögum, en með þessu vildi hann sýna blaðamönnum,
sem viðstaddir voru upphaf fundarins, og þjóð sinni að hann hefði
ekki gengið undir uppskurð og væri við hestaheilsu. Marcos hafði
ekki sést opinberlega í 25 daga og var talið að hann ætti við
alvarleg veikindi að stríða. Hefur það mælst misjafnlega vel fyrir
að hann skyldi fletta sig klæðum fyrir framan sjónvarpsvélarnar
og fann Jaime L. Sin kardináli að uppátækinu í dag.
Fólksflótti frá
Bhopal stóreykst
Bbopal, 13. desember. AP.
Enn ríkir ringulreið í borginni
Bhopal á Indlandi og tugþúsundir
flýja daglega frá borginni af ótta
við nýjan gasleka í eiturefnaverk-
smiðjunni. Fólksflótti frá borginni
hófst í gær og flýðu þá um 10 þús-
und manns, en straumurinn var
margfalt meiri í dag en gær.
Hafði indverska fréttastofan
UNI það eftir ónafngreindum
háttsettum embættismönnum,
að allt að 150 þúsund manns
hefðu flúið frá Bhopal frá því
gasið lak út, en íbúar borgarinn-
ar telja 900 þúsund.
Flóttinn hófst þegar út spurð-
ist að gera ætti skaðlaus 15 tonn
af eiturefninu, sem lak í síðustu
viku og olli dauða a.m.k. 2.000
manna. Ekki tókst að sannfæra
menn um að aðgerðin væri
en ekki hafi verið ákveðið hvenær
mál verður höfðað gegn þeim.
Heimildir í Japan segja að margir
af þeim rúmlega eitt hundrað Ví-
etnömum sem hafi verið hand-
teknir, grunaðir um samsærið til
að koma kommúnistastjórninni
frá, séu flóttamenn. Hafi þeir flú-
hættulaus og straumurinn fór af
stað.
Örtröð var á bifreiða- og
járnbrautarstöðvum þegar þær
yfirfylltust af fólki, sem klifraði
jafnvel upp á lestarvagna til að
komast burtu. Allt að fimm
sinnum meiri farþegaflutningar
voru frá borginni með járn-
brautarlestum en í gær, að sögn
starfsmanna lestarstöðvarinnar.
Vegna hreinsunar í verk-
smiðju Union Carbide verða 125
þúsund manns úr næsta ná-
grenni verksmiðjunnar fluttir í
skóla og opinberar byggingar
annars staðar í borginni, þar
sem þeir eiga að vera öruggir ef
gas tæki að leka út að nýju.
Brottflutningur fólksins hefst á
föstudag. Tóku margir til fót-
ið frá Víetnam, en síðan komist
þangað aftur með leynd og reynt
að leggja á ráðin hvernig mætti
gera byltingu í landinu. Víetnam-
ar segja að vopn og alls konar
gögn verði lögð fram í réttinum og
þá muni koma i ljós að samsæris-
mennirnir hafi notið aðstoðar ör-
yggisþjónustu Kína og Thailands.
anna frá borginni þegar skýrt
var frá þessum fyrirhuguðu var-
úðarráðstöfunum og töldu sig
öruggari fjarri Bhopal.
Kasparov
sigraði
Staðan 5-1
Moslmi, 13. desembcr. AP.
GARRY Kasparov vann í dag fyrsta
sigur sinn í heimsmeistaramótinu í
skák, þegar heimsmeistarinn, An-
antoly Karpov, gaf 32. skákina,
sem farið hafði í bið á miðviku-
dagskvöld eftir 40 leiki.
Sögðu embættismenn sem sjá
um mótið, að Karpov hefði
hringt og tilkynnt þá ákvörðun
sína að gefa skákina.
Staðan í hinu 95 daga langa
heimsmeistaraeinvígi, hinu
lengsta til þessa, er nú 5—1
heimsmeistaranum { vil. Sex
vinninga þarf til sigurs.
Næsta skák, hin 33. í röðinni,
fer fram á mánudag. Átti hún að
fara fram á morgun, föstudag, en
vegna biðskákarinnar sem til
stóð að tefla frestuðu skipuleggj-
endur mótsins henni til mánu-
dags.
Garry Kasparov
21 ákærður fyr-
ir samræri í Ho
Chi Minh-borg
Baoitkok, 13. deaember. AP.
RÉTTARHÖLD hefjast í dag í Ho Chi Minh-borg I Víetnam yfir tuttugu og
einum manní, sem eru ákærðir fyrir að hafa gert samsæri í því skyni að
steypa stjórn kommúnista í landinu. Fréttastofa Víetnams kunngerði þetta í
morgun og sagði, að þetta væri mjög alvarlegt mál, og leyniþjónustur Kína og
Thailands væru flæktar í málið.
Sérfræðingar segja að um átta-
tíu manns til viðbótar séu í haldi,