Morgunblaðið - 14.12.1984, Page 35

Morgunblaðið - 14.12.1984, Page 35
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 35 Modigliani-málverk slegið á 31 milljón hjá Christies í London FYRIR skömmu var Modigliani—stúlka í olíu slegin á sem svarar rúmlega 31 milljón ísl. kr. á impressíónistauppbodi sem haldið var hjá ('hristies- uppboðsfyrirUekinu í London. Þetta er þó ekki hæsta verð sem fengist hefur fyrir verk eftir Mod- igliani, en þykir hátt vegna þess að myndin er ekki talin með bestu verkum hans. En að baki þess er saga. Unga stúlkan á myndinni, Jeanne Héb- uterne, var aðeins 19 ára gömul, þegar hún varð gjörsamlega heill- uð af Modigliani og bóhem-lífi hans. Þau eignuðust barn saman, og vænti hún annars barns þeirra er hún fyrirfór sér tveimur dögum eftir að hann lést 1920. Á sama uppboði seldist Klee- málverk, komið frá Skandinavíu, á verði sem samsvarar rúmlega 10 millj. ísl. kr. Á allra síðustu vikum hefur Christies-uppboðsfyrirtækið selt listaverk fyrir upphæð sem svarar til á fjórða tug milljóna ísl. kr. f New York, Genf og London. Víetnamar: Segja Kínverja vera í vígahug Pcking og Bangkok, 13. desember. AP. STJÓRNVÖLD f Hanoi, höfuðborg Víetnam, hafa sakað Kínverja um að vera með mikinn liðssöfnuð á landa- mærum ríkjanna, en þar hafa verið róstur sleitulítið síðustu mánuði. Hanoi-stjórnin segir að nú sé svo komið, að Kínverjar hafi safnað álíka liði og þeir gerðu árið 1979 er þeir réðust inn í Víetnam og börðust þar við heimamenn I um mánuð. Kínverjar neita öllu, segja Víetnama ofsóknarbrjálaða og kenna þeim um öll róstur. Víetnamar sögðu einnig fyrir stuttu, að þeir hefðu drepið 100 kínverska hermenn og sært 40 til viðbótar eftir að Kínverjarnir hefðu ráðist inn fyrir landamærin. Þetta segja Kínverjar einnig vera hugarburð og sniðið til þess eins að draga athygli frá hryðjuverk- um Víetnama sjálfra bæði á landamærum Kína og Víetnam svo og ekki síst í Kambódíu. f Kambódíu hafa Víetnamar hert aðgerðir gegn skæruliðum og flóttamönnum í nokkrum búðum nærri thailensku landamærunum. Hafa þeir hrakið fólk úr tvennum búðum síðustu vikurnar með fa.ll- byssu- og sprengjuvörpuskothríð. Talsvert mannfall er sagt hafa verið í röðum skæruliða og flótta- fólks, en engar tölur hafa þó verið staðfestar þar um. Thailenski her- inn hefur verið í viðbragðsstöðu, enda hafa Vietnamar hvað eftir annað elt skæruliða inn í Thailand og þá lent í útistöðum við heima- menn. Risaskaða- bætur fyrir kynbótanaut Bay City. 13. desember. AP. NAUTGRIPABÓNDI einn í Texas fékk í dag 8,5 milljón dollara skaðabœtur fyrir undaneldistudda sinn sem drepinn var I ógáti á rann- sóknastofu. Starfsmenn stofunnar úóuöu óvart skordýraeitri frá fyrir- Uekinu Diamond Shamrock á bola meö fyrrgreindum afleiðingum. Þetta eru mestu skaðabætur sem um getur fyrir eitt húsdýr I Banda- ríkjunum og líklega þótt víðar væri leitað. Hinn fjögurra ára gamli boli var í eigu Dan Wendt og var afar vinsæll til undaneldis. Dýrið var í sæðisgjöf á rannsóknastofunni er óhappið varð. Wendt fór í skaöabótamál, enda hafði hann roktekjur af nauti sínu. Vann hann málið átakalítið, en auga- brýr manna lyftust fyrst er upp- hæðirnar voru nefndar. Alls fékk Wendt 7 milljónir í tekjutap og 1,5 milljónir dollara fyrir dýrið sjálft. Ákvað dómstóllinn að framleiðandi eitursins skyldi greiða 65 prósent af skaðabóta- fénu, rannsóknastofan 35 pró- sent. bókin um ævi Péturs Karlssonar Kidson leyniþjónustumanns á íslandi. Æðstu ráðamenn þjóðarinnar sóttu samkvæmi hans — hver voru raunveruleg áhrif hans á þróun mála?. Þorgeir Þorgeirsson hefur skrifaðsögu Péturs er fyrst leitísland augum er hann sigldi inn Faxaflóa, einn í hópi þúsunda breskra hermanna sem hingað komu tii að hernema landið. Pétur starfaði í upplýsingadeild hers- ins og meðal verkefna hans var að elta uppi þýska njósnara norður á Melrakka- sléttu. Strax í upphafi fiskveiðideilunnar var Pétur sendur hingað til njósna. Njósnari hennar hátignar fékk strax skilning á sjónarmiðum dvergþjóðarinn- ar. Og í lok fyrra þorskastríðs — þegar hann hafði verið vitni að ögrandi fram- komu Gilchrists sendiherra sem lék þýska hergöngumarsa meðan reiðir Reykvíkingar grýttu sendiráðið — ,, fékk Pétur Karlsson Kidson nóg af refsskapnum og kuldanum í leyniþjón- ustunni, sagði upp starfinu og gerðist íslenskur ríkisborgari. Fyrrum njósnari varð nú messagutti hjá Eimskip áður en hann dúxaði úr Loftskeytaskólanum, sigldi með Fossunum á margar hafhir uns hann hvarf héðan til Spánar þar sem hann kenndi væntanlegum embættismönnum nýs lýðveldis ýmsar kúnstir sem hann hafði lært á leyniþjónustudögum sínum. Viðburðarík ævi óvenjulegs manns sem jafnan hefur frumleg og skemmtileg sjónarmið á takteinum; íslendingur sem horfir á okkur hin glöggum augum 1 gestsins. BRÆÐRABORGARSTÍG 16 SÍMI2 85 55

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.