Morgunblaðið - 14.12.1984, Side 51

Morgunblaðið - 14.12.1984, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 51 BÓK TALAR BEINT TIL ÞÍN S^rvaOíN:S<LCVNSSON tifmWAt úmmThi Ljóð Sveinbjarnar I. Baldvinssonar eru við fyrstu sýn siétt og tær. En þau eru líka djúp og undir niðri leynist geislavirkur kjarni sem kemur róti á hið lygna yfirborð, og þá ekki síður hugi lesendanna, jafnskjótt og hann er fundinn. Sveinbjörn er lágmæltur og beitir listrænni smekkvísi, en hann er líka skemmtilega kíminn og orð hans hitta í mark. SAGA Eins og marglitt hraun kom stríðsgróðinn vellandi inn að Elliðaám síðan leið ár eftir ár án þess bólaði á stríði loks var ráðist á Breiðholtið. 48 bls. Verð kr. 494,- SÍÐASTA BINDI DALALÍFS Nú er komið út þriðja og síðasta bindi Dalalífs, hins sérkennilega og skemmtilega sagnabálks skáldkonunnar frá Lundi - þess sem gerði hana að mest lesna höfundi íslendinga. 586 bls. Verð kr. 988,- Úr dagbókum Einars Magg Við fáum að glugga í dagbækur Einars Magnússonar, fyrrverandi rektors Menntaskól- ans í Reykjavík, allt frá því á fermingardaginn hans, í gegn um námstímann í Menntaskólanum og þar til hann snýr heim úr langri og ævintýra- legri reisu út í heiminn. Annað megin einkenni frásagnarinnar er einlægnin og sannsöglin, allt að því þórbergsk, hitt er efnið sjálft. Einar lýsir fádæma vel lífi og kjörum fólks í Reykjavík á öðrum tug aldarinnar, barnslegri og fagurri trú sinni, en jafnframt mannlegum breyskleika, - og dregur fátt undan. Trúlega er til góðs að nemendur hans frétta ekki fyrr en nú af prakkarastrikum lærimeistar- ans, þegar hann var sjálfur í M.R. Víst er að flestir þeirra sjá hann í öðru og enn skemmtilegra Ijósi en áður, eftir lestur þessarar bókar. Mörg lífsreynsla Einars á þessum ungdómsárum er lyginni líkust. Fasistar á Italíu ætla að ganga af honum dauðum. Hann er á „bísanurrT í suðlægum höfnum mánuðum saman og hann dvelst meðal Hafnarstúdenta, deilir með þeim kjörum og býsna skrautlegu líferni. Öllu er lýst eins og það kemur hraustum, íslenskum stúdent fyrir sjónir um leið og það gerist. Slíkt er eðli dagbóka. Að sjálfsögðu koma margir merkir landar við sögu, bæði þeir sem þegar voru það þá, og þeir sem síðar gerðu garðinn frægan. 416 bls., auk mynda Verð kr. 1.197,- GRÖFIN SKÆRGULA eítir Hans Hansen „Hann veit hvar sönnunargagnið liggur. Hann veit hver hinn seki er. Ennþá veit enginn að glæpur hefur verið framinn ... Héðan sér hann gröfina skærgulu. Hér sökkvir hann sér í hugsanir sínar. Gleymir sjálfum sér og hverfur aftur í tímann." Gröfin skærgula fjallar um unglinginn Andrés. Móðir hans er flutt að heiman. Hann og stjúpi hans búa einir í húsinu. Hann veit það eitt að hann sættir sig ekki við þetta ástand. En hvað hefur gerst? Enginn gefur honum neina skýringu. Hann verður sjálfur að finna hana og reyna að koma málunum í lag. En það getur orðið erfitt. Hver er Vívían? Þessi með blárauðu neglumar í himinbláu skónum? Og samtímis þessum torráðnu vandamálum fær hann sjálfur reynslu af ástinni. Það var Ijós í Blómabúð Vtvían. Fallegt bláleitt Ijós sem hafði kannski sérstök áhrif á blómin þegar þau sváfu. Andrés tyllti öðrum fæti á gangstéttarbrún- ina og horfði á kjallaragluggana. Hann tók sérstaklega eftir dyrunum að bakherbergi blómabúðarinnar. Dyrakarmur- inn var bogadreginn og marglitt strimlahengi fyrir. Það var Ijós þar inni. Flöktandi Ijós - ekki rafmagnsljós heldur kertaljós. Þá var hún þarna enn - Vívían. Og kannski var hún ekki ein ... Andrés fann undarlegan fiðring fara um sig allan. Einsog hann hefði ákveðið að gera eitthvað sem hann vildí ekki... 94 bls. Verð kr. 589,- UÓNH), NORNIN OG SKÁPURINN er skemmtileg og spennandi ævintýrabók. Fjögur Lundúnabörn, Pétur, Súsanna, Lúsía og Játvarður, dveljast úti í sveit. Þau rekast á leiðina til töfralandsins Narníu með því að fara í gegnum fataskápinn. „Þetta hlýtur að vera alveg óskaplega stór skápur,“ hugsaði Lúsía og hólt áfram og ýttl um leið mjúkum loðkápunum til hliðar. Þá heyrði hún eitthvað braka undir fótum sér. „Skyldu þetta vera mölkúlur," hugsaði hún og beygði sig niður og þreifaði fyrir sér með höndunum. En hún fann ekki harðan, slóttan viðinn í skápgólfinu undir fótum sér, heldur eitthvað mjúkt og ákaflega kalt. „Þetta er þó einkennilegt,** sagði hún og hélt ögn lengra áfram.“ Höfundur þessarar skemmtilegu ævintýrabókar, C.S. Lewis (1898-1963), var prófessor í Cambridge í Englandi. Hann var heims- frægur rithöfundur og þá ekki síst fyrir ævintýrabækur sínarsem hann skrifaði fyrir böm. 189 bls. Verð kr. 494,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.