Morgunblaðið - 14.12.1984, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984
55
bætur til lífsframfærslu var ekki
að ræða. Svo þau hjónin fluttu tii
barna sinna. Tryggvi fór til Jak-
obs sonar síns og konu hans Guð-
laugar Yngvarsdóttur, þar leið
honum vel og átti miklu ástríki að
mæta alla tíð í þau rúm 20 ár sem
hann bjó þar eða þar tii Guðlaug
andaðist 1979. Tryggvi hlaut nokk-
urn bata meina sinna og stundaði
vinnu nokkuð fram yfir sjötugt,
síðan fór hann til dóttur sinnar
Sigurlaugar og manns hennar,
Hauks Þórðarsonar í Grindavík
þar var hann í 5 yndisleg ár, naut
sæmilegrar heilsu og ferðaðist
með þeim norður á Þórshöfn þar
sem hann lifði upp í hugarheimi
sínum allt sem var og giaddi og
hryggði.
Þó að Tryggvi virtist fáskiptinn
og hlédrægur kunni hann vel við
sig í margmenni og hann var svo
lánsamur að heimiii barna hans
voru fjölmenn og gestkvæm. Hann
hélt nokkuð góðri heilsu að öðru
leyti en því að heyrnin var farin
að bila nokkuð. Sjónin var svo góð
að hann gat horft á sjónvarp gler-
augnalaust og var alltaf mættur í
stólinn sinn er fréttir hófust hvert
kvöld. Ég bjó í sama húsi og hann
í mörg ár og þó að börnin væru að
ærslast hastaði hann ekki á þau
hvað þá meir. Eitt sinn var hann á
okkar heimili í nokkra mánuði, þá
var hann svo undurgóður við börn-
in, einkum litla barnið, sem var
ársgamalt að ef hann kom ekki á
réttum tíma heim varð barnið
óhuggandi og ergilegt. Þetta sýnir
gæsku hans og gæði.
Hann andaðist í Keflavíkur-
spítala eftir fárra daga legu 4.
desember.
Friður Guðs veri með honum.
Hulda Pétursdóttir.
„Sofðu vært htnn síðasta blund,
uns hinn dýri dagur ljómar.
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund." (y.Br.)
I dag er kvaddur hinstu kveðju
Tryggvi Sigfússon, Staðarhrauni
22, Grindavík.
Tryggvi fæddist 2. nóvember
1892 á Völlum í Þistilfirði, sonur
hjónanna Sigfúsar Jónssonar og
Guðrúnar Guðmundsdóttur. For-
eldrar hans fiuttust með börn sín
til Þórshafnar nokkrum árum síð-
ar og þar ólst Tryggvi upp.
Á Þórshöfn kynntist Tryggvi
Stefaníu Kristjánsdóttur og gengu
þau í hjónaband og hófu búskap
þar. Börnin urðu þrettán talsins,
fjórar dætur og níu synir, en einn
dreng átti Stefanía áður. Lífsbar-
áttan var oft erfið eins og nærri
má geta, en börnin minnast þess
að alltaf var nóg til að borða.
Fjögur systkin dóu á bernsku-
skeiði, enda var ungbarnadauði al-
gengari þá en nú.
Ingólfur, bróðir Tryggva, bjó
ailtaf féiagsbúi með þeim hjónum
og reyndist hann Tryggva og fjöl-
skyldu hans mjög vel. Einnig
bjuggu á heimilinu um tima tveir
bræður Tryggva, Einar og Valdi,
og móðir þeirra sfðustu æviárin.
Ingólfur og Tryggvi ráku útgerð
frá Þórshöfn og Tryggvi stundaði
einnig búskap í hjáverkum. Á
vetrum unnu þeir bræður við ís-
töku og seldu færeyskum skútum
ísinn á sumrum.
Árið 1944 flutti fjölskyldan til
Reykjavíkur. Þau keyptu sumar-
bústað í Kópavogi og reistu þar
hús á Borgarholtsbraut 9 í félagi
við Alfreð, son Stefaníu. Þar
bjuggu þau uns Tryggvi slasaðist
og varð óvinnufær um skeið. Þá
brugðu þau búi og 1959 fór
GROHE
Ladylux - Ladyline:
- -r«(t
Nýtt fjölhnft heimllistœki ( eldhúsiö
RR BYGGINGAVÖIUJR HE
Tryggvi til Jakobs sonar síns og
Guðlaugar tengdadóttur sinnar í
Hólagerði 9 og dvaldi hjá þeim,
uns Guðlaug lést 1979. Þá flutti
hann að Staðarhrauni til Sigur-
laugar dóttur sinnar og tengda-
sonar síns Hauks, og hjá þeim bjó
hann til dauðadags, 4. desember
síðastliðinn. En Stefanía dvaldi til
skiptis hjá börnum sínum nema
síðustu árin bjó hún hjá Alfreð
syni sínum og Huidu konu hans í
Utkoti á Kjaiarnesi. Stefanía lést
árið 1981.
Ég kynntist Tryggva fyrir rúm-
um 30 árum, þegar ég kom inn í
fjölskyiduna. Þessi hógværi mað-
ur höfðaði ósjálfrátt til allra sem
höfðu af honum einhver kynni og
öilum þótti vænt um hann. Vil ég
þakka honum fyrir þá samfylgd
sem við áttum.
Einhvern veginn er það svo, að
þegar við hittum góða og vandaða
manneskju á lífsleiðinni þá styrkj-
umst við í trúnni á hið góða sem
gefur lífinu gildi og er ómetanlegt
til að lifa sáttur við sig og aðra.
„Far þú í friði, friður guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
ailt “ (V-Br.) Tengdad6ttir
Hjá okkur færou
London Lamb
r
HEIIDSÖLUVERU
Álfheimabúðin Nóatún Árbæjarmarkaðurinn
Álfheimum 4 Nóatúni 17 Rofabæ 39
@ 3 40 20
@ 1 72 61
S 7 12 00
VIÐ BIÖÐUM BETUR.
Alhúðuð pústkerfí
í Volvo 240
Verð aðeins 3800 kr.
ÞEIR VIÐSKIPTAVINIR
SEM TIL ÞEKKJA NOTA
EINGÖNGU „ORIGINAL" PUSTKERFI
UNDIR VOLVO-BÍLA SÍNA.
ÞAU ENDAST BEST OG PASSA
FULLKOMLEGA.
VARIST EFTIRLÍKINGAR,
SPARIÐ MEÐ „ORIGINAL"