Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 14.12.1984, Blaðsíða 72
E EUROCARD tffgtiiiMafeife BTT RDRT ALLS SIAfllAR OPIÐ ALLA DAGA FRA KL 11.45-23.30 -baslke/unn AUSTURSTRÆTI 22 INNSTRÆTI, SÍMI 11633 FOSTUDAGUR 14. DESEMBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. „Jólalömb" frá Hvamms- tanga komin í verslanir í DAG hefst sala á „jólalömb- um“ að norðan í verslunum Víðis í Keykjavík, meðal annars í stórmarkaði Víðis sem opnar í Mjóddinni í dag. Fyrr í vikunni var 40 lömbum slátrað í slátur- húsi Verslunar Sigurðar Pálma- sonar hf. á Hvammstanga og skrokkarnir fluttir ófrosnir suð- ur. Karl Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri Verslunar Sig- urðar Pálmasonar hf., sagði í samtali við Mbl. í gær að bænd- ur hefðu haldið eftir smálömb- um í haust með það fyrir augum að slátra þeim og selja kjötið ófrosið núna fyrir jólin. Þetta hefði verið gert í fyrra og fyrir páskana og gefist vel. Sagði Karl að í þessari viku hefði 40 lömbum verið slátrað og öðru eins yrði slátrað í næstu viku. Kjötið er selt um 10% dýrara en skráð verð er og sagði Karl að bændur fengju greiddar 139,75 kr. fyrir hvert kíló af 1. flokks kjöti. Morgunblaðið/Ævar Lára Dögg með sóleyna á Eskifirði LÁRA Dðgg á Eskifirði með sóleyna, sem hún fann ný- útsprungna í garðinum heima hjá sér á þriðjudag, en eins og sagt var frá í Mbl. í gær hafa Austfirðingar notið hvað mestrar veðurblíðu lands- manna það sem af er vetri. Morgunblaðið/Bjarni. Göngum við í kring um... Flugleiðir: Aætlunarflug til Salzburg FLUGLEIÐIR eru nú að ganga frá samningum um áætlunarflug til Salzburg í Austurríki, sem hefjast mun næsta vor. Að sögn Sigfúsar Erlingssonar, framkvæmdastjóra markaðssviðs Flúgleiða, er hér um að ræða fyrsta áætlunarflug Flugleiða til Austurríkis. Hefst það um mán- aðamótin maí-júní og verður flog- ið til Salzburg einu sinni í viku, á miðvikudögum, með viðkomu í Frankfurt í Þýskalandi. Kvaðst Sigfús telja að í Austur- ríki og Suður-Þýskalandi væri markaður sem hægt væri að nýta í sambandi við flutninga á ferða- mönnum þaðan til Islands. Sagðist hann jafnframt vonast til að Austurríkismenn veittu Flugleið- um heimild til að flytja farþega frá Bandaríkjunum til Salzburg um ísland. Norður-Kyrrahafsfiskyeiðiráðið: Leggur tíl 15 þús. lesta afla fyrir íslendinga á næsta ári Á FUNDI Norður-Kyrrahafsfiskveiðiráósins á norðausturströnd Bandaríkj- anna í Ancborage í Alaska fyrir skömmu var samþykkt að leggja til að íslendingum verði úthlutaður 15.000 lesta aflakvóti, 10.000 lestum af þorski og 5.000 lestum af Alaska-ufsa á komandi ári. Ennfremur er talið, að lagt verði til að íslendingum verði boðnar einhverjar veiðiheimildir við austur- strönd Bandaríkjanna. Það er síðan hiutverk sjávarútvegsráðuneytisins í Washington að taka endanlega ákvörðun I málinu. Ekki er Ijóst hvort íslendingar notfæra sér þessar heimildir, en að sögn Finns Ingólfssonar, aðstoðarmanns sjávarútvegsráðherra, er Ijóst að möguleikar á því eru fyrir hendi, en arðsemi veiða vestan hafs hefur enn ekki verið reiknuð út. Finnur Ingólfsson sat fyrir skömmu fyrrnefndan fund ásamt fleirí Islendingum og sagði hann að þar hefði ráðið kallað fyrir alla þá aðila, sem eru í fiskveiðisam- starfi á því svæði og kannað fram- gang mála. Hefði þar margt mjög athyglisvert komið fram. Á þess- um fundi hefði ennfremur ástand fiskistofna verið metið og tillögur gerðar til sjávarútvegsráðuneytis Bandaríkjanna um aflamagn og úthlutun aflakvóta. Meðal niður- staðna ráðsins hefði verið að mæla með 15.000 lesta aflakvóta til handa íslendingum. Finnur sagði, að á fundi þessum hefði komið fram, að Spánverjar hefðu eftir fiskveiðiheimildir við vesturströnd Bandaríkjanna framleitt saltfisk, sem spánski markaðurinn hafi viðurkennt. Þetta væri athyglisvert og gæti haft veruleg áhrif á saltfisksölu okkar til Spánar. Þá hefði íslenzka sendinefndin komizt í samband við aðila, sem tengdust loðnuveið- um, og hefðu þeir lýst áhuga á því að fá íslendinga til rannsóknar- starfa á því sviði. Á sviði rann- sóknarstarfa við fiskveiðar virtust vera talsverðir möguleikar á þátt- töku tslendinga. Þá virtist einnig sem bandarískum aðilum fyndist hlutur Japana og Kóreumanna og áhrif þeirra vera orðin of mikil og Tekjutap rfkissjóðs frá 1982: Fjórir milljarðar kr. Skattalækkanir 1.200 m.kr. á verðlagi fjárlaga 1985 Á þremur árum, 1982—1985, hefur innheimtuhlutfall ríkissjóóstekna lækkaó um 4,2% í hlutfalli af þjóðarframleióslu. Þessi mismunur þýðir fjóra milljarða króna, sem áætlaóar innheimtar tekjur ríkissjóós 1985 rýrna um, ef mióaó er við framreiknaða þjóóarframleióslu og tekjustofna ríkissjóós frá 1982. Þetta kom fram í máli Pálma Jónssonar, formanns fjárveitinganefnd- ar, við aóra umræðu fjárlaga í gær. Formaður fjárveitinganefndar taldi að þessi tölulegi samanburð- ur sýndi, að ríkisbúskapurinn hefði axlað að sínum hluta skerð- ingu þjóðarframleiðslu, sem dreg- izt hafi saman um 12% á mann á þremur árum. Skattalækkanir, sem ríkissjóður hafi tekið á sig, samsvari á verð- lagi fjárlaga næsta árs, 1.200 m.kr. og hefur þá ráðgerð 0,5% söluskattshækkun verið reiknuð inn í dæmið. Hinsvegar ekki skattalækkun til atvinnurekstrar, ekki ráðgerð 600 m.kr. tekju- skattslækkun og ekki ráðgerð 450 m.kr. endurgreiðsla söluskatts til sjávarútvegsins. Sjá nánar sagt frá annarri umræðu fjárlagafrumvarps á bls. 38. legðu því áherzlu á að fá Islend- inga til samstarfs til að losna und- an þrýstingi þessara þjóða. Á fundinum hefði verið samþykkt sú tillaga að fella niður beinar veiði- heimildir erlendra þjóða í Alaska- flóanum, sem meðal annars þýddi að veiðiheimildir Japana væru skornar niður um 600.000 lestir. Finnur sagði, að of snemmt væri að fullyrða, að fslendingar ættu raunhæfa möguleika á fisk- veiðisamstarfi við Bandaríkja- menn. Við hefðum fengið mikið af upplýsingum, sem ætti eftir að vinna úr, og margt ætti eftir að kanna. Hins vegar gætu opnazt miklir möguleikar fyrir okkur á sviði rannsókna. Vegna áætlana um mikla aukningu í sjávarútvegi í Bandaríkjunum, væri fáránlegt ef tslendingar íhuguðu ekki mögu- leika á þátttöku í uppbyggingunni. Ljóst væri, að þetta væri ekki úti- lokað og ennfremur hefðu aðilar vestra lýst áhuga á kaupum á ís- lenzkum fiskiskipum. Þessi möguleiki yrði ekki til þess að leysa vanda sjávarútvegs- ins hér heima. (Jt úr þeim vanda yrðu menn að vinna sig sjálfir. Hins vegar væri þetta hluti af miklu stærra dæmi, sem sjávarút- vegsráðherra væri að vinna að og snerist um öflun veiðiheimilda í lögsögu annarra ríkja. Sjólastödin kaupir íshús Hafnarfjarðar í FYRRAKVÖLD var gengið frá eig- endaskiptum á eignum íshúss Hafn- arfjarðar hf. og Portlands hf. í Hafn- arfirði. Sjólastöðin hf. f Hafnarfirði keypti eignir þessara hlutafélaga sem eru hraðfrystihúsið f Hafnarfirði og skuttogarinn Otur. Eigendur hlutafélaganna eru börn Ingólfs Flygenrings og Þórar- ins Egilsson og fleiri. Ágúst Flyg- enring, framkvæmdastjóri, sagði f samtali við Mbl. að afhending eign- anna færi fram eftir áramót og yrði þá gengið frá kaupverði. Ágúst sagði um ástæður sölunnar að hlut- abréfin væri komin í hendur margra og hefði hluti eigendanna viljað selja sína hluti. Meðal ann- ars af þeim ástæðum hefði orðið að ráði að selja fyrirtækið. Ishúss Hafnarfjarð ar hf. er aðili að Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna en Sjólastöðin selur framleiðslu sfna fyrir milligöngu SlS. Jón Guð- mundsson framkvæmdastjóri Sjólastöðvarinnar hf. sagði að þessi kaup væru nýtilkomin og því ekki búið að ákveða hvernig rekstrinum yrði hagðað og þar með sölumálun- -um, þegar hann var spurður hvort áformaðaðar væru breytingar á sölufyrirkomulaginu eftir eigenda- skiptin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.