Morgunblaðið - 04.01.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANtJAR 1985
Sendibílar
á Stein-
dórsplanið
f FRAMTÍÐINNI munu sendibílar
hafa aðsetur á plani bifreiðastöðvar-
innar Steindórs, á horni Hafnar-
strætis og Aðalstrætis, ásamt leigu-
bílunum, sem þar hafa verið undan-
farna áratugi. Sendibflar hf. hafa
fengið leyfi til þess að staðsetja bfla
sína þar hjá borgaryfirvöldum, en
sömu eigendur eru að Sendibflum
hf. og Steindóri.
Guðmundur Ásmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sendibíla hf., sagði
ekki ennþá hafa verið tekna
ákvörðun um það hversu marga
bíla stöðin myndi reka, en stöðin
hefði ekki verið í rekstri síðan
1979. Hann sagði rekstur sendibíla
ekki vera háðan sömu takmörk-
unum og rekstur leigubíla, sendi-
bifreiðastjórar hefðu ekki náð
sömu einokunaraðstöðu og leigu-
bifreiðastjórum hefði tekist að ná
á sínu sviði.
„Reksturinn er í undirbúningi.
Við ætlum að bíða og sjá hvað
kemur út úr þeirri reglugerðar-
breytingu, sem í undirbúningi er
um leigubílaakastur af nefnd
þeirri sem ráðherra skipaði eftir
Hæstaréttardóminn, sem gekk
gegn bifreiðastöð Steindórs. Við
væntum þó ekki mikils úr þeirri
átt, þar sem að í nefndinni eru
tveir leigubílstjórar af þeim þrem-
ur, sem eiga sæti í nefndinni,"
sagði Guðmundur.
„Ég býst við að fólk hafi fengið
að kynnast því að undanförnu um
jól og áramót hvernig þetta kerfi
er í raun, þegar mjög erfitt hefur
verið að fá bíla. Það ríkir alger
stöðnun, það er ekkert sem kallar
á hagkvæmni í þessum rekstri og
hagur neytenda er því fyrir borð
borinn," sagði Guðmundur enn-
fremur.
INNLEN'T
Vörukynning HUdibranda, brauórist sýnd og anglýsL
Einar Ottó var krýndnr knnttapyrnnkóngur með forláta kórónu, en lengst
til hægrí er Ásgeir Signrvinaaon, knattspyrnumaður Þýskaiands.
Hildibrandar fóru í sUerstu nærbuxur ( heimi til þess að hylja nekt sína fyrir Hólagötufrúnni sem kerði þá
félaga fyrir baðstrandartilþríf á sínum tíma og Hæstiréttur komst í málið og beitti sektarákveðum, en sagt er að
Hólagötufrúin hafi kert vegna þess að sýningarfiokkur Hildibranda hafði neitað að sýna á sér þá hliðina sem
frá frnnni sneri. Addi í Seglagerðinni Ægi saumaði nerbuxurnar góðu. Morgunbiaðið/sigurgeir i Skuid.
Morgunbladiö/Sigurjfeir Jónasaon.
Heiðmundi Sigurmundssyni heild-
sala með fyrsta heiðursfélaga-
skírteini Hildibranda.
Hildibröndum var ferð í afmel-
isgjöf blesgesin frk. Júlía, en það
var Árni Johnsen alþingismaður
sem ferði fyrirtekinu gjöfina með
þeim orðum að vel ferí á því að
Blesgesin minnti þá félaga á lög
og rétt eins og grágesin er merki
laganema Orators.
Jón Páll og Ásbjtfrn formaður
stela kroppa og má ekki á milli
sjá, en Jón Páll snerí Ásbirni eins
og þyrluspaða eftir að formaðurinn
hafði ekki einungis „lagt“ Jón Pál
í sjómanni, beldur einnig borðið og
stólinn sem kempan sat við og
hafði auðsjáanlega gaman af.
500 gesta
afmœli
Hildibranda
í Eyjum
Hildibrandar í Vestmannaeyj-
um héldu upp á 5 ára afmeli
fyrirtekisins og íþróttafélagsins
milli jóla og nýárs fyrir fullu sam-
komuhúsi Vestmannaeyja, voru
þar um 500 gestir. Var þar ýmis-
legt til gamans gert að hetti
Hildibranda og fór dagskráin hið
besta fram, enda Foreldrafélag
fyrirtekisins viðstatt. Meðal dag-
skráratriða var heimsmet í ner-
buxum, knattspyrnukóngur Hildi-
branda, vörukynning á nýstár-
legan hátt, keppni í sjómanni
milli Jóns Páls kraftajötuns og
formanns Hildibranda, Ásbjörns
Garðarssonar, en að launum fyrir
heimsóknina ferðu Hildibrandar
Jóni Páli einn skrokk af lamba-
kjöti auk nokkurra tuga af kjöti
og afmelisgestir slógu saman í á
annan tug þúsunda til þess að
styrkja Jón Pál til Svíþjóðarfarar
í kraftakeppni þar. Að lokinni
tveggja klukkustunda dagskrá
var stiginn dans fram eftir nóttu
að hetti Hildibranda.
Frjálst framtak kaup-
ir Fiskifréttir:
Guðjón Ein-
arsson ráð-
inn ritstjóri
Útgáfufyrirtekið Frjálst fram-
tak hf. hefur keypt blaðið Fiski-
fréttir af samnefndu hlutafélagi.
Jafnframt hefur Guðjón Einarsson
fréttamaður verið ráðinn ritstjóri
blaðsins, en hann byrjar innan
skamms í eins árs leyfi hjá sjón-
varpinu.
Fiskifréttir heitir vikublað
sem hóf göngu sína fyrir tæplega
tveimur árum og hefur flutt al-
hliða fréttir úr sjávarútvegi og
fiskvinnslu. Ritstjóri frá upphafi
hefur verið Þórleifur ólafsson.
Hann verður ritstjóri þar til
Guðjón Einarsson
Guðjón tekur við blaðinu, sem
væntanlega verður um mánaða-
mótin febrúar/marz.
Frjálst framtak hf. gefur nú
út 12 tímarit og blöð og auk þess
fyrirtækjaskrána íslenzk fyrir-
tæki.
Erfiðlega gengur að
manna ráðunautastöðurnar
Horfir til vandræða á Vesturlandi
Að undanförnu hefur gengið erfið-
lega að manna héraðsráðunautastöð-
ur úti um land og horfir sums staðar
til vandreða af þeim stfkum að sögn
Jónasar Jónssonar búnaðarmála-
stjóra. Eru nú lausar um 8 af 40
béraðsráðunautastöðum í landinu.
Verst er ástandið á Vesturlandi.
Enginn ráðunautur er I Dalasýslu,
önnur eða báðar stöðurnar á Snæ-
fellsnesi eru lausar, ein af þrem í
Borgarfirði og á Kjalarnesi er
enginn ráðunautur. Þá vantar
ráðunauta á Suðurlandi og í Þing-
eyjarsýslum. Aðspurður um
ástæður þessa skorts á ráðunaut-
Björgunarsveitin OK í Borgarfirði:
Afla fjár til bflakaupa með bögglauppboðum
Borgarfirói, 3. janúar.
JÓLAHALD var með líkum hetti í
Borgarfirði og annars staðar á land-
inu. Jólamessur voru fluttar og jóla-
dansleikir víða haldnir. Þar hittust
þeir, sem eru fjarri heimahögum yfir
veturinn við nám og önnur störf.
Á nokkrum dansleikjanna voru
haldin bögglauppboð til ágóða fyrir
björgunarsveitina Ok í Borgarfirði
en hún er að kaupa hópferðabifreið
af sérleyfishafanum Sæmundi Sig-
mundssyni í Borgarnesi. Kemur
þessi bifreið í góðar þarfir þegar
björgunarsveitin þarf að fara
eitthvað út fyrir héraðið til hjálp-
ar- og leitarstarfa, því þá geta allir
sameinast um einn bíl.
Sérleyfishafinn verður fiinmtug-
ur nú á harla öndverðu þessu ári.
Er vonandi að Sæmundar og hans
bifreiða njóti áfram um ókomna
um sagði Jónas að hann væri ekki
að fullu ljós. Það gætu verið kjörin
en einnig hefði á það skort að
nægilegt framboð væri af búvís-
indamönnum. Sagði hann að reynt
væri að svipast um eftir mönnum
í störfin en ekki hefði verið farið
út í að ráða menn án búvísinda-
menntunar.
Jónas sagði að þetta ástand
væri ákaflega bagalegt fyrir bún-
aðarsamböndin. Talað hefði verið
um að leysa hluta vandans með
meiri samvinnu búnaðarsamband-
anna eins og gert hefði verið á
Norðurlandi. Lagði hann áherslu á
að störfin væru þess eðlis að þau
þyrfti að vinna, ekki væri hægt að
fresta þeim nema að litlu leyti né
láta þau falla niður og hefðu því
formenn búnaðarsambandanna og
einstakir bændur sinnt hluta
starfanna á meðan óráðið væri í
stöðurnar.
áratugi, svo sem verið hefur, og er
Sæmundi þökkuð þjónusta hans við
Borfirðinga undanfarna áratugi, og
þeir þekkja er hafa þurft að komast
héðan úr héraðinu til Reykjavíkur
og Akraness undanfarna áratugi og
notið hans ágætu þjónustu.
Færð var ólíkt betri í Borgarfirði
nú um jól og áramót þar sem ekki
hamlaði ófærð eins og var í fyrra.
— pÞ
Vinsældalisti rásar 2:
Frankie og Kiss
nýir á listanum
LITLAR breytingar urðu á efstu
sætum vinsældalista rásar 2, sem
kynntur var í gerkvöldi. Þá voru
leikin tíu vinsælustu lögin meðal
hlustenda rásarinnar vikuna 4.—10.
janúar en á sunnudaginn verða leik-
in 20 vinsælustu lögin frá kl.
16—18.
Listinn lítur svona út (staða
laga i síðustu viku innan sviga):
1. (1) Last Ckristaus---
2. (2)DoThejKnow--------
3. (4) Oae Night in Bangkok
4. (6) Heartbeat -------
5. (3) The WUd Bojs ----
*■ (S) Love Is Love
----- Whaml
— BandAid.
Mnrray Head.
Whaml
Dnraa Dnran.
_________________________ Cnltnre Clnb.
7. (3) Mér finnst rigaingin góð ---Graíik.
S. (*) The Never Ending Story
9. (—) The Power of Lore Fraakie Goes...
10. (—) Heaven's on Fire ---------- Kiss.